Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1997, Page 28
L.ML
rjcrjjaiau.
vinningur
FRETTASKOTIÐ
SIMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sóiarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 11.APRÍL1997
Helgarblað DV:
Ólöf Rún á
’ tímamótum
Opnuviðtalið í helgarblaði DV á
morgun er við Ólöfu Rún Skúladóttur
sem hætti skyndilega á Sjónvarpinu á
dögunum og settist i ritstjórastól nýs
tímarits fyrir konur, Allt. Hún segist
vera á tímamótum og það hafi verið
ögrandi að taka þá áhættu að skipta
um starf.
Amy Engilberts rýnir í skrift nokk-
urra samningamanna út frá rithönd
þeirra á nýgerðum kjarasamningum,
spjallað er við Ingólf Guðbrandsson
~ ■* ferðafrömuð sem í lok ársins fer með
80 manna hóp í hnattferð um suður-
hvel jarðar og fegurðardrottningar
Reykjavikur eru kynntar til sögunn-
ar. Er þá fátt eitt talið af íjölbreyttu
efni blaðsins. -em/bjb
Dánarbætur:
Samkvæmt
sjómanna-
samningum
- segir ráðherra
„Þetta er atriði sem nauðsynlegt er
^ að líta á, en þama hefur bara verið
farið eftir því sem kveðið er á í al-
mennum kjarasamningum sjómanna
og lögum,“ sagði Þorsteinn Pálsson
dómsmálaráðherra og æðsti yfirmað-
ur Landhelgisgæslunnar i morgun,
aðspurður um tryggingamál skip-
verja Gæslunnar.
Fram hefur komið að sambýlis-
kona og börn varðskipsmannsins,
sem fórst við tilraunir skipverja á
varðskipinu Ægi við að bjarga Vi-
kartindi frá því að stranda, fær svo
lágar dánarbætur eftir hann að af-
komu þeirra er ógnað. DV spurði
dómsmálaráðherra hvort aldrei hefði
komið til álita að Gæslan sjálf hefði
frumkvæði að því að tryggja þá
starfsmenn sína sem gegna hættuleg-
um störfum. „Það get ég ekki sagt,“
sagði ráðherrann. -SÁ
Ráðherrar ósammála um úrskurð Samkeppnisstofnunar:
Samgönguráð-
herra er talinn
fara offari
„Við höfum boðað til okkar full-
trúa Samkeppnisstofnunar og flug-
félaganna til að fara yfir þessi mál
með þeim. Það er fúll ástæða til
þar sem þarna er um að ræða
mjög ströng skilyrði," segir Einar
K. Guðfinnsson, formaður sam-
göngunefndar Alþingis, vegna
fundar nefndarinnar í dag um úr-
skurð Samkeppnisstofnunar
vegna sameiningar innanlands-
flugs Fiugleiða og Flugfélags Norð-
urlands. Skilyrðin hafa sett sam-
einingu félaganna í uppnám og
eru að mati Samkeppnisstofhunar
að sumu leyti talin eiga við um
ríkjandi ástand þó ekkert verði af
sameiningunni.
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra hefur sett sig mjög á móti
þeim skilyrðum sem fram koma í
úrskurðinum. Aftur á móti hefur
Finnur Ingólfsson viðskiptaráð-
herra, yfirmaður Samkeppnis-
stofnunar, allt aðra afstöðu f mál-
inu, samkvæmt heimildum DV.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
lýsti þeirri skoðun sinni á Stöð 2
að hann hefði athugasemdir við
hin ströngu skilyrði án þess þó að
taka jafndjúpt í árinni og Halldór
Blöndal.
Ekki er hægt að merkja að mis-
munandi skoðanir samgönguráð-
herra og viðskiptaráðherra á mál-
inu gangi út í flokka þeirra. Þeir
stjómarþingmenn sem DV hefur
rætt við eru á þeirri skoðun að
Samkeppnisstofnun hafi einfald-
lega úrskurðað samkvæmt gild-
andi lögum og í raun undirstrikað
rækilega sjálfstæði sitt og sam-
gönguráðherra fari offari í mál-
inu.
DV spurði Einar K. Guðflnns-
son um hans álit á úrskurðinum.
„Það eina sem ég set spuming-
armerki við er ákvæðið um stjórn-
endur hins nýja fyrirtækis. Það
virkar sem mjög strangt að í fyrir-
tæki sem Flugleiðir eiga meira en
1 prósent megi ekki nokkur starfs-
maður koma að stjórn hins nýja
félags," segir Einar. -rt
Tveir unglingar slösuðust á skíðum í Skálafelli í gær. Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti annan þeirra, 14 ára gamlan,
og var hann fluttur á slysadeild þar sem meiðsl hans voru talin alvarleg.
DV-mynd S
Hjá Letterman í gær:
Ágætar líkur
á auglýsinga-
samningi
- segir Magnús Ver
„Ég kom fimm sinnum fram í
þættinum, lyfti hinu og þessu og
endaði þáttinn á
því að lyfta tveim-
ur mönnum. Hver
innkoma var stutt
og það eina sem
Letterman spurði
mig um var hvað
ég ætlaði að gera í
hvert skipti,“
sagði Magnús Ver
Magnússon,
sterkasti maður
heims, þegar DV
náði tali af hon-
um í nótt þar sem hann var nýkom-
inn úr upptökum á þætti hins
heimskunna sjón-
varpsmanns Dav-
ids Letterman
sem sýndur verð-
ur í Bandaríkjun-
um í nótt.
Magnús segir
ferðina út hafa
nýst sér vel, hann
hafi verið í við-
ræðum við banda-
rískt fyrirtæki
um hugsanlegan
auglýsingasamn-
ing, fyrirtæki sem tengist keppn-
inni um sterkasta mann í heimi.
„Ég get lítið sagt um málið á
þessu stigi en ef af verður getur ver-
ið um ágætan pening að ræða fyrir
mig,“ segir Magnús Ver, sem hitti
sálfræðinginn Frasier og söngkon-
una Tracy Chapman í þættinum í
gær. -sv
Jóhann P. Símonarson:
Ýmsir af Dísar-
felli uggandi
„Ég tel að ýmsir úr áhöfn Dísar-
fellsins séu uggandi um framtíð sína
hjá félaginu í ljósi þess að ef þeir segja
allan sannleikann um ástand skipsins
verði þeir ekki ráðnir aftur í pláss hjá
Samskipum," sagði Jóhann Páll Sím-
onarson sjómaður í samtali við DV í
morgun.
Jóhann Páll hefur undir höndum
gögn sem hann telur sýna fram á tugi
atriða sem voru aðflnnsluverð áður
en Dísarfellið lagði af stað í sína
hinstu fór í mars. Hann hefur lagt þau
gögn fram hjá ríkissaksóknara.
Jóhann Páll segir á hinn bóginn að
hann bíði spenntur eftir að sjá hvort
forstjóri Samskipa muni standa við
gefin orð í fjölmiðlum um að leggja
fram gögn sem sýni fram á að ekkert
hafi verið athugavert við ástand
skipsins. -Ótt
David
Letterman.
L O K I
Veðrið á morgun:
Hlýttí
veðri
Á morgun er gert ráð fyrir suð-
vestangolu víðast hvar, súld eða
rigningu með köflum um landið
vestanvert en léttskýjað verður
austan til. Fremur hlýtt verður á
landinu.
Veðrið í dag er á bls. 36.
Sjálfskipt
níssan]
Almera
r’ ® ©
kr. 1.498.000.-
Ingvar
Helgason hf.
= = — Sœvarhiifda 2
—— Simi 52!J SUOO