Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1997, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1997, Side 12
2» myndbönd *jk * MYNDBAHDA Leyndarmál grafið upp Pierre og Marc eru uppeldisbræður sem reyna að grafast íyrir um það hver sé faðir Marcs. Marc fæddist árið 1952 þegar Hitchcock var að gera kvikmynd í heimaborg þeirra og hafði lagt undir sig kirkjuna sem fjölskyldan sótti. Svo virðist sem móðir Marcs hafl ljóstrað upp leyndarmálinu í skriftarstólnum og sá eini sem viti það sé prestur sem er löngu hættur störfum og ekki vit- að hvar hann er niðurkominn. Pierre er fremur slétt og felid persóna en Marc er samkynhneigður fíknie&ianeytandi sem selur sig eldri mönnum og hann dregur Pierre inn í skuggahliðar mannlífsins í leit þeirra að foðum- um. Leitin endar að lokum í ógæfu og óvæntri uppgötvun. Leikstjórinn, Ro- bert Lepage, sem m.a. hefur gert hina afspymugóðu Jesus of Montreal og hina afspymuslöppu The Rise and the Fall of the American Empire, segir hér heldur nöturlega sögu, uppfulla af mannlegri eymd og vesöld. Hann hef- ur ágæta leikara og nokkuð áhugaverða sögu í höndunum. Þar að auki er kvikmyndatakan fagmannleg og vel heppnuð en honum tekst þó ekki að lyfta myndinni í hæstu hæðir. Myndin er helst til of hæggeng sem gerir áhorfandanum erfitt fyrir í jafn þungri mynd sem þessari. Þá er endirinn fremur stefnulaus og þegar allt kemur til alls skilur myndin ekki mikið eft- ir sig. Le Confessional. Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Robert Lepage. Aðal- hlutverk: Lothaire Blutheau og Patrick Coyette. Kanadísk, 1996. Lengd: 110 mín. Bönnuð innan 16 ára. „ -PJ Fullorðnir unglingar ★★i Brimbrettameistarinn JC býr í brothættri sambúð með draumadísinni sinni i smábæ á suðurströnd Eng- lands. Hann viil helst ekki ftillorðnast þótt hann sé að verða þrítugur og það fer í taugamar á unnustu hans. Ekki batnar ástandið þegar hann fær æskuvini sína i heimsókn. Einn þeirra er fíkniefhasah, annar frægur tónlistarmaður, og i sameiningu hafa þeir rænt þeim þriðja sem er að fara að gifta sig. JC verður að foigangs- raða hjá sér og gera upp við sig hvemig hann eigi að skipta tímanum milli kærustunnar, vinanna og brim- brettanna. Þessi mynd fer ansi vel af stað. Hún er framan af mjög fersk og skemmtileg og ætti að höfða til alira unglinga á tvítugs- og þrítugsaldri. Þrátt fyrir aö vera skemmtilega klikkuð missir myndin aldrei sjónar á vandamál- um persónanna og tekur fremur heiðarlega á þeim. Þá er Sean Pertwee finn í aðalhlutverkinu og Ewan McGregor einnig sem einn af æskuvinum hans, og landslagið í Comwall vinnur einnig leiksigur. Undir lok myndarinnar dettur hún hins vegar niður á veliuplan og allir verða svo skínandi hamingjusamir að halda mætti að myndin væri bandarísk. Blue Juice. Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Cari Prochezer. Aðalhlut- verk: Sean Pertwee, Zeta Jones og Ewan McGregor. Ensk, 1996. Lengd: 95 mín. Bönnuð innan 12 ára. -PJ ★★★ Erfðavísahryllingur Edward Douglas (David Thewlis) er sá eini sem kemst lifs af úr flugslysi í Kyrrahafinu. Honum er bjargað af vísindamanninum Montgomery (Val Kil- mer) sem kemur með hann á eyju Dr. Moreau (Marlon Brando). Fljótlega kemur í ljós að Douglas er fangi á eynni og Dr. Moreau er að gera tilraunir með blöndun erfðavísa manna og dýra. Ætlunarverk hans er að búa til nýjan og fullkom- inn kynstofti manna sem