Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1997, Blaðsíða 3
J3"V FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 1997
HLJÓMPLjíTU
Manfred Mann - Groovin' with the Manfreds
Góða fíliðin á Manfred Mann
irkirk
Þeir sem létu sér nægja
að hlusta á hljómsveitina
Manfred Mann syngja og
leika Do Wah Diddy Diddy,
Sha La La, The Mighty
Quinn og annað listapopp á
sjöunda áratugnum fóru á
mis við mikið. Poppið var
bara aukageta (sem reynd-
ar skilaði liðsmönnunum
salti í grautinn og rúmlega
það). Merkasta framlag
Manfred Mann til dægur-
tónlistar sjöunda áratugar-
ins var djassblandaður
ryþmablús, uppfyllingarlög
á stórum plötum og B-hlið-
ar poppsmáskifanna.
Nýlega kom út 26 laga safn ryþmablúslaganna, sannkallaður eðalgrip-
ur fyrir þá sem hafa gaman af þess háttar tónlist. Þar má glöggt heyra
að Manfred Mann stóð Rolling Stones, The Animals og Yardbirds lítt að
baki þegar ryþmablús var annars vegar og Manfred og félagar höfðu
djassblönduna fram yflr. Fortíðarfíklar geta óhikað fjárfest í Groovin’
with the Manfreds vilji þeir fá betri hliðina á Manfred Mann í einu lagi
og skemmt sér yfír lögum á borð við Let’s Go Get Stoned, Call It Stormy
Monday, Smokestack Lightning og hinum lögunum tuttugu og tveimur
á diskinum. Ásgeir Tómasson
Wayne Shorter
High Life
irkiri.
Saxófónleikarinn og
djasstónskáldið Wayne
Shorter hefur ekki látið
mikið að sér kveða undan-
farin ár. Að sögn hefur
hann verið í afslöppun og
sinnt fjölskyldumálum.
Shorter er einna þekktastur
fyrir hljóðfæraleik og tón-
smíðar með hljómsveitinni
Weather Report en er auk
þess höfundur fjölda verka
sem teljast orðin sígild í nú-
tímadjassi. Víst er að marg-
ir höfðu beðið nýrrar sóló-
plötu frá meistaranum með
óþreyju og loks er hún kom
á markað voru undirtektir
fremur misjafnar. Það gætir engra sérstakra nýmæla í þessum nýju tón-
smíðum sem í mörgu minna á áttunda áratuginn i músík manna eins og
Michaels Gibbs, Bills Vatrous og Maynards Ferguson. Rokk- og fönk-
hrynjandi var áberandi í stórsveitamúsík þeirra tíma og á „High Life“
er músíkin skrifuð fyrir stórsveit og öll með formerkjum bræðingstón-
listar.
Margt valinkunnra hljóðfæraleikara kemur við sögu. Meðal þeirra
eru hljómborðsleikarinn Rachel Z úr hljómsveitinni Steps Ahead, David
Gilmour á gítar, slagverksleikaramir Áirto og Lenny Castro og bassa-
leikarinn Marcus Miller sem stjómar einnig stórsveitinni. Margt er hér
einstaklega vel af hendi leyst; fallegt og smekklegt eins og við mátti bú-
ast og foringinn blæs enn snilldarvel i fón sinn. Eitt besta verkið nefn-
ist því sérkennilega nafni „Midnight in Carlotta’s Hair“.
Ingvi Þór Kormáksson
Joshua Redman - Freedom in the Groove
Eplið fellur
Eplið fellur sjaldan langt frá eik-
inni, er stundum haft á orði. Jos-
hua Redman, sonur djassistans
Dewey Redmans, er ungur að
ámm en hefur þegar getið sér orð
sem einn af athyglisverðustu saxó-
fónleikurum nýrrar kynslóðar
blásara í Bandaríkjunum. Á
hljómdiskinum „Freedom in the
Groove“ kemur hann lfka sterkur
til leiks sem tónsmiður. Verk hans
sýna bæði tónlistarlegan þroska og
uppáfyndingasemi sem er langt frá
því ungæðisleg. Að mestu er þessi
músik með sterkar rætur I hefðum
djassins, heföum sem eru af ýmsum toga; blús, harðbopp, fönk, ballöður
og fleira. Mikil fjölbreytni en samt ágæt heildarmynd. Hljóðfæraskipan
er þannig að fyrir utan Redman, sem leikur á tenór-, alt- og sópransax-
ófón, leikur Peter Bemstein á gítar, Peter Martin á píanó, Christopher
Thomas á bassa og Brian Blade á trommur. Allir eru þeir fínir spilarar,
þótt píanóleikarinn hafi vakið sérstaka athygli undirritaðs. Gítarinn
spilar gjaman laglínur með saxófóninum, ýmist raddað eða einradda,
sem er gömul og skemmtileg aðferð.
Það er einmitt þetta orð, skemmtilegt, sem oftast kemur upp í hugann
þegar hlústað er á kvintett Joshua Redmans. Þetta er svo gríðarlega
skemmtileg músík og vel spiluð, að það er langt síðan maður hefúr heyrt
annað eins. Þessi diskur ætti að höfða til djassunnenda af öllum stærð-
um og gerðum og á öllum aldri. Ingvi Þór Kormáksson
• Mþníist ,7
Hljómsveitin Dead Sea Apple leikur á þrennum tónleikum í New York.
Hljómsveitin Dead Sea Apple úr
Kópavogi er á leið í víking vestur
um haf. Nánar tiltekið til New York
- Stóra eplisins. Þar leikur hún á að
minnsta kosti þrennum tónleikum
og ef til vill bætast fleiri við áður en
lagt verður í’ann um miðjan næsta
mánuð.
