Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1997, Blaðsíða 11
FÖSTUDÍGUR 18. APRÍL 1997
íyndbönd
Chain Reaction:
Úþrjótandi orkulind
í iðnaðarþjóðfélögum 20. aldar hefur orku-
þörfin sífellt verið að aukast. Gas- og olíu-
birgðir eru takmarkaðar, sólarorkuver reyn-
ast ekki nógu afkastamikil og vegna umhverf-
ishættu er kjamorka ekki eins fýsilegur kost-
ur og áður var talið. En á rannsóknastofu í
Chicago eru nokkrir vísindamenn að vinna að
því að leysa orkuvandamál heimsins. Eftir
margra ára þrotlausa vinnu hafa þeir fundið
upp aðferð til að vinna
orku úr vatni. Með að-
ferð þeirra er hægt
að fá næga orku á
ódýran hátt og án
þess að eiga á
hættu að skaða
umhverfið. Um-
sjónarmaður
verkefnisins, Dr.
Alistair Barkley,
hyggst kynna
uppgötvun sína al-
þjóðlega, en aðrir :
vilja halda henni
leyndri. Kvöld eitt
er Dr. Barkley myrt-
ur og gifurleg
sprenging verður á
rannsóknastofunni.
Vélvirkinn Eddie
Kasalavich og vísinda-
maðurinn Lily Sinclair
eru ranglega grimuð uri
verknaðinn og neyðast til
að leggja á flótta undan
alríkislögreglunni og hinum
verulegu samsærismönnum.
Frosthörkur í Chicago
Þannig hljóðar söguþráðurinn í kvik-
myndinni Chain Reaction sem kemur út
á myndbandi 23. aprfl. Leikstjóri og
framleiðandi er Andrew Davis, sem
hefur skapað sér nafn sem leik-
sfjóri hágæða-spennutryfla.
Af þeim er frægastur The
Fugitive, sem hlaut sjö
óskarsverðlaunatilneíh-
ingar og fékk óskar fyr-
ir besta leik í auka-
hlutverki (Tommy
Lee Jones), en einnig
mætti nefna Under Siege, The Package, Above
the Law og Code of Silence. Keanu Reeves
leikur Eddie, unga vélvirkjann sem neyðist tfl
að leggja á flótta, og Morgan Freeman leikur
Paul Shannon, dularfullan mann sem séð hef-
ur um fjármögnun verkefnisins og er eini
tengfliður Eddie við umheiminn á flótta hans.
í hlutverki Lily Sinclair er nýliðinn Rachel
Weisz, sem þreytti frumraun sína í Stealing
Beauty. Aðrir leik-
arar eru m.a. Fred
Ward, Kevin
Dunn og Brian
Cox.
Myndin var
tekin í
Chicago um
hávetur og
voru margir
á því að
það væri
óðs
manns
æði að
reyna
slíkt,
enda
er
borg-
in
þekkt
fýrir
vetrar-
hörk-
ur - frost og snjó,
kulda og hvassviðri.
En Andrew Davis var
einmitt að sækjast
eftir sliku tfl að gefa
myndinni kuldalegra
og hættulegra yfir-
bragð. Svo fór auðvit-
að að veðrið bakaði
kvikmyndagerðar-
mönnunum þó nokk-
m- vandræði. Farsím-
ar, kvikmyndavélar
og fleiri tæki frusu af
og til og mikla vinnu
þurfti að leggja í að
halda vélunum nógu
heitum. Þar að auki
urðu leikarar fyrir
óþægindum vegna
veðursins, sérstak-
lega Morgan Freem-
an, sem vanur er
heitu loftslagi, en
hann lagðist í flensu
meðan á tökum stóð.
