Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1997, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1997, Síða 24
FIMMTUDAGUR 6. MARS 1997 u srrax i sima FRAMADAGAR Pjóðarbókhlööunni "7. mans kl. 12-1 "7 Getraun - www.framadagar.hi.is Vantar ykkur lokaverkefni, sumarstarf eða jafnvel framtíðarstarf? Á Framadögum eru 37 fnamsæknustu fyrintæki landsins sem vilja komast í samband við ykkun. Sviðsljós Brace Willis rekur leikstjóra og fleiri Allt gengur á afturfótunum við gerð nýjustu myndarinnar hans Bruce Willis í Wilmington í Delawareríki. Kvikmyndatök- umar á Slags- málahundin- um á Broad- way höfðu ekki staðið í nema tuttugu daga þegar Bruce og ann- ar til ráku leikstjórann Lee Grant, ffamleiðandann Joe Feury og kvikmyndatökumann- inn William Fraker. Svo kann að fara að eitthvað af leikaraliðinu fái einnig pokann sinn. Dennis Dugan hefur veriö ráðinn til að ljúka myndinni. Placido skotinn í stúdínu Stórsöngvarinn Placido Dom- ingo hefur fallið kyiliflatur fyrir 21 árs gamalli óperustúdínu, Alexöndru Coman. Kjaftasögur þar um fengu byr undir báða vængi þegar einhver athug- ull maður sá hvar þau foðm- uðust heitt og innilega bak- sviðs í óperu- húsinu í Vínarborg. Það gerðist eftir frumsýningu á óperunni Idomeneo eftir Mozart. Áreiðan- legar heimildir herma einnig að hinn 56 ára gamli Placido og stúlkan séu búin að vera saman í eitt ár en þeim hafi tekist að halda sambandinu leyndu. Tékkneska ofurfyrisætan Eva Herzigova: Önnur manneskja þegar hún fer heim Ofurfyrirsætan Eva Herzigova hefúr nóg að gera þessa vikuna því nú standa yfir sýningar í Mílanó á tískunni fyrir næsta haust og vetur. Sjö ár eru liðin siðan Eva, sem er orðin 23 ára, yfirgaf heimaland sitt, fyrrum Tékkóslóvakíu, þar sem ekki voru til tískublöð. „Þegar ég fer heim er ég önnur manneskja en sú sem ég er hér,“ sagöi Eva í viðtali við fréttamenn í Mílanó. Hún tók það þó ffarn að hún myndi ekki vilja flytja aftur heim fyrir fúllt og allt þar sem hún væri orðin svo vön öllum gæðunum sem fást á Vesturlöndum. Eva sagði það algjöra tilviljun að hún lenti í tískubransanum. Hún hafði látið undan vinkonu sem hvatti hana til að taka þátt í fyrir- sætukeppni I Prag og var þá upp- götvuð. „Ég var ein af fyrstu stúlk- unum frá Austur-Evrópu og það þótti mjög spennandi í tískubrans- anum. Ég var svo heppin að fá strax vinnu. Ég var með rétta útlitið á réttum tíma.“ Núna talar Eva reiprennandi ensku og frönsku en áður hafði hún lært rússnesku heima. Eva viðurkenndi í viðtalinu að fyrirsætustarfið gæti verið erfitt. Hún varð fyrir áfalli á kvikmynda- hátíðinni í Cannes á dögunum. „Fólk tróðst og slóst og það voru alls staðar myndavélar. Við komumst inn í bílinn en fólk lagðist með andlitið á rúðumar og ég sá ekkert út. Þá gerði ég mér grein fyr- ir því hvað fyrirsætur, fegurð og glamúr skiptir fólk miklu máli,“ sagði Eva. Sambandið við fjölskylduna heima hjálpar henni að hafa yfirsýn yfir allt. „Ég hringi alltaf í foreldra mína. Hlutimir stíga manni auð- veldlega til höfuðs en þegar ég tala við foreldra mína geri ég mér grein fyrir því hver ég er og hvað ég vil,“ sagði ofurfyrirsætan sem giftist trommuleikaranum Tico Torres síð- astliðið haust. Eva Herzigova.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.