Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1997, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1997, Side 25
MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1997 37 DV Ragnheiður Steindórsdóttir og Kristbjörg Kjeld í hlutverkum sínum. í hvítu myrkri í kvöld er aukasýning á Litla sviði Þjóðleikhússins á leikriti Karls Ágústs Úlfssonar, í hvítu myrkri. Þetta leikrit hefur notið mikilla vinsælda í vetur en verð- ur nú að vílga fyrir Listaverkinu eftir Yazminu Reza. Er því komið að lokasprettinum og sýningin í kvöld er sú næstsíðasta. Síðasta sýningin er svo á sunnudags- kvöld. Sögusvið verksins er einangrað sjávarpláss þar sem aðkomufólk í langferðabíl verður innlyksa í af- takaveðri eitt vetrarkvöld. Jafn- framt því að veðrið versnar og nóttin liður koma í ljós ýmis tengsl tveggja bræðra úr plássinu við unga konu úr langferðabíln- um. Skuggar voveiflegra atburða teygja sig fram úr skúmaskotum næturinnar og uppgjör við fortíð- ina er óumflýjanlegt. Leikhús Leikarar eru Kristbjörg Kjeld, Ragnheiður Steindórsdóttir, Sig- urður Skúlason, Þröstur Leó Gunnarsson, Magnús Ragnarsson og Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir. Höfundur leikmyndar og búninga er Stígur Steinþórsson en Ás- mundur Karlsson hannaði lýs- ingu. Leikstjóri er Hallmar Sig- urðsson. Söngur Passíu- sálmanna Passiusálmarnir hafa verið lesnir í útvarpinu og á síðustu árum hafa einstaka kirkjur tekið upp þann sið að lesa þá á fóstunni og eins í heUd á föstudaginn langa. Það er gamaE siður að syngja Passíusálmana, siður sem Tónleikar lagst hefur af. Það tókst að varð- veita hluta af þessari gömlu þjóð- menningu með hljóðritunum sem gerðar voru á árunum 1960 til 1970 og eru þessar hljóðritanir ómetanlegar heimUdir um þessa gömlu þjóðmenningu. Á fóstunni eru Passíusálmamir sungnir í FriðrikskapeUu við ValsheimUið og hófst söngurinn síðastliðið miðvikudagskvöld. Smári Ólason kirkjutónlistarmað- ur leiðir sönginn sem er á mið- vikudögum og fostudögum kl. 19.30 fram að dymbUviku. Samkomur Er stóriðja besti kostur- inn? Finnur Ingólfsson iðnaðarráð- herra verður málstofugestur Sam- vinnuháskólans í dag og mun hann fjaUa um hvort stóriðja sé þesti kosturinn í atvinnumálum íslendinga. Málstofan er í dag kl. 15.30 og er í hátíðarsal Samvinnu- háskólans. Fástína leikur á Nelly's Pimp-Rock hljómsveitin Fástína leikur á „Litlum laugar- degi“ í NeUy’s i kvöld. Hljómsveit- in hefur leik kl. 22 og heldur uppi seiðandi stemningu fram á nótt. Gaukur á Stöng í kvöld mun U3 Project leika fyrir gesti á Gauknum. dagsgHtt Juliette Binoche leikur hjúkrun- arkonuna og er tilnefnd til ósk- arsverölauna. Englendingurinn Englendingurinn (The English Patient) sem Regnboginn sýnir hefst seint á árinu 1942 þegar flug- vél flýgur yfir Sahara-eyðimörk- ina. Innanborðs eru maður og kona. Þýskar herflugvélar gera árás á flugvélina og skjóta hana niður. Flugmaðurinn fellur til jarðar í fallhlíf ásamt farþega sin- um sem er dáinn. Flugmaðurinn fær síðar hjúkrun hjá ungri ítal- skri hjúkrunarkonu sem hefur farið halloka í stríðinu og á engan að. Hún leggur því allt í sölurnar fyrir sjúkling sinn. Til sögunnar kemur einnig þjófur en hæfileik- ar hans í þeim efnum hafa gert hann að hetju i stríðinu. í klaustr- Stóra svið Borgarleikhússins: La Cabina 26 - Ein La Cabina 26 - Ein, eftir Jochen Ulrich, eru tveir ballettar sem verið er að sýna í Borgar- leikhúsinu á vegum íslenska dansflokksins og er næsta sýning annað kvöld. Fyrrnefnda verk- ið er frægt ballettverk en Ein er frumsamið fyr- ir íslenska dansflokkinn og fjallar um sam- skipti