Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1997, Qupperneq 7
MIÐVKUDAGUR 15. JANÚAR 1997
7
DV Sandkorn
Vitlaus kona
í Fréttabréfi Önfirðingafélagsins,
sem kom út á dögunum, er þáttur
sem heitir Önfirð-
ingurinn „heima“
inn við beinið. Sig-
riður Hagalínsdótt-
ir segir þar sögu af
þvi að Hjördis á
Mosvöilum hafi
eitt sinn haldið
fræga ræðu á Al-
þingi þar sem hún
ræddi um áfengis-
neyslu. Þáverandi
biskup íslands
hreifst af ræðunni og sagðist ætla að
þakka Hjördísi ræðuna með kossi ef
hann hitti hana. Sumarið eftir var
hann að vísitera á Vestfjörðum. Eftir
messu í Holtskirkju var haldið kaffi-
samsæti sem kvenfélagskonumar
sáu um. Þegar gestir voru gengnir út
settust konumar niður tU að hvíla
sig. Rebekku á Kirkjubóli var létt
um mál og stóð úti á gólfi i miðri
frásögn þegar biskup kemur inn í
íylgd nokkurra heimamanna. Þegar
biskup sá Rebekku vatt hann sér að
henni og smellkyssti hana og þakk-
aði ræðuna góðu í þeirri vissu að
hún væri Hjördís varaþingmaður.
Rebekka snarþagnaöi en Björgmund-
ur á Kirkjubóli tók hart viöbragð og
hrópaði upp yfir sig: „Nei, þetta er
ekki Hjördís, þetta er vitlaus kona.!“
Eins og Onassis
Fyrsta togaranum sem þeir Sam-
heija-frændur keyptu var gefið
nafnið Akureyrin
EA. Einn þre-
menninga, Þor-
steinn Vilhelms-
son, tók við skip-
stjóminni og gekk
mjög vel enda á
leið með að verða
einn besti fiski-
skipstjóri lands-
ins. Næsti togari
sem þeir frændur
keyptu fékk nafn-
ið Margrét EA. Þá fóm menn svona
að Hta við eins og sagt er og spurðu
hvað væri að gerast hjá þeim
frændum. Ásgeir Guðbjartsson,
skipstjóri og einn aðaleigandi Guð-
bjargar ÍS, hefur lengi verið talinn
kóngurinn í hópi togaraskipstjóra.
Þegar Samherji keypti Margréti EA
hafði hann samband við Þorstein,
skipstjóra á Akureyrinni, á opinni
bylgju í talstöðinni og heyrðu marg-
ir samtaUð. „Þú ert að veröa stór-
karl, Steini," sagði Ásgeir. „Nei,
nei," svaraði Þorsteinn, hógvær og
ekki orðmargur að vanda. „Þú ert
bara að verða eins og skipakóngur-
inn Onassis," sagði Ásgeir og hló en
Þorsteinn sagði fátt. Tíu árum siðar
hafði Þorsteinn og félagar hans i
Samherja yfirtekið Ásgeir og Guð-
björgina og bætt þar við 18. fiski-
skipi sínu.
Óvæntur glaðningur
Ragnar M. Traustason tannlækn-
ir hefúr lengi verið í hópi gjalda-
hæstu manna í
Reykjaneskjör-
dæmi. Ragnar er
Vestfirðingur og
hann ákvað fyrir
nokkrum árrnn að
fjárfesta fyrir vest-
an og keypti tvo
báta á Suðureyri,
Trausta ÍS og
Bám ÍS. Sagan
segir að Ragnari
verði flest að gúUi
og svo fór með þessa fjárfestingu
sem flestir glottu að á sinni tíð. í
fyrra var línutvöfóldunin afnumin
og helmingur hennar færður sem
kvóti tU bátaeigenda. Sömuleiðis
var steinbitur settur undir kvóta.
