Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1997, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1997, Page 11
I '3"%íy ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1997 •j/nenning >, Stórkostlegir tónleikar Nú eru 200 ár síðan Franz Schubert fæddist, og er þess minnst um allan heim. Síðastliðinn laugardag voru opnunartónleikar veglegrar Schubert-hátíðar í Kirkjuhvoli, safnaðarheim- ili Vídalínskirkju í Garðabæ, og verða átta aðrir tónleikar haldnir þar til heiðurs snill- ingnum. Þaö var Rannveig Fríða Bragadóttir mezzó-sópran sem reið á vaðið, og með henni lék Gerrit Schuil á píanóið, en hann er jafh- framt listrænn stjómandi hátíðarinnar. Á efn- isskránni voru fimmtán lieder - sönglög við ljóð eftir Goethe, Schiller, Walter Scott og fleiri. Tónlist Jónas Sen Fyrst á efhisskránni var An den Mond - Til mánans - við ljóð eftir Goethe. Schubert var aðeins sautján ára þegar hann samdi þetta lag; samt er það hrífandi fallegt og söng Rann- veig Fríða það undursamlega vel. Söngvarar eru stundum óstyrkir og skjálfraddaðir - jafn- vel hálfialskir í upphafi tónleika - en slíkt var ekki uppi á teningnum þessa Ijúfu stund. Raddbeiting Rannveigar Fríðu var í einu orði sagt fullkomin, tæknin óaðfinnaleg og túlkun- in þrungin upphafinni hlýju og innileika. Ljóðasöngur Schuberts fjallar um flest í mannlegum reynsluheimi; túlkendur laganna þurfa því að búa yfir mikilli dýpt og listræn- um þroska sem óhætt er að segja að einkenni bæði þau Rannveigu Fríðu og Gerrit Schuil. Því ekki má gleyma píanóleikaran- um; píanóið gegnir mikilvægu hlut- verki í lögum Schuberts - það á að skapa blæbrigðaríkt andrúmsloft sem bæði umlykur sönginn og upp- hefur hann. Píanóleikarinn þarf að vita lengra nefi sínu; hann verður að geta galdrað fram hina ýmsu liti og stemningar allt eftir því hvert viðfangseöii söngvarans er hverju sinni. Og víst er að Gerrit Schuil skilaði hlutverki sínu á að- dáunarverðan hátt - án hans hefðu umræddir tónleikar ekki orðið sá listræni viðburður sem raun bar vitni. Of langt mál væri að telja upp allt sem bar fyrir eyru á tónleikunum. Þó er ekki hægt að komast hjá því að Rannveig Fríöa Bragadóttir - söng svo vel aö tissjúpakki heföi átt að fylgja hverjum miöa. nefna Ave Maria sem var siðasta lag fyrir hlé. Flutningur þeirra Rannveigar Fríðu og Ger- rits Schuil var svo stórkostlegur að varla er hægt að lýsa slíkri upplifun. Undirritaður tár- ast ekki oft á tónleikum, en í þetta skipti sá hann mikið eftir að hafa ekki komið með stóran vasa- klút með sér! Og reyndar hefði tissjú- pakki átt að fylgja hverjum miða, því í hlénu eigruðu marg- I ir tónleikagestir um, j rauðeygðir og tár- | votir og áttu í mesta j basli með að halda j andlitinu. Eins og við var að búast stóðu áheyr- endur upp fyrir Rannveigu Fríðu og Gerrit Schuil að tón- leikum loknrnn. Og kannski var fólk líka að standa upp fyrir Franz Schubert, sem var hylltur á svo stórfenglegan hátt þennan laugardag. Gjörningavaka í Norræna húsinu í tengslum við myndlistarsýningu Þórs Ludwigs Stiefel og Gerhards Zeller standa listameimirnir fyrir gjörningavöku í Nor- ræna húsinu og við það. Þemað er; Að gera sig sýnilegan. Hvað þarf til að eftir manni sé tekið? Að