Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1997, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1997, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 6. MARS 1997 Fréttir Flutningaskipið Vikartindur strandaði við Þjórsárósa - 19 manna áhöfn bjargað: Hrikalegar aöstæöur voru á slysstaðnum - segir björgunarsveitarmaður - bátsmanns af Ægi er saknað „Aðstæður voru vægast sagt hrikalegar á slysstaðnum og mjög erfiðar til björgunarstarfa. Við sáum varla út úr augum fyrir sand- byl og veröurofsinn var mikill. Framganga þyrluáhafiiarinnar var ótrúleg, hún var um hálftíma að bjarga öllum mönnunum úr lífs- háskanum. Þyrlan sannaði enn einu sinni hversu mikilvæg hún er,“ seg- ir Erlingur Jónsson í Flugbjörgun- arsveitinni á Hellu sem var á slys- stað í gærkvöldi þegar flutninga- skipið Vikartindur strandaði í fjör- unni fyrir neðan Þykkvabæ. 19 manna áhöfn skipsins var bjargað um borð í þyrlu landhelgis- gæslunnar TF-LÍF. Eins skipverja af varðskipinu Ægi er saknað eftir að hann féll útbyrðis þegar brotsjór skall á varöskipið. Maðurinn heitir Elías Öm Kristjánsson, þrítugur bátsmaður. Björgunarsveitarmenn gengu fjörur í nótt og í morgun í leit aö honum en sú leit hefur engan ár- angur borið. í nauöum statt Beiðni barst landhelgisgæslunni um hádegi í gær vegna þess að Vikartindur væri vélarvana og í nauðum statt um 6 sjómílur utan við Þjórsárósa. Aðalvél skipsins bilaði og rak skipið þá að landi með tveggja og hálfrar mílu hraða. Akkeri voru felld til að draga úr rekhraða og náðu þau festu þegar skipiö var um eina og hálfa sjó- mílu frá landi. Mjög slæmt veður var á slysstað, 10-12 vindstig og ölduhæðin allt að 12 metrar. Varöskipið Ægir kom á vett- vang og ætlaði að taka skipið í tog en þýskur skipstjóri Vikartinds af- þakkaði alla aðstoð. Um klukkan 19 taldi áhöfh að vélin væri komin Björgunarbátur úr Vikartindl lá eins og hráviði í sandinum, skammt frá skip- inu. DV-mynd BG í lag og voru akkeri þá losuð. Skömmu síðar óskaði skipstjórinn loks eftir aðstoð varðskipsins sem beðið hafði átekta. Ægir reyndi að skjóta taug yfír í Vikartind er fyrri tilraunin mistókst. í þeirri síðari fékk varðskipið yfir sig brotsjó með þeim afleiðingum að skipverji féll fyrir borð og annar fótbrotnaði. Akkerisfestar Vikart- um borð og flytja þá í land í einni ferð. íslendingur í áhöfninni Einn íslendingur, Karl Guð- mundsson hleðslumaður, er í áhöfii Vikartinds. Yflrmenn skipsins eru allir þýskir en aðrir áhafnarmeð- limir eru Pólveijar og Filippseying- ar. Skipverjarnir fengu aöhlynn- Skipið var smíðað í fyrra og hóf þeg- ar að sigla undir fána Eimskips sem hefur skipið á leigu. Skipið var lestað 2.700 tonnum af gámum með ýmsum vörum og var á leið frá Þýskalandi og Norðurlöndum. Það var hrikaleg og magnþrungin sjón sem blasti við DV-mönnum á sandinum í nótt. Háar brimöldum- ar skullu á og yfir þetta stóra skip Hrikaleg og magnþrungin sjón blasti viö DV-monnum a slysstaö í nótt þar sem hiö stóra skip lá strandað í fjörunni og mikill öldugangur gekk yfir skipiö. DV-mynd BG inds slitnuðu í veðurofsanum og skipið rak upp í fjöruna á örfáum mínútum. TF-LÍF, þyrla Landhelg- isgæslunnar, flaug yfir skipið og tókst að hífa alla áhafnarmeðlimi ingu í félagsheimilinu í Þykkvabæ en voru síðan fluttir á Hótel Selfoss um miðnætti og sváfu