Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1997, Qupperneq 18
26
FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997
íþróttir
Everton vill
fá Kluivert
Everton er komið í kapp-
hlaupið við stóru liðin í Evrópu
um að fá hinn 20 ára gamla Pat-
rick Kluivert frá Ajax í sínar
raðir fyrir næsta keppnistíma-
hil. Fregnir frá Goodison Park
herma að Everton sé tilhúið að
greiða Kluivert 5 milljónir
króna í laun á viku.
AC Milan, Real Madrid,
Barcelona og Arsenal hafa öll
lýst því yfir að þau vilji fá Klui-
vert. -GH
Marseille hefur
áhuga á Ginola
Franska félagið Marseille er
reiðubúið að kaupa Frakkann
David Ginola frá Newcastle.
Ginola virðist ekki vera í
framtíðarplönum Kenny Dalgl-
ish, framkvæmdastjóra New-
castle, og hefur mátt sætta sig
við að verma varamannabekk-
inn að mestu síðan Dalglish tók
við stjórninni á St. James Park.
-GH
Bilardo tekinn
viö Sevilla
Carlos Bilardo, sem gerði
Argentínumenn að heimsmeist-
urum árið 1986, hefur verið ráð-
inn þjálfari hjá spænska félag-
inu Sevilla í stað Jose Antonio
Camacho sem rekinn var úr
starfi á mánudaginn í kjölfar
slaks árangurs liðsins á tíma-
bilinu.
-GH
UEFA ræöir viö
Englendinga
Fulltrúar frá UEFA, Knatt-
spyrnusambandi Evrópu, og
ráðamenn í enska knattspyrnu-
sambandinu munu hittast á
fundi á morgun.
Englendingar eru ósáttir við
þá ákvörðun UEFA að ætla að
styðja við bakið á Þjóðverjum
um að fá að halda heimsmeist-
arakeppnina í knattspymu árið
2006 en Englendingar sækjast
einnig eftir því að fá að halda
keppnina.
-GH
Sigurjón 9.
í Flórída
Sigurjón Arnarsson, kylfing-
ur úr GR, er aftur byrjaður
keppni á Tommy Armour móta-
röðinni í golfi í Flórída. ígær
tók hann þátt í eins dags móti á
Grenelefe-golfvellinum og lék
Sigurjón á 70 höggum eða einu
höggi undir pari vallarins. Erf-
iðleikastuðull vallarins er 73
högg.
Sigurjón varð í 9. sæti á mót-
inu af 122 keppendum en mótið
vannst á 65 höggum. Hann lék
gott golf þar sem hann hitti 11
brautir og lék 15 holur „regul-
ation".
-GH
/ kvöld
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Akranes-Skallagrímur.........20.00
Grindavík-KFÍ ..............20.00
ÍR-Tindastóll................20.00
KR-Keflavik .................20.00
Breiðablik-Haukar ...........20.00
1. deild karla i handknattleik:
KA-Afturelding..............20.00
Fram-Selfoss................20.00
1. deild kvenna í handknattleik:
ÍBA-Stjaman.................18.00
2. deild karla i handknattleik:
Víkingur-Ögri...............20.00
DV
Leikir í NBA-körfuboltanum í nótt:
Lakers skellti
meisturunum
- Seattle tapaði á heimavelli fyrir Utah Jazz
Stærstu tíðindin í NBA körfu-
boltanum í nótt voru tap meistara
Chicago Bulls fyrir Los Angeles
Lakers. Lakers, sem lék án
Shaquille O’Neal, tók meistarana í
karphúsið og sigraöi með 16 stiga
mun og er þetta stærstá tap
Chicago á tímabilinu.
Það var Elden Campbell sem stal
senunni í Forum-höllinni í Los
Angeles. Hann skoraði 34 stig i
leiknum og tók 14 fráköst og náði
algjörlega að fylla skarð Shaquille
O’Neals.
Campbell stal senunni í For-
um
,,Ég vissi að ég yrði að vera eins
og maður í þessum leik. Það er
fullt af góðum leikmönnum í okk-
ar liði og við vissum alveg að við
gætum lagt meistarana að velli,“
sagði Campbell eftir leikinn.
Lakers hafði mikla yfirburði í
fráköstunum, tók 50 á meðan
meistararnir náðu aðeins 33 og
söknuðu þeir greinilega Dennis
Rodmans.
Virkuöum hálfþreyttir í
þessum leik
„Viö virkuðum hálfþreyttir í
þessum leik eftir að hafa spilað
marga útileiki í röð. Campbell
kom mér eins og mörgum geysi-
lega á óvart með frammistöðu
sinni en oft þegar lykilmann vant-
ar í liðið tekur einhver annar af
skarið," sagði Michael Jordan,
sem skoraði 27 stig fyrir Chicago.
Leikmenn Utah gerðu góða ferð
til Seattle þar sem þeir unnu góð-
an sigur og var þetta 7. sigurleik-
ur liðsins í síðustu 8 leikjum. Utah
hefur þar með unnið alla þrjá leik-
ina gegn Seattle á tímabilinu en
eins og menn muna sló Seattle lið
Utah út úr úrslitakeppninni í
fyrra eftir sjö leikja hrinu.
