Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1997, Qupperneq 18
**
MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1997 DV
Heimsklúbbur Ingólfs og Prima:
Ferðir Heimsklúbbsins í ár eru
fjölbreyttar og sannkölluð land-
könnun, svo mjög víkja þær frá sí-
endurteknu munstri sólarferða á
strendur Spánar og Portúgals og
verslunaræðinu til Bretlandseyja
á haustin. Að vísu bjóða ferðir
Heimsklúbbsins líka upp á sól og
fagrar strendur en í allt öðru um-
hverfi Karíbahafsins þar sem
Heimsklúbburinn nam land fyrir
fimm árum.
Þótt strendur Dóminíku séu
lengra undan er verðlag þar svo
lágt að kostnaðurinn verður oft
engu meiri þegar ferðin er gerð
upp í heild. Á sumum hótelum
Dóminíku er sem sé allt innifalið
frá komu til brottfarar og fólk tek-
ur ekki upp budduna. Ekki aðeins
allur matur og drykkur af hvaða
tagi sem nefnist er innifalinn held-
ur einnig margs konar skemmtan-
ir og íþróttaaðstaða.
Margir telja eyna, sem nefnd
var Hispaniola eftir landafund
Kólumbusar 1492, hina fegurstu i
heimi. Sama gildir um íbúana sem
eru óvenju fagurlimað fólk, and-
litsfrítt og brosmilt. Þótt Heims-
klúbburinn skipuleggi og selji
ferðir fyrir hópa og einstaklinga
um allan heim skiptast feröir hans
aðallega í þrjá flokka.
Karíbahafið
Heimsklúbburinn býður upp á
ferðir i Karíbcihafið allt árið, bæði
siglingar með fullkomnustu
skemmtiskipum heimsins og dvöl
á eyjunum, einkum Dóminíku,
bæði fyrir hópa og einstaklinga.
Ferðir þessar eru sérstaklega
vinsælar við sérstök tækifæri eins
og afmæli og brúðkaup, en einnig
fyrir félagasamtök, klúbba og jafti-
vel starfsmannahópa, enda er fólk
að átta sig á kostum þeirra og hag-
stæðu verði sem oft er lægra en
veisluhöld heima eða ferðir til ná-
grannalanda.
Menningarferðir
Annar flokkurinn eru menning-
arferðir á listaslóðir Evrópu. Þær
ferðir njóta sérstaks álits hjá
Heimsklúbbnum, enda mikið til
þeirra vandað. Sumar þessara
ferða eru famar í samvinnu við
Endurmenntunarstofnun Háskóla
íslands eða stofnanir eins og Dan-
te-félagið á íslandi.
Heimsreisur
Þriðja tegund ferða Heims-
klúbbsins eru heimsreisur í fjar-
lægar álfur, einkum til Austur-
landa og jafnvel ferðir í kringum
hnöttinn. Bæði er um skipulagðar
hópferðir að ræða undir leiðsögn
þaulkunnugs manns, sérskipu-
lagðar ferðir fyrir félög eða stofn-
anir og ferðir einstaklinga.
Þama njóta sérþekking og ára-
löng sambönd Heimsklúbbsins sín
og koma farþegum beint til góða í
lækkuðum fargjöldum og sér-
samningum við valin hótel sem oft
lækka hótelkostnað um helming.
Ráðgjöf forstjórans, Ingólfs Guð-
brandssonar, sem telst einn við-
fórlasti íslendingur fyrr og síðar,
getur einnig komið að góðu haldi
og tryggt betri árangur ferðalags.
Vinsæll staður
Fyrir fólk frá köldum löndum
býr hitabeltið yfir alveg sérstök-
um töfrum með grósku sinni, lita-
dýrð og veðursæld árið um kring.
Hvort sem fólk vill fljóta á lúxus-
skipum milli eyja Karíbahafsins í
dýrðlegum munaði eða taka land á
einhverri eyjunni og dveljast þar
við heimsins lystisemdir og fjör-
lega rómanskafrisk-ameríska tón-
list, þykir það eitt eftirsóttasta og
gimilegasta svæði heimsins til að
eyða fríi sínu.
Verðlag á Dóminíku er allt að
helmingi lægra en á öðrum eyjum
Karíbahafsins en fegurðin óvíða
önnur eins og viðmót fólksins
hvergi ljúfara. Alls þessa mun fólk
njóta í páskaferð Heimsklúbbsins
sem hefst 23. mars og stendur í 12
daga. Þar gefst fólki tækifæri til að
kynnast sögu fyrsta landnáms
Spánverja í Nýja heiminum því að
dvalist verður tvo daga í hinni
glaðværu höfuðborg, Santo Dom-
ingo, og síðan ferðast yfir eyjuna
Verðlag á Dóminíku er allt að helmingi lægra en á öðrum eyjum Karíbahafsins en fegurðin óvíða önnur eins og
viðmót fólksins hvergi Ijúfara.
Hnattreisan seldist upp
í nóvembermánuði og fram í
desemberbyijun hefur Heims-
klúbburinn skipulagt lengstu hóp-
ferð íslendinga til þessa, ferð í
kringum hnöttinn, sem er öll
sunnan miðbaugs og liggur um
Suður-Afríku, Ástralíu, Nýja-Sjá-
land, Frönsku Pólenesíu með
Tahiti og þaðan þvert yfir til Suð-
ur-Ameríku með borgunum Santi-
ago de Chile, Buenos Aires og Rio
de Janeiro, en þaðan verður flogið
heim um London eftir 33 daga.