myndi skapa paradís á jörð. í tilraunum sínum hefur hann hins vegar skapað ófreskjur sem erfitt er að hafa taumhald á og svo fer að hann missir stjóm á sköpunarverkum sínum og við tekur bar- átta um yfirráð á eynni. Myndin er gerð eftir sögu H.G. Wells en auðvitað er vísindaskáldskapur hans nokkuð úreltur nú á tímum. Leikstjórinn Frankenheimer gerir ekki þau mistök að reyna að gera vitrænt verk úr úr- eltri sögu heldur leggur áherslu á vísindahryllingsstemninguna og stíl- brögð og skapar þannig mynd sem er bara ansi flott og skemmtileg. David Thewlis er svolítið álkulegur í aðalhlutverkinu, Val Kilmer er góður sem hálfvankaður og illa bilaður aðstoðarmaður Dr. Moreau. Þá em ágætir aukaleikarar þama, svo sem Fairuza Balk, Temuera Morrison og Ron Perlman, en bomban er stórleikarinn Marlon Brando sem er hálfaumkun- arverðm í tUraunum sínum til að skapa sérvitran snilling. Sem betur fer er hann einn af þeim fyrstu til að falla í valinn. The Island of Dr. Moreau. Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: John Frankenheimer. Aðalhlutverk: David Thewlis, Marlon Brando og Val Kil- mer. Bandarísk, 1996. Lengd: 96 min. Bönnuð innan 16 ára. -PJ Kátir kakkalakkar Joe’s Apartment er fyrsta kvikmyndin sem MTV gerir. Hún fjallar rnn lúðulakann Joe sem flyst til New York og dettur í lukkupottinn þegar honum tekst að svindla sér inn I hræbillega ibúð þar sem leigan hefur ekkert hækk- að í marga áratugi. Hann verður hins vegar að deila henni með u.þ.b. 50.000 kakkalökkum. Kakkalakkamir em hæstánægðir með nýja sambýlismanninn, enda er hann ofursóði og skilur eftir matarleifar út um allt. í ljós kemur að kakkalakkamir em bráðgáfaðir og geta ekki aðeins talað heldur einnig dansað og sungið. Með hjálp kakkalakkanna tekst Joe að verjast ásókn hrottafenginna glæpamanna, ná sér í draumadísina sína og gerast hverfishetja. Myndin er eins og við var að búast gjörsamlega út í hött og dansar á strikinu milli þess að vera fyndin og vera bara bull. Oft fer hún yfir strikið og er bara kjánaleg en það er einnig að finna marga góða brandara í henni og henni tókst það sem fáum grín- myndum tekst núorðið - að fá mig til að skella vel upp úr af og til. Joe’s Ap- artment er ekki merkileg mynd en hún er nokkuð skemmtileg. Joe’s Apartment. Útgefandi: Wamer myndir. Leikstjóri: John Payson. Að- alhlutverk: Jerry O’Connell og Megan Ward. Bandarísk, 1996. Lengd: 77 mín. Öllum leyfð. -PJ FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 1997 SÆTI FYRRI VIKA VIKUR Á LISTA TITILL ÚTGEF. TEG. 1 1 3 Nutty Professor ClC-myndbönd Gaman 2 Ný 1 . Twister ClC-myndbönd Spenna 3 2 3 2 Time to Kill Warner myndir Spenna 4 4 Wwm Eraser Warnermyndir ( Spenna 5 4 2 Multiplicity Skífan Gaman 6 i 11 7 Independence Day Skífan 1 Spenna 7 5 2 : Island of Dr. Moreau Myndform Spenna 8 14 r 10 i Fargo Háskólabíó Spenna 9 Ný 1 Great White Hype Skrfan Gaman 10 10 6 : Last Man Standing Myndform Spenna 11 13 9 Mission: Impossible ClC-myndbönd Spenna 12 6 3 Heaven's Prisoners Sam-myndbönd Spenna 13 ; 16 : 7 ; Eye for an Eye ClC-myndbönd Spenna 14 8 r 5 The Arrival Háskólabíó Spenna 15 9 3 Stealing Beauty Skrfan Drama 16 l 7 3 10 Celtic Pride Sam-myndbönd Gaman 17 Ai The Rock Sam-myndbönd Spenna 18 20 , 12 Happy Gilmore , ClC-myndbönd Gaman 19 Ai 8 Spy Hard Sam-myndbönd Gaman 20 B i 6 Powder i Sam-myndbönd Drama The Nutty Professor heldur efsta sæti myndbandalistans