Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1997, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1997, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1997 Stuttar fréttir Alveg eins Alexander Lebed, fyrrum ör- yggismálaráð- gjafi Jeltsíns Rússlandsfor- seta, sagði í Washington í gær að þegar hann tæki við forsetaemb- ættinu í Rúss- landi vildi hann hafa embættistökuna al- veg eins og hjá Clinton. Býöur umræöur Forseti Suöur-Kóreu bauö í morgun að taka upp á ný um- ræður í þingi landsins um um- deilda vinnulöggjöf sem verka- lýðsfélög hafa mótmælt harka- lega með þriggja vikna verkfóll- um. Jeltsín heim Borís Jeltsín Rússlandsforseti fór heim af sjúkrahúsi í gær eft- ir tveggja vikna legu og hans biðu erfið vandamál, bæði á sviði efnahagsmála og stjóm- mála, auk snúinna samningavið- ræðna við NATO. Hnattflug innan seilingar Bandaríski ævintýramaður- inn Steve Fossett, sem varð að hætta viö hnattflug sitt í loftbelg og lenda á Indlandi í gær, sagöi að einhverjum mundi takast það á næstu þremur árum. Harma samning Um tvö þúsund landnemar gyðinga komu saman í Vestur- bakkaborginni Hebron í gær til að harma að Palestínumönnum skyldu afhent yfirráð yfir stærstum hluta borgarinnar. Zhivkov sleppt Todor Zhivkov, fyrrum for- seta Búlgaríu, var sleppt úr stofufangelsi í gær á sama tíma og stjórnarandstæðingar halda áfram mótmælum sínum gegn stjómvöldum. Chirac meö umbætur Jacques Chirac Frakklands- forseti reyndi í gær að beina athygli fransks al- mennings frá metatvinnu- leysi og spill- ingarmálum innan stjórn- arflokkanna með því að boða til umbóta á réttarkerfi landsins. Skelfur í Kína Að minnsta kosti sjö manns týndu lífi í jarðskjálfta sem varð í Kína í nótt. Langtí land Breskar konur ná ekki jafn- rétti í launamálum fyrr en eftir 45 ár en karlar fá almennt um 20 prósentum hærri laun nú. Þjarmar aö íhaldinu Búist er við að Tony Blair, leiðtogi Verkamanna- flokksins í Bretlandi, þjarmi að stjórninni í dag með því að greina frá stuðningi kaupsýslu- manna við stefhu Verkamanna- flokksins. Upp á viö í Skotlandi Breski íhaldsflokkurinn jók örlítið fylgi sitt í nýlegri skoð- anakönnun í Skotlandi en Verkamannaflokkurinn leiðir enn örugglega. Ekki aftur til fortíöar Alberto Fujimori Perúforseti segir að gíslamáliö verði ekki til þess að snúa landinu aftur til foríðarinnar þegar ófriður ríkti né kollvarpi það efnahagsumbót- um. Reuter /• Mikiö um dýrðir viö embættistöku Bandaríkjaforseta í gær: Clinton og Hillary stigu dans fram á rauðanótt Bill Clinton Bandaríkjaforseti og Hillary eiginkona hans fengu sér snúning á fimmtán viðhafnardansleikjum í Was- hington í gærkvöldi í tilefni embættistökunnar. Síöara kjörtímabilið leggst vel í forsetann ef marka má svip hans á þessari mynd. Slmamynd Reuter Bill Clinton Bandaríkjaforseti og Hillary, eiginkona hans, dönsuðu fram á rauðanótt þegar bandaríska þjóðin fagnaði því að forsetinn sór embættiseiðinn í annað sinn í gær. Forsetahjónin fengu sér snúning á hvorki fleiri né færri en fimmtán viðhafnardansleikjum í Washington í tilefni dagsins. Tugþúsundir stuðningsmanna forsetans komu saman í fagurlega skreyttum gistihúsum eða ráð- stefnusölum í þeirri von að forset- inn mundi nú líta inn. „Ég dái hann,“ sagði Edith Henig sem kom alla leið sunnan frá Flór- ída til Washington til að fá að berja forsetann sinn augum á viðhafnar- dansleik Flórídafylkis. í ræðu, sem Clinton hélt eftir að hann hafði svarið embættiseiðinn, með aðra höndina á fjölskyldubibl- íunni, lagði hann áherslu á bætt samskipti kynþáttanna og stjóm- málaflokkanna í landinu og fjallaði um draum sinn um Bandaríkin sem land nýrra