Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1997, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1997, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 6. MARS 1997 Spurmngin Ertu stundvís? Friðbjörg Gfsladóttir nemi: Já, svona yfirleitt. Lesendur Eiturlyfin - á skal að ósi stemma Jón Halldórsson skrifar: Nýlega hlustaði ég á útvarpsstöð- ina Bylgjuna þar sem rætt var um eiturlyf. Ég þakka stöðinni og þess- um ungu mönnum fyrir að koma fram með svona þátt. Þátturinn hefði hins vegar átt að vera á þeim tíma dags sem flestir unglingar, jafnvel böm, hefðu getað hlustað, því ég er viss um að þetta er rétta leiðin og hver og einn sem bjargast er meira virði en tíu sem ekki þurfa björgunar við. Þarna var góður og áheyriiegur málflutningur og ungu mennimir sýndu fram á hvað langt er hægt að komast niður á við eftir að á annað borð er farið aö halla undan fæti. Mér blöskraði hins vegar að heyra i hinni drambsömu konu, móður sem kom fyrst í símann. Hún var auð- heyrilega að ofvemda bömin sín sem er þó ekki síður hættulegt en hitt. Vonandi heppnast henni það. Það getur hins vegar aldrei orðið ef hún hefúr í heiðri þá aðferð sína, er hún lýsti, að bjóða frekar í glas en að bjóða önnur vímuefni. - Vínið er nefnilega upphafið af þessu öllu. Það þekkja allir þeir mörgu sem hafa þurft að falla fyrir Bakkusi, fyrr og síðar. Við ungu mennina vil ég segja: Haldið þessu áfram. Munið gamla máltækið að á skal að ósi stemma. Gangi ykkur vel. Samningamenn taka ekki sönsum - ótrúlegur barnaskapur Hvalveiðar í þröngum heimi Sigurður Gilbertsson úrsmiður: Já, ég myndi segja það. Margrét Guðjónsdóttir kaupmað- ur: Já, ég er rosalega stundvís. Guðm. Gíslason skrifar: Það saxast sífellt á tímann sem samningamenn hafa til að semja sig frá óöldinni sem í vændum er - verkföllum og atvinnuleysi um ófyr- irsjáanlegan tíma. Ég á ekki bara við samningamennina sem sitja í Karphúsinu og troða marvaðann frá morgni til kvölds. Hér er líka um að ræða ríkisvaldið sem situr sem fast- ast á sínu útspili og skapar óvissu. Þessir háu herrar vita ósköp vel að hér verða samningar ekki gerðir á breiðum grundvelli án þess að ríkis- valdið sýni sín spil áður en gengið er til undirskiftar um beinar launa- hækkanir eða breytingar. Jafrivel samninga án launEihækkana. Hér er einfaldlega komið að kjama málsins. Samningar án launahækkana yfir línuna (sem fara óðar út í verðlagið) kynnu að vera besta lausnin. En þá þarf annað koma til. Niðmfelling tekjuskatts að fullu. Síðan að setja lög um lág- markslaun sem miðist við 70 eða 80 þúsund krónur. Állar aukagreiðsl- ur, hverju nafni sem nefnast, verði felldar að launatöxtunum hjá öllum stéttarfélögum. - Með þessu væri brotið blað í sögu kjaramála á ís- landi. Á þetta hefur samningamönnum og stjómvöldum verið bent. Þessir aðilar taka ekki sönsum, þeir sitja fastir í sama farinu. Óttinn við breytingar hefúr heltekið þetta fólk. Verkalýðsfuiltrúar fara á fund for- sætisráðherra þar eð þeir vita sem er að ríkisvaldið gæti auðveldlega hrifsað allt burt með nýjum skött- um þegar loks hefúr verið samið. - En forsætisráðherra viil bíða og sjá Verkalýösleiötogar ganga á fund forsætisráöherra. - Vilja fá aö sjá á spilin. hver þróunin verður í Karphúsinu. Meö þessum hætti verður hins vegar aldrei samið og verkfófl skella á. Hér er um ótrúlegan bamaskap að ræða hjá báðum aðilum, ríkis- valdinu og samningamönnum vinnumarkaðarins. - Verði ekki samið á næstu dögum er úti um vinnufriðinn og úti um afla hag- stæða þróun á vinnumarkaði á ís- landi. Fólk mun hugsa til brottflutn- ings af landinu. Það verða því að koma til einhverjar þær stórkostleg- ar breytingar sem fólk trúir að gefi því svigrúm til að rétta við fjárhags- lega. - Verulega háar eingreiöslur, t.d. fyrst við imdirritun samnings og svo á miðju samningstímabili og í lok þess, kynnu líka að losa um klemmuna í samningaþófinu. Klara skrifar: Líklega er hann þröngur sá heim- ur sem áhugamenn um hvalveiðar hrærast í. Hvalveiðar eru nokkuð sem ekki þarf á að halda lengur, og alls ekki í okkar heimshluta. Eng- inn borðar hvalkjöt með góðri lyst nema þeir allra elstu hér á landi