Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1997, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1997, Síða 13
FOSTUDAGUR 11. APRIL 1997 13 Að afloknu verkfalli Dagsbrúnar í Mjólkur- samsölunni og Emmess- ís hf. er rétt að staldra við og meta árangur og afleiðingar verkfallsins. Á árum áður, þegar mjólkin var nær allsráð- andi á drykkjarvöru- markaði og þar með nánast lífsnauðsynleg fólki, var eðlilegt að for- ysta verkalýðsfélaga notaði mjólkurleysi sem vopn í baráttu sinni fyr- ir betri kjörum vinn- andi fólks. Skaöinn af verkfalli Dagsbrúnar En í nútímaþjóðfélagi geta neytendur valið ótal vöruflokka til neyslu í stað mjólkur og þar með er mjólkur- leysi ekki lengur það vopn sem áður var. Mjólkurleysi er hins vegar kær- komið samkeppnisaðilum sem Kjallarinn „Aleitin spurning er hvort ástæð- an fyrir verkfalli í MS sé sú að fyrirtækið sé þekkt fyrir það að borga sínu fólki verr en önnur sambærileg fyrirtæki...u deild sína, getur ekki annað en skaðað fyrirtækið og þar með hag þess verkafólks sem þar vinnur. Hvernig hefði ver- ið litið á það að Dagsbrún hefði t.d stöðvað starfsemi Vífilfells en leyft Ölgerðinni að starfa áfram? Slíkt hefði VSÍ aldrei liðið því þó að MS sé aðili að VSÍ er mismunur milli þessara fyrir- tækja sá að MS er í eigu bænda sem engan veginn hafa ..... jafn sterka stöðu og eigendur Vífll- fells í þjóðfélaginu. Þessa stöðu þekkja Dagsbrúnar- menn og að auðveldara er fyrir, að því er virðist, vanmáttug samtök eins og Dagsbrún er í dag að berja á þeim sem minna mega sin. Skað- inn af verkfalli Dagsbrúnar er ekki aðeins MS heldur bænda einnig. Guðmundur Lárusson form. Landssambands kúabænda hafa í verkfallinu aukið markaðs- hlutdeild sína á kostnað mjólkur- vara. Sú ákvörðun Dagsbrúnar að stöðva framleiðslu Emmessís en leyfa starfsemi aðalsamkeppnisað- ila, bæði Kjöriss og ekki síður er- lendra aðila sem fengu kjörið tækifæri til að auka markaðshlut- Bændur sem bitbein Með þátttöku bænda í þjóðarsátt- arsamningum lögðu þeir meira af mörkum en nokkur önnur stétt til að viðhalda kaupmætti verkafólks. Því miður kostaði það bændur að þeir eru nú ein tekjulægsta stétt landsins. Ef verkfallið í MS hefði fært verkafólki betri stöðu í samn- ingum hefði verið hægt að líta skaða bænda og MS mildari augum, Hvers vegna MS? „Með þátttöku bænda í þjóðarsáttarsamningum lögðu þeir meira af mörkum en nokkur önnur stétt til að viöhalda kaupmætti verkafóiks." því verkafólk þarf svo sannarlega á kjarabótum að halda. En því miður var þetta vanhugsuð ákvöruðun forystu Dagsbrúnar sem virðist ekki í takt við nútímann og færir fólki sínu ekki þær kjarabætur sem það sannarlega á skilið. Áleitin spuming er hvort ástæð- an fyrir verkfalli i MS sé sú að fyr- irtækið sé þekkt fyrir það að borga sínu fólki verr en önnur sambærileg fyrirtæki og hvort starfsfólk hafi verið því sammála að nota MS framar öðrum fyrir- tækjum í sértækum verkfallsað- gerðum. Varla getur það þó verið ástæðan þvi MS hefur greitt sinu fólki fyllilega sambærileg laun og tíðkast hafa í skyldum rekstri. Af þeim mistökum að nota bændur og fyrirtæki þeirra sem bitbein í algjörlega misheppnuð- um verkfallsaðgerðum hlýtur að kalla á endurskoðun á öllum sam- skiptum bænda og fyrirtækja þeirra gagnvart verkalýðsforystu með það að markmiði að ekki komi til slíks eineltis gegn okkur bændum í framtíðinni. Forystu Dagsbrúnar ber að skýra það fyrir bændum hvers vegna MS var valið umfram önnur fyrirtæki. Guðmundur Lárusson Er að fjara undan stéttarfélögunum? Á síðustu 5 árum hefur molnað úr undirstöðum launþegafélag- anna i kjölfar samdráttar á vinnu- markaði. Því fleiri sem misstu