Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1997, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1997, Qupperneq 7
7 MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1997 pv Sandkorn Ovenjulega nánir vinir í héraðsfréttablaðinu Vestra er sagt frá þvi aö mjög náin samvinna hafi einkennt samstarf Kristjáns Þórs Júlíussonar, bæjarstjóra ísa- fjarðarbæjar, og Þorsteins Jóhannssonar, forseta bæjar- stjórnar og oddvita sjálf- stæðismanna í bæjarfélaginu. Þeir félagar eru enda báðir sjálfstæðis- menn. Auk ná- innar sam- vinnu í bæjarmálunum eru þeir nánir vinir. Um þetta hefur nokkuð verið rætt vestra og segja menn að hnífurinn gangi ekki á milli þeirra félaga. Nokkrir menn voru að gant- ast með þetta sín á milli þegar íþróttamaður ísafjarðarbæjar var valinn á dögunum. Þá kom Guðjón Þorsteinsson, „Gaui stóri", eins og hann er kallaður, en hann er að- aldriffjöðrin í körfuboltaliði ísfirð- inga, aðvífandi og heyrði á tal manna. „Já, þeir eru svo nánir,“ sagði Gaui, „að þegar annar drekk- ur kók þá ropar hinn.“ Fjöldaframleiðsla Frétt mánudagsins var án efa sú frá Skotlandi um að vísindamönn- um hefði tekist að klóna kind. Það þýðir að hægt er að búa til ná- kvæma eftirlík- ingu af dýrum og fólki. Mörg- um hefúr ofboö- ið þetta og þeir halda því fram að það hefði átt að banna vís- indamönnunum að standa í þeim rannsókn- um sem leiddu til uppgötvun- arinnar. Mönnum líst illa á að bún- ar verði til eftirlíkingar ákveðinna manna. Það hefur aldrei verið kært á milli þeirra Áma Johnsens alþing- ismanns og Eggerts Haukdals, fyrr- um alþingismanns. Sagan segir að þegar Eggert heyrði fréttimar frá Skofiandi hafi hann sagt: „Þetta er grafalvarlegt mál. Hugsið ykkur ef þeir fara nú aö fjöldaframieiða Áma Johnsen." Stöð tvö og hálft Það hefur fátt vakið meiri athygli hér á landi síðustu dagana en sam- mni Stöövar 3 og Stöðvar 2. Sagði margur þegar hann heyrði þetta að hann léti segja sér þetta „tveim sinnum", eins og Sverrir Her- mannsson bankastjóri seg- ir stundum þeg- ar hann er hissa á ein- hverju. Eftir allt sem á und- an var gengið þótti samruninn afar ólíklegur. Og nú hefur þaö gerst að sjónvarpsrás- in Sýn hefur eins og lent þama á milli og er henni nú gert að sjón- varpa á þeirri rás sem Stöð 3 hafði. Gárungar sem voru að ræða um þetta i gær höfðu á orði að skipta ætti um nafn á Sýn og kalla hana Stöð 2'4 Best heima á Höllustöðum Fyrir nokkm var viðtal við Pál Pétursson, félagsmálaráðherra og bónda á Höllustöðum, í útvarpinu. Þar lýsti Páll því meðal annars yfir að enda þótt ráðherradómur- inn væri mikið starf væri hug- urinn ailtaf heima á Höllu- stöðum. Málið var að sjálf- sögðu rætt með- al þingmanna og þá var auð- vitað stutt í vís- una. Jón Kristjánsson, samflokks- maður Páls, orti þá. Auðveldlega gleðst með glöðum, garpurinn er vís tfi ails. Séra Hjálmar Jónsson tók viö og botnaði og talaði auðvitað um hold- ið og andann eins og presti sæmir: Hugurinn er á Höllustöðum en holdið, það er sunnan fjalls. Umsjón Sigurdór Sigurdórsson Fréttir Verkfall í Mjólkursamsölunni 9. mars: