Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1997, Side 29
FIMMTUDAGUR 6. MARS 1997
37
DV
Gestur (Egill Ólafsson) ræðir viö
Soffíu (Guðrúnu Ásmundsdóttur).
Dómínó
í kvöld verður sýning á Dó-
mínó eftir Jökul Jakobsson sem
Leikfélag Reykjavíkur hefur að
undanfornu sýnt á Litla sviði
Borgarleikhússins við miklar
vinsældir. Dóminó gerist í rót-
grónu hverfi í Reykjavík á svip-
uðum tíma og leikritið er skrif-
að, eða í kringum 1970-1973.
Varla er hægt að tala um ein-
hverja athurðarás í venjulegum
skilningi. Hér er brugðið upp
mynd af fjölskyldu úr vel efn-
aðri og rótgróinni borgarastétt.
Eins og oft í leikritum Jökuls
koma til sögu kynslóðimar
þrjár: æskan, miðaldra hjónin
svo og ellin.
Leikhús
Leikarar í Dóminó eru Eggert
Þorleifsson, Hanna María Karls-
dóttir, Halldóra Geirharðsdóttir,
Margrét Ólafsdóttir, Egill Ólafs-
son og Guðrún Ásmundsdóttir.
Leikstjóri er Kristín Jóhannes-
dóttir.
Foreldri og
farsæld
I Breiðholtskirkju í kvöld kl.
20.30 verður annar fræðslufund-
urinn af fjórum um heimilið og
Qölskylduna. Sr. Þór Hauksson,
prestur við Árbæjarkirkju, flyt-
m- erindi sem hann nefnir: For-
eldri og farsæld.
Aglow
Fundur verður í kvöld í
Kristniboðssalnum, Háaleitis-
braut 58-60. Katla Ólafsdóttir
flytur erindi.
Háskólafyrirlestur
Michele Marsonet, prófessor í
heimspeki, flytur fyrirlestur í
kvöld kl. 20.30 í stofú 101 í Lög-
bergi sem nefnist: Richard Ror-
ty’s Ironic Liberalism and its
Dangers.
Samkomur
Samræða um
sjálfsímyndina
Jóna Lísa Þorsteinsdóttir
fræðslufulltrúi og Margrét Pála
Ólafsdóttir leikskólastjóri flytja
erindi um samkynhneigð í dag
kl. 17.30 í Kirkjulundi, Keflavík.
Músíktilraimir
Fyrsta Músíktilraunakvöld
Tónabæjar og ÍTR verður í kvöld
og hefst skemmtunin kl. 20.
Gestahljómsveit er Kolrassa
krókríðandi.
Félag kennara
á eftirlaunum
Leshópur kemur saman kl. 14
og æfing er hjá sönghóp kl. 16 í
Kennarahúsinu við Laufásveg.
Dagskrá um verk Jó-
hanns Hjálmarssonar
í dag kl. 17 verður dagskrá um
verk Jóhanns Hjálmarssonar í
kafFistofu Gerðarsafns í Kópa-
vogi. Félagar úr Ritlistarhópi
Kópavogs flytja Ijóð að eigin vali
úr bókum skáldsins og Jóhann
les úr nýjum ljóðum sínum.
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands í Háskólabíói:
íslenskir einleikarar
í kvöld verða sinfóníutónleikar í
Háskólabíói og verða flutt fimm
verk, Le Corsair eftir Hector
Berlioz, Elegía eftir Giovanni
Bottesini, Poeme eftir Ernest Chaus-
son, Grand duo eftir Giovanni
Bottesini og Sinfónískir dansar eftir
Sergei Rachmaninoff. Stjómandi er
Bemharður Wikinson og er þetta í
fyrsta sinn sem hann stjómar
áskriftartónleikum. Einleikarar eru
tveir og era þeir báðir íslenskir,
Gerður Gunnarsdóttir fiðluleikari
og Hávarður Tryggvason bassaleik-
ari.
Tónleikar
Gerður Gunnarsdóttir hefur starf-
að sem þriðji konsertmeistari
Cúlzenich hljómsveitarinnar i Köln.
Hún hlaut fyrstu verðlaun I Posat-
banh-Sweelinche fiðlukeppninni í
Amsterdam og hefur komið fram
sem einleikari með ýmsum hljóm-
sveitum í Þýskalandi og Hollandi.
Hávarður Tryggvason lauk ein-
leiksprófi frá Ecole Normale de
Musique de Paris og starfaði um
Sinfóníuhljómsveit íslands leikur fimm verk á tónleikunum í kvöld.
skeið erlendis, meðal annars í leikstónleika í Frakklandi og á ís-
hljómsveit flæmsku óperunnar í landi. Hávarður var ráðinn fyrsti
Antwerpen. Hann hefur haldið ein- kontrabassaleikari SÍ árið 1995.
Gloss í Kaffi Reykjavík:
Dúndrandi diskóstemning
Hljómsveitin Gloss, sem sérhæfir sig í að
skemmta fólki á öllum aldri með dúndrandi diskói
er skipuð sex ungmennúm af höfuðborgarsvæðinu
og mun sveitin skemmta gestum í Kaffi Reykjavík í
kvöld. Gloss hefur leikið vítt og breitt um landið í
vetur og eru á faraldsfæti um helgina, því auk þess
að leika í Kaifi Reykjavík í kvöld þá mun sveitin
bregða sér til Vestmannaeyja og leika í Lundanum
fóstudags- og laugardagskvöld.
Gloss skipa: Helga Jóhanna söngur, Matthías sem
leikur á hljómborð og saxófón, Hjalti „popp“ þenur
rafgiuna, Kristinn ,spud“ plokkar bassann, Finnur
P. Magg lemur húðir og Freyr „funky“ Guðmunds-
son þeytir trompetinn.
