Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1997, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 1997
11
PV________________________________________________________________________________Fréttir
Húsnæðisnefnd Akraness:
Krefst skýrslu frá forstjóra
Húsnæðisstofnunar ríkisins
DV, Akranesi:
Húsnæðisnefnd Akraneskaup-
staðar hefur síðustu ár í samvinnu
við bæjaryflrvöld á Akranesi og
Húsnæðisstofnun rikisins leitað
leiða til að fjármagna endurbætur á
Höfðabraut 14-16 á Akranesi sem er
eitt elsta fjölbýlishúsið á þar.
Leitað var til húsnæðisstofnunar
til að kanna hvort hún hefði ein-
hverjar leiðir til að fjármagna end-
urbæturnar en þær eru griðarlega
miklar.' Húsnæðisstofnun svaraði
erindinu nýlega. í svarinu kom
fram að hún hefði engar úrbætur til
lausnar. Akraneskaupstaður á
meirihluta íbúða í fjölbýlishúsinu
og í ljósi svarsins samþykkti nefnd-
in að segja upp leigusamningum við
alla leigjendur ffá næstu mánaða-
mótum með sex mánaða fyrirvara
þannig að búið verði að rýma allar
íbúðimar fyrir 1. júlí 1997.
Jafnframt verði leitað leiða til
samninga við þá einstaklinga sem
enn eru eigendur að íbúðum í
blokkinni. Þetta er mikið áfall fyrir
húsnæðisnefndina þvi nú bætist við
þann mikla fjölda íbúða sem hún á
og vandséð er hvemig nefndin getur
komið íbúðum að Höfðabraut 14-16
í lag nema með miklum tilkostnaði.
Bæjarritari Akraness fór fram á
við forstjóra húsnæðisstofnunar að
fá umrædda skýrslu en hann svar-
aði að það væri ekki hægt. Húsnæð-
isnefhd mótmælti á fundi afstöðu
forstjóra stofnunarinnar að neita
bæjarritara um skýrsluna og felur
bæjarritara að krefjast hennar á
grundvelli 15. greinar stjómsýslu-
laga en samkvæmt lögum er stjóm-
vald skylt að veita málsaðila upplýs-
ingar um mál sé þess krafist.
-DVÓ
Hólmavík:
Skipstjórarnir
bestir í spilunum
DV, Hómavík:
Taflfélag Hólmavíkur var eitt af
fyrstu taflfélögum utan Reykjavíkur
sem eignuðust hús fyrir starfsemi
sína. Það gerðist laust eftir 1960 en
nafninu var síðar breytt í Tafl- og
bridgefélag Hólmavíkur. Þátttak-
endur og félagar úr sveitunum í ná-
grenninu bættust fljótlega í félags-
hópinn.
Það hefur aldrei verið mjög fjöl-
mennt en með ótrúlega traustum
kjama og er svo enn. í þessu litla
húsi, sem stendur við Kópnesbraut,
hefur mikið verið teflt og spilað í
hálfan fjórða áratug. Á síðasta vetri
var svo komið að þeim tímapunkti
að ákvörðun þurfti að taka um
hvort hefja ætti dýrar endurbætur í
því - þaö er jámklætt timburhús -
eða þá að selja það og freista þess að
komast inn í leiguhúsnæði með
starfsemina. Það síðara varð svo
ofan á og húsið selt sl. sumar.
Frá síðasta hausti hefur félagið
verið á nokkrum flækingi milli efn-
aðra velunnara sinna með starfsem-
ina. Ekki er þó talið að þetta hafi
skaðað félagið a.m.k. enn sem kom-
ið er. Nýliðun er þó lítil sem engin,
sem em augljós hættumerki ekki
síður en í ríki manna og dýra. Spila-
staðir siðustu mánaða eiga þó vart
sök á því.
Bridgemenn hafa komið saman
eitt kvöld í viku hverri frá vetrar-
byrjun líkt og undanfama vetur.
Minnst hefur verið spilað á tveimur
borðum en mest á frnim borðum.
Sigurvegar£u* í tvímenningi i keppni
haustsins eru þeir Benedikt S. Pét-
ursson og Guðmundur Viktor Gúst-
afsson, sem telja verður eitt
Benedikt S. Pétursson meö bikar sem hann vann ásamt Guömundi Viktori
Gústafssyni í tvfmenningskeppninni. Meö Benedikt er Guömundur Hreiðar
Þóröarson sem hann spilar stundum viö þegar Guðmundur Viktor er upp-
tekinn f fiskinum. DV-mynd Guöfinnur
sterkasta par bridgefélagsins til skipum á Hólmavík, þar er einnig
nokkurra ára litið. Báðir eru þeir lán yfir þeim og gott gengi.
starfandi skipstjórar á rækjuveiði- -GF
Taktu þér tak-
Tilboð á
þolfimi
fatnaði og
skóm!
Aerobic
fatnaður með
10 - 80%
afslætti!
Eftirtaldir Aerobic skór eru með 20% afslætti!
Nike Max Structure (dömuskór) Verð áður 11.850 Nú 9.480
Adidas Stripes Lite (dömuskór) 8.990 6.990
Nike Air Digs Mid (herraskór) 8.850 6.990
Nike Air Wibe (dömuskór) 7.980 6.392
Reebok Big Hurt (herraskór) 7.990 6.392
Adidas Equip Wild (dömuskór) 7.550 5.990
Reebok Big Hurt (unglingastærðir) 6.990 5.592
Eigum einnig handlóð, grip, og sippubönd, ofl. ofl.
Líttu við í Útilífi á leið til betra lífs!
MB únúF
Ts
7t
Glæsibæ - Sími 5812922
TUNGUMÁLANÁMSKEIÐ
Kennt er í byrjenda-, framhalds- og talæfíngaflokkum.
ENSKA - DANSKA- NORSKA - SÆNSKA
FRANSKA - ÍTALSKA - SPÆNSKA -
ÞÝSKA - KATALÓNSKA - ÍSLENSKA fyrir útlendinga
og fjöldi annarra námskeiða.
Innritun í símum:
564-1527, 564-1507 og 554-4391 kl. 17-21