Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1997, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1997, Blaðsíða 19
Fréttir 27 l i I f i > * j i i ! FIMMTUDAGUR 6. MARS 1997 DV EskiQörður: Hólmaborgin með 18 þúsund tonn í febrúar DV, Eskifirði: Um 63 þúsund tonn af loðnu hafa nú borist að landi á Eskifirði frá áramótum. Loðnuverksmiðjan hefur tekið á móti 58.600 tonnum en um 4.100 tonn hafa farið í fryst- ingu. Febrúarmánuður reyndist gjöfull, þrátt fyrir erfitt veðurfar. Afli loðnuskipa Eskfirðinga í mánuðin- um er sem hér segir: Hólmaborg 17.872 tonn, Jón Kjart- ansson 13.545 tonn, Guðrún Þorkels- dóttir 1.000 tonn. Loðnuverksmiðjan gengur eins og best verður á kosið. Að sögn Hauks Jónssonar verksmiðjustjóra er afkastagetan um 900 tonn á sólar- hring og er mestur hluti mjölfram- leiðslunnar hágæðamjöl. -Regína Holmaborgin frá Eskifiröi aflaöi hvorki meira né minna en 18 þúsunda tonna í febrúarmánuði. Skipiö ber mest ís- lenskra nótaskipa og hefur boriö aö landi um 2600 tonn í einni veiöiferö. Hér má sja skipið aö veiöum. DV-mynd Þorsteinn Gunnar Reykjavík - menningarborg Evrópu árið 2000: Meginþemað hér er náttúra og umhverfi - mjög spennandi verkefni, segir Páll Skúlason „Okkar fyrsta verk verður að skilgreina þau verk sem koma til greina. Við ætlum að fjalla örlftið um menningarhugtakið á okkar næsta fundi en það er vissulega mjög vítt. Það sem verður, held ég, skemmtilegast í þessu er samstarfið við hinar borgimar," segir Páll Skúlason prófessor en hann er for- maður framkvæmdastjórnar sem ráðin hefur verið í verkefnið Reykjavík - menningarborg Evrópu árið 2000. Ákvörðunin um að tilnefna Reykjavíkurborg ásamt 8 öðrum borgum menningarborg Evrópu árið 2000 var tekin af ráðherranefnd Evrópusambandsins í árslok 1995. Hinar borgimar eru Avignon, Bologna, Prag, Helsingfors, Bergen, Bmssel, Santiago de Compostela og Kraká. Markmið verkefnisins er að auka gagnkvæm kynni Evrópuþjóð- anna, að draga fram sameiginleg einkenni Evrópuríkja en leggja jafn- framt áherslu á fjölbreytileika og að gera menningarlega sérstöðu ein- stakra borga, svæða eða landa al- menningi ljósari og aðgengilegri. Gert er ráð fyrir töluverðu sam- starfi milli viðkomandi menningar- borga í tengslum við menningar- borgarverkefnið. „Aðalatriðið er aö koma ein- hverju í gang mjög fljótt þvi það er ekki aðeins miðað við árið 2000 í þessu. Við getum farið að byrja strax. Þetta er kærkomið tækifæri til þess að koma okkur á framfæri og hinar borgimar munu sjá um að kynna okkur, við fáum gesti frá borgunum og íslendingar munu sækja þær heim.“ Páll segir að hér sé alls ekki bara miðað við listimar, meginþema Reykjavíkur sé til að mynda nátt- úra og umhverfi. Hann segir að erfitt sé að nefna dæmi um verkefni á þessu stigi því með þvi væri hann eiginlega að þjófstarta verki sem nefndin hefur nánast ekkert fjallað um. Aðrir í framkvæmdastjóm em Guðrún Ágústsdóttir, Inga Jóna Þórðardóttir, Brynólfur Bjamason, Birgir Sigurðsson, Súsanna Svav- arsdóttir og Helgi Gíslason. -sv X 2 FOT Kr. FALDAR 2Pi astlötur , I vatnslá hevlert korktappar sykurflotvog opnunartímar: mán.-fös.frá kl. 09.00-19.00 lau. frá kllO.00-14.00 NÓATÚNI 17 105 ReBjAVÍK SÍMI 562 93 00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.