Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1997, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1997, Side 26
34 FIMMTUDAGUR 6. MARS 1997 Afmæli Júlíus Hafstein Júlíus Hafstein framkvæmda- stjóri er fimmtugur í dag. Starfsferill Júlíus fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk prófi frá VÍ1967 og íþróttakennaraprófi 1969. Júlíus var framkvæmdastjóri Dentalíu hf., innkaupasambands tannlækna, 1969-71, skrifstofústjóri Últímu hf. 1971-73, stofnaði umhoðs- og heildverslunina Snorra hf. 1973 og hefur verið framkvæmdastjóri þess fyrirtækis síðan. Þá var hann ráðinn framkvæmdastjóri Kristni- hátíðamefndar 1996 en hún undir- býr hátíðaliöld vegna þúsund ára kristnitökuafmælis á Þingvöllum árið 2000. Júlíus var varaborgarfulltrúi 1982-86, borgarfulltrúi í Reykjavík frá 1986, sat í borgarráði 1992-93, var formaður íþróttaráðs Reykja- víkur 1982-86, formaður íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur 1986-94, Umhverfismáalaráðs Reykjavíkur 1986-94, Ferðamála- ráðs Reykjavíkur 1986-94 og fyrsti stjómarformaður Ráðstefnuskrif- stofu íslands. Hann var varaformað- ur íþróttafélags Reykjavíkur 1970-74, formaður Handknattleiks- Júlíus Hafstein. ráðs Reykjavíkur 1973-75, í stjóm Hand- knattleikssambands ís- lands 1974-83 og formað- ur 1978-1983, var formað- ur íþróttabandalags Reykjavíkur 1984-88, sat í Ferðamálaráði 1985-95 og var formaður Ólymp- íunefndar íslands 1994-97. Fjölskylda Kona Júlíusar er Erna Hauksdóttir, f. 26.8. 1947, viðskipta- fræðingur og framkvæmdastjóri Sambands veitinga- og gistihúsa. Foreldrar Emu era Haukur Þórir Benediktsson, fv. framkvæmda- stjóri í Reykjavík, og k.h., Amdís Þorvaldsdóttir kaupmaður. Börn Júlíusar og Emu eru Bima, f. 25.1. 1972, háskólanemi; Jóhannes Júlíus, f. 30.5. 1976, nemi. Systkini Júlíusar eru Jakob Valdimar, f. 18.3.1945, fiskeldisfræð- ingur í Reykjavík; Áslaug Bima, f. 15. ágúst 1948, húsmóðir í Reykja- vík. Foreldrar Júlíusar: Jakob Valdi- mar Hafstein, f. 8.10. 1914, d. 24.8. 1982, lögfræðingur og listmálari í Reykjavík, og k.h., Bima Kjartansdóttir, f. 20.3. 1923, húsmóðir. Ætt Föðurbróðir Júlíusar var Jóhann Hafstein forsætis- ráðherra, faðir Péturs hæstaréttardómara. Jakob var sonur Júlíusar Hav- steen, sýslumanns á Húsa- vík Jakobsson Havsteen, kaupmanns á Akureyri Jóhannssonar Havsteen, kaupmanns á Akureyri Jakobssonar Havsteen, kaupmanns á Hofsósi Nielssonar. Móðir Jakobs var Þór- unn Jónsdóttir, fræðslumálastjóra í Reykjavík Þórarinssonar, prófasts í Görðum á Álftanesi Böðvarssonar, prests á Melstað Þorvaldssonar, bróður Þuríðar, langömmu Vigdísar forseta. Móðir Þórarins var Þóra Björnsdóttir, prests í Bólstaöarhlíð Jónssonar. Móðir Jóns var Þórann, systir Guðrúnar, ömmu Sveins Bjömssonar forseta. Önnur systir Þórunnar var Sigurbjörg, amma Jóns Þorlákssonar forsætisráðherra. Þórunn var dóttir