Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1997, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1997, Qupperneq 10
10 FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1997 Spurningin Lesendur Hvaö ferðu oft á mynd- bandaleigur? Guðný Steingrímsdóttir nemi: Ekkert rosalega oft, kannski einu sinni í mánuði. Halla Amar húsfreyja: Aldrei. Guðbrandur Jónsson verslunar- stjóri: Kannski svona einu sinni í mánuði. Ragnar og Jón Þór: Tvisvar í viku. Berglind Ámadóttir nemi: Ég vinn nú á einni og leigi mér spólur þar. Inga Lára Karlsdóttir húsmóðir: Mjög sjaldan. Hvorn eiðinn á að rjúfa? Hvar er hreina loftið og óspillta náttúran sem þið eruð að státa af? Guðjón Jensson skrifar: íslendingar hafa verið duglegir að byggja upp ferðaþjónustu sína á undanfornum áratugum. Töluvert mikið fé hefur verið lagt í fjárfest- ingar til þess að byggja upp þessa nútíma þjónustu sem að mestu leyti er með eigið fé en tiltölulega fáir hafa steypt sér í botnlausar skuldir vegna þessa. Einn meginkostur þessarar fjárfestingar í ferðaþjón- ustu er sá, að einstaklingar og fyrir- tæki hafa byggt þetta smám saman upp, nánast úr engu, án þess að op- inberir sjóðir og afskipti stjóm- málamanna hafi komið til. En nú eru viðsjárverð teikn á lofti, sem kunna að draga úr áhuga erlenda ferðafólksins að paradísinni hér norður undir heimskautsbaug. Við íslendingar höfum markaðsett landið okkar sem „hreint" og „ósp- illt“ hvemig svo sem á að útskýra það. Hvað skyldu erlendu laxveiði- karlamir hugsa sem hafa keypt sér rándýr veiðileyfi til að baða ormana sína í Laxá í Kjós þegar vart sést landslagið fyrir mengun- arspúandi iðjuverum handan fjarð- arins í grennd við prestssetrið þar sem kveðnir voru einhverjir þeir fegurstu sálmar sem íslensk tunga getur státað af? Hvaða hugsanir skyldu þeir hafa til þessara ósvífnu íslensku prangara sem auglýsa landið sitt, „hreint“ og „óspiflt"? Hvert verður hlutverk okkar leiðsögumanna, þegar erlenda ferðafólkið okkar sem leggur leið sína hingað spyr: Hvar er hreina loftið og óspiilta náttúran sem þið eruð að státa af? Hvar er fallega landslagið með fjöllin sem spegla sig svo yndislega í vatnsfletinum? Hvar eru fuglarnir sem við sáum í ferðabókunum? Hvers vegna hafið þið farið svona Ula að ráði ykkar? Af hverju hafið þið spiUt umhverfi ykkar með því að leyfa byggingar á iðjuverum sem aUar siðmenntaðar þjóðir eru að losa sig við? Hvers vegna? Emð þiö svo sálarlaus og gjörsneydd fegurðarskyni að þið eyðUeggið ykkar fegurstu perlur? Hvert verður starf okkar leið- sögumannanna? Eigum við að leggjast svo lágt að ljúga meira að þessu vammlausa fólki sem greitt hefur offjár fyrir komu sína hingað og dvöl að sjá gjörspiUta náttúm, óhreint loft, mengaðar fjörur, skolpið og skítinn aUs staðar svo ekki sé talað rnn þennan gegndar- lausa subbuskap sem fylgir stór- iðju? Nei og aftur nei: Fleiri álver? Nei takk! Fleygjum ekki nátt- úruperlum íslands fyrir umhverfis- svín. Bankastjórar fai friö Sigríður J.V. skrifar: Mér gramdist verulega er ég horfði á þáttinn ísland í dag á Stöð 2 þann. 12. þ.m. Mér gramdist ádeU- an á bankastjórana. Fréttamenn fóru inn á kaffistofu þar sem aðal- lega verkafólk sat við kaffidrykkju. Þar inni var skUti sem á höfðu ver- ið skrifuð laun helstu bankastjór- anna. En fréttamennirnir sögðu bara „laun bankastjóranna" - ekki laun aðalbankastjóranna. Því hafa þeir sem fylgdust með þættinum haldið að um venjuiega bankastjóra væri að ræða. Mér leiðist því ef annar hver maður fer nú að líta þessa menn í miklum ábyrgðarstöð- um homauga. Flestir þeirra leggja mikið á sig tU þess að sinna starfi sínu og því þarf fólk ekki að vera ýkja undrandi á því hve hátt þeir era launaðir. Ábyrgð og andlegt álag. Það er þreytandi þar sem unnið er frá kl. 9 tU 5, jafnvel lengur. Og hvernig verður þetta þegar háskólamenntað fólk fer að fá þessar stöður? Það þarf að borga upp skólagjöldin og vinna upp árin sem það gat ekki unnið vegna skólans. - Ætlið þið að segja að menntun borgi sig ekki? Að það þýði ekkert að mennta sig, því fólk muni bara heimta lægri laun fyrir aUt erfiðið? Eða aukavinnuna við stjórnunarstöður? Auðvitað á að greiða laun fyrir slíkt því álagið og ábyrgðin eykst til muna. Og hvað em vissir stjórnmála- menn að rífa sig út af þessu? Loks þegar þeir eru lausir út úr