vera ruglaður? Vera illmenni? Gera eitthvaö ögrandi? Hvers vegna verða sumar manneskjur stjömur? Sýningin er opin daglega kl. 12-18 til og með næsta sunnudegi. Meiri Schubert Fyrstu tónleikar Scubert- hátíðarinn- ar í Garðabæ fá glimrandi - og allt að því grát- klökka - dóma annars staðar á síðunni. Því má minna á að næstu tón- leikar í röð- inni verða 1. febrúar á sama stað; þar leikur Gerrit Schuil undir hjá Signýju Sæ- mundsdóttur sópr- Schubert - vinsælli en an (viku áður en nokkrusinni- Káta ekkjan verður frumsýnd með henni í aðalhlutverki) og Jóni Þorsteinssyni tenór. Óperusýningar Menningarsíöa DV vill fúslega miðla upp- lýsingum imi óperusýningar sem íslenskir söngvarar taka þátt í úti í heimi svo að ferðalangar viti af þeim. Aðstandendur söngvaranna eru vinsamlegast beðnir að koma upplýsingum áleiðis til umsjónar- manns í bréfsíma 5505020. Metropolitan, New York Kristján Jóhannsson syngur Turridus í Cavaleria Rusticana 29.1. -13.2. og Don Alvaro í Valdi örlaganna 19.2-7.3. Grand Theatre de Geneve, Genf Kristinn Sigmundsson syngur Alidoro í La Generentola (Öskubusku) 24., 26., 28. og 30.1. Bayerische Staatsoper, Mtinchen Kristinn Sigmundsson syngur Don Basilio í Rakaranum i Sevilla 5., 7. og 11.2. Opera National de Paris Kristinn Sigmundsson syngur Klingsor í Parsifal 28. og 31.3. og 3., 5., 9., 12., 16. og 19. apríl. Við sama hús syngur Kristinn Heinrich konung í Lohengrin 12., 15., 18., 21. og 24. maí. Teatro Regio, Torino Tómas Tómasson syngur Pímen munk í Boris Godunov 24., 26., 28. og 30.1., 1., 4., 7. og 9.2. Olavshallen, Þrándheimi Elín Ósk Óskarsdóttir syngur Toru í Fredkulla, frums. 1.2. Theatre Capitol, Toulouse Gunnar Guðbjömsson syngur Tamino í Töfraflautunni 21., 23., 25. og 28.2., 2. og 6.3. English National Opera, London Þóra Einarsdóttir syngur Barbarínu í Brúðkaupi Figarós 14., 17., 20. Og 28.2., 4., 6., 8., 11., 13., 15., 18. og 20.3. Á sýningunni 18. mars verður túlkað á fingramáli. Jóðlferð Tónlist í sjónvarpi Á sunnudagskvöldið var í Sjónvarpinu þáttur um tónlist i sjónvarpi í þrjátíu ár. Þorfinnur Ómarsson sá um hann, reffí- legur að vanda, og gerði um margt ágæt- an þátt. Hann hefði bara mátt vera tvöfalt lengri og skiptast í tvennt svo að tóndæm- in gætu orðið lengri. Þarna var tæpt á mörgum perlum sem mann dreplangaði til aö heyra svo- lítið meira af. Þessi þáttur er að ýmsu leyti svar við röddum þeirra sem fannst afmælis- þáttur Sjónvarps- ins í fyrra ekki gefa í skyn að nokkur menning- arstarfsemi hefði átt sér stað hjá stofhuninni öll þessi ár. Hér kom fram, þvert á móti, hvað Sjónvarpið hefúr oft verið menn- ingarlegt, til dæmis þegar það tók upp heilu óperusýn- ingamar með íslenskum söngvurum. Kannski var þetta auðveldara meðan þjóðin elskaði sjónvarpið sitt heitar og fólk var tilbúið til að koma fram fyrir lít- ið eða ekkert, en hvað sem veldur þá er eins og metnaðurinn - nú, eða áhuginn - hafi verið meiri - einu sinni. Ég er að lesa dagskrá ríkisút- varpsins þessa dagana, skoða það sem í vændum er næstu vikur og mér líst ágætlega á. Fátt er þægi- legra en fleygja sér í rúmið á sunnu- dagskvöldum og hlusta á þátt Illuga Jökulssonar, „Frjálsar hendur", þar Fjölmiðlar Sigríður Halldórsdóttir