Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1997, Page 4
MIÐVKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1997 IjV
20 ferðir___________________________________________
Kátír dagar - Kátt fálk:
Margir af elstu sögustöðum Eng-
lands eru i suöurhluta landsins.
Þeir sem gaman hafa af því að
kynnast sögu og menningu frænda
okkar í Bretaveldi ættu að bregða
sér í hópferð meö ferðafélagi eldri
borgara, Kátir dagar - Kátt fólk, á
vegum Samvinnuferöa-Landsýnar.
Ferðin á sögustaði Englands,
London, Bath, Torquay og St. Ives
verður farin dagana 19.-28. júni, á
tíma sem er mjög hagstæður fyrir
ferðalög í Englandi. Fararstjóri
verður Lilja Hilmarsdóttir.
„Fyrsta dag ferðarinnar verður
flogiö frá Keflavík til London um
miðnætti þann 19. Júní og ekiö
beint á Hótel Bryant í miðborginni.
Þar bíða hópsins uppbúin herbergi
og gott er að hvíla sig fram undir
hádegi daginn eftir. Skömmu eftir
hádegið er farið í skoðunarferð um
London og síðan fara þeir sem þess
óska á kínverskan veitingastað í
miðborginni," sagði Lilja.
Bath er mjög fallegur bær með
langa sögu að baki. Bærinn sjálfur
er í viktoríönskum stíl með fallegum
húsum frá 18. öld.
Frjáls dagur
„Þann 20. júní njóta menn þess að
sofa út að vild og borða góðan morg-
unverð. Síðan er dagurinn frjáls.
Upplagt er að nota hann til að líta í
búðir eða fara I söfh. Eins og flest-
um er kunnugt er verðlag mjög hag-
stætt í London. Hópurinn hittist síð-
degis og fær sér snarl áður en farið
verður á söngleik sem búið verður
að ákveða á kynningarfundi sem
haldinn verður fyrir ferðina.
Daginn eftir verður lagt af stað til
Bristol þar sem gist verður þrjár
næstu nætur. Á leiðinni verður
komið við á hinum sögufræga stað
Stonehenge. Bristol á sér aldalanga
sögu sem mikilvæg hafnarborg, sér-
Ferðin á sögustaði Englands, London, Bath, Torquay og St. Ives veröur farin dagana 19.-28. júní, á tíma sem er mjög
hagstæöur fyrir feröalög í Englandi.
staklega fyrir viðskiptin við Amer-
íku. Dómkirkjan og rústimar af
gamla Ágústínusarklaustrinu eru
mjög áhugaverð. Hótel Jurys, þar
sem verður gist, er í gamla miðbæn-
um í hjarta borgarinnar.
Þann 22. júní verður farið til Bath
þar sem dvalið verður mestallan
daginn. Bath er mjög fallegur bær
og á langa sögu að baki. Bærinn
sjálfur er í viktoríönskum stíl með
fallegum húsum frá 18. Öld. í Bath
er að finna heitar uppsprettur og
hann er frægur heilsubær og hefur
verið það frá tímum Rómverja.
Rómveijar, sem þarna dvöldu fyrir
mörgum öldum, gerðu sér böð
þarna sem eru mjög falleg. Mikið er
af rómverskum rústum í Bath og
minnir bærinn meira á Ítalíu en
England. Dagurinn endar með
skemmtilegri ferð á krá en gist
verður í Bristol."
Riddarar hringborðsins
„Mánudaginn 23. júní verður far-
ið í skoðunarferð um nágrenni
Bath, meðal annars að hinum sögu-
fræga Glastonbury turni sem byggð-
ur er á hæð og talinn vera frá 12.
