Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1997, Page 8
8
FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 1997
Líkamsrækt
SMIÐJUVEGI 1 • 200 KOPAVOGI
SMIÐJUVEGUR 1 ■ 200 KOPAVOGUR
SÍMI: 554 3040
SIMI: S54 3040
og 554 3026 GSM 895 0795
Fullkominn tækjasalur
8 vikna lokað fitubrennslunámskeið aðskildir
hópar fyrir konur og karla.
Mæling, vigtun, fitumæling, fyrirlestur, matarlistar.
Bolur, ljós og annar
Leiðbeinendur: Ragna Bachmann, Heilpraktíker,
Einar Vilhjálmsson, lífeðlisfræðingur.
W
ViX>V
Ufsstíu
rt\egur
Ndsr‘ngarlegt
MfriVcegj
Stuttar fréttir
Útlönd
Tengdafaðir handtekinn
Tengdafaðir Benazir Bhutto,
fyrrum forsætisráðherra Pakist-
ans, var handtekinn í nótt. Eig-
inmaður Bhutto er einnig í
haldi yfirvalda.
Verkföll á ný
Tvö helstu verkalýðsfélög S-
Kóreu ætla að boða til verkfalls
á ný innan fárra daga.
Belgar bjartsýnni
Belgíska þjóðin er bjartsýnni
á komandi ár en hún var á sama
tíma í fyrra, þrátt fyrir barna-
níðingshneykslin sem skóku
samfélagið á síðari helmingi
1996.
Juppé burt
Alain Juppé, forsætisráðherra
Frakklands, á ekki sjö dagana
sæla um þessar
mundir því
meirihluti
þjóðarinnar
gerir sér vonir
um að hann
missi embættið
á nýbyrjuðu
ári, að því er
fram kemur í
skoðanakönnun sem birtist í gær.
Frakkar með evro
Meirihluti Frakka er fylgjandi
sameiginlegri mynt Evrópusam-
bandsins. Reuter
Hunsa bann yfirvalda
Þúsundir stjórnarandstæð-
inga í Belgrad efndu til mót-
mæla þrátt fyrir bann yfirvalda.
Dæmdir til dauða
Herdómstóll í Líbýu hefur
dæmt sex liðsforingja og tvo
óbreytta borgara til dauða fyrir
njósnir.
Hvetur til íhugunar
Vaclav Havel, forseti Tékk-
lands, hvatti landa sina til íhug-
unar um gildi
lífsins og
dýpri skiln-
ings á sameig-
inlegum mark-
miðum í
nyarsavarpi
sínu. Sagði
hann fráfall
eiginkonunn-
ar og veikindi sín hafa leitt til
þess að hann hafi öðlast dýpri
skilning á heiminum sem við lif-
um í.
Gíslum sleppt
Fimm pólskum ferðamönn-
um, sem voru í haldi sérstaks
ættbálks í Jemen yfir hátíðarn-
ar, hefur verið sleppt.
Flokkar sameinist
Jiang Zemin, leiðtogi Komm-
únistaílokks Kína, hefur hvatt
stjórnarflokkinn í Taívan og
stjórnarandstöðuflokkinn til að
koma með tillögur um samein-
ingu flokkanna.
Sjómönnum bjargað
Japanir björguðu í morgun 31
sjómanni af rússnesku olíuskipi.
Sjómennirnir fundust á reki í
björgunarbátum.
Hermaður skotinn
Rússneskur hermaður fannst
skotinn til bana í Dushanbe, höf-
uðborg Tadsjikistan, í gær.
Heimskuleg yfirlýsing
San Suu Kyi, leiðtogi stjómar-
andstöðunnar í Burma, segir yf-
irlýsingar
stjórnvalda
um að þau tak-
marki ferðir
hennar vegna
hennar eigin
öryggis
heimskulegar.
Suu Kyi þarf
að gera yfir-
völdum grein fyrir ferðum sín-
um innan Rangoon. Yfirvöld
ákveða einnig hverjir fá að fara
fram hjá vegatálmum við götu
hennar.
Rætt um Hebron í átta stundir eftir skotárás á markaöstorgi:
veg fyrir samkomulag
Israelskur lögregluþjónn stumrar yfir særöum Palestínumanni til aö kanna hvort hann er enn á lífi eftir skotárás ísra-
elsks hermanns á markaðstorgi í bænum Hebron í gær. Sjö Palestínumenn hlutu sár í skothríöinni.Símamynd Reuter
Samningamenn tsraela og Palest-
ínumanna leystu flest ágreiningsmál
sín sem hafa tafiö fyrir samkomulagi
um brottflutning israelskra her-
manna frá Vesturbakkabænum
Hebron í viðræðum í gær. Að sögn
embættismanna eru samt miklar
líkur á að fundur leiðtoga þjóðanna
til að innsigla samkomulagið verði
haldinn siðar í dag.
„Aðeins eitt mál er enn óleyst og
eftir það verður ákveðið með leið-
togafund," sagði Mahmoud Abbas,
aðalsamningamaður Palestínu-
manna, við Reuters-fréttastofuna og
átti þar við fund þeirra Yassers Ara-
fats, forseta Palestínumanna, og
Benjamins Netanyahus, forsætisráð-
herra ísraels.
Samningaviðræðumar í gær voru
haldnar í skugga voðaverks í Hebron
þar sem ísraelskur hermaður á frí-
vakt hóf skothríð á markaðstorgi og
særði sjö Palestínumenn, þar af tvo al-
varlega. Hermaðurinn, hinn 22 ára
gamli Noam Friedman, vildi með
þessu gera sitt til að koma í veg fyrir
að yfirráð yfir Hebron færðust til
Palestínumanna. Aðrir hermenn yfir-
buguðu Friedman þegar hann hafði
tæmt eitt skothylki í M-16 rifQi sínum.
Friedman var klæddur að hætti
heittrúaðra gyðinga þegar hann
framdi voðaverkið og þegar hann var
kominn undir manna hendur glotti
hann og skók hnefann. Bill Clinton
Bandaríkjaforseti og leiðtogar Israels
fordæmdu skotárásina.
Mahmoud Abbas ræddi við
Yitzhak Mordechai, varnarmálaráð-
herra ísraels, í rúmar átta klukku-
stundir í gærkvöldi og fram á nótt til
að reyna að koma saman samkomu-
lagi sem kveður á um að ísraelsmenn
afhendi Palestinumönnum yfirráð
yfir 80 prósentum Hebron.
Friedman lýsti því yfir við ísra-
elska sjónvarpið að Hebron væri
borg gyðinga og vísaði i sögu úr Bibl-
íunni þar sem Abraham keypti Patr-
íarkahellinn. Hellir þessi er helgur
staður bæði múslíma og gyðinga og
þar voru 29 múslímar drepnir af ísra-
elskum landnema fyrir þremur
árum. Reuter
Eitt mál kemur enn í