Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1997, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1997, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1997 Neytendur Raðgreiöslur vegna sólarlandaferða: Spurning hvort fólk nýtur ferðalaga á ábyrgð annarra - segir formaður Neytendafélags Akureyrar og nágrennis Vilhjálmur Ingi Árnason segir þaö spurningu hvort fólk njóti faröalags sem er á ábyrgö þeirra sem hafa skrifaö upp á fyrir þaö.-Myndin er tekin hjá Samvinnuferöum-Landsýn þar sem líf var í tuskunum á dögunum. DV-mynd gk DV, Akureyri: „Það er ávallt óheillavænlegt þeg- ar fólk er að kaupa sér það sem við getum kallað lúxus og á ekki pen- inga fyrir þvi. Eyðsla, sem ég vil kalla svo, er hlutur sem viðkomandi á að vera borgunarmaður fyrir, ann- aðhvort strax þegar viðskiptin eiga sér stað eða í ailra nánustu framtíö," segir Vilhjálmur Ingi Ámason, for- maður Neytendafélags Akureyrar og nágrennis. Vilhjálmur Ingi segir að sólar- landaferðir með afborgunum séu gott dæmi um þetta. „Þar er fólk að veita sér lúxus á þann hátt að annar aðili hefur gengið í ábyrgð fyrir greiðslunum og ég á erfitt með að ímynda mér að þaö sé hægt að njóta feröanna á þennan hátt. Gylliboö Ég vil reyndar kalla þessi tilboð ferðaskrifstofanna gylliboð. Það má segja að þessi þróun hafi byrjað fyr- ir alvöru þegar bifreiðaumboðin fór að bjóða nýjar bifreiðir með rað- greiðslum í vetur. Söluaðilar leita allra leiöa til að koma vöru sinni og þjónustu á framfæri og freista þess DV, Akureyri: „Hver og einn verður að sjálf- sögöu að meta það fyrir sig hvort hann vill fjárfesta í ferðalögum á þann hátt aö taka lán til ferðar- innar á raðgreiöslum, en ég per- sónulega myndi ekki gera það,“ segir Sveinn Pálsson, viðskipta- fræðingur hjá Kaupþingi Norður- lands, um þá nýju viðskiptahætti í ferðaþjónustu að kaupa ferðalög til útlanda á raðgreiðslum til t.d þriggja ára. Sveinn segir að með þessu sé fólk einungis að fresta greiðslum fyrir ferðimar sem það fer í og um leið aö auka skuldir sínar. „Ég hef ekki kynnt mér þessi tilboð sérstaklega en þeim hlýtur aö að ná til þeirra sem hafa ekki efni á að kaupa það sem í boði er þegar kaupin eiga sér stað með loforðum fylgja talsverður kostnaður. Ef um er að ræða t.d. ferö sem kost- ar 200 þúsund og fólk er að greiða um 50 þúsund krónur í kostnað á þremur árum er fólk að binda sig til aö borga um 7 þúsund krónur í 36 mánuði fyrir eina ferð. Annars er að verða geysilega mikið um svona viöskipti, og svo virðist sem fólk sé farið að kaupa nánast allt á þennan hátt. Við höf- um orðið mikið varir við þetta í verðbréfaviðskiptum, t.d. í desem- ber þegar verðbréfafyrirtækin em að selja i hlutabréfasjóðunum, þá er fólk að kaupa á raðgreiðslum. Það er orðið mjög ríkjandi í þjóð- félaginu að gera viðskipti á þenn- an hátt,“ segir Sveinn. -gk um að það megi borga á morgun. Þetta er í sjálfu sér ekki hægt að banna en það verður að tryggja að kaupandinn fái fullkomnar upplýs- ingar um raunverulegan kostnað. Á því hefur orðið misbrestur eins og kom svo bersýnilega í ljós þegar bílalánin komu til sögunnar. Auglýs- ingar bifreiðaumboðanna voru í sjálfu sér réttar, svo langt sem þær náðu. Hins vegar kom ekki í ljós í upphafi hver raunverulegur kostn- aður var. Skynsamlegra aö safna fyrst Þegar verið er að kaupa bifreið meö raðgreiðslum til einhverra ára er þó verið að kaupa einhvem hlut sem heldur verðgildi sínu að ein- hverju