öld. Sagnir herma að Arthúr kon-
ungur hafi búið þar. Stór hluti kelt-
nesku riddarasagnanna er tengdur
honum. Riddarar hringborðsins
voru hsms menn og öllum þessum
sögnum kynnist hópinrinn í þessari
ferð. Síöan verður ekið til Wells og
skoðuð einhver fallegasta kirkja á
öllum Bretlandseyjum. Á framhlið
hennar eru einar 300 styttur, sumar
í ótrúlegri stærð. Biskupahöllin
með dásamlegum garði er rétt viö
og að sjálfsögðu skoðuð í leiðinni.
Gist verður í Bristol um kvöldið.
Áfangastaðurinn daginn eftir er
Paignton sem er næstum samvaxin
Torquay og er alveg niður við
ströndina. Hótel hópsins er í göngu-
færi við sandströnd og veðurfar er
þekkt fyrir að vera hvergi betra á
Bretlandi en einmitt á þessum slóð-
um. Hótelið var áður heimili Sin-
ger-fjölskyldunnar (saumavélin).
Þar eru 52 herbergi og ákaflega fal-
legt útsýni. Miðvikudaginn 25. júní
verður að loknum morgunverði far-
ið aö frægum kastala, Berry Pomer-
oy. Þar eru verðmætustu fresku-
myndir sem fundist hafa utan
landamerkja Ítalíu og eru frá 14.
öld. Síðan er farið til Torquay og
þar verður miðbærinn skoðaður,
Kents Cavem þar sem em hús og
minjar frá fomöld. Ströndin
Ansteys Cove, sem er engu lík, verð-
ur einnig könnuð. Að loknum þeim
skoðunarferðum verður gefinn
fijáls tími.“
Ekið á heimsenda
„Fimmtudagurinn 26. júní verður
lengsti dagur ferðarinnar ef svo má
að orði komast. Þá verður ekið til
St. Ives á Comwall-skaganum. St.
Ives er fiskimannabær frá 18. öld og
að margra áliti einn fallegasti bær
Englands með yndislegar strendur
og lítinn notalegan miðbæ. Bærinn
er mjög vinsæll af listafólki og er
því gaman að líta á markaðinn og
litlar verslanir sem þar er að finna.
Síðan ekur hópurinn „út á
heimsenda". Á leiðinni verður kíkt
á Tintel-kastala sem er tengdur
áðumefhdum Arthúr konungi og
þykir „dularfyllsti" kastali landsins.
Þar í grennd em líka gamlar tin-
námur. Þetta verður hápunktur
ferðarinnar en komið verður til
Paignton síðla kvölds.
Eftir aö hafa hvílt sig vel morgun-
inn eftir tekur hópurinn hina frægu
Paignton gufulest til Dartmouth en
hún er ein elsta gufulest landsins. Á
leiðinni verður komið við í Brix-
ham og endurgerö hins fræga skips,
„Golden Hind“ skoðuð. Fræöst verð-
ur um skipið og eiganda þess, Sir
Francis Drake. Dvalið verður um
stimd í þorpinu Dartmouth sem er
með yndislegum litlum húsum frá
17. Öld. Um kvöldið verður haldið
lokahóf í dvalarhótelinu.
Brottfarardaginn, 28. júní, taka
menn líflnu með ró fram eftir
morgni og síðan verður lagt af stað
til London þaðan sem flogið verður
heim til íslands með Atlanta. Inni-
falið i verði ferðarinnar er flug, gist-
ing á góðum hótelum í London,
Bristol og Paignton með morgun-
verði, allar skoðunarferðir og ís-
lensk fararstjóm.
-ÍS
Atlantik:
Siglingar
um heiminn
Ferðaskrifstofan Atlantik hefur í
19 ár verið leiðandi í þjónustu við
skemmtiferðaskip á íslandi og mun
á þessu ári sjá um komu 90
skemmtiferðaskipa víðs vegar um
landið. Á meöal skipanna í ár verð-
ur stærsta farþegaskip sem komið
hefur til landsins, Enchantment of
the Seas, en það er í smíðum fyrir
skiparisann Royal Caribhean
Cruises. í tilefni komunnar mun
Atlantik, í samvinnu við Royal
Caribbean Cruises, bjóða íslending-
um upp á siglingar víðs vegar um
heiminn á sérstökum kjörum.