Þegar aflareynsla báta Ragnars var
metin kom í ljós að þeir fengu
kvóta að verðmæti um 150 miUjónir
króna. Um þetta hafði Ragnar enga
hugmynd þegar hann keypti bátana.
Biblíukaflinn
I bókinni Þeim varð aldeUis á í
messunni segir frá því að séra Pét-
ur Þ. Ingjaldsson
hafi eitt sinn tekið
þátt í spuminga-
keppni. Var þá
lesinn upp kafli
úr Biblíunni og
áttu þátttakendur
að þekkja úr
hvaða bók kaflinn
væri tekin. Séra
Pétur var skjótur
tU svars og neftidi
bókina Ástir sam-
lyndra hjóna. Þá var þessi vísa ort:
1 guðsorðalestri á gati hann stár,
þetta gáfnafjós kirkjunnar þjóna.
Aftur á móti er’ann afburöa klár
f Ástum samlyndra hjóna.
Umsjón Sigurdór Sigurdórsson
Fréttir
Heilsuátak DV, Bylgjunnar og World Class:
Fólk „frelsast"
á reykinganámskeiði
- Allen Carr talar til vilja fólksins
„Ein sterkasta aðferðin við að
hætta að reykja er viljinn. Bókin
Létta leiðin til að hætta reykingum
eftir Allen Carr (útgefin af Fjölva
’93) er mjög athyglisverð en við höf-
um fylgt eftir einstaklingum sem
hafa lesið þessa bók og hætt að
reykja við lestur hennar," sagði
Ingileif Ólafsdóttir, fræðslufúlltrúi
hjá Krabbameinsfélaginu. „Höfúnd-
urinn, Allen Carr, er með margar
meðferðarstofhanir í Bretlandi og
víðar og talar til vilja fólksins.
Hann segir því að láta ekki selja
sér eitthvað til að hætta að reykja
heldur hreinlega hætta,“ sagði
Ingileif.
Reykti 100 sígarettur á dag
Sjáifúr reykti Carr 100 sígarett-
ur á dag áður en hann hætti og
bókin fjallar um það hvemig hann
fór að því. Hann hefúr einnig hald-
ið íjölmörg námskeið fyrir reyk-
ingafólk og lofar yfir 90% árangri.
Hann kemur einnig
inn á hvemig þeir
friða sjálfa sig þegar
þeim mistekst. Það
undarlega gerðist að
fólk stóð upp í lok
námskeiðsins og hrein-
lega frelsaðist, henti sí-
garettupakkanum út í
hom og hara „hallelúja“, ég er
hætt(ur) að reykja. Þetta var mjög
skemmtileg lífsreynsla," sagði Ingi-
leif.
Viljinn er veikur en
skilaboöin skýr
Hún sagði flesta hætta sjálfa þeg-
ar þeir væra tilbúnir til þess. „Það
era til mörg dæmi um stórreykinga-
menn sem allt í einu drepa í sinni
síðustu sígarettu og hætta með það
sama. Þetta er spuming um að taka
bara ákvörðun því þó að skilaboðin
séu skýr er viljinn veikur,“ sagði
Ingileif.
-ingo
TM
09 húgletfela
0,5
5 0,4
0,2
0
N = 12
N = fjöldi meðferðarhópa
Forvamar-
fræðsla
N = 40
- mismunandi aöferöa viö aö minnka reykingar -
Nikótín-
plástrar/
tyggjó
Einka-
ráðgjöf frá
ráðgjafa
eða lækni
N = 20
N = 24
Óhefðbundnar
aðferðir (slökun,
nálarstunga,
dáleiðsla)
Leiðbeininga-
N = ll N = 24
-....... ÍTOW
Fólk „frelsaöist"
„Við fórum tvær frá Krabba-
meinsfélaginu á námskeið hjá hon-
um í London og hann taldi okkur
því vera reykingamann-
eskjur. Hann tekur tíu á
hvert námskeið og
þarna strompreykti fólk
svo maður sat í reykjar-
mekki. Hann kann allar
þessar afsakanir sem
reykingamenn nota til
að blekkja sjálfa sig og
sannfæra um að þeir
ætli að byrja á morgun.