at- vinnuna, því fieiri urðu að vikja með réttindi sem áunnist hafa á áratugum. Starfsmönnum er stiflt upp við vegg og látnir samþykkja samnings- og réttindabrot til að halda starfi. Margur sem unnið hefur við ákvæðisvinnu hefur þurft að samþykkja fasta krónu- tölu og í mörgum tilfellum tölu- vert lægri en meðaltalsútkoma á ársgrundvelli hefur sýnt. Niðurlægingin er algjör Við málarar höfum ekki farið varhluta af þessu ástandi, frekar en aðrar iðnstéttir, og hafa málar- ar þurft að sniðganga mælinga- skylduna sem bundin er í málefna- samningi meistara og sveina. Oft- ast eru rökin þau að tilboð þeirra í verkþáttinn hafl verið það lágt, að ef sveinarnir ætli að hafa vinnu, verði þeir að láta lönd og leið mælingu og meðaltalslaun og sætta sig við lág laun og langan vinnudag. Ofan á þetta bætist í sumum og oft mörgum tilfellum, að aðbúnaður á vinnustað er ekki neinum bjóðandi. Oft er upp á verktakann að klaga, hann ýmist getur ekki, eða vill ekki útvega þá aðstöðu sem starfsmönnum ber samkvæmt kjarasamningum eða lögum um hollustuhætti. Mörgum verktakan- um er sennilega alveg sama um lög og reglur, þær eru ekki fyrir hann heldur einhverja aðra. Starfsmenn óttast að missa starfið ef þeir múðra og láta kjurt liggja. Þannig verður lítillækkun starfs- mannsins algjör. í fyrsta lagi að breyta tekjuöflun sinni. í öðru lagi, lengja vinnudaginn og í þriðja lagi að sætta sig við að geta ekki lagt frá sér né skipt um föt. í fjórða lagi að geta farið eðlilega og skamma vegalengd á salerni, og í fimmta lagi að geta ekki sest niður í hreina og snyrtilega kaffi- stofu i matarhlé- um. - Niðurlæg- ingin er algjör. En i þessu sem öðru eru til undatekningar. Margur vinnu- veitandinn er til fyrirmyndar hvað varðar að- stöðu fyrir sína starfsmenn og eru til fyrirmyndar í hvívetna. Verktakahugtakið Ekki skánar ástandið þegar starfsmönnunum er boðið að ger- ast verktakar. Þá fyrst fara menn að selja sál sína, hún fæst þá fyrir lítið. Þá er öllum ávinningi hent fyrir róða og róið beint í skerja- garðinn þar sem margur á ekki afturkvæmt á markað með heilt og óflekkað mannorð. Þekkingin á að vera verktaki, en er ekki til staðar í öllum tilfellum, sem mörg- um verður til skaða. Verktakahugtakið er tvenns konar. Annars vegar laun- þegaverktaki sem engu ræður um tíma- setningar, upphaf og endir verks, og ræð- ur ekki né rekur menn, hann er laun- þegi þrátt fyrir greiðslufyrirkomu- lagið. Og hins vegar sá sem hefur tíma- setningar á verkskil- um og ábyrgðir, rek- ur menn og ræður. Hann er verktaki og augljóst að ef hann er ekki þegar genginn í verktakafélagið ber hon- um að gera það. En hins vegar er það álitamál með undirverktak- ann ef aðalverktakinn vill hafa þennan háttinn á með greiðslu til hans. En ef sá sami tekur upp á því að hafa mannaforráð ber hon- um einnig að ganga í verktakafé- lagið. Þá er komið að spurningunni, hver er ávinningurinn og hvert er tapið við að segja sig úr stéttarfé- laginu? Ég vil gera því skóna að langflestir þeirra er segja sig úr stéttarfélögum renni lítinn grun í hvaða réttindamissir það er að ganga úr félaginu. Sú kynslóð sem nú stígur á stokk og kveður sér hljóðs á vettvangi hefur sennilega aldrei staðið í kjarabaráttu og þekkir hana ekki, eða svo virðist. Þetta kemur svo berlega fram í þeim ásökunum sem þessi kynslóð ber á forystumenn verkalýðsfélagana. Mér er í minni þegar hluti félagsmanna BSRB hafnaði því að fara í verkfall og drógu þar með allar vígtennur úr kröfum sínum og náðu ekki samningum fyrr en seint og um síðir. Hin nýja kynslóð vill en getur ekki og bregður fyrir sig frösum. Við heimtum bætt kjör, en við viljum ekkert