Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1997, Blaðsíða 24
4
48
MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRUAR 1997
Sviðsljós
Frægu liði boð-
ið til Kúbu
Jack Nicholson, Danny De Vito,
Amold Schwarzenegger og Matt
Dillon eiga þaö sameiginlegt aö
vera miklir aðdáendur kúbverskra
vindla. Þeir eru líka í hópi mektar-
manna sem kúbversk stjómvöld
hafa boðið í leynherð til Kúbu til
að halda upp á 30 ára afmæli írægs
vindils. Bandarískir borgarar
mega hins vegar ekki fara til Kúbu
og því er úr vöndu að ráöa.
Varaforseti á
móti Evitu
Madonna og félagar hennar I
myndinni um Evitu eiga ekki von
á góðu þegar myndin verður fram-
sýnd í Argentínu í vikunni. Vara-
forseti landsins hefúr hvatt lands-
menn sína til að sniðganga mynd-
ina þar sem hún sé móðgun við
minningu hinnar elskuðu og dáðu
forsetafrúar.
Gillian Anderson yfirgaf Adrian Hughes:
Kærastinn var kærður
fyrir níu nauðganir
Gillian Anderson, sem þekktust
er fyrir leik sinn í sjónvarps-
myndaflokknum Ráðgátur og hefur
verið kjörin kynþokkafyllsta kona
heims, er búin að yflrgefa vin sinn,
Adrian Hughes, sem hún tók sam-
an við eftir að hafa yflrgefið eigin-
manninn. Ástæða þess að Gillian
sagði Adrian upp er talin vera sú
að níu konur hafa kært hann fyrir
nauðgiui.
Adrian, sem kemur fyrir rétt í
apríl, lék skrímsli í Ráðgátum þeg-
ar Gillian féll fyrir töfrum hans
síðla sumars á síðasta ári. Hún yf-
Gillian Anderson biður fyrir fyrrver-
andi kærasta sínum.
irgaf eiginmann sinn, Clyde Klotz,
sem hún sagði reyndar vera leiðin-
legan, og hélt upp á áramótin með
móður Adrians og öðrum fjöl-
skyldumeðlimum.
Nú er Gillian hrædd um að
missa forræðið yfir dóttur sinni
Piper, sem er tveggja ára, verði
Adrian dæmdur fyrir meintar
nauðganir. En Gillian hefur lýst
því yfir að hún biðji fyrir honum
og þykir ýmsum sem hún stofni
vinsældum sínum í hættu með
þeirri yfirlýsingu.
Sjálfur er Adrian ákaflega leiður
yfir skilnaðinum við Gillian, að því
er erlend slúðurblöð fullyrða. Hann
getur hins vegar ekki gert sér vonir
um að komast í náðina hjá henni á
ný því fullyrt er að hún hafi þegar
fundið annan sem einnig er leikari.
Reyndar hefur Gillian í ýmsu
öðru að snúast en ástarsorg þessa
dagana því hún berst nú fyrir því
að fá hærri laun fyrir að leika
lækninn og lögreglukonuna Scully
i Ráðgátum. Gillian er alls ekki
sátt við að mótleikari hennar, Dav-
id Duchovny, fái tvöfalt meira
kaup en hún og rúmlega það.
Brad Pitt með nýja greiðslu
Pitt sléttur og strokinn.
Hjartaknúsarinn Brad Pitt er bú-
inn að lýsa á sér hárið og breyta um
hárgreiðslu vegna hlutverks í kvik-
myndinni Seven Years in Tibet. í
myndinni leikur Pitt fjailgöngu-
mann sem á fjórða áratugnum lætur
draum sinn um að klífa eitt af Hi-
malajafjöllunum rætast.
Brad Pitt er nú farinn að undir-
búa brúðkaup sitt og Gwyneth Pal-
trow sem til stendur að halda í vor.
Hann er búinn að kaupa þrjú sam-
liggjandi hús í Hollywoodhæðum og
ætlar hann að láta reisa múr í
kringum þau svo hann og eiginkon-
an geti notið friðar.
r
Islensku tónlistarverölaunin
1997
veröa afhent a Hotel Borg
fimmtudaginn 20. febrúar
Fram knma
Emilíana Torrini og hljómsveit, Botnleöja, Anna Halldórsdóttir, Todmobile
sem eiga öll tilnefningar í flokknum "lag ársins". Einnig kemur fram
heiðursverðlaunahafi frá í fyrra, Guðmundur Steingrímsson og tríó.
v— -----------/ Forrettur:
#
Húsið verður opnað
kl. 19.00 fyrir matargesti en
kl. 21.30 fyrir aðra.
Matur er borinn fram kl. 19.30.
Þetta kvöld fara fram
gullplötuafhendingar,
auk þess sem
heiðursverðlaun verða veitt.
Verð: 2.900
(Einnig er hægt aö velja um grænmetisrétti)
SHF
Samband hljómplötuframleiðenda
Forréttur:
Laxa-quesedillas með lárperumauki og salati.
Aðalréttur:
Ofnbakað basilikum-marinerað lambafile í
polienthjúpi með sinnepsbalsamicosósu, ristuðu
grænmeti og rauðlauk, fylltum meö kartöflumousse.
Ábætir:
Ostakaka með ávaxtasósu.
#
FIH
Félag íslenskra hljómlistarmanna
Elizabeth Hurley, kærasta hórukúnnans Hughs Grants, kemur fram í sjón-
varpsþætti til heiöurs nöfnu hennar Taylor sem verður 65 ára 27. febrúar.
Hurley fer fögrum oröum um nöfnu sína, enda báðar breskar og hafa átt eöa
eiga vingott viö mikil kvennaguli. Símamynd Reuter
Julia Roberts í stríði
við nágranna sína
Julia Roberts, leikkonan snoppu-
fríða, er ekki par ánægð með ná-
granna sína í Nýju-Mexíkó, ein-
hverja algjöra sveitavarga sem búa
í hjólhýsi og halda hænur og safha
ryðguðum bílhræjum.
Julia hefúr gert árangurslausar
tilraunir til að kaupa landareign
sveitavarganna svo að útsýninu frá
búgarði hennar verði ekki spillt um
aldur og ævi. Fregnir herma að ná-
grannamir séu sármóögaðir út í
leikkonuna þar sem hún hafi aðeins
boðið þeim sem svarar þremur og
háifri miiljón króna fyrir skikann.
Grannamir vilja hins vegar fá um
25 milljónir króna, enda landið búið
að vera í eigu flölskyldunnar lengur
en elstu menn muna.
Leikkonan hefúr einnig reitt aðra
nágranna sína til reiði sem kvarta
undan þvl að ekki sé svefhfriður
Julia Roberts er vandræöapía.
fyrir hávaðanum frá næturveislun-
um hennar.
f
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
f
i
i