Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1997, Side 11
JLfV MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1997
ferðir
Fólk er mun bjart-
sýnna en í fyrra
- um 800 manns bókuðu ferðir á fyrsta degi, segir Helgi Pétursson hjá Samvinnuferðum-Landsýn
Tíð verkföll
Verkfoll hafa verið tíð í Evr-
ópu undanfarnar vikur, sér-
staklega í löndum í syðri hluta
álfunnar. Vöruflutningabílstjór-
ar á Spáni hafa undanfama
daga verið í verkfalli og teppt
umferð allra ökutækja. Afleið-
ingin er sú að bensín og mat-
væli eru víða orðin af skomum
skammti þar sem ekki er hægt
að halda uppi umferð. Beittasta
vopn verkfallsaðila virðist vera
að teppa alla umferð á þjóðveg-
um vegna þess hve áhrifarík
hún er.
Lestarstarfsmenn
Litlu munaði að til verkfalls
kæmi hjá lestarstarfsmönnum
á Ítalíu en samkomulag náðist
milli stjórnvalda og lestar-
starfsmanna um síðustu helgi
og verkfallinu var afstýrt. Ítalía
hefur um áraraðir verið undir-
lögð af verkföllum sem hafa
haft víðtæk áhrif á ýmsa starf-
semi i landinu.
Fimm hreppar
Fimm hreppar í Mongólíu
hafa verið opnaðir ferðamönn-
um og mestallur hluti Kína hef-
ur því á undanfömum árum
verið opnaður ferðamönnum.
Samvinna
Samvinna flugfélaga færist
mjög í vöxt og sýnist sitt hveq-
um um ágæti hennar. Belgíska
flugfélagið Sabena og breska
flugfélagið Virgin Air hafa gert
með sér samstarfssamning um
sameiginlegt flug á flugleiðinni
Barcelona-Brússel. Virgin mun
að mestu leggja til flugvélar í
verkefhið en Sabena telur sig
ná fram meiri nýtingu á flug-
vélakosti sínum og stefnir að
því að lækka verð á einhverjum
leiðum í kjölfarið.
Nema land
Umferðarþungi hefur um
árabil verið mikið vandamál í
Hong Kong. Á fimmtudaginn í
síðustu viku voru opnaðir tveir
vegir frá miðborg Hong Kong
til alþjóöaflugvallarins Chek
Lap Kok. Vegimir eru byggðir
á svæði sem fyrir fáeinum
árum var sjávarbotn en fyllt
var þar upp til að fá landrými
fyrir vegina.
Boumemouth á suðurhluta
Englands hefur lengi verið einn
helsti baðstrandarbær landsins.
Nýverið var gangsett ný og at-
hyglisverð tilraun á sand-
ströndum bæjarins. Ströndinni
er skipt niður í svæði sem auð-
kennd era með lit og fá öll böm
sem stunda sjóinn á tilteknu
svæði ókeypis litaborða sem
þeim er ætlað að bera. Tilraun-
in er gerð til að auövelda for-
eldrum eða baðstrandarvörðum
að finna aftur börn sem týnast.
Tilraunin er gerð eftir hörmu-
legt slys þegar tvö ung böm,
sem vúltust frá foreldram sín-
um, drakknuðu.
Mjög mikil örtröð varð sl. sunnu-
dag þegar ferðaskrifstofurnar
kynntu nýjar ferðaáætlanir og ferð-
atilboð sín.
Helgi Pétursson, upplýsingafull-
trúi Samvinnuferða-Landsýnar,
sagði að ekki áður hafi jafn margir
bókað ferðir á sjálfan kynningar-
daginn eins og gerðist á sunnudag,
en um 800 manns hefðu bókað sig í
sumarleyfisferðir þá strax. „Það er
alveg Ijóst að fólk er mun bjart-
sýnna en það var t.d. í fyrra,“ segir
Helgi í samtali við DV.
„Við erum með sértilboð til
þeirra sem bóka sumarleyfisferðir
sínar fyrir 10. mars og veitum þeim
sérstakan 5 þúsund króna afslátt af
öllum ferðum,“ segir Helgi í samtali
við DV. Helgi segir að sumarleyfis-
ferðir Samvinnuferða-Landsýnar
hafi sennilega aldrei verið ódýrari
og sé verðlag hjá fyrirtækinu al-
mennt það lægsta sem gerist á land-
inu um þessar mundir. Þannig kosti
þriggja vikna ferð til Portúgals fyr-
ir tvo fullorðna og tvö börn innan
við 140 þúsund krónur. -SÁ
Verð til 28. febrúar Verð frá 1. mars til 30. apríl
Kaupmannahöfh 27.570 31.570
Ósló 28.270 32.270
Stokkhólmur 26.990 30.990
Amsterdam 29.860 33.860
Lúxemborg 29.100 33.100
París 29.130 33.130
Mílanó 32.900 36.900
Barcelona 32.240 36.240
Vín 33.460 37.460
Zurich 33.000 37.000
Hamborg* 29.590 33.590
Frankfurt* * Aðeins í beinu flugi Flugleiða 29.990 33.990
Pantaðu
fyrir 1. mars
og þú fcerð
sumarleyfisferð
dsérstöku
tilboðsverði!
Ferðatímabil er frá 5. apríl til 30. september.
Lágmarksdvöl er 7 dagar og
hámarksdvöl er 1 mánuður.
Gildir í beinu flugi Flugleiða og um
Kaupmannahöfn með Flugleiðum og SAS.
Flugvallarskattur er innifalinn í verði.
Nánari upplýsingar fást á söluskrifstofum oikkar,
hjá umhoðsmönnum og öllum ferðas krifs tofum.
FLUGLEIDIR