„Við vitum alveg hvað hefði
gerst í fyrra ef við hefðum haft
heimavöllinn í sjöunda leiknum.
Við vorum ákveðnir í að vinna
þennan leik og lögðum okkur sér-
staklega vel fram,“ sagði Karl
Malone, hin sterki leikmaður
Utah, sem skoraði 26 stig i leikn-
um, þar af 8 stig á síðustu fjórum
mínútunum.
Seattle vegnar illa gegn
stóru liðunum
Seattle, sem státaði af besta ár-
angri allra liða í vesturdeildinni í
fyrra, hefur vegnað illa upp á
síðkastið og hefur nú tapað 4 af
síðustu sex leikjum sínum. Liðinu
hefur vegnað illa gegn Utah, Hou-
ston og Lakers og hefur tapað öll-
um 7 leikjunum gegn þessum lið-
um.
Sjö leikir voru í NBA í nótt og
urðu úrslitin þessi:
Boston-Miami..............117-118
Fox 33, Williams 27 - Lenard 28,
Hardaway 23.
Toronto-Cleveland..........89-84
Williams 26, Stoudamire 19 - Brandon
25, Mffls 14.
Philadelphia-SA Spurs.......113-97
Iverson 25, Stackhouse 22 - Maxwefl 19,
Alexander 16.
Seattle-Utah Jazz............95-99
Kemp 23, Payton 22 - Malone 26, Ostertag
19.
Denver-Washington.........106-104
Pierce 23, D. Ellis 23 - Strickland 28,
Howard 22.
Phoenix-Atlanta .............99-81
Ceballos 19, Person 18 - Norman 16,
Laettner 12.
LA Lakers-Chicago...........106-90
Campbell 34, Van Exel 24 - Jordan 27,
Pippen 22.
-GH
John Stockton, leikstjórnandi Utah Jazz, lék að vanda vel meö liöi sínu í nótt þegar það vann góðan útisigur á Seattle. Stockton skoraði 9 stig í leiknum, átti
13 stoösendingar og stal knettinum frá andstæöingum alls fimm sinnum. Hér er Stockton á fleygifer með knöttinn. Símamynd Reuter
Barkley, Drexler og
Shaq ekki með
í stjörnuleiknum
Nú er ljóst að þrír af bestu leik-
mönnum NBA-deildarinnar, Char-
les Barkley og Clyde Drexler frá
Houston og Shaquille O’Neal frá
Lakers geta ekki tekið þátt í hin-
um árlega stjömuleik á milli úr-
valsliða úr austurdeildinni og
vesturdeildinni sem fer á sunnu-
dagskvöld. Þeir koma allir úr
vesturdeildinni og eiga allir við
meiðsli að stríða.
Þá gæti farið svo að lið austur-
deildarinnar yrði án Patricks
Ewings, miðherja New York, sem
er meiddur á öxl.
Detlef Schrempf hjá Indiana,
Kevin Garnett hjá Minnesota og
Chris Gatling hjá Dallas voru í
gær valdir í stað þremenning-
anna. Gamett verður næstyngsti
leikmaður stjörnuleiksins frá upp-
hafi, 20 ára. Magic Johnson var
þremur mánuðum yngri þegar
hann lék stjömuleikinn árið 1980.
-GH/VS
Sergei Bubka ætlar að vera með í Sydney:
„Mig langar til að
ná 6,20 metrunum"
Sergei Bubka, stangarstökkvar-
inn frábæri, stefnir á að keppa á
ólympíuleikunum í Sydney árið
2000 þrátt fyrir að erfið meiðsli í
hásin hafi verið að plaga hann.
Þessi 33 ára gamli Úkraínumaður,
sem hefur sett 35 heimsmet og hefur
sigrað á fimm heimsmeistaramót-
um, á ekki mjög góðar minningar
frá ólympíuleikum ef undan eru
skildir leikimir í Seoul árið 1988
þegar hann vann ólympíugullið.
Árið 1984 keppti hann ekki í Los
Angeles þar sem Rússar og fleiri
þjóðir hundsuðu leikana. í
Barcelona 1992 mistókst Bubka að
komast yfir byrjunarhæðina og á
leikunum í Atlanta siðastliðið sum-
ar þurfti hann að hætta sökum
meiðslanna í hásininni.
Bubka fer í meðferð til Finnlands
einu sinni í mánuði og hann segist
vera á batavegi.
Blæs á allar sögusagnir
„Mér líður ágætlega og ég stefni á
að vera með HM utanhúss í Aþenu í
sumar. Ég blæs á allar sögusagnir
um að ég sé að hætta. Mig langar að
ná 6,20 metrunum og ætla að keppa
fram yfir árið 2000. Ég einn veit
hvenær minn tími er liðinn og eftir
að ég hætti keppni ætla ég að verða
venjulegur íþróttamaður og spila
tennis og knattspymu mér til gam-
ans,“ segir Bubka.
-GH