mannsins við fíflið í sjálfum sér. Tónlist- in er höndum hljómsveitarinnar Skárren ekk- ert og kemur hljómsveitin fram á sýningunni. Skemmtanir Jochen Ulrich hefur komið hingað til lands tvisvar sinnum áður. í fyrra skiptið setti hann upp Blindingsleik sem unninn var upp úr þjóð- sögunni um Gilitrutt, við tónlist eftir Jón Ás- geirsson. Síðara verkið var Ég dansa við þig sem er án efa mest sótta sýning íslenska dans- flokksins á 24 ára ferli hans. Ellefu dansarar koma fram í uppfærslunni: Birgitte Heide, Julia Gold, Katrín Ingvadóttir, Katrín Johnson, Lára Stefánsdóttir, Guðmund- ur Helgason, David Greenall, Grit Hartwig, Ingo Diehl, Marcello Pareira og Leszek Kuligowski. Prír af dönsurunum ellefu sem dansa á Stóra sviöinu í Borg- arleikhúsinu í kvöld. Víöa veruleg hálka Á Vesturlandi er þungfært um Mosfellsheiði og verið að moka Bröttubrekku. Á Norðausturlandi er verið að moka Kísilveg og Mý- Færð á vegum vatns- og Möðrudalsöræfi, einnig með ströndinni úr Axarfirði til Vopnafjarðar. Heiðar á Norður- og Austurlandi eru sumar hverjau ófærar, einkum þær sem liggja hátt. Að öðru leyti er ágæt færð á aðal- vegum en víða er veruleg hálka. Ástand vega 0 Vegavinna-aðgát [D Þungfært Hálka og snjór án fyrirstööu Lokaö @ Öxulþungatakmarkanir (g) Fært fjallabílum Systir Andreu og Snædísar Myndarlega stúlkan á myndinni fæddist á fæð- ingardeild Landspítalans 28. janúar kl. 15.21. Hún var við fæðingu 4255 Barn dagsins grömm að þyngd og 52,5 sentímetra löng. Foreldr- ar hennar eru Hjördís Kjartansdóttir og Ómar Hjaltason. Hún á tvær systur, Andreu Björk, sem er átta ára og Snæ- dísi, sem er tveggja ára. Kvikmyndir inu er einnig ungur indverskur liðsforingi í her Breta. The English Patient er gerð eft- ir skáldsögu Michaels Ondaatje. Handritið skrifaði leikstjórinn Anthony Minghella. í aðalhlut- verkum eru Ralph Fiennes, Krist- in Scott-Thomas, Juliette Binoche og Willem Dafoe. Nýjar myndir Háskólabíó: The Ghost and the Darkness b' Laugarásbíó: Koss dauðans Kringlubíó: Þrumugnýr Saga-bíó: Ævintýraflakkarinn Bíóhöllin: Space Jam Bíóborgin: Að lifa Picasso Regnboginn: Englendingurinn Stjörnubió: Tvö andlit spegils Krossgátan 1 3 r- 3 9 10 ii JT“ J 3 15- Us> J * TT í 20 zl Lárétt: 1 jurt, 6 varúð, 8 horfa, 9 eðja, 10 röngum, 11 andi, 13 stunda, 15 björtu, 17 friður, 19 klæði, 20 góð, 21 ákafir, 22 tíðum. Lóðrétt: 1 hrúgur, 2 kona, 3 dugleg, 4 bítur, 5 tilneydd, 6 gort, 7 snemma, 12 æst, 14 seig, 16 matur, 18 hratt, 19 öðlast, 20 timi. Lausn á síöustu krossgátu. Lárétt: 1 mykjan, 8 ösla, 9 gúl, 10 rjóða, 12 sá, 13 kusa, 14 les, 16 æði, 17 regn, 18 sa, 20 goggi, 21 trippið. Lóðrétt: 1 mörk, 2 ys, 3 klósigi, 4 jað-v ar, 5 agaleg, 6 nú, 7 slá, 11 juðar, 12 seggi, 15 snið, 16 æst, 20 op. Gengið Almennt gengi LÍ nr. 63 26.02.1997 kl. 9.15 Eininq Kaup Sala Tollgenqi Dollar 70,070 70,430 67,130 Pund 114,690 115,270 113,420 Kan. dollar 51,510 51,830 49,080 Dönsk kr. 10,9960 11,0540 11,2880 Norsk kr 10,5240 10,5820 10,4110 Sænsk kr. 9,4510 9,5030 9,7740 Fi. mark 14,0760 14,1590 14,4550 Fra. franki 12,4280 12,4990 12,8020 Belg. franki 2,0316 2,0438 2,0958 Sviss. franki 48,0400 48,3100 49,6600 Holl. gyllini 37,3000 37,5200 38,4800 Þýskt mark 41,9600 42,1700 43,1800 ít. líra 0,04202 0,04228 0,04396 Aust. sch. 5,9580 5,9950 6,1380 Port. escudo 0,4178 0,4204 0,4292 Spá. peseti 0,4942 0,4972 0,5126 Jap. yen 0,57890 0,58240 0,57890 írskt pund 111,460 112,160 112,310 SDR 96,72000 97,30000 96,41000 ECU 81,3200 81,8100 83,2900 Símsvari vegna gengisskráningar 5623270

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.