Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1997, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1997, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1997 15 - segja þær Guðbjört Erlendsdóttir og Soffía Sveinsdóttir Við lyftum upp símtólinu, veljum þriggja stafa númer og kvenrödd svar- ar „Símaskrá“. Þetta er svar sem við könnumst öll við enda notfærir hvert mannsbarn sér þjónustunúmerið 118, eða 03 eins og númerið lengi var. Tilverunni lék forvitni á að líta í heimsókn í höfuðstöðvar símaskrár- innar í Ármúla og var þar vel tekið af þeim fjörmiklu og skemmtEegu kon- um sem sinna þessu mikilvæga þjón- ustuhlutverki. Fyrir svörum urðu þær Guðbjört Erlendsdóttir og Soffía Sveinsdóttir sem eru öllum hnútum kunnugar enda hefur Guðbjört verið starfandi hjá símaskrá í 43 ár en Soff- ía í 38 ár. Karlmannslausar Það fyrsta sem vekur athygli er sá fongulegi hópur kvenna sem þama starfar. En hvar eru karlmennimir? Guðbjört verður fyrir svörum og segir engan karlmann vera að vinna á 118 í augnablikinu. „Það var ungur strákur héma hjá okkur í sumar en hann er nú farinn í önnur störf hjá Pósti og síma. Hann var sá tyrsti sem við feng- um til okkar.“ Og hvemig líkaði þeim að hafa karlmann á svæðinu? Guð- björt skellihlær og segir að þeim hafi bara líkað það vel. „En ég veit ekki með hann, ætli honum hafi ekki leiðst i öllu þessu kvennageri. En hann var nú svo ungur.“ Þær Guöbjört Erlendsdóttir og Soffía Sveinsdóttir hafa báðar unnið á Símaskrá í u.þ.b. 40 ár og kunna frá mörgu skemmtilegu að segja. Nú í febrúar em liðin tvö ár síðan símaskráin fór að vera opin allan sól- arhringinn. „Þetta var aldrei auglýst, smám saman fréttu það bara allir,“ segir Soffla. Þær segja margt sniðugt koma upp á, sérstaklega á nætiunar. Sofffa segir einn ungan mann hafa hringt um sexleytið að morgni í kring- um jólin i öngum sínum. „Honum hafði langað i hangikjöt og var búinn að sjóða það en hafði síðan dottið í hug að honum langaði í „þetta hvíta“ með og var þá að meina uppstúið. Ég gaf honum uppskriftina og sagði hon- um til. Ég hafði mestar áhyggjur af því að þ a ð hlypi í kekki hjá honum og sagði hon- um að vera duglegan að hræra. Hann fór alsæll með þetta og ég vona bara að þetta hafi smakkast vel hjá hon- um,“ segir Soffía brosandi. Guðjört segir slík símtöl algeng á næturvakt. „Einn hringdi og ætlaði að fara að sjóða svið - en í hraðsuðukatli og gat ekki skilið hvemig hann færi að því að koma þeim niður um stút- inn! Hann var svo svakalega fullur!" segir hún, skellihlæjandi. „Við heyr- um allt. Það er spurt um allt sem við- kemur þessu þjóðfélagi," segja þær. En hvemig er að vera á næturvakt um helgar? „Helgarnar eru algjör klikkun. Maður getur ekki sofnað fyr- ir stressi þegar maður kemm' heim. Það eru margir ósköp þreytandi, nema kannski skemmtilegir menn sem em að sjóða sér hangikjöt! En í alvöru talað þá kynnist maður oft leiðinlegri hlið á fólki í alls kenar ástandi," segir Guðbjört og Soffía tekur undir það. En er ekki sallaró- legt á næturvöktunum í miðri viku? Þær vinkonur hlægja lengi og mikið að þessari spumingu. „Nei, það er sko aldeilis ekki rólegt. Síminn stoppar ekki allan sólarhring- inn, það e r _ t.d. alltaf einhver á fylliríi," segir Guð- björt og Sofffa er sammála. „Ég hefði aldrei trúað að það væri svona mikil drykkja úti í þjóðfélaginu ef ég hefði ekki farið að vinna á nætumar. Og hún er alla daga vikunnar. Hvað vill fólk þá vita? „Hvað sem er, númer hér og þar hjá fólki sem það hefur litlar upplýsingar um, því bara hundleiðist og langar til að tala við einhvem." Sofffa segir strákana vera svolítið þreytandi um helgar þegar þeir séu að leita að stelpum sem þeir viti lítið um. „Ég er farin að biðja þá um að taka alltaf með föðumafnið hjá stelpunum." Aldrei dauður tími Þær segja aldrei vera dauðan tíma hjá sér en þó sé mest að