Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1997, Qupperneq 15
FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1997
15
Horft til baka
árið 2005
„Samskipti þegnanna og stjórnmálaafla er mun heilsteyptari og hrein-
skiptari nú en áöur..." segir Jóhann Rúnar um áriö 2005.
Ein róttækasta
breyting í íslenskri
stjómmálasögu varð í
kjölfar alþingiskosn-
inganna árið 1999, en
tveimur árum áður
hafði verið stofnaður
stjórnmálaflokkur -
Lýðræðisflokkurinn -
sem hafði tvennt á
stefnuskrá sinni. Ann-
ars vegar að koma á
beinu lýðræði með
virkari þátt almenn-
ings í stjórn landsins
með þjóðaratkvæðis-
greiðslu í mun ríkari
mæli en áður, og hins
vegar að leysa upp það
stjómmálaafl þegar sú
skipan mála væri í
höfn.
Nýtt stjórnskipulag
Lýðræðisflokkurinn fékk veru-
legt atkvæðamagn í þessum kosn-
ingum og í samstarfi við aðra
flokka var komið hér á breyttu
lýðræðisskipulagi þar sem full-
trúalýðræðið vó minna en áður en
að sama skapi jókst áhrifavald
hins almenna þegns verulega.
Hann hafði mun meira um mál-
efni samfélagsins að segja en áður.
Fram til þess tíma hafði hags-
munagæsla ýmiss konar verið
mjög sterk í landinu. Hinir kjömu
fulltrúar voru meira og minna
fulltrúar hagsmunaafla. Almanna-
hagsmunir véku iðulega fyrir sér-
hagsmunum. Breytingar höfðu
verið hægar og ef
þær urðu var það oft
á tíðum eftir bak-
tjaldamakk á öðrum
vettvangi en Alþingi.
Fólk hafði verið látið
finna fyrir kosningar
að það hefði öll ráð í
sinni hendi en sú til-
finning hvarf fljótt
að kosningum lokn-
um.
En samfélagið hefur
nú gjörbreyst. Hin
stjómmálalega um-
ræða er mun ábyrg-
ari og málefnalegri
en áður. Þegnar
landsins finna að
þeir hafa veruleg
áhrif við mótun sam-
félagsins. Afstaða
þeirra til manna og málefna er
mun ígrundaðri og ábyrgari. Hinn
almenni stjórnmálaþroski hefur
tekið stökkbreytingum.
Hagvöxtur og nýsköpun
Umræðan um hin ýmsu málefni
samfélagsins, eins
og skipan land-
búnaðarmála,
sjávarútvegsmála,
umhverfis- og
stóriðjumála, vel-
ferðar- og heil-
brigðismála og
menntamála hef-
ur verið mjög
ítarleg, bæði í
fjölmiðlum og víð-
ar. Stjórnmála-
flokkar landsins
hafa geflð út efnismikil kynning-
arrit um þessi mál og önnur, sett
fram skoðanir sínar, rakið kosti
og galla og harist fyrir stefnumið-
um sínum. Sum þessara mála hafa
fengið farsæla lausn á Alþingi en
önnur hafa komið til kasta þjóðar-
innar allrar í atkvæðagreiðslu.
Samskipti þegnanna og stjórn-
málaafla er mun heilsteyptari og
hreinskiptari nú en áður og með
gagnkvæmri virðingu, því valdið
liggur nú stöðugt hjá fjöldanum og
alþingismenn eru nú raunsannir
fulltrúar hans.
Þessi nýskipan mála hefur bætt
verulega hið efnahagslega um-
hverfi. Bjartsýni, nýsköpun og
hagvöxtur eru ráðandi kraftar.
Hagmunagæsla sérhópa hefur vik-
ið fyrir almannahagsmunum.
Stjórnmálastarf er virkara og al-
mennara en áður. Upplýsingar og
upplýsingamiðlun er nú mun
stærri þáttur í umhverfmu. Þá
hafa skapast ný og öflug form fyr-
ir lýðræðislegar umræður.
Á réttri braut
En það er fleira sem hefur áunn-
ist þvi menntun fæst ekki einvörð-
ungu í gegnum skólakerfið.