Reykti einn Camelpakka á dag í rúm 20 ár:
Las bók og
hætti aö reykja
- sumir veigra sér við að lesa síðustu síðumar
Húsbréf
Innlausnaiverð
húsbréfa
Högni hætti að reykja á hálfum mánuöi, eftir aö
hafa reykt í rúm 20 ár. Bók Allens Carrs gerði út-
slagiö.
Eg hætti að reykja
þegar ég var búinn með
bókina. Hún byggði
hægt og rólega upp vilj-
ann til að hætta, jafnvel
þó að ég hefði ekkert
ætlað að hætta þegar ég
hóf lesturinn," sagði
Högni Högnason bif-
vélavirki sem las i
fyrra bók AUens Carrs,
Létta leiðin til að hætta
reykingum.
Högni var þá búinn
að reykja 1 pakka af
Camel á dag í rúm 20 ár
og hafði aldrei reynt að
hætta fyrr. „í bókinni
er manni sagt að halda
áfram að reykja á með-
an lesturinn stendur
yflr. Svo drepur maður í þegar mað-
ur er búinn með síðustu blaðsíðuna.
Það tók mig um hálfan mánuð að
lesa bókina því maður þarf aöeins
aö velta þessu fyrir sér á meðan á
lestrinum stendur, þ.e. íhuga hvem
kafla. Ég hef heyrt að sumir veigri
sér við að lesa síðustu blaðsíðumar
til að þurfa ekki að hætta að reykja.
Sálfræðin er svo sterk að fólki
finnst það vera að svíkjast um ef
það ekki hættir," sagði Högni.
Hann taldi aðrar aðferðir við að
hætta að reykja, s.s. nálarstungur
og lyf, ekki gefa sama árangur því
þá byggði fólk ekki upp vilja fyrir
því að hætta heldur hætti e.t.v. af
hálfum huga vegna utanaðkomandi
þrýstings. Aðspurður sagði hann að
það myndi ekki saka að lesa bókina
aftur eftir að maður væri hættur til
að „byggja mann upp í trúnni" en
það hefúr ekki hvarflað að Högna að
byija aftur. „Mér fannst bjöminn
eiginlega vera unninn þegar ég var
búinn að taka ákvörðun um að
hætta.“
Hann sagði Carr spila mikið á
heilbrigða skynsemi og að það væri
ekkert sem héti töfralausn. Einn
kafli bókarinnar fjallar t.d. um allt
sem mælir með því að reykja en
undir fyrirsögninni er blaðsíðan
auð. Högni taldi bókina höfða til
allra og mælti eindregið með henni.
-ingo
Frá og með 15. janúar 1997 hefst innlausn á
útdregnum húsbréfum í eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1991
3. flokki 1991
1. flokki 1992
2. flokki 1992
1. flokki 1993
3. flokki 1993
l.flokki 1994
1. flokki 1995
1. flokki 1996
2. flokki 1996
3. flokki 1996
- 20. útdráttur
-17. útdráttur
-16. útdráttur
-15. útdráttur
-11. útdráttur
- 9. útdráttur
- 8. útdráttur
- 5. útdráttur
- 2. útdráttur
- 2. útdráttur
- 2. útdráttur
Innlausnarverðið er að finna í Morgunblaðinu,
miðvikudaginn 15. janúar.
Upplýsingar um útdregin húsbréf liggja frammi
í Húsnæðisstofnun ríkisins, á Húsnæðis-
skrifstofunni á Akureyri, í bönkum, sparisjóðum
og verðbréfafyrirtækjum.
cSg húsnæðisstofnun ríkisins
Lj HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24-108 REYKJAVÍK • SÍMI 569 6900