þar í nótt. Vikartindur er 9 þúsund tonna flutningaskip, skráð í Þýskalandi. þar sem það lá strandað í fjörunni. Skipið var farið að brotna og það virðist vonlítið verk að ætla að bjarga því. -RR Skipstjóri bannaði samtöl við skipverja Skipstjóri þýska leiguskipsins Vikartinds bannaði öll viðtöl viö skipverja sína. Eftir að skipbrots- mönnum haföi veriö komið í húsa- skjól var fréttaritara DV á staðnum alfarið neitað um að ræða við skip- stjórann og skipverja og því borið við að það væri aö beiðni skipstjór- ans sem bannað hefði sinum mönn- um að ræða við fréttamenn. Til að hindra öll samtöl við skipveija var fréttamönnum vísað á aðra hæð samkomuhússins, skipstjóri hélt sig í eldhúsi samkomuhússins en skip- verjar í borðsal. Skipið Vikartindur lá fyrir akker- um um tvo km frá landi þegar fréttaritari DV kom á strandstað um kl. 18.00 í gærkvöldi. Björgunar- sveitarmaöur á staðnum hafði orð á því viö DV að miðað við hve aldan var kröpp og allar aðstæður aðrar væri það undarlegt að skipstjórinn skyldi ekki hafa verið lögnu búinn að leita aðstoðar. Aldan gekk þá undir skipiö þannig að það loftaði undir botn þess miðskips fýrst en síðan kom skrúfan upp úr þegar stafniö stakkst niður. Þegar þarna var komiö haföi skipverjum tekist að koma vélinni í gang en þar sem kælikerfiö var bil- að var aðeins hægt að beita hálfu afli vélarinnar. Þá var akkerisvind- an biluð þannig að ekki var hægt að létta akkerum og sigla af stað áleið- is út úr briminu en mjög vafasamt að það hefði tekist miðað við aö- stæður og að aðeins var hægt að beita hálfu afli vélarinnar. Um klukkustund síðar losnuðu akkerisfestamar og þá rak skipiö á svipstundu upp í fiöru. Um kl 20.30 höfðu allir skipveijar um borð ver- ið hífðir um borð í þyrlu Landhelg- isgæslunnar, TF-LÍF, og tóku björg- unarsveitarmenn við þeim í fjör- unni og fluttu þá í samkomuhúsið í Þykkvabæ þar sem hlúð var að þeim. Þeir voru flestir við sæmilega heilsu en hraktir og blautir. Einn skipveija hafði skrámast á handlegg og bjó héraðslæknirinn á Hellu, Þórir B. Kolbeinsson, um sár hans. DV óskaði eftir því að mynda skipbrotsmenn saman í hóp en björgunarsveitarmaður frá Selfossi tók sig fram um að banna það og ákvað að þeir þyrftu á ró að halda. Skömmu síðar var skipbrotsmönn- um safnað saman í rútu sem flutti þá til Reykjavíkur. Jón Benediktsson/SÁ Stuttar fréttir ístak grefur Stjóm Landsvirkjunar hefur tekið tilboði ístaks í gröft fyrir stöðvarhúsi Sultartangavirkjun- ar. ístak bauö 246,6 milljónir í verkið. Framkvæmdir heijast á næstu dögum. Takmarkaðar hvalveiðar Líkur eru á að Alþjóða hval- veiðiráðið fallist á takmarkaðar hvalveiöar í atvinnuskyni þegar á næsta ári, segir aðalritari ráðsins, að sögn RÚV. Flugleiðir í piús Hagnaður af starfsemi Flug- leiða varð 632 milljónir króna á síöasta ári en af reglulegri starf- semi félagsins varð hagnaður- inn 408 milljónir. -SÁ Þú getur svaraö þessari spurningu meö því aö hringja i síma 9041600. 39,90 kr. mínútan Jé 1 Nel 2 j rödd FOLKSINS 904 1600 A ríkið að gefa eftir meirihluta sinn í járnblendiverksmiðjunni? Björgunarsveitarmenn fara yfir stööuna í höfuöstöövum Flugbjörgunar- sveitarinnar á Hellu í nótt. Leit stendur nú yfir aö skipverja sem saknaö er af varöskipinu Ægi. DV-mynd BG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.