„Þessi ferð er aðallega því að
þakka að við höfúm náð sambönd-
um hjá New York-deild útgáfurisans
BMG eftir að platan okkar Crush
kom út í fyrrahaust. Þar var menn
farið að langa til að sjá okkur og
þeir greiða götu okkar í ferðinni,”
segir Steinarr Logi Nesheim, söngv-
ari Dead Sea Apple. „Við komum
fram á þremur tónleikastöðum i
borginni, Spiro, The Continental og
loks á hinum margfræga CBGB’S
þar sem Talking Heads og fjölmarg-
ar aðrar nýbylgjuhljómsveitir átt-
unda áratugarins vöktu fyrst at-
hygli. Það er hugsanlegt að fleiri
tónleikar bætist við en sem stendur
göngum við einungis út frá þessum
þrennum. Ef við spilum ekki víðar
núna getur vel verið að við forum
aftur síðar. Það verður bara að
koma í ljós.“
Steinarr segir að það sé einnig
inni í myndinni hjá Dead Sea Apple
að fara í tónleikaferð austin- á bóg-
inn og kynna efnið af plötunni
Crush.
„Danir hafa sýnt okkur áhuga.
Við höfum fengið fin viðbrögð við
plötunni okkar þar,“ segir hann. Ef
við fórum og spilum í Danmörku
komum við einnig við víðar, til
dæmis í Svíþjóð. Ég er Svíi í aðra
ættina og hef búið sjö ár þar þegar
allt er talið. Ég hef því sambönd á
Gautaborgarsvæðinu sem ég get
nýtt mér ef við verðum á ferðinni."
Víðunandi viðtökur
Platan Crush kom út siðastliðið
haust og hlaut viðunandi viðtökur
að mati Steinarrs Loga. Seldist að
vísu ekki í neinum tólf þúsund ein-
tökum ....en þokkalega samt á ís-
lenskan rokkmælikvarða sem er
reyndar ekkert óskaplega stór,“ seg-
ir hann og hlær. „Platan vakti á
okkur athygli, við vorum spilaðir
dálitið í útvarpi og síðan hún kom
út höfum við verið talsvert á ferð-
inni við tónleika- og dansleikjahald.
Við spilum til dæmis um hverja
helgi þar til við forum vestur um
haf, verðum til dæmis á Sauðár-
króki í kvöld (fóstudagskvöld) og á
Dalvík annað kvöld. Fyrir bragðið
er hljómsveitin orðin mun þéttari
og betur samspiluð en þegar við
héldum útgáfutónleikana okkar.
Ýmislegt sem við heyrðum en
kannski ekkert margir aörir hefur
slípast til þannig að við erum orðn-
ir mun ánægðari með okkur á sviði
en áður.“
Dead Sea Apple hélt í síðustu
heimsækir Stóra eplið
viku tónleika á skemmtistaðnum
Astro og þar er einnig meiningin að
efna til tónleika eftir að hljómsveit-
in kemur aftur heim frá Bandaríkj-
unum. Á Astro-tónleikunum lék
Dead Sea Apple aðallega lög af plöt-
unni Crush en lét einnig fljóta með
nokkur ný lög sem hafa ekki áður
hljómað opinberlega.
Ný plata?
„Eins og staðan er í dag erum við
í raun og veru með nýja plötu til-
búna í kollinum,“ segir Steinarr
Logi Nesheim. „Hún er nánast tilbú-
in hvað efnið varðar og við ætlum
áður en langt um líður að setjast
niður með Nick, upptökustjóranum
okkar, og fara yfir nýja efnið. Hins
vegar erum við dálítið óráðnir enn
þá í því hvort það sé tímabært að
taka upp nýja plötu strax eða vinna
meira með efnið á Crush og reyna
að koma því á framfæri víðar en
hér á landi. Útgefandinn okkar er
búinn að kynna plötuna hjá sam-
starfsfyrirtækjum sínum erlendis
og svoleiðis kynningu þarf að fylgja
eftir. Nú, og ef við vekjum athygli í
heimsókninni í New York þiúfum
við að hugsa dæmið upp á nýtt. Það
má því segja að framtíðin sé algjör-
lega óráðin um þessar mundir."
Þá þurfa liðsmenn Dead Sea
Apple einnig að hugsa um fjárhag-
inn þar eð það kostar skildinginn að
selflytja heila hljómsveit frá íslandi
til Bandaríkjanna og aftur til baka.
„Við erum á fullu að reyna að út-
vega okkur styrki til fararinnar,"
segir Steinarr Logi og hlær. „Við er-
um búnir að leita til svo til allra
sem okkur hefur dottið í hug og
núna erum við að biða eftir svari.
Við verðum bara að vona að fólk
hafi nógu mikla trú á okkur til þess
að það sé fúst að létta undir með
okkur við þessa New York-ferö.“
-ÁT
Madonna
Átrúnaðargoð
sjálfsvígssafn-
aðar
Fréttir af hinum stórfurðulega
sértrúarsöfnuði Heavens Gate,
sem framdi fjöldasjálfsmorö til
þess að komast í geimskip sem
þeir töldu að fyigdi Hale Bopp
halasfjömunni í lok
ar, verða
komið I ljós að
af helstu átrún______
ins.
Meölimir Heavens Gate hönn-
heiðurs
iþegar
þeir fá verkefni
sem vefsíöuhönnuðir. Talsraað-
ur Madonnu sagði aö til væri
fjölda vefsíðna um Madonnu og
væri síöa sértrúarsafnaðarins
sijórnend-
fa eftir
óhugn-
anlega væri í raun ágætt mál.
„Við losnuðum við nokkra vit-
leysinga,” sagöi hann. -JHÞ