Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1997, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1997, Síða 24
36 FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1997 nn Fyrr má nú rota en dauðrota „Þaö á að sjálfsögöu að greiða bankastjórum góð laun eins og öðrum sem bera mikla ábyrgð, en fyrr má nú rota en dauðrota." Kristln Ástgeirsdóttir alþingisma&ur, á Alþingi. Gamall hval- skurðarmaður „Ég er gamall hvalskurð- armaður og hef verið hlynntur því að við veiðum hval.“ Halldór Blöndal samgöngurá&herra, í DV. Eigum enga möguleika „I dag eigum við enga mögu- leika gagnvart félögunum er- lendis. Við erum blankir og verðum að horfast í augu við það.“ Porbjörn Jensson, landsli&sþjálfari í handbolta, í Degi-Tímanum. Ummæli Örvænting R-listans „í örvæntingu vegna gagnrýni á R-listinn ekki að rjúka til og sjá það eitt sér til bjargar að skipuleggja umhverfisslys í Geldinganesi." Gunnar Jóhann Birgisson borgarfull- trúi, i DV. Dead Sea Apple skemmtir á síð- degistónleikum í Hinu húsinu. Síðdegis- tónleikar í Hinu húsinu Á föstudögum er yfirleitt efnt til síðdegistónleika í Hinu hús- inu og í dag er það hljómsveitin Dead Sea Apple sem mun leika og kemur hún örugglega til með aö spila lög af plötu sinni, Crush, sem kom út fyrir jól. Buttercup og Ray-Bees á Rósenberg Lifandi tónlist verður sem fyrr í Rósenbergkjallaranum. t kvöld er það Buttercup sem skemmtir og er rokk og ról þema kvölds- ins. Annað kvöld eru það svo Ray-Bees sem skemmta gestum í Rósenbergkjallaranum. Skemmtanir Sælusveitin á Gullöldinni Á Gullöldinni, sem er í Grafar- vogi, verða tveir dansleikir um helgina. I kvöld leikur Sælu- sveitin fyrir dansi en annað kvöld er það Kiddi Rós sem skemmtir gestum á Gullöldinni. Dansgólfið opnað á Nelly's Nelly’s er nýr staður í gamla bænum. í kvöld opnar Nelly’s diskótek sem er á efri hæðinni. Boðið verður upp á skemmtiat- riði. Einar Kristján Einarsson gítarleikari kemur fram og hin- ar spænskættuðu Maria og Lolita setja punktinn yfir i-ið. Snjókoma norðanlands en þuirt syðra Allkröpp 940 mb lægð um 100 km norðaustur af Langanesi þokast heldur vestur í fyrstu en síðan norð- austur. Nærri kyrrstæð 970 mb lægð er á suðvestanverðu Grænlandshafi. Veðrið í dag Búist er við norðvestan- og vest- anátt, víða allhvassri eða hvassri austanlands en mun hægari suð- vestan til. Snjókoma verður víðast norðanlands en þurrt syðra. Það lægir talsvert er líður á daginn en í kvöld og nótt verður vestan og norð- vestan kaldi og él, einkum norðan- og vestanlands. Vægt frost verður víðast hvar. Á höfuðborgarsvæðinu er búist við vestan kalda eða stinningskalda og úrkomulitlu í fyrstu en síðan verður suðvestan kaldi og él. Frost verður á bilinu 0 til 3 stig. Sólarlag í Reykjavík: 18.22 Sólarupprás á morgun: 08.59 Síðdegisflóð í Reykjavík: 18.27 Árdegisflóð á morgun: 06.38 Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri skafrenningur 0 Akurnes skafrenningur 0 Bergstaöir snjókoma -2 Bolungarvík snjókoma -2 Egilsstaóir alskýjaö -2 Keflavíkurflugv. skýjaö -1 Kirkjubkl. alskýjaö -1 Raufarhöfn slydda 0 Reykjavík skafrenningur 0 Stórhöföi úrkoma í grennd 0 Helsinki snjók. á síö. kls. -1 Kaupmannah. rigning 5 Ósló hálfskýjað 0 Stokkhólmur rigning 2 Þórshöfn haglél á síó. kls. 3 Amsterdam skýjaö 10 Barcelona léttskýjaö 7 Chicago rigning 7 Frankfurt skýjaö 8 Glasgow skúr 5 Hamborg rigning 9 London skýjaö 11 Lúxemborg skýjaö 6 Malaga léttskýjaá 7 Mallorca heiöskírt 3 Miami París skýjaö 7 Róm þokumóöa 6 New York heiöskírt 4 Orlando léttskýjaö 19 Nuuk Vín alskýjaö 5 Winnipeg léttskýjaö - -15 Sölvi Fannar Viðarsson leiðbeinandi: Hef alltaf verið fróðleiksfús „Það er mitt starf hér hjá World Class að þjálfa fólk og aðstoða eft- ir fremsta megni, hvort sem það er að bæta á sig vöðva eða minnka fitu,“ segir Sölvi Fannar Viðars- son leiðbeinandi sem hefur verið nokkuð áberandi í umræðunni um nýtt og betra líf sem meðal annars hefur farið fram á síðum DV. Þá er hann ekki síður þekktur sem þjálf- ari Gauja litla sem landslýðurinn hefur fylgst með frá því í haust þegar Gauji byijaði átak sitt í beinni útsendingu í Sjónvarpinu. Sölvi Fannar er sjálfmenntaður á sviði líkamsræktar: „Ég hef ver- ið í íþróttum allt frá níu ára aldri og hef alltaf verið einstaklega fróð- leiksfús. Meðfram íþróttunum hef ég lesið mikið um næringarfræði Maður dagsins og allt sem þeirri grein tengist og töluvert í iþróttalæknisfræði þannig að allur minn fróðleikur og reynsla í þjálfun er samsafn af reynslu og áhuga.