leyti og hægt er að selja ef erf- iðleikar koma upp. En þegar verið er að kaupa sólarlandaferð með rað- greiðslum er fólk að kaupa sér lúxus og lífsþægindi til að njóta í stuttan tíma. í þeim tilfellum er auövitað skynsamlegra að safha fýrst og njóta svo heldur en að njóta fyrst og ætla síðan að fara að safna fýrir lúxusn- um. Það getur ýmislegt komið upp á hjá fólki, það getur misst vinnu eða lent í veikindum og þá er komin upp allt önnur staða. Og þá kemur til kasta ábyrgðarmannanna sem verða að borga brúsann. Þeir hefðu mögu- leika á að bjarga einhverju þegar um er að ræða að hlutir hafa verið keyptir sem hægt væri að koma í verð að nýju en varðandi sólarlanda- ferðirnar er því ekki til að dreifa. Það er því um miklu meiri áhættu- viöskipti að ræða. Þegar bílalánin komu til sögunnar urðu margir til að hafa samband við neytendafélögin og benda á að það sem fram var sett stóðst engan veg- inn, þessir aðilar voru semsagt á undan Samkeppnisstofnun. Því mið- ur er það þannig, vegna þess að við- urlögin eru nánast engin, að menn hafa gert sér það að leik að setja fram auglýsingar sem alls ekki sögðu alla söguna og svo báðust þeir bara forláts þegar að því var fundið. En þegar þarna er komið sögu eru þessir aðilar búnir að fá auglýsingu og þá umfjöllun sem þeir voru að sækjast eftir. Óráösía Varðandi lánin til sólarlandaferð- anna má geta þess að innan þess geira sem er að selja slíkar ferðir eru aðilar sem finnst að of langt sé geng- ið með því að lána til fleiri ára vegna ferðalaga. Staðreyndin er nefnilega sú að ef fólk fer ekki til útlanda nema á þriggja til fjögur’-a ára fresti þá ætti það alveg eins og miklu ffek- ar reyndar að safna fyrir slíkum ferðum og fá vexti af uppspamaðin- um I stað þess að eyða fyrst og borga síðan vexti og annan kostnað af lán- unum. Þetta er því hin mesta óráðsía, i flestum tilfellum a.m.k. Þessar ferðir eru nokkuð sem fólk nýtur og svo er það búið nema ef ein- hverjar minningar sitja eftir. Hinir veiklunda og þeir sem ekki gera sér grein fyrir fjárhagsstöðu sinni glepjast til að taka þessi lán. Munur- inn á að taka lán til ferðalaga og t.d. til þess að kaupa bíl eða fasteign er sá að í öðru tilfellinu er verið að kaupa hlut sem selja má ef eitthvað kemur upp á en í hinu tilfellinu er farið í fríið og svo er það búið. Ábyrgöarmenn borga Þetta er allt saman löglegt, sé fólki gerð grein fyrir greiðslubyrði og öll- um kostnaði. Því miður eiga örugg- lega margir eftir að lenda í vandræð- um vegna afborgana af þessum ferð- um fyrst fólk hefur lent í erfiðleikum vegna kaupa á hlutum og vörum sem hægt er að skila eða selja. Þarna er búið að njóta þess sem verið var að kaupa um leið og ferðirnar eru af- staðnar og ábyrgðarmennimir koma til með að borga brúsann takist illa til en ábyrgöarmenn era oftar en ekki vinir og vandamenn. Það er líka spurningin hvort fólk nýtur ferðalaga sem er á ábyrgð annarra, þeirra sem hafa skrifað upp á fýrir það.“ -gk Leiðrétting: Jarðarberin dýrari Á tilboðssíðu DV í gær var prentvilla sem gerði það að verk- um að fersk jarðarber eru sögð mun ódýrari en þau í raun eru. Askjan, 250 g, kostar 149 kr. en ekki 79 kr. Ríkjandi viðskipta- hættir í þjóðfélaginu -:ö 3 c,°^6' twe ó 3 \eé^ s\e é s\eé i \ P, V. O Aðeins ef sótt er. Ef keypt eru 2 tilboð þá er frí 2L.Coke eöa 200 kr. afsl. £ Sveé • 6° c ° 2V> • S .568 D A L B R A LJ T 1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.