Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1997, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1997, Qupperneq 20
32 FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1997 íþróttir unglinga i>v Sundmót Reykjavíkur 1997: Halldóra heiðruð fyrir sigur á NM unglinga - varð Norðurlandameistari í 100 m bringusundi stúlkna á 1:14,09 mín. Sundmeistaramót Reykjavíkur fór fram um miðjan febrúar í Sund- höll Reykjavíkur. Allgóður árangur náðist í flestum greinum, en þó er eins og þetta mót sé ekki tekið nógu alvarlega og væri kannski lag að hafa það opið til þess að gera keppnisgreinar enn skemmtilegri. Tveir afreksmenn sundsins voru heiðraðir fyrir góða frammistöðu á síðastliðnu ári, þau Halldóra Þor- geirsdóttir, Ægi, 16 ára, fyrir Norð- urlandameistaratitil 1996 i 100 m bringusundi í Svíþjóð í desember og Umsjón Halldór Halldórsson Ríkarður Ríkarðsson, Ægi, 19 ára, en hann setti alls 4 íslensk met á styttri vegalengdum á síðastliðnu ári. Góö tilfinning Halldóra Þorgeirsdóttir, Ægi, sagði í samtali við DV að sigurinn á Norðurlandamótinu hefði verið sín stærsta stund í sundinu til þessa: „Ég var með skráðan 5. besta tímann fyrir úrslitasundið og var svona að reyna að halda í vonina um að ná á verðlaunapallinn - og var ég frekar stressuð rétt fyrir sundið. En um leið og ég kom í vatnið hvarf allt stress og alvaran tók við. Ég byijaði hægar en ég er vön en endaspretturinn var mjög góður. Ég trúði því varla þegar kom í ljós að ég hafði unnið. Verðlaunaafhend- ingin og þegar þjóðsöngur íslands var leikinn fannst mér mjög há- tíðleg stund - og alveg ógleyinanleg. í raun var ég ekki vel fyrirkölluð á Norðurlandamótinu því ég veikt- ist skömmu áður en ég fór út og var með um 40 stiga hita svo undirbún- ingurinn fór svolítið úr skorðum. - En þetta tókst hjá mér og er ég mjög ánægð. Ég á þessa frammistöðu mína að þakka Petteri Laine, þjálfara mín- um. Hann er búinn að standa ræki- lega við bakið á mér undanfarin ár,“ sagði Halldóra. Tvö efnifeg, til vinstri er Ríkarður Ríkarðsson, 19 ára, í Ægi, sem var kjörinn sundmaður Reykjavíkur 1996 og til hægri er Halldóra Þorgeirsdóttir, Ægi, sem varð sérstaklega heiðruð fyrir vasklega framgöngu á Norðurlandamóti unglinga í Svíþjóð í desember sl. því stúlkan geröi sér lítið fyrir og sigraði í 100 m bringusundi sem er aldeiiis frábær árangur. Ríkarður valinn sund- maður Reykjavíkur 1996 - setti 4 ný íslensk met á síðasta ári Á Sundmóti Reykjavíkur 8. febrúar var Ríkarður Ríkarðs- son, Sundfélaginu Ægi, kjörinn sundmaöur Reykjavíkur fyrir ár- ið 1996. Ríkarður á glæsilegan feril þó ungur sé, því hann er aöeins 19 ára. Hann setti alls fjögur íslandsmet á styttri vegalengdum á síðasta ári og eru þau sem hér segir. íslandsmet 1 25 metra laug: 50 metra skriðsund........23,51 50 metra flugsund............25,29 100 metra flugsund..........56,05 Islandsmet í 50 m laug: 50 metra flugsund............25,75 Ljóst er af upptalningunni að Ríkarður er vel að kjörinu kom- inn - en það er einnig staðreynd að hann hefur alla burði til þess að bæta þessi frábæru met sín á komandi vikum og mánuðum. Ríkarður byijaði að æfa sund hjá Ægi 1993, eftir heimkomu frá Svíþjóö. Stefán Geirsson, HSK, sigraði í kúluvarpi sveina á MÍ 15-18 ára, varpaöi 15,64 metra. Mikið efni. Meistaramótið innanhúss í frjálsum íþróttum, 15-18 ára, í Laugardalshöll: Ánægður með frammistöðu krakkanna - segir Þráinn Hafsteinsson frjálsíþróttaþjálfari Þráinn Hafsteinsson, frjálsí- þróttaþjálfari hjá ÍR, var að sjálf- sögðu viðstaddur þegar unglinga- meistaramótið innanhúss, 