“ Sölvi var spurður hvemig hon- um hefði fundist að taka við þjálf- un Gauja litla: „Mér fannst það strax mjög skemmtilegt. Þetta er krefjandi verkefni sem krefst mik- Sölvi Fannar Viðarsson. ils aðhalds og það hefur tekist mjög vel, enda er hann áhugasam- ur og duglegur. Gauji æfir níu sinnum í viku og það er staðreynd aö enginn fær meira út úr líkams- ræktinni en hann leggur sjálfur í hana.“ Sölvi segist ekki þjálfa mikið sjálfur: „Það hefur aldrei verið jafn mikið að gera í líkamsrækt- inni eins og núna þannig að ég er hér frá morgni til kvölds og hef lít- inn tíma fyrir sjálfan mig. En það má segja að um leið og ég þjálfa aðra þá þjálfa ég sjálfan mig að einhverju leyti.“ Sölvi hefur stundað mjög marg- ar íþróttagreinar í gegnum tíðina: „Ég hef verið í karate, júdó, frjáls- um íþróttum, vaxtarrækt, boxi og aðeins í kraftlyftingum. Ég dvaldi eitt ár í Litháen og æföi þar með íþróttamönnum sem eru í fremstu röö þar í landi og þar lærði ég heilmikið." Er fólk duglegt að fara eftir leið- beiningum? „Það er að láta segjast mun meira en verið hefur og þar á örugglega sinn þátt sú mikla um- fjöllun um allt sem viðkemur lík- amsræktinni. Þetta var ekki svona, það var mun meira um að hver væri i sínu horni með lyft- ingartæki og tryði á kraftaverk- in.“ Sölvi Fannar hefur fleiri áhuga- mál en líkamsræktina: „Ég sem ljóð og spila töluvert á gítar og nú stefni ég ótrauður að því að gefa út ljóðin. Spilamennskan er meðal annai-s fólgin í því aö spila fyrir mánaðargamla dóttur mína.“ Eig- inkona Sölva er Guðný Ósk Garð- arsdóttir. -HK Myndgátan Lausn á gátu nr. 1741: Stríðsundirbúningur Myndgátan hér aö ofan lýsir orötaki. Myrkir músíkdagar Myrkir músíkdagar halda áfram og nú er kom- ið að kvenna- kómum Vox Feminae en tónleikar með kómum verða i Digra- neskirkju í kvöld kl. 20.30. Flytur kórinn bæði verk eftir inn- lenda höfunda og erlenda. Verkin eftir innlendu höf- undana eru: Friðarbón og dýrð- arsöngur, Trúarjátning, Heilag- ur og Guðslamb, sem öll eru eft- ir Þorkel Sigurbjömsson, Salut- atio Mariae eftir Jón Nordal, Sal- ve Regina eftir Hjálmar H. Ragn- arsson og Haustvisur til Máríu eftir Atla Heimi Sveinsson. Stjórnendur Vox Feminae era Sibyl Urbancic og Margrét Pálmadóttir. Tónleikar Margrét Pálma- dóttir er annar tveggja stjórnenda I kvöld. Konsertflygill vígður Nýr konsertflygill verður formlega vígður á tónleikum sem hcfjast í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju kl. 14 á morg- un. Á tónleikunum verður ein- leikur á píanó og einsöngur og kórsöngur við píanóleik. Ágóði af minningartónleikum tmi Ingimar Eydal, sem haldnir voru í haust, rann til kaupa á flyglinum en ágóðinn af tónleik- unum varð um 2,4 milljónir króna. Akjureyrarbær lagði fram 3 milljónir en flygillinn kostaði um 6,5 milljónir króna. Hann er af gerðinni Steinway D eða af stærstu gerð flygla frá þessum heimsþekkta flyglafram- leiðanda. Bridge Pakistaninn Zia Mahmood hefur undanfarin ár spilað á Macallan boðsmótinu í tvímenningi með Omar Sharif sem spilafélaga. Á síð- asta Macallan-móti, sem fram fór í lok janúar, var spilafélagi hans hins vegar Brasilíumaðurinn Gabriel Chagas. Þegar Zia og Chagas mættu Omari Sharif og Christian Mari frá Frakklandi var eftirvænting áhorf- enda mikil að sjá hvernig viðureign- in færi. Þrjú fyrstu spilin í innbyrð- is setu þeirra vom tíðindalítil en í fjórða spilinu gerðist þetta. Sagnir gengu þannig: aOir á hættu og norð- ur gjafari: ♦ G982 4* 4 4- 985 4 K9853 4 107 4» ÁG62 4 KD2 4 ÁDG2 4 ÁD54 853 4 G73 4 764 4 K63 4* KD1097 4 Á1064 4 10 Norður Austur Suður Vestur Chagas Sharif Zia Mari pass 1 G pass 24 pass 3» pass 34 pass 44 dobl redobl pass 44 pass 4 G pass p/h 5» pass 6» Blekkidobl Zia á fjóram laufum hafði úrslitaáhrif á spilið. Zia spil- aði út trompi í upphafi, Sharif tók þrisvar tromp og tók síðan KD í tígli. Bæði Zia og Chagas gáfu falska talningu í litnum og Sharif staldraði við. Nauðsynlegt var að fá 2 slagi á lauf ef tígullinn féll ekki eða spaða- ás lá hjá norðri. Þess vegna spilaði Sharif laufásnum og trompsvínaði laufdrottningu til norðurs og fór strax einn niður. Hann tapaði 15 impa á þessari spilaleið, i stað þess að græða 9 ef hann hefði spilað spaða á kóng. Zia er eitraður and- stæðingur, eins og margir hafa brennt sig á. ísak Öm Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.