Jóns, prófasts í Steinnesi Péturssonar. Móðir Þór- unnar Havsteen var Lára, systir Hannesar Hafstein ráðherra. Lára var dóttir Péturs Havstein, amt- manns á Möðravöllum Jakobssonar, bróður Jóhanns kaupmanns, afa Júl- íusar sýslumanns. Móðir Lára var Kristjana Gunnarsdóttir, prests í Laufási Gunnarssonar og Jóhönnu, systur Eggerts, langafa Gunnars Thoroddsen forsætisráðherra. Annar bróðir Jóhönnu var Ólafur, langafl Odds, föður Davíðs forsætisráðherra. Jóhann var dóttir Gunnlaugs Briem, sýslumanns á Grund i Eyjafirði. Móðursystur Júlíusar voru Þór- unn, kona Lárasar Blöndal bóksala; Brynhildur, kennari í Reykjavík, og Sólveig Ágústsdóttir, fyrrv. bæjar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Hafn- arfirði. Birna er dóttir Kjartans, skrifstofumanns í Reykjavík Konr- áðssonar, bróður Konráðs, foður Bjama læknis. Móðir Kjartans var Elín Zoega, dóttir Jóhönnu Zoega, systur Geirs Zoega rektors, afa Geirs Hallgrímssonar forsætisráðherra, fóður Hallgríms, framkvæmdastjóra Morgunblaðsins. Móöir Birnu var Áslaug, systir Péturs, fóður Njarðar P. Njarðvík rithöfundar. Áslaug var dóttir Sigurðar, verkamanns á Akur- eyri Þórðarsonar, og Kristínar Pét- ursdóttur, b. á Skáldalæk í Svarfað- ardal Gíslasonar. Páll Guðmundsson Páll Guðmundsson vél- virkjameistari, Skipa- sundi 11, Reykjavík, er áttræður í dag Starfsferill Páll fæddist á Krossa- nesi í Helgustaðahreppi við Reyðarfjörð og ólst þar upp við almenn sjáv- ar- og sveitastörf til átján ára aldurs. Síðasta sumar- ið sitt á Krossanesi gerði Páll út vélbát þaðan, ásamt Þorsteini, félaga sínum, og var það eina tilraunin sem gerð var til vélbátaútgerðar þar. Páll flutti til Reykjavíkur haust- ið 1935 og hefur búið þar síðan. Fljótlega eftir komuna til Reykja- víkur lærði Páll vélvirkjun í Vél- smiðjunni Steðja hf. jafnframt námi við Iðnskólann í Reykjavík en hann lauk prófi vorið 1939. Þá stundaði Páll nám við Iðnfræða- skólann í Reykjavík 1939-40 en sá skóli var fyrsti vísirinn að Tækni- skóla hér á landi. Skólinn var lagð- ur niður eftir þennan vetur og varð því ekki meira úr nám- inu. Páll, Guðni bróðir hans og nokkrir aðrir stofn- uðu Vélsmiðjuna Tækni hf. 1942 en hún er enn starfrækt. Páll lét af störfúm um áramótin 1989-90 og hafði þá unn- ið við iðn sína í flmmtíu og fimm ár, að undan- teknum nokkram sumr- um er hann var vélstjóri á síldarbátum. Páll hefur fengist mikið við félagsstörf. Hann var m.a. í sljóm Félags Eskfirðinga og Reyð- firðinga í Reykjavík í mörg ár, auk þess sem hann hefur verið í stjórn Austfirðingafélagsins í Reykjavík í mörg ár og formaður þess um skeið. Fjölskylda Páll kvæntist 25.12. 1942 Jónu Ólafsdóttur, f. 26.10. 