Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1997, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1997, Síða 5
ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1997 5 DV í kjölfar vaxandi úthafsveiða: Sjomenn krefj- ast launa á langri siglingu - grænlenskir sjómenn fá 12 þúsund krónur á sólarhring „Ég veit ekki hvers vegna þess hefur ekki verið krafist fyrr að sjó- menn fái greidd laim fyrir langa siglingu eins og á úthafsveiðunum. En nú hefur Sjómannasambandið lagt fram kröfur um það í yfir- standandi kjarasamningum," sagði Sævar Gunnarsson, formað- ur Sjómannasambands Islands, í samtali við DV í gær. Ungur sjómaður hafði samband við DV og benti á varðandi þetta mál að grænlenskir sjómenn fengju sem svarar 12 þúsund krón- um íslenskum á sólarhring á út- og landstími. Hann benti á að sigling- in í Smuguna tæki 9 til 10 sólar- hringa út og heim. Þessa 10 daga væru sjómennirnir launalausir því þeirra kaup liggur í hlut þess afla sem fæst meðan verið er að. Sævar Gunnarssonar sagði að það væru vaxandi úthafsveiðar ís- lenskra skipa sem hefðu ýtt á að þessi krafa væri tekin upp. Hann benti þó á að krfan hefði átt að koma fram fyrr því íslenskir sjó- menn hefðu oft á tíðum þurft að sigla langa slóð á miðin. Nefna má í því sambandi síld- veiðarnar í Norðursjó hér áður fyrr, loðnuveiðamar og sókn síðu- togaranna á Grænlands- og Ný- fundnalandsmið á árunum áður. Sjómaðurinn ungi benti líka á að launatrygging sjómanna væri ekki nema rúmar 70 þúsund krón- ur á mánuði. Hún er miðuð við ákveðinn dagvinnutaxta verka- manna. Það kæmi mjög oft fyrir að sjómenn ynnu 10 til 12 tíma á sól- arhring án þess að ná hlut og fengju þá bara þessar rúmu 70 þús- und krónur í laun á mánuði. -S.dór Fiskimjölsverksmiðja HB: Peningalyktin aö hverfa á Akranesi DV, Akranesi: Nú er að ljúka umfangsmiklum endurbótum á Síldar- og fiskimjöls- verksmiðju HB hf. á Akranesi. End- umýjaðar vora vélar og tæki, sem vora orðin allt að 60 ára gömul og eftir endurbæturnar verða um 80-90% verksmiðjunnar sem ný. Búnaðurinn er allur sá fullkomn- asti sem völ er á nú og til þess gerð- ur að framleiða hágæðamjöl. Um er að ræða algjöra byltingu í meðferð mjölsins. Blöndun verður léttari og auðveldara að nálgast óskir kaup- enda um samsetningu mjölsins. í verksmiðjunni verða fjórir tank- ar fyrir unnið mjöl sem taka um 4000 tonn. Þá verða einnig hráefnistankar fyrir 3000 tonn. Skipt var um lagnir og rafkerfi og öll frárennslismál tek- in í gegn. Vinnslugeta verksmiðj- unnar eykst úr 550 tonnum á sólar- hring í 1000 tonn. Áætlaður heildar- kostnaður við hreytingamar er um 800 milljónir króna. Peningalyktin á Akranesi, sem hefur verið hvimleið, hverfur nær alveg og reykur verksmiðjunnar og mengunarvandamálin era leyst með fullkomnum búnaði. Auk breyting- anna hjá HB er nú unnið að breyt- ingum á Heimaskagahúsinu. Það húsnæði fékk HB við sameiningu HB og Heimaskaga. í því er verið að byggja upp aðstöðu fyrir frystingu á loðnu og síld og er áætlað að hægt verði að frysta allt að 60 tonn á sól- arhring. -DVÓ Sæmundur skipstjóri og Bjarni Ágústsson vélstjóri ánægðir meö aflann. DV-mynd ÆMK Fiskur alls staöar DV, Suðurnesjum: „Við eram að byrja á veiðum og þær lofa góðu. Veiðin er mjög góð hér fyrir utan og fiskur alls staðar, mjög stór eins verið hefur siðustu tvö árin,“ sagði Sæmundur Jóns- son, skipstjóri á Hraunsvik GK 68, í samtali við DV þegar hann var að landa rúmlega tveimur tonnum af vænum þorski i Grindavík. Sæmundur sagði þá hafa verið á þorskanetum á svæðinu við Staðar- berg. Þorskurinn er á milli 10 og 12 kg. Sem sagt vel stór og fór allur í salt. -ÆMK Fréttir Hreinsunarstarfi í brunarústunum er nær lokið. DV-mynd ÆMK Reykjanesbær: Verksmiðjuhús Víkuráss endur- reist á sama stað DV, Suðurnesjum: „Við munum endurbyggja verk- smiðjuhús á sama stað og fram- kvæmdimar taka nokkra mánuði. Við fengum nýlega húsnæði undir starfsemi okkar á meðan fram- kvæmdirnar standa yfir,“ sagði Benjamín Guðmundsson, einn fjög- urra eigenda trésmiðjunnar Víkur- áss hf. í Keflavík. Hún hrann til kaldra kola 29. desember. Búið er að hreinsa branarústir verksmiðjuhússins og næstu daga hefjast framkvæmdir við endurapp- byggingu. Hið nýja húsnæði verk- smiðjunnar verður um 1700 m2 að stærð eins og það var áður. Fyrirtækið Víkurás er mjög um- svifamikið í smíði innréttinga og hurða. Talið er að tjónið í brananum hafi ekki verið undir 200 milljónum króna en niðurstöður liggja ekki endanlega fyrir enn þá. -ÆMK Reykj avíkurborg: Hundagjaldið óbreytt Gjaldskrá fyrir hundahald í Reykjavík á þessu ári verður óbreytt frá í fyrra samkvæmt ákvörðun borgarráðs. Árgjald fyrir hvern leyfðan hund er 7.400 krónur en ef hund- urinn fer á flakk og er hand- samaður þarf eigandi að greiða 6 þúsund krónur fyrir að fá hann aftur, sé hann í skilum með leyfis- gjaldið. Ef hundurinn týnist aftur og er gómaður þarf að greiða 18 þúsund krónur fyrir að fá hann aftur, auk geymslukostnaðar. Fyrsta leyfisveiting fyrir nýjum hundi er 8.400 krónur en hækkar í 12.600 ef ekki er sótt um leyfi fyrir hundi innan tiltekins frests. -SÁ á notuðum bílum BÍLAHÚSIÐ Sævarhöföa 2 • Sími 525 8020

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.