Allsherjarverk- fall í landinu í lok mars - takist ekki samningar „Það verða engin bardaga- vígi hér fyrir utan bæ til að stöðva mjólkur- flutninga til borgarinnar eins og var í gamla daga. Það eru allt önnur viðhorf nú og svo miklar breytingar hafa átt sér stað frá því sem var hér áður fyrr. Verk- fall hjá Mjólkur- samsölunni er bara fyrsta verk- fallið í röð margra verkfalla uns allsherjar- verkfall tekur við 23. mars hafi kjarasamningar ekki verið undirritaðir fyrir þann tíma. Og einhvers staðar verður að byrja," sagði Halldór Bjömsson, for- maður Dagsbrúnar, aðspurður hvers vegna ákveðið hefði verið að heQa verkfallsaðgerðir hjá Mjólkur- samsölunni. Halldór segir að eftir að Dags- brún lýsti því yfir að fyrsta verkfall- ið hefði verið ákveðið 9. mars hefði heldur betur vaknað áhugi fyrir samningafundum. Einn var boðað- ur í gær, klukkan 17.30, og annar í morgun, klukkan 8. Það er ljóst að Dagsbrún hefur tekið frumkvæð- ið í þeirri verka- lýðsbaráttu sem nú á sér stað. í gærmorgun boð- uðu forráða- menn landssam- banda innan ASÍ til fréttamanna- fundar þar sem tilkynnt var að nú skomðu þau á aðildarfélög sín að hefja þeg- ar boðun að- gerða í samræmi við áætlanir sín- ar. Aðgerðirnar verði vaxandi fram eftir mars- mánuði og endi með allsherjar- verkfalli hafi samningar ekki tekist. Grétar Þorsteinsson, forseti Al- þýðusambandsins, sagði á þessum fundi að það lægi algerlega ljóst fyr- ir að til allsherjarverkfalls kæmi í landinu í lok mars hefðu kjara- samningar ekki náðst fyrir þann tíma. Kröfur verkalýðshreyfingar- innar hefðu legið fyrir í október síð- astliðnum. Síðan þá hefði nákvæm- lega ekkert gerst i samningamálun- um og við það yrði ekki unað legur. -S.dór Halldór Björnsson, formaöur Dags- brúnar Hverfafundur * með borgarstjóra Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri heldur hverfafund með íbúum í Laugarnes- Lækja- Teiga- Langholts- Sunda- Heima- og Vogahverfi ásamt Skeifunni í Langholtsskóla fimmtudaginn 27. febrúar kl. 20.00. Á fundinum mun borgarstjóri m.a. ræða um áætlanir og framkvæmdir í hverfunum. Síðan verða opnar umræður og fyrirspurnir með þátttöku fundarmanna og embættismanna borgarinnar. Jafnframt verða settar upp teikningar af fyrirhuguðum framkvæmdum í hverfunum ásamt öðru fróðlegu og myndrænu efni. Allir velkomnir. Skrifstofa borgarstjóra. r HVITARA $ BALENO WAGON 4 WD Tveir góðir í snjoinn: Og líttu á verðið: SUZUKIVITARA JLX, 5-dyra: aðeins 1.940.000 KR. BALENO WAGON 4WD fyrir aðeins 1.580.000,-kr. Prufukeyrðu Suzuki í dag SUZUKI BÍLAR HF Taktu nokkrar beygjur, finndu þcegilegan gír. skeifunni 17,108 Reykjavík. Mjúkur og léttur - eins og akstur á ao vera. Sími 568 51 oo. SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf. Laufásqötu 9, sími 462 63 00. Egilsstaðir: Bíla og búvélasalan hf. Miðási 19, sími 471 20 11. Keflavík: BG bílakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Hafnarfjörður: Guðvarður Eliasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. 'SUZUKI 1 AFLOG ÖRYGGI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.