fjór&u vik- una í röö. Þótt Eddy Murphy fagni vel á myndinn viö hli&ina er ekki óliklegt aö hástökkvari vikunnar muni sækja fast aö honum. Twister fer bent inn í annað sæti listans. Röð efstu mynda breytist ekki a& ööru leyti og veröur A Time to Kill aö sætta sig viö þri&ja sætiö nú. Sviptingar á toppi 20 eru ekki mjög miklar en auk Twister er a&eins Great White Hype ný á lista. Þar er Samuel L. Jackson enn í aðalhlut- verki en sá fýr hefur veriö vin- sæll aö und- anförnu. Aörir í aöal- hlutverkum eru Jeff Goldblum, Damon Wa- yans og Pet- er Berg. The Nutty Professor Eddie Murphy og Jada Pinkett. Hinn góðlegi, bráð- gáfaöi og akfeiti erfða- fræðiprófessor dr. Sherman Klump verður umsvifalaust ástfanginn af hinni fógru Cörlu Purly þegar hún kemur til starfa við háskólann. Hann gerir sér þó fljót- lega grein fyrir því að hann á litla möguleika á að vinna hjarta hennar nema honum takist að ná af sér 200 kílóum. Hann grípur til þess ráös aö taka inn nýtt fitueyðandi lyf og eftir einn sopa breytist hann í Buddy Love, hrað- mæltan, stæltan og tág- grannan kvennabósa. Twister Bill Paxton, Helen Hunt og Gary Elwes. V eðurfræðingarnir Bill og Jo hafa um ára- bil elst við skýjastróka og em manna fróðust um þá. Samt sem áður er lítið annað vitað um þessa stróka en að þeim má skipta í fimm kraftstig. Eina færa leiðin til að komast að þvi í raun hvaðan strókarnir fá kraft sinn er að standa inni í miðju þeirra og gera mælingar. Þau Bill og Jo hafa smíðað vél sem ætlað er að gera þessar mælingar en vandamálið er að koma henni inn í ein- hvem strókinn. Það er hins vegar hægara sagt en gert. ATimetoKill Matthew McConaug- hey og Sandra Bullock. Myndin gerist í Mississippifylki þar sem kynþáttafordómar eru enn ríkjandi. Tveir mddar ræna tíu ára gamalli blökk- ustúlku, nauðga henni og misþyrma svo illi- lega aö þeir telja hana látna. Svo er þó ekki og lögreglustjórinn kemst fljótt að því hvaða menn vom að verki og handtekur þá. Faðir stúlkunnar tek- ur fullur af heift lögin í sínar hendur og skýt- ur misindismennina til bana. Það kemur í hlut lögfræðingsins Jakes Brigance að verja gjörðir fóðurins og bjarga honum frá þvi að fá dauðadóm. . , •¥ * - # "tiPCCTACUL All" Eraser Arnold Schwarzenegger og Vanessa Williams Leyniþjónustumað- urinn John Kmger, sem hefur þann starfa að halda hlífiskildi yfir mikilvægum vitnum al- rikislögreglunnar, hef- ur fengið þaö verke&ii að vemda fegurðardís- ina Lee sem er eina vitnið í máli gegn öflug- um glæpamönnum sem era viö það að ná valdi á hættulegu gjöreyðing- arvopni. Kmger er leiddur í giídru og látið lita svo út sem hann sé svikari. Hann þarf þvi ekki aðeins að vemda vitnið heldur þarf hann að vemda sjálfan sig fyrir eigin mönnum og sanna sakleysi sitt fyrir yfirmönnum sinum. Multiplicity Michael Keaton og Andie Macdowell Doug er einn af þessum mönnum sem hafa alltof mikið að gera og því er ekki að neita að hann er að sligast undan álaginu. En þetta breytist þeg- ar Doug hittir erfða- fræðinginn dr. Owen Leeds sem fundið hef- ur upp aðferð til að búa til „afrit“ af fólki. Hann býr til Doug og skyndilega er hann laus allra mála í vinn- unni, „afritið” sér um þann þátt hins daglega lífs. Þungu fargi er þar meö létt af Doug og ekki líður á löngu uns hann fær sér annað af- rit til að sinna heimil- isstörfunum og krökk- unum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.