1917, húsmóð- ur. Hún er dóttir Ólafs Guðmunds- sonar, b. í Miðvogi í Innri- Akra- neshreppi, frá Svanga í Skorradal, og k.h., Kristínar Jónsdóttur frá Ausu í Andakílshreppi. Böm Páls og Jónu era Guðmund- ur, f. 24.3.1946, byggingatæknifræð- ingur, búsettur á Egilsstöðum, kvæntur Guðbjörgu Maríu Jóels- dóttur, sjúkraliða frá Siglufirði, og eiga þau eina dóttur; Kristín, f. 14.7. 1949, bankastarfsmaður í Kópavogi, gift Magnúsi Ingvars- syni, húsasmið frá Kolgröfum I Eyrarsveit, og eiga þau þrjá syni; Gissur, f. 24.10.1960, verkfræðingur í Hafnarfirði, kvæntur Lindu Björk Helgadóttur, lækni frá Vestmanna- eyjum, og eiga þau tvö börn, auk þess sem Gissur á son sem er bú- settur í Suður-Afriku. Bróðir Páls var Guðni Sigurður Guðmundsson, f. 4.8.1919, 8.1.1993, bifvélavirki í Reykjavík, var kvæntur Sigrúnu Oddgeirsdóttur frá Múlastöðum í Flókadal og eru synir þeirra þrír, Ingvar Auðunn, byggingartæknifræðingur, Gunnar skrifstofumaður og Haukur Geir, rafmagnstæknifræðingur. Foreldar Páls voru Guðmundur Jónsson, f. 9.11.1874, d. 9.1.1921, frá Viðborði á Mýrum í Homafirði, og Ingveldur Erasmusdóttir, f. 21.5. 1875, d. 10.10.1957, húsfreyja. Eftir lát Guðmundar flutti Auð- unn Jóhannesson, f. 26.11. 1875, d. 11.11. 1971, frá Karlsstöðum í Helgustaðahreppi að Krossanesi sem ráðsmaður Ingveldar og bjó með henni upp frá því. Þau fluttu til Reykjavíkur sumarið 1937. Ætt Guðmundur var sonur Jóns Guð- mundssonar, b. á Stórahóli og Við- borði á Mýrum í Austur- Skafta- fellssýslu, og k.h., Guðnýjar Krist- jánsdóttur úr Kálfafellsstaðasókn. Ingveldur var dóttir Erasmusar Ámasonar, b. í Efriey í Leiðvalla- hreppi, og k.h., Margrétar Jónsdótt- ur frá Leiðvelli. Erasmus var sonur Ingveldar Erlendsdóttur Pétursson- ar frá Pétursey, b. á Hvoli í Mýrdal. Margrét var dóttir Rannveigar Jónsdóttur Hannessonar, b. á Núpsstað. Páll og Jóna taka á móti ættingj- um og vinum í Safnaðarheimili Ás- kirkju, laugardaginn 8.3. frá kl. 15.00. Páll Guömundsson. Einar Kristjánsson Einar Kristjánsson, bóndi á Ófeigsstööum í Ljósavatnshreppi, er sjötugur í dag. Starfsferill Einar fæddist á Finnsstööum í íöldukinn og ólst þar upp í for- ;ldrahúsum við öll almenn sveita- störf. Hann var í Bamaskóla í Kinn og stundaði síðan nám við Héraðs- skólann á Laugum. Einar stundaði vélavinnu á skurðgröfum í Köldukinn og á Siglufirði auk þess sem hann var við vegagerð og jarðabætur á jarð- ýtu um skeið. Hann hóf búskap á Ófeigsstöðum 1953 í félagi við tengdafoður sinn og tók síðan við öllu búinu að honum látnum um miðjan sjöunda áratug- inn. Einar byrjaði með blandaðan búskap en hefúr lengst af verið með sauðfé. Hann seldi ríkinu fram- leiðsluréttinn fyrir ári síöan og er því hættur að búa. Einar spilaði mikið á harmóniku á dansleikjum á áram áður, allt frá 1948. Þá stofnaði hann hljómsveit- ina Steinaldarmenn sem lék fyrir dansi í Þingeyjarsýslu. Fjölskylda Eincir kvæntist 1957 Svanhildi Baldursdóttur, f. 25.4. 