Ábyrgð, málefnaleg umræða og
samfélagslega þroskað umhverfi
hefur ekki síður skapað þær að-
stæður að upplýsa og mennta
þegnana, sem í sjálfu sér er eitt
meginmarkmið samfélags. Við
erum á réttri braut og getum miðl-
að öðrum þjóðum af reynslu okk-
ar. Á braut sem er okkar unga lýð-
veldi lífsnauðsynlegrþar sem því
hafði verið spáð að stöðnun og
hnignun yrðu ráðandi hér á landi
á nýrri öld í samanburði við aðrar
þjóðir vegna eðlis atvinnulífs okk-
ar. En það er hugarfarið, sam-
heldnin og bjartsýnin sem skiptir
sköpum og skapar þann nauðsyn-
lega kraft sem þarf til að fylgja eft-
ir öðrum vestrænum þjóðum í
hagsæld og velferð. Þessi nýja lýð-
ræðisskipan hefur skapað þann
kraft og virkjað þann auð sem í
okkur býr.
Jóhann Rúnar Björgvinsson
Kjallarinn
Jóhann Rúnar
Björgvinsson
hagfræðingur
„Hin stjórnmáialega umræða er
mun ábyrgari og málefnalegri en
áður. Þegnar landsins fínna að
þeir hafa veruleg áhrif við mótun
samfélagsins. Afstaða þeirra til
manna og málefna er mun ígrund-
aðri og ábyrgari. "
Rauða kverið snýr aftur
Það var ótímabært hjá Ni-
etzsche að lýsa guð dauðan. Að
vísu hefur dregið úr áhrifum hins
kristna guðs undanfamar aldir,
hann er spariguð núorðið. Nýr
guð er notaður hversdags og á
sína postula, kirkjufeður og páfa
til að standa vörð um málstaðinn.
Nýi guðinn hefur ekki sama mál-
stað og sá gamli en er þó arftaki
hans á sinn hátt.
Formælendur hins nýja
guðs
Á hátíðastundum er hins gamla
guðs minnst, hann er guð helgi- og
frídaga og mikilvægi hans eftir
því. Hinn nýi guð er guð hinna
virku daga, peninga og viðskipta
og heitir hinn frjálsi markaður.
Þeir gamli guðinn eiga ekkert
sameiginlegt annað en ajatollana
sem fylgja þeim. Að sjálfsögðu er
sandkom af heilbrigðri skynsemi í
því sem hinn nýi guð stendur fyr-
ir. En trúarbrögðin felast í tiltek-
inni hegðun sem ég mun nú lýsa.
Formælendur hins nýja guðs
þekkjast á þessu: Þeir geta leyst öll
vandamál mann-
legs lífs með því að
fara með búddíska
möntru sem hljóm-
ar svo: Ég tel að
hinn frjálsi mark-
aður sé best til
þess fallinn aö
leysa þetta, ég tel
að rétt sé að draga
úr afskiptum ríkis-
valdsins. Ef þeir
flytja möntrana
munnlega geta þeir
hrækt úr sér orðinu ríkisvald,
annars er það skrifað eins og önn-
ur orð.
Formælendur hins nýja guðs
hafa lært af Göbbels að það er
vænlegra til árangurs að segja
sama hlutinn aftur og aftur en að
segja eitthvað nýtt. Þess vegna era
þeir fáorðir, tala að vísu oft og
mikið en segja aðeins örfá orð aft-
ur og aftur. Orðin markaður,
frelsi, einstaklingur,
ríkisvald era nokkur
þeirra.
Nýju trúarbrögð-
in og forverarnir
Margir af þeim
áköfustu fæddust
undir lok 7. áratugar-
ins. Sagnir herma að
þeir hafi í fyrra lífi
verið í Kina og geng-
ið með rauða kverið í
vasanum, safh speki-
yrða Maós formanns
sem var skyldueign.
Hægt var að draga
það upp úr vasanum
ef þörf krafði og fara
með orð formanns-
ins. Það var hin
ágætasta upphót fyrir
gagnrýna hugsun.
Ennþá fyrr voru aðrar hækur.
Nú era Maó formaður og allir hin-
ir úr gildi, krossfaramir og
spænski rannsóknarrétturinn og
allir þessir trúboðar. En tíminn er
kaldhæðnust skepna. Nýju trúar-
hrögðin era sérstaklega andvíg öll-
um trúarbrögðum og þeir sem að-
hyllast þau segjast einmitt ekki
vera eins og þessir forverar sínir.
En á því má þekkja þá, ef einhver
þarf að taka fram að
hann sé ekki eins og
einhver annar er það
oftast sönnun hins
gagnstæða.
Hið nýja rauða kver
varðveitist í munn-
legri geymd. Það þarf
enga rauða bók (hún
yrði sennilega blá)
því að mantran er svo
einfóld að allir geta
lært hana. Hún hefur
líka þann kost að af-
greiða allt, það þarf
aðeins að losna við
þessa þríhöfða og
áttahala óvætti sem
heitir ríkisvald og er
helsti andstæðingur
hinna nýju trúar-
bragða.
