Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1997, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1997, Page 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1997 Fréttir Islenskur rlkisborgari fær ekki ökuskírteini hér á landi: Velti fyrir mér hvort brotið sé gegn mann- réttindasáttmála - segir Sigurjón Valdimarsson blaðamaöur sem vinnur í málinu „I þessu máli tel ég rétt að velta fyrir mér hvort löggæslan í landinu hafi brotið gegn mannréttindasátt- mála sem bannar mismunun manna, hvort sem er vegna þjóðern- is eða annars. Þess er krafist að ís- lenskur ríkisborgari flytji lögheim- ili sitt til landsins til þess að fá not- ið sömu réttinda og erlendur ríkis- borgari sem hefur dvalarstað hér í stuttan tíma,“ segir Sigurjón Valdi- marsson blaðamaður en hann hefur undanfarið aðstoðað vin sinn, Helga Olsen, sem er íslenskur ríkisborg£u:i með lögheimili i Svíþjóð. Málið gengur út á að Helgi fái af- hent ökuskírteini sitt til staðfesting- ar á því að hann hafi staðist öll próf sem til þess er krafist. Helga var synjað um ökuskírteini sitt á þeim forsendum að hann ætti ekki lög- heimili á íslandi. „Helgi lauk bæði verklegu og bók- legu námi með ágætum þann 3. jan- úar 1996 en þegar hann kom að sækja skírteini sitt til sýslumanns- ins í Keflavík var honum tilkynnt að það gæti hann ekki fengið nema hann flytti lögheimili sitt til Islands. Helgi fékk að vísu endurgreidd öll gjöld vegna bílprófsins. Málinu hef- ur ekki verið haggað og Helgi er í Svíþjóð án ökuskírteinis. Sökum námsins, sem hann leggur stund á í Svíþjóð, og styrkja vegna þess getur hann ekki flutt lögheimili sitt til ís- lands. Ekki sagt frá annmörkum Helgi kom i jólafrí til íslands í desember 1995 og dvaldi hjá skyld- fólki sínu í Keflavík. Hann vildi nýta dvöl sína hérlendis til að .afla sér réttinda til að aka bíl. Ástæður þess að hann kaus að fá þessi rétt- indi á íslandi eru einkum þær að hann vildi nýta tímann hér meðan á heimsókninni stóð og hin, sem veg- ur þyngra, að mun ódýrara er að afla þessara réttinda hér en í Sví- þjóð. Helga var ekki kunnugt um nein lög sem gætu komið í veg fyrir að hann mætti hafa þennan háttinn á. Aldrei á þessum tíma var Helga gerð grein fyrir neinum annmörk- um á að hann fengi skírteini, ekki einu sinni þegar hann lagði inn umsókn hjá sýslumanni um próftökuna. Mér sýnist á reglugerð- inni að sýslmnannsembættið hefði átt að láta Helga vita um annmarka áður en hann fór í ökuprófið í stað þess að heimila honum að taka prófið. í 1. gr. í reglugerð um undirbún- ing að bílprófi stendur að umsækj- andi skuli hafa fasta búsetu hér á landi eða hafa dvalið hér við nám í a.m.k. sex mánuði. Það mundi kór- óna vandræðaganginn í kerfinu hér ef íslenskur ríkisborgari fengi ekki notið þeirra réttinda á íslandi sem ríkisborgurum allra annarra þjóða virðast standa opin. Ég tel að Helgi hafi verið beittur miklu óréttlæti. Ég er að vinna í þessu máli og það má bæta því við að ég er tilbúinn að taka að mér að aðstoða fólk við rekstur ýmissa erinda,“ segir Sigur- jón. -RR Ríkis- borgara- réttur skiptir ekki máli - segir fulltrúi „Ríkisborgararéttur skiptir ekki máli í þessu sambandi heldur er það búseta viðkom- andi og það kemur skýrt fram í reglugerð. Það kom í ljós við útgáfu ökuskírteinis, þegar upplýsingar voru kannaðar í þjóðskrá, að umsækjandi átti ekki lögheimili hér á landi. Var lögreglustjóra því óheim- ilt að veita honum ökuskír- teini. Helga Olsen var þegar tilkynnt þessi niðurstaða og honum endurgreidd öll gjöld og gögnum skilað," segir Ás- geir Eiríksson, fulltrúi sýslu- manns í Keflavík, vegna máls- ins. Hjá dómsmálaráðuneytinu fengust þær upplýsingar að málið væri í vinnslu þar. Tryggvi Þórhallson, lögfræð- ingur í ráðuneytinu, sagðist ekki vilja tjá sig um málið á meðan svo væri. -RR Viðurkenning fyrir baráttu gegn vímuefnum DV, Akranesi: Kiwanisklúbburinn Þyrill, Sinawikklúbbur Akraness, Sorop- timistaklúbbur Akraness, Rótary- klúbbur Akraness, Lionsklúbbur Akraness og Lionessuklúbburinn á Akranesi stóðu i sameiningu