fyrirheita. „Megi kynslóðimar, sem við sjá- um ekki enn, segja um okkur sem hér erum að við höfum leitt ástkært land okkar inn í nýja öld, þar sem ameríski draumurinn er lifandi fyr- ir öll börn þess og skínandi frelsis- logi Bandaríkjanna breiðist um all- an heiminn. Látum forna sýn um fyrirheitna landið vísa okkur veg- inn og horfum fram á við á land nýrra fyrirheita," sagði Clinton í ávarpi sínu. Forsetinn fór síðan fyrir skrúð- göngu niður Pennsylvaniubreiðgöt- una fram hjá mannfjöldanum sem lét kuldann ekki á sig fá heldur kom til að verða vitni að þessum sögu- lega atburði. Á eftir svörtu límúsínunni sem flutti Clinton og Hillary og dóttur þeirra, Chelsea, fóm litskrúðugir vagnar, lúðrasveitir, hestar, trúðar og uppábúið fólk frá hverju einasta fylki. Ekki er víst að forsetinn fái að sofa út á fyrsta fulla starfsdegi ann- ars kjörtímabils síns í dag. Tveir mikilvægir fundir biða hans. Á hin- um fyrri ætlar hann að ræða við efnahagsráðgjafa sína um væntan- legt fjárlagafrumvarp og leiðir til að semja við þingmenn repúblikana um það. Síðari fundurinn verður með landstjórn Demókrataflokksins þar sem nýir leiðtogar flokksins verða staðfestir. Reuter Lögregla í Belgrad barði mótmælendur Óeirðalögregla í Belgrad barði mótmælendur með kylfum í gær- kvöld. Þurftu nokkrir mótmælend- ur að leita læknishjálpar vegna höf- uðmeiðsla og meiðsla á fótleggjum og handleggjum eftir barsmíðar lög- reglunnar. Stjómarandstæðingar óttast nú vaxandi hörku stjórnvalda í kjölfar þess að undirréttur i Belgrad ákvað að fresta því að staðfesta þá niður- stöðu kjörstjórnar í Belgrad að stjómarandstaðan hefði sigrað sós- íalistaflokk Milosevics forseta í sveitarstjómarkosningunum í nóv- ember síðastliðnum. Sagði forseti undirréttarins að málinu yrði frestað þar til hæstiréttur hefði úr- skurðað hvaða dómstóll skyldi fjalla um það. Er talið að Sósíalistaflokk- urinn sé á bak við úrskurð undir- réttarins. Með því að vísa málinu til hæstaréttar fær flokkurinn meiri tíma til aðgerða. Annað áfall fyrir stjómarandstæð- inga í gær var að hæstiréttur, sem stjómarerindrekar segja að sé ekki óháður, úrskurðaði að flokkur forset- ans hefði sigraö í bænum Sabac. Serbneskur stúdent bar kross í mót- mælagöngu í Belgrad í gær. Símamynd Reuter Þúsundir stúdenta komu saman í Belgrad í gær en lögreglan kom í veg fyrir að þeir gætu gengið um miðborgina. Reuter Reynt aö kúga fé út úr Bill Cosby Lögreglan í Los Angeles yfir- heyrði tvo menn í gær í sámbandi við rannsóknina á morðinu á Enn- is Cosby, syni gamanleikarans Bills Cosbys. Ennis Cosby var skot- inn til bana í síðustu viku er hann var að skipta um dekk á bíl sínum við hraðbraut nálægt Los Angeles. Sjónvarpsstöð í Los Angeles greindi frá því að mennimir hefðu verið teknir af lögreglu í úthverfi borgarinnar og síðan afhentir rannsóknarlögreglunni. Lögreglan neitaði að tjá sig um frétt sjón- varpsins. í fréttinni var einnig greint frá því að mennimir, sem yf- irheyrðir vora, hefðu verið í bíl svipuðum þeim sem lýst var eftir. Vinkona Ennis Cosbys, er kom á staðinn þar sem hann var að skipta um dekk, varð vitni að morðinu. Bandaríska alríkislögreglan greindi frá því í gær að kona frá Los Angeles og félagi hennar hefðu verið handtekin í New York vegna tilrauna til að kúga 40 milljónir doUara út úr BUl Cosby. VUdi kon- Ennis Cosby. Slmamynd Reuter an fá féð gegn því að segja ekki frá því að hún væri lausaleiksbam hans. Ekki hafa fundist neinar sannanir fyrir því að fjárkúgunin tengist morðinu á Ennis Cosby. Talsmaður Cosbys vísar því á bug að hin handtekna sé dóttir gaman- leikarans. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.