sem hann segir rólyndislega frá efni að eigin vali í eina klukkustimd. Hann er með afbrigðum góður út- varpsmaður, hvort sem hann er að segja frá kóngum eða keisurum, eins og nú síðast, eða að flytja viku- legan morgunpistil um það sem honirni finnst að þurfi að fjalla um í dægurmálunum. Við höfum líka tekið eftir því, nokkrir aðdáendur hans, að þegar honum finnst hann fara að þreytast á pistlaflutningnum eða langar að komast í frí þá lætur hann eitthvaö djúsi gossa til þess að verða rekinn á stundinni. En sem betur fer hefur RÚV vit á að taka hann í sátt aftur eftir fríið. Þátturinn „Samfélagið í nær- mynd“ er líka til fyrirmyndar. Þau sem stjóma honum vinna vel og skemmtilega; ég líka alla þá kosti til að bera sem þarf fyrir sjónvarp. Kannski stela frjálsu sjónvarpsstöðvamar henni einn fagran vormorguninn og láta hana sjá um samfélagsúttekt bæði í máli og myndmn hjá sér. Nú ætla sjónvarpsstöðvarnar í ærlegan slag um okkur og áhorf okkar. Ætli vídeóleigurnar verði ekki sigurvegarinn þegar upp er staðið? Vídeóleigan i minni heima- byggð var svo stoppfull á laugardag- inn að menn urðu frá að hverfa. Það sagði mér að fólkið ætlaði ekki að horfa á sjónvarpið þetta laugardags- kvöld. Einhverjar hálfgamlar, leið- inlegar bíómyndir, sem eru farnar að grána í vídeóleiguhillunum? Að góni og glápi slepptu þá er það iðnaðarráðherrann sem við fylgj- umst með af áfergju þessa dagana. Sá ætlar nú ekki að gefast upp. Vill bjóða hreppsnefndinni í Kjósinni í einhverja Tírólaferð til Þýskalands að skoða verksmiðjur og sannfæra hana um hvað álver geta verið skemmtileg og aðlaðandi. Hvernig væri að Finnur Ingólfsson næði sér i eitt eða tvö þýsk vikublöð og læsi um ánægju Þjóðverja með áhrif stór- iðju á náttúra lands síns? Ég er hrædd um að hann finni fátt um hugguleg álver þar, líka þótt hann leiti jóðlandi um alla Evrópu og helli hreppsnefnd Kjósarinnar vel sé þann þátt alveg fyrir mér í sjónvarpi svona fúlla á leiðinni gegnum sýrabrenndu skógana einu sinni í viku. Sigríður Amardóttir hefur í Þýskalandi. Sigríður Arnardóttir. Verður henni rænt einhvern fagran morgun? Staða sálfræðinnar Fyrir jól kom út bókin Er vit í vísind- um, safn erinda sem vora flutt við Há- skóla íslands í fyrra. Undanfarið hefur Dagur Eggertsson rætt við höfunda þeirra í þáttaröð á rás 1 sem er samnefnd bókinni. Þættfrnir eru frumfluttir á þriðjudagskvöldum kl. 23 og endurteknir á sunnudögum kl. 18. í kvöld verður rætt við Sigurð J. Grét- arsson sálfræðing um hlutverk sálfræð- innar og stöðu hennar sem fræðigreinar i Ísamtímanum. „Hann lítur eiginlega á sál- fræðina sem efahyggju um hugmyndir fólks og hugsanir og tæki til að afhjúpa misskilning eða skilja hvemig ranghug- myndir verða til og hvernig þær festast í sessi,“ segir Dagur Eggertsson. „Sigurður leggur áherslu á sálfræði sem þiggur að- ferðafræði sína frá raunvísindum. Þetta í er fróðlegur þáttur bæði fyrir þá sem ; halda að sálin sé meginviðfangsefni sál- !| fræði og hina sem hafa haft fordóma gegn greininni vegna þess hvemig hún birtist í bandarískum bíómyndum.“ Spumingin er; Er hægt að smíða vís- indi til aö kynnast mannssálinni? Rás 1 kl. 11 í kvöld! Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.