1936, hús- freyju. Hún er dóttir Baldurs Bald- vinssonar, bónda á Ófeigsstöðum, og k.h., Sigurbjargar Jónsdóttur, húsfreyju frá Litluströnd í Mývatns- sveit. Böm Einars og Svanhildar era Kristjana, f. 17.12.1954, bankastarfs- maður á Akureyri; Sigurbjörg, f. 24.4. 1956, verslunarmaður á Akur- eyri, en hennar maður er Kristján Ólafur Jónsson og eiga þau tvær dætur; Halldóra, f. 14.4. 1958, kaup- maður í Noregi, gift Lars Ove Tes- dal og eiga þau tvö böm; Baldur Ófeigur, f. 8.1. 1962, starfsmaður Flugleiða á Akureyri og á hann eina dóttur; Sigurbjöm, f. 12.8. 1966, starfsmaður við Sláturhús KÞ á Húsavík en kona hans er Guðrún Gísladóttir og eiga þau tvær dætur. Systkini Einars: Ámi, f. 1915, d. 1974, menntaskólakennari á Akur- eyri; Sigurbjöm, f. 1917, d. 1973, bóndi og smiður á Finnsstöðum; Gerður, f. 1921, húsmóðir í Reykja- vík; dr. Aðalgeir, f. 1924, skjalavörð- ur við Þjóðskjalasafnið í Reykjavík; Hjalti, f. 1929, bóndi á Hjaltastöðum í Kinn. Foreldrar Einars vora Kristján Árnason, bóndi á Finnsstöðum, og k.h., Halldóra Sigurbjamadóttir húsfreyja. Askrifendur fó M aukaafslátt af smáauglýsingum DV oM mllli hlnruns Smáauglýsingar 550 5000 DV Til hamingju með afmælið 6. mars 90 ára Þorgerður Sveinsdóttir, Sléttuvegi 11, Reykjavík. 80 ára Vigdis Jónsdóttir, fyrrv. skólastjóri, Hjarðarhaga 38, Reykjavík. Jakob Jónsson, fyrrv. leigubifreiðastjóri, Faxabraut 17, Kefla- vík. Jakob tek- ur á móti vinum og vanda- mönnum í Verkalýðs- og sjó- mannafé- lagshúsinu, Keflavík, laugardaginn 8.3. n.k. kl. 16.00. 75 ára Halldór Sölvi Bjömsson, Fljótaseli 13, Reykjavík. Sigríður Hallgrímsdóttir, Austurbergi 38, Reykjavík. Grímur Jónsson, Klifshaga 1, Öxarfjarðar- hreppi. 60 ára Kristín Guðmundsdóttir, Háengi 4, Selfossi. Guöjóna Ólafsdóttir. Boðagranda 7, Re; Sigrún Daníelsdi Einigrand 6, Akr? Nína Soffía Hamiesaomr, Staðarbakka 16, Reykjavík. Ágústa Hjálmtýsdóttir, Vesturbergi 111, Reykjavík. Gísli A. Eiríksson, Hraunbæ 102 F, Reykjavík. 50 ára Guðjón Jónsson, Hagaseli 9, Reykjavík. Jakobína Guðfinnsdóttir, Hrauntúni 17, Vestmannaeyj- um. Sæmundur Gunnarsson, Tungu, Dalabyggð. Valgerður Halldórsdóttir, Túngötu 30, Siglufirði. Gunnar Baldursson, Kvíarhóli, Ölfushreppi. Ásdís Bára Magnúsdóttir, Haukanesi 24, Garðabæ. Edward Vilberg Kiernan, Barmahlíð 2, Akureyri. Friðgeir Indriðason, Krosshömram 20, Reykjavík. 40 ára Guðmundur Ólafur Guð- mundsson, Aðalstræti 15, Patreksfirði. Jóhanna Finnborg Magnús- dóttir, Hæðarbyggð 8, Garöabæ. Eyjólfur Ævar Eyjólfsson, Brekkustíg 31 B, Njarðvik. Ingveldur Hafdís Ólafsdótt- ir, Ránargötu 28, Akureyri. Þóra Lárusdóttir, Blönduhlið 4, Reykjavík. Ágústa Sigríður Gunnars- dóttir, Hringbraut 61, Keflavík. Karl Eskil Pálsson, Fögrasíðu 5 C, Akureyri. Jón Svarfdal Hauksson, Fjóluhvammi 10, Hafnarfirði. Halla Leifsdóttir, Melgeröi 7, Reykjavík. Stefán Lárus Stefánsson, Valhúsabraut 6, Seltjamar- nesi. Hafnargötu 80,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.