að vímuvamaverkefni á síðasta ári og var ákveðið að rekstrarafgangur af verkefninu rynni til Jafningja- fræðslunnar. Anna Helgadóttir læknir afhenti Erlingi Ormari Vignissyni styrkinn í Fjölbrautaskólanum og sagði að styrkurinn væri fyrst og fremst táknræn viðurkenning á baráttunni gegn vímuefnavandanum. Jafn- ingjafræðslan er verkefni sem hrundið var af stað á vegum Reykja- víkurborgar og byggist á því að ung- menni fræða jafnaldra sína á skað- semi fíkniefna. Erling Ormar frá Akranesi var einn þeirra 25 ung- menna sem störfuðu á vegum jafn- ingjafræðslunnar í Reykjavík sl. sumar. Erling hefur ásamt þeim Óla Erni Atlasyni og Sigurlaugu Gísladóttur unnið að verkefnum á vegum Jafn- ingjafræðslunnar og einnig fóru nokkur ungmenni frá Akranesi á vegum hennar í dagsferð til Glas- gow. Nokkrar slikar ferðir hafa ver- ið farnar, bæði innanlands og utan, og er markmið með þeim að kynna unglingum gildi þess að skemmta sér án vímuefna. -DVÓ Ásdís Jónsdóttir að vinna með hárljósagreiðunni. DV-mynd ÆMK Síðustu daga hefur verið unnið að grjótfyllingu við þjóðveginn fyrir botni Kollafjarðar. Verktaki viö framkvæmdirnar er Háfell. Sækja þarf hnullungana langt aö og tefur það verkið. í stórbrimi á síðasta ári skolaðist töluvert af grjóti á haf út, svo mikið að endurnýja þurfti varnargarðinn við veginn. DV-mynd BG Ný tímasetning á Húnavokunni DV, Norðurlandi vestra: „Þetta var gagnlegur fundur og við ákváðum að prófa nýja tíma- setningu á Húnavökunni. Menn voru ásáttir um að stefna á að halda vökuna í vor um hvíta- sunnuhelgina. Hún er rétt fyrir 20. maí og vonandi reynist vel að halda hana um þá helgi framvegis. Þetta er fyrsta ferðahelgi sum- arsins og við ágætlega staðsettir til að taka á móti fólki. Margir renna hér í gegn og aldrei að vita nema fólk stansi ef við höfum upp á eitt- hvað skemmtilegt að bjóða,“ segir Valdimar Guðmannsson, formaður USAH. Stjórn ungmennafélagsins fjall- aði um Húnavökuna á fundi ný- lega en aðsókn hefur verið fremur dræm hin seinni ár. Margir hafa haft efasemdir um að tímasetning- in væri rétt, um langt árabil hald- in um sumarmál, t.d. var Hús- bændavakan, ákaflega vinsæll lið- ur, yfirleitt haldin siðasta kvöld vetrar. „Það komu fram hugmyndir um dagskrárliði, minnst á poppmessu og kántríveislu. Þar hugsað til samstarfs við Skagstrendinga, enda býr þar óumdeildur kántrík- óngur landsins. Við höfum hug á að koma upp skemmtilegri vöku, sem mundi hefjast á föstudag fyrir hvítasunnu og standa fram á ann- an í hvítasunnu," sagði Valdimar í Bakkakoti. -ÞÁ Göngudeild Bláa lónsins: Á sjötta þúsund meðferðir á sjúklingum DV, Suðurnesjum: „Vinnuveitendur eru ekki nægi- lega skilningsríkir gagnvart psorias- is-sjúklingiun því þessar meðferðir eru samþykktar af Tryggingastofnun ríkisins og heilbrigðisráðuneytinu. Starfsmenn hafa leyfi til að fá frí úr vinnu. Vinnuveitendur hugsa ekki dæmið til enda. Vilja þeir leyfa sjúk- lingnum að fara klukkutíma fyrr úr vinnu eða missa hann inn á deild í sex vikur?“ sagði Ásdís Jónsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri göngu- deildar Bláa lónsins, í samtali við DV. Ásdís vill breyta viðhorfi vinnu- veitenda gagnvart psoriasis-sjúkling- um. „Ég vil að þeir hafi skilning á að þetta er sjúkdómur sem verður að passa upp á að blossi ekki upp og verði illviðráðanlegur," segir hún og vill sjá fleiri í meðferð hjá sér á göngudeildinni. Göngudeildin hefur aukið þjónust- una enn frekar og fest kaup á svokall- aðri hárljósagreiðu. Hún er notuð til þess að hjálpa þeim sem eru með psoriasis í hársverðinum en þeir eru töluvert margir. Það hefur alltaf ver- ið erfitt að fá geislann niður í hár- svörðinn. Áður þurftu karlmenn að vera vel klipptir svo geislinn kæmist þangað og erfitt var að fá geislann til að virka á konum með mikið hár. Greiðan hefur reynst vel. Álíka margir sem sóttu göngudeild- ina í fyrra og árið 1995. íslenskir sjúk- lingar voru 3.500 og 6-700 erlendir gestir. -ÆMK Í Í i í I i í 1 i ( i i i i i i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.