og varla eru þeir margir í nágranna- löndunum sem sækjast'eftir hval- kjöti. - Eða súru rengi? Spurning er hvort hvalir séu dragbítur á fiskstofna sem við ís- lendingar veiðum. Um það er líka deilt. En verði einhver var við að hvalir séu að ráðast á þorskstofninn í sjónum eða loðnuna, eða svifið, Yfirlýsing Islendinga um aö viö hverfum frá hvalveiðihugmyndinni er bráö- nauösynleg, aö mati bréfritara. sem er æti þorsksins, þá væri skyn- samlegt að fá það sannað. Þá væru líka komin rök fyrir því að stemma stigu við fjölgun hvalsins. í raun einkennast umræður um hvalveiðar eða ekki hvalveiðar mjög af tilfinningasemi fyrir sjávar- spendýrum. Aðallega í útlöndum, þar sem við höfum markaði fyrir ýmsan útfluttan vaming. Ekki bara fiskinn. Það er því brýnt að íslend- ingar láti fljótlega þau boð út ganga til nærliggjandi þjóða - raunar allra þjóða sem við höfum samskipti og viðskipti við - að við séum horfnir ffá því að veiða hvali, a.m.k. um ófyrirsjáanlegan tíma. Ef við gefum ekki út slíka yfirlýsingu verður okkur senn velgt um ugga, og það alveg að ástæðulausu. Sigurbjörg Þorvaldsdóttir nemi: Nei, eiginlega ekki. Gilbert Guðjónsson úrsmiður: Ég er ekki stundvis, því er nú verr. Jökull Jörgensson hárskeri: Já, alltaf. Öll laun að rétt- um taxta Sigfús hringdi: Héðan af verður enginn friður innan stéttarfélaganna um land aflt fyrr en launin hafa verið færð að réttum kauptaxta, líkt og VR hefur gert samkomulag um fyrir sitt fólk hjá stórkaupmönnum. Auðvitað á að nota tækifærið nú og leiðrétta þá ósvinnu sem hér er viðloðandi að fela kaupið í alls kyns aukagreiðslum og sporslum. Það gengur ekki lengur. Kastljósþáttur um þýskt álver hneyksli Hildur skrifar: Fréttastofa RÚV hefúr notið trausts og virðingar fyrir hlut- lausan fréttaflutning. Svo brá þó við í umfjöllun um þýskt álver nýlega að ekki var haft fyrir því að texta aflt mál þeirra manna sem sennilega höfðu eitthvað við álverið að athuga. Hvað var það sem við máttum ekki heyra? Einhliða lýsing á ágæti álversins á mannlíf, búpening og náttúru var dæmalaus. Og hvað verður svo gert þegar bankað verður upp á með kjarnorkuúrgang til geymslu hér eins og ýjað hefúr verið að í fféttum? Konur í kristni- tökunefnd Elin skrifar: Eftir að farið var að hafa á orði að við hæfi væri að hafa þar svo sem eina eða tvær konur til uppfyllingar til að lægja óá- nægjuöldur ákvað biskup ís- lands upp á sitt eindæmi að smella tveimur konum í nefnd þessa. Einni þingkonu og einum presti. Nema hvað! Og nú liggur íjárveiting á lausu! En mikiö þykir mér þessar konur lítilþæg- ar, aö láta skella sér í nefnd þessa, svona einn, tveir og þrír, og þykja allt í lagi! íslendingar eru uppbelgdir Sverrir hringdi: Ég tek fyllilega undir með stjómanda Þjóðarsálarþáttar á rás 2 sl. mánudag um að íslend- ingar séu alluppbelgdir. Þessi yf- irlýsing þáttarstjórnandans, Kristínar Ólafsdóttur, tengdist umræðu eins innhringjanda sem ræddi við hana um áhugaefni sitt. Það verður að segjast eins og er að við íslendingar emm talsvert sérstæðir að því leyti að við höfum skoðun á flestum mál- um og teljum okkur yfir flesta aðra hafna. Þessi gorgeir er auð- sær flestum öðrum en okkur sjálfúm. En kannski hefur þessi löstur haldið okkur gangandi sem þjóð. Við erum þó smám saman að semja okkur að ffam- komu siðaðra þjóða. Þetta smá- mjakast. Stóriðja, vertu velkomin Jóhannes Kristjánsson skrifar: Það er óskiijanlegt að fólk í launastéttum skuli láta fá sig til þess að mótmæla stóriðjuhug- myndum í landinu. Hefur það einhverjar aðrar hugmyndir um hvemig á að halda uppi fullri at- vinnu? Hvers vegna eru þeir ein- staklingar sem mest hafa sig frammi í mótmælum um stór- iðju ekki sjálfir með hugmyndir og framtak til að bjóða fram? Þetta em ekki athafnamenn, þetta eru uppreisnar- og múgæs- ingamenn. Lítið bara á kreppu- árin sem sýnd em með einstak- lega skýrum hætti 1 sjónvarps- þáttum þessa dagana. Viljum við lenda í þess konar ástandi I dag? Þaö getur auðveldlega gerst. Viö ættum að fara hægt og fagna hverju atvinnutækifæri sem hingað berst. Við höfum ekki af miklu að taka. • J

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.