Þessi ferð gefur færi á að sjá
mörg fegurstu lönd heimsins og
framandi mannlíf sem flestum ís-
lendingum er til þessa ókunnugt.
Viðbrögð við ferðinni voru slík að
sætin seldust upp á einum degi og
nokkur viðbótarsæti næsta dag,
enda er ferðin óvenjuleg og ótrú-
lega ódýr miðað við vega- og tíma-
lengd.
þvera eftir fögram dalverp-
um og innan um aldingarða,
kaffi-, te og tóbaksekrar, að
ógleymdum appelsínu-, syk-
in- og kókospálmaekrum.
Siðan verðui' dvalist í viku
við ströndina í Puerto
Plata, þar sem allt er inni-
falið og hótelsvæðið einn
blómstrandi aldingarður.
Ítalíuferö Heimsklúbbsins hefur veriö árviss viöburður en þar veröa meðal ann-
ars heimsótt listasöfn meö heimsfrægum listaverkum. Listaverkiö „Þokkagyöj-
urnar þrjár“, úr vorinu eftir Botticelli, er á Uffizi- safninu í Flórens.
Listatöfrar Ítalíu
Ítalíuferð Heimsklúbbsins hefur
verið árviss viðburður og notið
sérstakrar hylli undir fararstjóm
Ingólfs Guðbrandssonar, sem er
mikill aðdáandi Ítalíu og ítalskrar
menningar sem hann hefur lengi
lagt stund á. Ferðin er nú yfir-
gripsmeiri en nokkurn tíma og
tekur til allra helstu listaborganna
og fegurðar landsins frá Garda-
vatni suður að Napoliflóa, Sor-
rento og Capri.
Alls staðar er gist á völdum hót-
elum í miðju borganna þar sem
listin og sagan hefur gerst - Míla-
no, Verona, með sýningunni á óp-
eranni Aida eftir Verdi, Padua,
Feneyjar, Pisa, Flórens, Siena,
Napoli, Sorrento, Pompeii og Róm,
þar sem gist er 4 nætur og 3 í Flór-
ens.
Þessi ferð er nú farin í sam-
vinnu við Endurmenntunarstofn-
un Háskóla íslands en önnur
styttri er til Toscanahéraðs í júní,
undir leiðsögn hins kunna fræði-
manns og háskólakennara, Paolo
Turchi, sem er borinn og barn-
fæddur ítali en hefur fullkomin
tök á íslensku máli, og er sú ferð í
samvinnu við stofnun Dante
Alighieri á íslandi.
Klassíska leiðin
Klassíska leiðin nefnist ferð
sem Heimsklúbburinn gerir út
aðra viku júnímánaðar, undir
leiðsögn Ingólfs Guðbrandssonar, í
samvinnu við Endurmenntunar-
stofnun Háskóla íslands. Þar
verða þræddar slóðir frægustu
tónsnillinga og skálda Þýskalands
í Eisenach, Weimar, Leipzig,
Halle, Köthen og Berlín, með sér-
stakri áherslu á barokktímann.
Töfrar 1001 nætur
Sambönd Heimsklúbbs Ingólfs
standa fostum fótum í löndum
Suðaustur-Asiu. Nú er í boði alveg
ný ferð á áður ókannaðar slóðir
þar sem það besta er í boði. Ví-
etnam vekur mikla forvitni ferða-
manna núna, eftir að landið opn-
aðist, og kemur flestum á óvart,
bæði vegna fegurðar landsins og
ótrúlegrar uppbyggingar í ferða-
iðnaði, svo að Saigon býður nú
hótel sem hvaða þjóð heimsins
sem er gæti verið stolt af.
Fólkið er kurteist, ljúft og fal-
legt og leggur sig fram við að
þjóna gestum. Eftir nokkurra daga
dvöl í Víetnam liggur leiðin til
Malasíu sem er eitt þróaðasta land
í þessum heimshluta og óviða
betra að vera ferðamaður en þar. 1
sannleika sagt fellur Evrópa alveg
í skuggann fyrir þeim gæðum sem
Malasía hefur að bjóða gestum stn-
um á miklu lægra verði. Auk dval-
ar í Kuala Lumpur og hinni fom-
frægu Malacca verður dvalist á
hvíldarstað sem þykir nú bera af
öllu öðru hvað fegurð og fullkomn-
un varðar, „Höll hinna gylltu
hesta“, sem er í nágrenni við
stærsta skeiðvöll Malasíu, og geta
þátttakendur meira að segja kom-
ist á bak austurlenskum gæðing-
um hjá „Fáksfélögum" á staðnum.
Fegurð byggingarinnar er augna-
yndi og öll þægindi með því besta
sem gerist
Þessi ferð hefst 5. október og
stendur í nærri þijár vikur. Milli
Malacca og Singapúr verður ferð-
ast með hinni nýju „Austurlanda-
hraðlest" sem er afar eftirsótt og
býður einstök þægindi. 1 Singapúr
verður dvalist á hinu nýja Grand
Plaza-hóteli sem er einstaklega
smekklegt og býður m.a. heilsu-
böð, hvíldar- og fegrunarþjónustu
í hæsta gæðaflokki.
Nýjungar
og innihalds-
ríkar ferðir