15-18 ára, fór fram 8. og 9. febrúar sl. í Laugardalshöll og Baldurshaga. Mótið, sem var undir góðri stjóm ÍR-inga, tókst mjög vel og var met- þátttaka að þessu sinni því 230 ein- staklingar mættu til leiks. En hvað segir Þráinn um frammi- stöðu unglinganna? Tvö glæsileg met „Ég er á margan hátt mjög á- nægður með árangur hinna ungu íþróttamanna. Tvö glæsileg íslands- met voru sett, Guðný Eyþórsdóttir, ÍR, í langstökki meyja, 5,69 m, og Einar Karl Hjartarson, USAH, sem setti nýtt drengja- og unglingamet í hástökki, 2,11 metra, sem hann bætti reyndar á íslandsmótinu inn- anhúss í 2,12 m. Þessi árangur hans er jafnframt sá 3. besti á íslandi frá upphafi í hástökki karla innanhúss. Bæði Guðný og Einar Karl sýndu á þessu móti að þau hafa hæfileika til að ná langt á alþjóðamælikvarða haldi þau uppteknum hætti. í sveinaflokki, 15-16 ára, sigruðu FH-ingar í stigakeppni félaga og vöktu ungir og efhilegir stökkvarar, þeir Jónas Hallgrímsson og Logi Tryggvason, athygli. ívar Öm Ind- riðason, Ármanni, og Atli Steinar Stefánsson, UFA, vom mjög áber- andi í spretthlaupunum og stökkum og em báðir með þeim efiiilegustu sem hafa komið fram á íslandi. Stef- án Geirsson, HSK, er einnig mjög fjölhæfur íþróttamaður. í drengjaflokki sigraði FHeinnig eftir hörkukeppni við strákana úr Tindastóli. Sveinn Þórarinsson, FH, átti þar stóran hlut en hann einn aflaði félagi sínu 36 stiga. Sigurður Karlsson, Tindastóli, var fram- arlega í mörgum greinum en þessir tveir eru okkar efnilegustu tug- þrautarmenn í dag og framtíðaraf- reksmenn. í meyjaflokki, 15-16 ára, höfðu ÍR- ingar mikla yfirburði og sigraðu í stigakeppninni. Þar vora fremstar í flokki Guðný Eyþórsdóttir og Stein- unn Guðjónsdóttir, sem báðar unnu til verðlauna í fjölda greina. Guðný er yfirburðamanneskja í sprett- hlaupum og langstökki. Einnig vakti sérstaka athygli Helga Egg- ertsdóttir frá Vestmannaeyjum en hún var aðeins 1 sm frá íslandsmeti í þrístökki, stökk 11,44 m, og stökk vel í hástökki og langstökki. í stúlknaflokki sigraði ÍR í stiga- keppni félaga, annaö árið í röð. Guð- björg L. Bragadóttir fór þar fremst í flokki og vann til fjölda verðlauna og náði ágætis árangri í mörgum greinum. - Sigurlaug Níelsdóttir, UMSE, og Inga D. Þorsteinsdóttir vöktu einnig athygli í þessum flokki fyrir góðan árangur og fjölhæfni. í heildarstigakeppni félaga var mikil barátta milli ÍR og FH og tókst FH-ingum að síga fram úr og sigra undir lokin. Greinilegt er að öflugt uppbyggingarstarf hjá FH og ÍR er að skila sér í góðum árangri. Lið Tindastóls vakti og at- hygli en þar era að koma fram efnilegir strákar. - Umf. Akureyrar náði f 5. sæti í stigakeppninni og er það besti árangur félagsins í Gu&björg Braga- mótinu til dóttir, ÍR, vann i þessa,“ sagði hástökki stúlkna, Þráinn. stökk 1,55 metra. Sundmót Reykjavíkur: Úrslit 200 m skriðsund karla: Sigurgeir Hreggviðsson, Ægi. 1:56,59 Richard Kristinsson, Ægi. ... 1:57,67 Ríkarður Ríkarðsson, Ægi. .. 2:01,22 200 m skriösund pilta: Tómas Sturlaugsson, Ægi . . . 2:06,04 Eyþór Öm Jónsson, Ægi.... 2:09,70 Bjami Gunnarsson, Árm.... 2:15,03 200 m skriðsund drengja: Ari Gunnarsson, Árm.........2:32,38 Magnús Sigurðsson, KR.......2:39,82 Bergur Þorsteinsson, KR .... 2:46,68 200 m skriðsund sveina: Pétur Guðnason, Ægi.........3:27,33 Amar H. ísaksen, Ægi........3:38,25 200 m skriðsund, kvenna: Hildur Einarsdóttir, Ægi.... 2:18,66 Hrafhhildur Guðmundsd., Á.. 2:37,98 200 m skriðsund stúlkna: Anna B. Guðlaugsdóttir, Ægi. 2:17,84 Kristín Þ. Kröyer, Á........2:19,19 Ragnhildur Hreiöarsd., Ægi.. 2:21,87 200 m skriðsund telpna: Dagmar Birgisdóttir, Ægi . . . 