Skemmtanir
Kuml í Rósenbergkjallaranum
Pönkið verður áberandi í Rósenbergkjallaranum
í kvöld en þá mun hljómsveitin Kuml stíga á stokk
og þeirra lína er tónlist sem þróun af pönki. Þeir
sem skipa Kuml eru: Númi, gítar, Björgvin Freyr,
gítar, Friðrik Álfur, söngur, Berglind Hólm, söngur
og Einar, bassi. Auk Kuml koma fram DJ Fly og
Fönkus.
Gloss leikur fyrir gesti í Kaffi Reykjavík í kvöld.
Víða beðið með
mokstur
Á Hellisheiði og í Þrengslum er
fært en skafrenningur. Fært er um
Suðumes og fyrir Hvalfiörð. Þung-
fært er vestur á Mýrum og skaf-
renningur er á öllu Snæfellsnesi,
verið er að moka Fróðárheiði og um
Heydal. Vonskuveður hefúr verið í
Borgarfirði og beðið átekta með
mokstur þar og á Holtavörðuheiði.
Færð á vegum
Fært er með suðurströndinni aust-
ur á firði og til Egilsstaða. Fært er
um Mývatns- og Möðrudalsöræfi og
með ströndinni frá Húsavík til Þórs-
hafnar og þaðan til Vopnafiarðar.
Víða er mikil hálka á vegum.
Ástand vega
Hálka og snjór 0 Vegavinna-aögát @ Öxulþungatakmarkanir
Q-j LokaörStOÖU ® Þungfært 0 Fært fjallabílum
Sebastian
Litli drengurinn á
myndinni, sem hlotið hef-
ur nafnið Sebastian Krist-
Barn dagsins
jánsson, fæddist á fæðing-
ardeild Landspitalans 26.
febrúar kl. 4.54. Þegar
hann var vigtaður reynd-
ist hann vera 3510 grömm
að þyngd og mældist 50
sentímetra langur.
'M
Á.
Dan Aykroyd leikur lögreglu-
stjórann Wilbur Hampton sem
þarf aö skila krökkunum til síns
heima.
Regnboginn
Rainbow, sem Háskólabíó hóf
sýningar á um síðustu helgi, er
ævintýramynd fyrir alla fiöl-
skylduna sem leikstýrt er af hin-
um kunna leikara Bob Hoskins,
en hann leikur einnig eitt hlut-
verkið. Annars eru aðalhlutverk-
in í höndum fiögurra barna sem
öll eru að heyja framraun sína í
kvikmyndum en auk þeirra
leika í myndinni Dan Aykroyd
og Saul Rubinek.
Kvikmyndir
Myndin fiallar um krakkana
Tissy, Mike, Pete og Steve. Þau
hafa komist að því að ef þau ná
að standa undir regnboga þá eigi
þau möguleika á að lenda í ævin-
týraferð sem er engri ferð lík.
Það þarf því engan að undra að
dag einn þegar þau eru í skólan-
um og sjá út um gluggann regn-
boga þá þjóta þau út á hjólin sín
og hjóla í átt að upptökum regn-
bogans.
Nýjar myndir:
Háskólabíó: The Ghost and the
Darkness
Laugarásbíó: The Crow 2: Borg
englanna
Kringlubíó: Rich Man's Wife
Saga-bíó: Ævintýraflakkarinn
Bíóhöllin: Space Jam
Bíóborgin: Bound
Regnboginn: Englendingurinn
Stjörnubíó: Máliö gegn Larry
*
Krossgátan
Lárétt: 1 úthald, 4 ánægður, 7 inn-
an, 8 stefna, 9 gelt, 10 frásögn, 11 tín-
ir, 13 sprotar, 15 reiðihljóð, 16
flenna, 18 eggið, 20 rykkorn, 21
sting, 22 erfiði.
Lóðrétt: 1 ójafna, 2 munda, 3 stutt-
ir, 4 renglur, 5 halda, 6 ásaka, 9 al-
veg, 12 saur, 14 umgang, 15 eira, 17
fljótið, 19 oddi.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 tekt, 5 hét, 8 öm, 9 Alla, 10
snáði, 12 el, 13 káfaði, 16 logans, 18
ræl, 19 örin, 20 agat, 21 æri.
Lóðrétt: 1 töskur, 2 er, 3 kná, 4 taða,
5 hliðar, 6 él, 7 tal, 11 nálæg, 12 ein-
ir, 14 fola, 15 asni, 17 göt.
Gengið
Almennt gengi LÍ nr. 71
06.03.1997 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollqengi
Dollar 71,360 71,720 70,940
Pund 115,110 115,700 115,430
Kan. dollar 52,200 52,520 51,840
Dönsk kr. 10,8950 10,9530 10,9930
Norsk kr 10,2240 10,2800 10,5210
Sænsk kr. 9,3060 9,3570 9,4570
Fi. mark 13,9270 14,0090 14,0820
Fra. franki 12,3140 12,3840 12,4330
Belg. franki 2,0132 2,0253 2,0338
Sviss. franki 48,0700 48,3300 48,0200
Holl. gyllini 36,9100 37,1300 37,3200
Þýskt mark 41,5600 41,7700 41,9500
ít. líra 0,04175 0,04201 0,04206
Aust. sch. 5,9020 5,9380 5,9620
Port. escudo 0,4138 0,4164 0,4177
Spá. peseti 0,4908 0,4938 0,4952
Jap. yen 0,58650 0,59010 0,58860
irskt pund 111,110 111,800 112,210
SDR 97,46000 98,05000 98,26000
ECU 80,8400 81,3200 81,4700
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270