gera til að sækja kjarabætur. Verkfóll eru vitleysa, við töp- um á þeim, og það er ekki mitt mál. Ef þetta tekst ekki, eruð þið asnar og fífl, handónýt forysta, og svo mörg eru þau orð. Þegar horft er til þeirrar lág- kúru sem á sér stað á vinnustöð- um með laun, vinnutíma og að- búnað og hvað launþeginn sættir sig við, er manni oft spurning i huga. Hvað getur þetta gengið langt áður en öll kjarabót sem áunnist hefur með áratuga baráttu er orðið að marklausu orðagjálfri? Unga fólk, lítið í kringum ykkur á byggingavinnustöðum þar sem þið starfíð. Lesið síðan kjarasamning- ana og lög og reglur um hollustu á vinnustöðum og spyrjið ykkur síð- an; er þetta sem ég bý við það sem ég vil búa við til framtíðar? Eða viltu fylgja fram því sem þegar hefur verið samþykkt og unnið að í áratugi? - Af nauðsyn en ekki leikaraskap. Atli Hraunfjörð „Sú kynslóð sem nú stígur á stokk og kveður sér hljóðs á vettvangi hefur sennilega aldrei staðið í kjarabaráttu og þekkir hana ekki, eða svo virðist.u Kjallarinn Atli Hraunfjörð málari Með og á móti Handboltinn í sjónvarpinu Allt of lítið „Vinsældir íþrótta í sjónvarpi hafa verið kannaðar og miðað við útkomuna er allt of lítið um íþróttir í sjónvarpi hér. Ég er mjög ánægður með það að öðru efni sé ýtt til hliðar til að koma íþróttun- um að því íþróttir efla sál og líkama sem er forsenda fyrir því að við eigum gott og heilbrigt líf fram undan. Það hefur sýnt sig með hand- boltann að undanförnu, t.d. úr- slitaleik Stjörnunnar og Hauka í kvennaflokki, að þetta er hágæða sjónvarpsefni og fólk var hneykslað á því að þau sem lýstu þeim leik i Sjónvarpinu voru alltaf að afsaka það að leikurinn dróst vegna framlenginga. Það var hins vegar nákvæmlega ekk- ert að afsaka. Það er ekki hægt að bjóða upp á betra sjónvarpsefni. Áhorf á leiki í úrslitakeppni karla í handholta hefur verið kannað og niðurstaðan sýndi 70-80% áhorf. Stjómmálamenn verða líka að gera sér grein fyrir því að þeir verða að hygla íþróttunum því það er gífurlegt atkvæðamagn sem liggur í íþróttahreyfingunni og hjá þeim sem eru áhugamenn um íþróttir." Of langt gengið „Mér finnst allt of langt geng- ið í þessum efnum, þegar öðrum dagskrárliðum er rutt út úr dag- skránni kvöld eftir kvöld til að koma þessum handboltalýsing- um að, það er með ólíkind- um. Mér finnst íþróttir hafa allt of mikinn forgang fram yfir annað efni. Sunnu- dagskvöldin eru meira að segja oft á tíð- um lögð undir kona- þessa leiki, þegar fólk vill njóta dagskrárinn- ar saman. íþróttir eiga auðvitað að eiga sinn sess og sinn tíma í dag- skránni en það virðist alltaf vera hægt að ryðja öllu úr dagskránni fyrir þær. En þetta gildir ekki um annað. Hvenær eru t.d. bein- ar útsendingar frá tónleikum í Sjónvarpinu? Því er fljótsvarað, aldrei. Ef hlutfallið milli íþrótta- og menningarefnis er skoðað sýnist mér auðsætt að íþróttirn- ar hafi allt of mikið vægi. Hvers vegna er ekki hægt að sýna frá þessum leikjum seinna að kvöldínu? Mér finnst sök sér þegar um er að er að ræða stór- mót, eins og t.d. heimsmeistara- keppni, þótt slikt gangi oft út i öfgar. Það virðist Ijóst að íþrótt- irnar hafi forgang fram yfir allt annað, þær eru á laugardögum, sunnudögum og reyndar alla daga. Eflaust hefur stór hópur áhuga á íþróttum, en stór hluti þjóðarinnar hefur áhuga á öðru, eins og t.d. menningarefni." -gk Þorbjörn Jensson, landsliösþjálfari í handknattleik. Kjallarahöfundar Athygli kjallarahöfunda er vakin á því að ekki er tekið við greinum í blaðið nema þær ber- ist á stafrænu formi, þ.e. á tölvu- diski eða á netinu. Netfang ritstjómar er: dvritst@centmm.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.