gera milli níu á morgnana og sex á kvöldin, þá sé mest spurt um fyrirtæki og það séu þægilegustu símtölin, fólk viti hvað það vilji og sé snöggt að grípa upplýs- ingarnar. En þær segja GSM-símana einnig hafa aukið álagið mjög á öðrum tímum. „Hér áður fyrr var t.d. alltaf rólegt um verslunarmannahelgina en nú er bara hringt úr tjöldum, sumar- bústöðum eða af árbökkum." Hvað er það besta við vinnuna? „Andinn hér er svo góður, það er mjög gott að vinna hjá Pósti og síma enda erum við allar með 30-40 ára starfsald- ur nema litlu dúllurnar okkar sem koma og fara,“ segja þær stöllur og vísa þar í nokkrar ungar stúlkur sem þarna starfa. íslendingar kurteisir Guðbjört og Soffía harðneita því að íslendingar séu ókurteisir, þeir séu þvert á móti mjög kurteisir. „Við höf- um aldrei fengið annað en gott viðmót og reynum allt sem við getiun til að veita þær upplýsingar sem beðið er um. Það er alltaf einhver sem veit og við erum alltaf á hlaupum hér til að leita upplýsinga hjá hinum konunum. Og yfirleitt er hægt að bjarga því,“ segir Soffía. „Stundum verður maður að vera snöggur að hugsa," segir Guð- björt. „Ég man t.d. eftir strák sem hringdi og var að leita að stelpu sem hafði boðið honum í partí, mundi ekki götuheitið en vissi að það minnti hann á klósett eða vaska. Mér datt strax í hug Stíflusel og það passaði. Og í kjölfarið fann hann stelpuna." Nú hringja allar linur og við kveðj- um þessar hressilegu konur sem alltaf eru til staðar ef okkur vantar upplýs- ingar um götur, símanúmer eða upp- skrift að uppstúi. -ggá Hárþvottur: Að ýmsu að huga Það er meira mál að þvo sér rétt um hárið en að smella í það sjampói og skola úr. Sérfræð- ingar hjá hársnyrtifyrirtækinu L’Oreal bjóða upp á eftirfarandi ráð fyrir þá sem vilja hári sínu allt hið besta. II 1 II. Greiddu vel úr öllu flækj- um í hárinu áður en þú bleytir það vel. Þú þarft minna sjampó í rennblautt hár. 2. Forðastu að nota of mikið sjampó. Sérfræðingarnir hjá L’Oreal segja magn sem er á við tíu krónu mynt í lófann nægi- legt, tæplega hettufylli nægir í sítt og þykkt hár. Ekki bæta við þó það freyði ekki, mörg sjampó freyða lítið sem ekkert en hreinsa hárið alveg jafnvel. 3. Vertu viss um að allar sjampóleifar fari úr hárinu við skolun. 4. Þerraðu hárið með hand- klæði áður en hámæringin er : sett í, of mikið vatnsmagn dreg- ur úr virkni næringarinnar. 5. Notaðu magn sem samsvar- ar matskeið af hámæringu í mjög sítt hár og allt niöur í ; magn sem samsvarar tæpri teskeið í stutt hár. Einbeittu þér að endunum fremur en rót- inni og greiddu næringuna vel inn. 6. Þó þú sért viss um að hafa skolað alla hárnæringu úr skaltu samt skola helmingi lengur. Oft leynast leifar í hár- inu sem gera það þungt og slepjulegt. 7. Ekki nudda hárið með handklæðinu þegar þú þurrkar það, það getur valdið því að hárið „brotni“. Þerraðu það frekar gætilega eða vefðu þaö í handklæði í 5 mínútin: áður en það er greitt gætilega. Sértu með sítt hár er gott að byrja rétt fyrir ofan enda og vinna sig síð- an upp með þvi að greiða 2-3 sm í senn. Vissir þú að... - Kynlíf eykur hárvöxt, meira að segja hugsunin um það - Eitt einasta heilbrigt hár hefur sama styrk miðað við þykkt og koparvír. Væri gerður kaöall úr heilbrigðu hári einnar manneskju gæti hann haldið uppi 23 tonnum. - Sama staka hárið getur haldið áfram að vaxa í allt að sjö ár, sé miðað við að það vaxi 3 sm á mánuði gerir það 126 sm á sjö árum. - Eftir 25 ára aldurinn fer umfang hvers einasta hárs á höfði okkar minnkandi. Eftir fertugt erum við öll með fíngert hár. - Mjög frngert hár veröur aldrei sítt, sjaldan lengra en 10-12 sm. -ggá Tölvukerfið á Símaskrá er mjög fullkomiö og eru símastúlkurnar snöggar með allar upplýsingar. Þær fá þó miklu fleiri fyrirspurnir en þær sem varða götuheiti og símanúmer. DV-myndir BG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.