Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1997, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1997, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1997 9 DV Utlönd Frændi Mobutus vill ekki ræða frið í Saír Náfrændi Mobutus Seses Sekos, forseta Saírs, og helsti ráðgjafi hans í öryggismálum hefur hafn- að hugmyndum um friðarviðræð- ur í Suður-Afr- íku við upp- reisnarmenn sem Nelson Mandela, for- seti Suður-Afr- íku, hafði lagt til. Heimildar- maður í stjóm- kerfi Suður-Afríku sagði hins veg- ar í samtali við Reuters fréttastof- una að fulltrúar beggja aðila væru enn í Höfðaborg og lét að því liggja að enn væri hugsanlegt að þeir ræddu saman. Háttsettur suður-afrískur emb- ættismaður hafði áður sagt að deiluaðilar væra mjög tregir til að viðurkenna að þeir vildu ræða saman. Ofbeldi brýst út að nýju í höfuð- borg Albaníu Æxli fjarlægt úr heila Elísabetar Læknar fjarlægðu í gær góð- kynja æxli úr heila kvikmynda- leikkonunnar Elisabetar Taylor og tók aðgerðin fiórar klukku- stundir. Að sögn lækna á sjúkra- húsinu í Los Angeles, þar sem aðgerðin var gerð, virtist æxlið vera góðkynja og tókst þeim að fiarlægja það allt. Telja læknam- ir að kvikmyndaleikkonan, sem verður 65 ára þann 27. febrúar næstkomandi, geti farið heim af sjúkrahúsinu eftir viku. Æxliö, sem var rétt aftan við vinstra eyrað á Elísabetu, upp- götvaðist í þessum mánuði í myndatöku sem var liður í al- mennri læknisskoðun. Ráðgert hafði verið aö gera að- gerðina þann 17. febrúar en henni var frestað meðal annars vegna þess að Elísabet veiktist af inflúensu. Auk þess vildi hún Elísabet Taylor. ekki fara í aðgerðina fyrr en að lokinni hátíðarsamkomu vegna 65 ára afmælisins en veislan fór fram síðastliðinn sunnudag. Blaðafulltrúar leikkonunnar greindu frá því að böm hennar fiögur og níu bamaböm hefðu heimsótt hana á sjúkrahúsið áður en hún lagðist undir hníf- inn. Elísabet er alvön sjúkrahúsleg- um. Á undanfomum árum hefur hún tvisvar gengist undir mjaðmaaðgerð. Fyrir tveimur árum var hún í læknismeðferð vegna hás blóðþrýstings og óreglulegs hjartsláttar. Hún var hætt komin af völdum lungna- bólgu árið 1990 og fékk aftur slæma lungnabólgu tveimur árum síðar. Elísabet hefur einnig átt við bakveiki að stríða. Reuter Jeanne Calment. Sfmamynd Reuter Elsta kona í heimi 122 ára Franska konan Jeanne Cal- ment, sem talin er vera elsta konan í heiminum, heldur upp á 122 ára afmæli sitt í dag á heim- ili fyrir aldraða í Arles í suður- hluta Frakklands þar sem hún hefúr alltaf búið. Þar hitti hún einnig Vincent van Gogh þegar hún var telpa. Calment er orðin blind, bund- in hjólastól og nær heyrnarlaus. Calment, sem bæði reykti og þótti púrtvín gott, segir bros lyk- ilinn að langlífi. Reuter Ofbeldi hefur brotist út að nýju í Tirana, höfuöborg Albaníu, í mótmælum almennings gegn hægristjóm Salis Berishas forseta. Mótmælin hafa nú staðið í rúmar fimm vikur og var kveikjan að þeim fiárfestingasvindl sem gerði marga íbúa landsins gjaldþrota. Óeirðalögregla kom í veg fyrir að um eitt þúsund stuðningsmenn stjómarandstöðunnar gætu gengið um miðborg Tirana í gær. Mót- mælendur köstuðu hundmðum steina í lögregluþjónana sem margir hverjir skutu upp í loftið til að dreifa æstum mannfiöldan- um. Innanríkisráðuneytið sagði að fimm lögregluþjónar hefðu meiðst lítillega og sjö mótmælendur hefðu verið færðir á lögreglustöðina. íbúar New York gifta sig sem aldrei fyrr Mikil örtröð hefúr verið á þeim skrifstofum opinberum í New York þar sem hægt er að láta pússa sig saman eða fá leyfi til slíks. Embættismenn eru hins vegar ekki vissir um hvort það er ástin sem hefur heltekiö fiöldaxm svona eða hvort erlendir ríkis- borgarar séu að drifa sig í að ganga að eiga bandaríska borgara af ótta við að veröa reknir úr landi á grundvelli nýrra innflytj- endalaga. Embættismenn sögðú að á þriðjudag og miðvikudag hefði jafnvel komið til handalögmála milli hjónaleysa sem voru búin að bíða klukkustundum saman eftir leyfisbréfúm eða giftingarathöfn- inni sjálfri. Heath óttast klofning í íhaldsflokknum Edward Heath, fýrrum forsæt- isráðherra úr breska thalds- flokknum, veittist í gær að John Major forsætisráðherra fyrir slæ- lega forustu hans í málefii- um Evrópu og varaði við því að íhaldsflokk- urinn kynni að klofna eftir kosningamar í vor. Heath sagði fréttamönnum að Bretar hefðu ekki neinu hlutverki aö gegna í heimsmálum ef þeir væru ekki í Evrópusambandinu. Það var He- ath sem tryggði Bretum inn- göngu í samfélag Evrópuþjóða árið 1973. Reuter Ættingjar eins af fórnarlömbum aurskriðunnar í Andesfjöllum f Perú bera kistu meö líkamsleifum hins látna. Þrátt fyrir hættu á frekari aurskriöum halda björgunarmenn áfram aö leita aö þeim 300 sem saknað er. Símamynd Reuter Áttu það til áb gleyma SHARP QZ-1050 Skipuleggjari Afar nettur en öflugur skipuleggjari sem gerir þér kleift að halda utan um ýmsar upplýsingar á einfaldan og þægilegan máta. • Geymir símanúmer vina og ættingja • Lætur þig vita um afmælisdag þeirra • Minnir þig á tannlæknin, stefnu- mótiS, íþróttaæfinguna o.s.frv. Heldur utanum kostnaðarliSi þína • Geymir minnispunkta • Er klukka • Vekur þig • Er reiknivél • Er meS lykilorS (secret mode) 4.900^ FLUGLEIÐIR Heppinn áskrifandi DV hlýtur vinning á miðvikudag St. Petersburg beach, Florida Olar potti DV og Flugleiða?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.