Þegar ríkisvaldið er loksins
dautt verður lífið eilíf sæla: Það
þarf hvorki reykelsi, kerti né
skriftastól, hvorki að segja jalla-
jalla né vita í hvaða átt Mekka er,
ekki einu sinni að hlusta á prest,
aðeins að fara með möntruna og
vera í bisness. Hinn nýi guð er
hagkvæmasti guð í heimi, nú er
búið að afhema allar kröfur æðri
máttarvalda til mannsins.
Ármann Jakobsson
„Formælendur hins nýja guðs hafa
lært af Göbbels að það er væn-
legra til árangurs að segja sama
hlutinn aftur og aftur en að segja
eitthvað nýtt. Þess vegna eru þeir
fáorðir..."
Kjallarinn
Ármann
Jakobsson
íslenskufræöingur
Með og
á móti
Staða íslensks handknatt-
leiks í dag
Frambærilegur
handbolti
„Staðan á
handboltanum
er kannski ekki
eins góð og hún
var í fyrra, en
engu að síður er
handboltinn í
dag vel fram-
bærilegur.
Staðan er
allavega ekki
verri en það, að
erlend félagslið
kaupa héðan leil
peninga og telja
Þorbjörn Jensson,
landsliösþjálfari í
handknattleik.
eru stöðugt að
menn fyrir mikla
ig hafa mikil not
fyrir þá.
Ástæðan fyrir því að handbolt-
inn er kannski ekki alveg eins góð-
ur i ár og í fyrra, er að margir
snjallir leikmenn hafa farið erlend-
is. Eins og ég hef áður sagt erum
við, sökum fjárskorts, að verða
uppeldisstöðvar fyrir aðrar þjóðir.
Æfmgamar hjá íélögunum eru
mim betri en þær voru í gamla
daga. Æfingamar em mun
skemmtOegri en þær voruög behir
úr garði gerðar frá hendi þjálfar-
anna. Það er vegna þess að þjálfar-
ar hér hafa verið duglegir við að
sækja námskeið erlendis.
Ég er sannfærður um að
Nissandeildin er vel sambærileg
við margar deildir erlendis og að
íslensk félagshð munu halda áfram
að ala upp stórar stjömur fyrir er-
lend félagshð. Ég vildi auðvitað
frekar hafa þessa leikmenn hér
heima, en til þess skortir okkur
fjármagn."
Skortur á
skottækni
„Ég er ekkert
ahtof hrifinn af
íslenska hand-
knattleiknum í
dag og tel hann
ekki eins góðan
og hann hefúr
verið undanfar-
in ár. Það ber þó
að hafa í huga
að nokkur flótti
hefúr verið frá
sumum hðanna
og það hlýtm að koma niðm á
gæðum handboltans I heild. Það er
óumflýjanlegt að það komi lægð í
þetta þegar bestu leikmennimir
fara erlendis, eins og gerst hefúr til
dæmis hjá Val.
Hingað hafa komið erlendir leik-
menn. Sumir þeirra eru ágætis
leikmenn en aðrir slakari. Hingað
hafa ekki komið neinir toppleik-
menn, en þeir era þó flestir ágætir.
Mér finnst tæknin ekki nægi-
lega mikil hjá leikmönnum og tit
dæmis held ég að ekki sé lögð
nægilega mikil áhersla á skottækn-
ina. Síðan hefúr mér fundist skorta
á að sum liðin væru í nægilega
góðri æfingu. Á því kunna hins
vegar að vera þær skýringar að
keppnistimabilið er langt og ekki
kannskj hægt áð ætlast til þess að
liðin séu í toppformi aht timabhið.
Mér finnst vel koma th greina
að breyta fyrirkomulaginu th að
gera þetta íslandsmót meira spenn-
andi. Margir leikimir eru óskap-
lega dauf skemmtun og maður
hreinlega nennir ekki á þá. Ástæð-
an er sú að margir leikjanna skipta
ekki nokkru einasta máli.“ -SK
Bjarni Jónsson,
fyrrverandi
landsliösmaöur í
handknattleik.
Kjallarahöfundar
Athygli kjaharahöfunda er
vakin á því að ekki er tekið við
greinum í blaðiö nema þær ber-
ist á stafrænu formi, þ.e. á tölvu-
diski eða á netinu.
Netfang ritstjómar er:
dvritst@centrum.is