sinni launaumræðu stökkva þeir upp og skamma bankastjórana fyrir sín laun! Hefnd? Fólk ætti ekki að eyða orku í svona vitleysu og hugsa held- ur um að hækka hin launin. Ég segi: Hækkið verkalaunin, niður með toUana, en látið bankastjórana í friði. Varasamur vatnsútflutningur Ætti íslenskt vatn ekki að vera eftirsótt hvarvetna á markaönum? Karl Sigurðsson skrifar: EinkennUegt að ísland skuli ekki enn hafa náð sæmilega traustri fót- festu á erlendum mörkuðum með vatnið okkar, sem á að vera eitt- hvert besta og hreinasta vatn í heimi, óg ég held raunar að svo sé. Hvert fyrirtækið eftir annað hér á landi sem hefur hafið útflutning á vatni springur á limminu. Nú síðast KEA sem gefur eftir meirihluta sinn í fyrirtæki sem flytur út vatn tU Bandaríkjanna. - Og segjast vera ánægðir að losna úr samkruUinu! En hvað veldur því að við náum engum venUegum árangri í vatnsút- flutningi? Ef vel ætti að vera gætum við verið með þeim allra stærstu á markaði drykkjarvatns hvarvetna þar sem vatns er þörf. Það hlýtur að vera einhver sá maðkur í mysunni að við íslending- ar náum ekki þama fótfestu. Er hugsanlegt að þar sé um að ræða óvandvirkni, of miklar bakteríur í vatninu eða bara þetta venjulega; óáreiðanlegheit frá hendi seljanda (svara ekki bréfum eða afhenda ekki vörur á réttum tíma o.s.frv.)? Mér finnst þetta aUt hið undarleg- asta mál með vatnsútílutninginn héðan, sem þó talsverðar vonir vom bundnar við fyrir okkur sem þjóð í hreinu, norðlægu landi. I>V Norðurlöndin i samflot Adolf skrifar: Ég er mjög sammála ThorkU nokkrum Shon sem skrifar les- endabréf í DV sl. miðvikudag um Norðurlöndin. Ég hef aldrei getað skUið hvers vegna Norðurlönd reyndu ekki fyrir sér í einni sterkri samsteypu fremur en að tvístrast eins og þau gera nú. Sum í Evrópubandalagið, önnur utan þess. Auðvitað áttu þau að hafa samflot og vera sameinuð gagnvart bákninu ESB sem þó verður líkega aldrei að fúUu sam- einað. Er þá Norðurlandasam- vinnan ekki einfaldlega fyrir bi? Mér skUst það á öUu. Það var mjög bagalegt, ekki síst fyrir okk- ur íslendinga. Dreifbýlið og þéttbýlið - fólk verður að fá að ráða Eyrún hringdi: Fréttin um að fólki fækki vem- lega í Grimsey vekur upp þá spumingu hvort réttlætanlegt sé að hinn sameiginlegi sjóður okk- ar allra, ríkið, leggi eitthvað af mörkum tU að halda þar uppi byggð. TU hvers að halda fólki í þessum afskekktu byggðum? Ef fólk vUl fara þaðan verður það að fá að fara. Það á ekki að gefa fólki falskar vonir um að á þessum stöðum sé hægt að þrauka. Það verður aldrei tU langframa. Og Grimsey er ekki eina dæmið. Borgin borgi reikningana Móðir skrifar: Ég bý í Grafarvogi og í morgun (18. febr.) ætlaði ég að hringja í Rimaskóla og tilkynna veikindi dóttur minnar. Ég iu-ingdi í nokk- ur númer hjá skólanum og loks kom símsvari sem sagði að þessi númer væru lokuð. Ég hringdi í Ráðhúsið tU að forvitnast um þetta. Þar var mér bent á að tala við Fræðslumiðstöð. Ég sagði konunni sem svaraði að númerin væru lokuð og benti hún mér þá á að hringja í Póst og síma, þetta væri hans mál. Það gerði ég og fékk það svar að búið væri að loka því ekki væri búið að borga reikningana. Það skUdi ég. Fá- ránlegt er þó að borgin skuli ekki hafa borgað símreikningana. Maður verður að geta treyst því að ná sambandi við skóla og stofnanir borgarinnar. Umræða um hús- næðisnefndir Guðbjörg hringdi: Ég las bréf frá Unni Ósk Tóm- asdóttur í DV sl. þriðjudag um Félagsmálastofhun Kópavogs og húsnæðisstofnun bæjarins. Mér finnst þetta mál þess eðlis að um það ætti að efna tU umræðu. Og einkum með tiUiti til þess að svona er ástatt víðar en í Kópa- vogi þótt hann hafi verið tekinn sem dæmi. Það er ekki verjandi að félagsmálin I einstökum bæj- um snúist upp í andhverfu sína, eins og gjörla var lýst í bréfi Unn- ar í DV. Fnykur frá Kjósverjum Ámundi hringdi: í þeirri miklu umræðu um ál- ver í Hvalfirði og mengunina sem frá því á aö stafa vU ég benda á annað atriði, sem þessu tengist, það er ammoníaks- og metangas- fnykinn frá mykjudreifurum þeirra Kjósverja þegar ekið er á þessum slóðum. Eða þegar bænd- ur hafa brennt beitilöndin á vor- in? Og svo áburðurinn sem renn- ur í vatnsuppsprettur á þessum slóðum. AUt er þetta veruiega mengandi og því spurning hver mengar mest í Hvalfirði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.