2:20,62 Louisa Isaksen, Ægi.........2:20,70 Þórey R. Einarsdóttir, Ægi . . 2:25,55 200 m skriðsund meyja: Harpa Viðarsdóttir, Ægi .... 2:24,41 Sunna María Jóhannsd., Á. . . 2:59,45 Þóra Matthíasdóttir, Ægi.... 3:13,69 100 m bringusund karla: Marteinn Friðriksson, Á. . . . 1:10,20 Kristján Joensen, Ægi.......1:12,99 Jón Þ. Sigurvinsson, KR .. .. 1:17,81 100 m bringusund pilta: Jakob J. Sveinsson. Ægi .... 1:09,36 Einar Ö. Gylfason, Á........1:14,33 Bjami F. Guðmundsson, Ægi. 1:20,41 100 m bringusund drengja: Kári Þ. Kjartansson, KR.....1:35,41 Bjami Bjamason, KR..........1:44,64 Kristján Jóhannsson, KR.... 1:50,64 100 m bringusund sveina: Amar H. Isaksen, Ægi........1:57,51 Pétur Guðnason, Ægi.........2:08,41 100 m bringusund kvenna: Kristín Guðmundsdóttir, Ægi 1:19,98 100 m bringusund stúlkna: Berglind R. Valgeirsd., Á . .. 1:20,37 Halldóra Brynjólfsdóttir, Á.. . 1:26,65 Ama B. Ágústsdóttir, Ægi. . . 1:27,62 100 m bringusund telpna: Louisa Isaksen, Ægi.........1:23,43 Jóhanna B. Durhuus, Ægi... 1:29,51 Lilja Þ. Þorgeirsdóttir, Ægi. . 1:33,06 100 m bringusund meyja: Sunna M. Jóhannsdóttir, Á. . 1:31,86 Harpa Viðarsdóttir, Ægi .... 1:32,16 Berglind Ámadóttir, KR ... . 1:38,75 100 m flugsund karla: Rikarður Ríkarðsson, Ægi.... 58,86 Richard Kristinsson, Ægi.. .. 1:02,84 Ásgeir V. Flosason, KR......1:08,10 100 m flugsund pilta: Lárus A. Sölvason, Ægi......1:06,70 Bjami Gunnarsson, Á.........1:09,38 Bjami F. Guðmundsson, Ægi. 1:19,06 100 m flugsund drengja: Hjörtur M. Reynisson, Ægi . . 1:08,04 Pétur G. Hermannsson, Ægi . 1:21,72 Ari Gunnarsson, Á...........1:25,36 100 m flugsund kvenna: Hrafhhildur Guömundsd., Á.. 1:16,85 100 m flugsund stúlkna: Berglind R. Valgeirsd., Á. . . . 1:17,46 Heiðrún P. Maack, KR........1:18,83 Ragnhildur Heiðarsd., Ægi .. 1:22,80 100 m flugsund telpna: Hildur Ýr Viðarsdóttir, Ægi.. 1:17,68 Lilja Þ. Þorgeirsdóttir, Ægi.. 1:20,56 Þórey R. Einarsdóttir, Ægi .. 1:21,49 100 m flugsund meyja: Harpa Viðarsdóttir, Ægi .... 1:35,19 Kristín S. Watkins, KR ..... 1:46,17 Sunna M. Jóhannsdóttir, Á. . 1:50,18 100 m baksund karla: Ríkarður Ríkarðsson, Ægi. . . 1:04,69 Kristján Joensen, Ægi.......1:06,57 Marteinn Friöriksson, Á. . .. 1:07,85 100 m baksund pilta: Ásgeir H. Ásgeirsson, Á.....1:08,81 Guðmundur S. Hafþórss., Á. . 1:08,95 Sigurður Ö. Magnússon, Á. .. 1:13,13 100 m baksund drengja: Bergur Þorsteinsson, KR .. .. 1:20,91 Pétur G. Hermannsson, Ægi . 1:22,62 Ari Gunnarsson, Á...........1:25,36 100 m baksund sveina: Pétur Guðnason, Ægi.........2:01,61 100 m baksund kvenna: Hrafhhildur Guðmundsd., Á. . 1:24,84 100 m baksund stúlkna: Kristin Kröyjer, Á..........1:14,30 Halldóra Brynjólfsdóttir, Á. . 1:18,27 Elín M. Guðbjartsdóttir, Ægi. 1:19,72 100 m baksund telpna: Dagmar Birgisdóttir, Ægi .. . 1:20,49 Jóhanna B. Durhuus, Ægi... 1:22,78 Katrín D. Guðmundsd., A. .. 1:25,78 100 m baksund meyja: Harpa Viðarsdóttir, Ægi .... 1:22,49 Berglind Ámadóttir, KR .... 1:32,08 Sunna M. Jóhannsdóttir, Á. . 1:38,61 4x50 m skriðsund karia: 1. A-sveit Ægis............1:42,11 2. A-sveit Ármanns..........1:47,97 3. A-piltasveit Ægis........1:48,76 4x50 m skriðsund kvenna: 1. A-stúlknasveit Ægis.....2:01,65 2. A-stúlknasveit Ármanns.. . 2:02,47 3. B-stúlknasveit Ægis......2:08,99 4x50 m skriðsund drengja: A-drengjasveit KR...........2:40,09 4x50 m skriðsund telpna: 1. A-telpnasveit Ægis......2:05,69 2. B-telpnasveit Ægis.......2:13,66 3. A-telpnasveit Ármanns.. .. 2:20,62

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.