Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1997, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1997, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1997 13 Fréttir Óskar Magnússon, forstjóri Hagkaups: Munum reyna að flytja inn mjólk - ef til verkfalls kemur hjá Mjólkursamsölunni „Við munum leita allra leiða til að eiga mjólk handa okkar við- skiptavinum. Við erum vanir því að reyna að eiga til það sem fólkið þarf á að halda. Við munum því án vafa láta okkur detta í hug að flytja inn mjólk. Það hlýtur að reyna á það ef til verkfalls kemur. Eins munum við að sjálfsögðu reyna að fá keypta mjólk úti um land. Við munum ekki vúa fyrir okkur að keyra hringinn í kringum landið eftir nokkrum mjólkurfemum ef það hjálpar,“ sagði Óskar Magnússon, forstjóri Starfsmenn Mjólkursamsölunnar hafa greitt atkvæði um boðun verkfalls. At- kvæðakassar voru innsiglaöir en niðurstöður eiga að liggja fyrir í dag. DV-mynd PÖK ^ Jóhannes Jónsson í Bónusi: Avaxtasafi og gos í stað mjólkur - ef til verkfalls kemur „Ég tel að það verði erfitt að bregðast við verkfalli í Mjólkurs- amsölunni. Hún á engar birgðir sem hægt er að ganga í og fólk er fljótt að hamstra það sem til er. Við höf- um skoðað þann möguleika að flytja mjólk inn en ég er ekki trúaður á að af því verði. Okkar niðurstaða er sú að allt of dýrt sé að flytja mjólkina inn í öllum þeim tollaböndum sem hún er bundin í. Við munum því hara reyna að selja meira af ávaxta- safa og gosi,“ sagði Jóhannes Jóns- son, forstjóri í Bónusi, í samtali við DV. Hann benti á að oft væri það svo að starfsmenn hægðu á sér síðustu dagana fyrir verkfall og því yrðu birgðir sjálfsagt minni en vanalega. Það væri því lítið að gera í stöðunni annað en að auka söluna á ávaxta- safa og gosi í staðinn. -S.dór Leiörétting Svavar Hávarðsson sagnfræði- nemi, sem DV ræddi við um bréf Jónasar Hailgrímssonar, hafði sam- band við DV í gær og bað um að það yrði leiðrétt sem kom fram í aðal- fyrirsögn blaðsins að hann hefði fundið þetta bréf Jónasar. Það væri ekki rétt eins og fram kom i sjálfu viðtalinu. Vitað var að Jónas hafði skrifað þetta hréf og það er birt í bréfasafhi hans sem gefið hefur ver- ið út. Hins vegar rakst Svavar á bréfið inn í veðurfarsdagbók á handritadeild Landsbókasafsins. Bréfið sem slíkt er hið merkasta og það sem Jónas segir þar er nú að rætast. -S.dór Hagkaups, í samtali við DV. Óskar bendir einnig á að eins og mjólk er unnin nú tU dags endist hún mun lengur en áður. Því ætti verkfall í Mjólkursamsölunni ekki að hafa mikil áhrif á mjólkursölu nokkra fyrstu dagana. Halldór Björnsson, formaður Dagsbrúnar, sagði í samtali við DV að ekki yrðu sett upp bardagavígi við borgarmörkin til að hindra að- flutning mjólkur og mjólkurvara eins og gert var á árum áður. Er því ótrúlegt að til mikilla verkfallsátaka komi í sambandi við mjólkina.-S.dór 'uauL'Oxi SOTT ÚTVARPI í Fjörkálfinum í DV á föstudögum Á Bylgjimni á fimmludögum kl. 20 og endurlluttur á laugardögum kl. 16

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.