Auk þess mun Atlantik hjóöa upp
á skemmtisiglingar með öðrum
skipafélögum, svo sem ferðir í
Smuguna og á aðra spennandi staði
þar sem siglt verður frá íslandi.
Ferðaskrifstofan annast einnig ráð-
gjöf og vinnur sértilboð fyrir hópa
sem hyggja á siglingu.
-ÍS
í tilefni komu eins stærsta skemmtiferöaskips sem hingaö hefur komiö mun
Atlantik, í samvinnu viö Royal Caribbean Cruises, bjóöa íslendingum upp á
siglingar víös vegar um heiminn á sérstökum kjörum.
Höfhin við Halifax-borg er
næststærsta höfhin í heiminum
frá náttúrunnar hendi. Hún er
heimsins dýpsta höfh og hana
leggur aldrei af hafls.
Arkitektúr
í Halifax er að finna ótrúleg-
an fjölda bygginga í viktor-
íönskum- , georgíönskum- og
eðvarðiskum stil og setur það
mjög sterkan svip á borgina.
Grasagarðurinn í Halifax þykir
vera besta dæmið um viktor-
íanskan stíl en þinghúsið er
besta dæmið um georgíanska
stílinn.
Andstæður
Nova Scotia býður ferða-
mönnum mikla fjölbreytni ým-
iss konar afþreyingar án þess
að leggjast þurfi í löng ferðalög
eða hafa mikið fyrir. Hægt er
að bregða sér í siglingu á kanó
og borða á fimm stjömu veit-
ingahúsi 2 klst. síðar, eyða
morgninum í að hlusta á gelísk-
an tónlistarflutning, borða há-
degisverð á frönskum veitinga-
stað með frönskumælandi þjón-
ustufólki og fara um kvöldið á
fjörugan næturklúbb eða diskó-
tek.
J
Glæpir og fíjófnaðir em af-
skaplega fátíðir í Nova Scotia
og ferðamaðurinn getur verið á
ferli að mestu áhyggjulaus. íbú-
ár era friðsamir og nægjusamir
og hafa lítinn áhuga á því að
áreita aðra.
Ekki afskekkt
Ef einhver heldur að Halifax
sé afskekkt borg þá fer hann
villur vega. Halifax var gesf-
gjafi þjóðarleiðtoga 7 stærstu
iðnríkja heims árið 1995 þegar
þeir hittust til funda og ráða-
gerða um framtíðina. Meðal
merkra manna, sem komið hafa
til Halifax, eru Jón páll páfi
árið 1984, Winston Churchill
1943, Alfred Hitchcock 1967,
Leon Trotsky 1917 og James
Cook 1758. Hvenær kemur að
þér að bæta nafni þínu á list-
ann?
Hagstætt verð
Allir íslendingar, sem komið
hafa til Kanada, vita aö hag-
| stætt er að versla þar. Halifax
er engin undantekning en
kannski ólík að því leytinu til
að það er ánægjulegt að
þramma verslunargöturnar í
borginni. Verslunarhúsin era
svo falleg og þrifaleg og era
byggð í svo fjölbreytilegum stíl
að það er upplifun að skoða þau
um leið og reyfarakaupin era
gerð.
Hjólreiðar
og göngur
Aðstaða fýrir hjólreiöamenn
eða göngugarpa á Nova Scotia
er með því besta sem gerist.
Vegir era breiðir og þægilegir,
sérstaklega meö tilliti til hjól-
reiða og það þykir ekki tiltöku-
mál að gerast puttaferðalangur
á svæðinu. Hjól er alls staöar
hægt að fá leigð og íþrótta-
mennimir leigja sér aö sjálf-
sögðu fjallahjól og fara leiðir
sem reyna á þrekiö.