Leikari og
rokkari
Aðalstjarna myndarinnar, Keanu Reeves,
hefur á skömmum tíma orðið einn af eftirsótt-
ustu leikurum Hollywood. Hann vakti fyrst at-
hygli í River’s Edge, en meðal eldri mynda
hans eru Bill and Ted’s Excellent Adventures,
Bili and Ted’s
Keanu Reeves
leikur ungan mann
sem neyðist til að
leggja á flótta
eftir aö hafa
„séð
of mikiö
Morgan Freeman í hlutverki Paul Shannon, sem leikur tveimur skjöldum.
Much Ado about Nothing, Even Cowgirls Get
the Blues, Little Buddha, Johnny Mnemonic
og Feeling Minnesota. Mflli þess sem hann
leikur í hverri stórmyndinni á fætur annarri
finnur hann einhvem veginn tíma tfl að leika
með hljómsveit sinni, Dogstar, og fór m.a. í
tónleikaferðalag með hljómsveitinni síðastlið-
ið sumar.
Þá er Morgan Freeman ekki síður einn af
risunum í kvikmyndaheiminum vestra en
hann hefur hlotið þrjár óskarsverðlaunatil-
nefningar á ferli sínum, fyrst fyrir túlkun
sína á melludólginum í Street Smart, þá fyrir
bflstjórahlutverkið í Driving Miss Daisy og
loks fyrir leik sinn í The Shawshank
Redemption. Þá hefur hann nýlega leikið í
Outbreak og Seven og sú nýjasta er Moil
Flander, sem er nýkomin í kvikmyndahús
hérlendis. Meðal annarra mynda sem hann
hefúr leikið í era Unforgiven, Glory, Lean on
Me, Clean and Sober, Robin Hood: Prince of
Thieves, Johnny Handsome og The Bonfire of
the Vanities. Þá hefur hann leikstýrt Danny
Glover og Alfre Woodard í Bopha!, sem gerist
í Suður-Afríku á tímum aðskilnaðarstefnunn-
Bogus Journey,
Parenthood,
Dangerous Li-
aisons, Point
Break, My Own
Private Idaho
og I Love You
to Death. Það
var hins vegar
hasarmyndin
Speed sem
skaut honiun
upp á stjömuhimininn en
hann hefur síðan leikið í
A Walk in the Clouds,
Bram Stoker’s Dracula,
UPPAHALDS MYNDBANDIÐ MITT
r
Jón Olafsson
tónlistarmaður
gerð. I
mjög
„Ein af mínum uppá-
haldsmyndum er án
efa Mary Poppins.
Þetta er alveg frábær
mynd að öllu leyti.
Tæknilega séð er hún
t.d. frábær ef mið-
að er við það
hvenær hún var
myndinni er
skemmtfleg
sena þar sem
þau Julie
Andrews og
Dick Van Dyke
fara inn í
teiknimynda-
heim en það er
einmitt vinsælt
að gera slíkar
myndir í dag
og nægir þar
að nefha nýlega
mynd með
Michael Jord-
an og Kalla
kaninu. Sagan,
leikurinn og
tónlistin er
einnig frábær,"
segir Jón Ólafs-
son tónlistar-
maður.
Ég hef séð þessa mynd þrisvar,
held ég, en það eru ekki margar
myndir sem ég hef horft oft á og ég
held að það sé aðallega vegna
tímaskorts. Ég
tek ekki oft spólu,
ég reyni frekar að
fara í leikhús en
áhugi minn á því
hefur aukist
undanfarið. Þegar ég
næ mér í spólu tek ég
yfirleitt myndir sem
ég hef misst af í bió.
Ég hef mjög
gaman af evr-
ópskum mynd-
um og vönduð-
um myndmn yf-
irleitt. Leikar-
amir skipta auð-
vitað máli og
Anthony Hopk-
ins, Emma
Thompson og
Daniel-Day Lew-
is eru dæmi um
góða leikara að
mínu mati.
Myndir með
Schwarzenegger
og Van Damme
rata ekki í tækið
mitt. Ég hef
gaman af
spennumyndum
en ekki þeim
myndum þar sem dollaramerkið
er í augunum á hveijum einasta
manni.“
Tom and Huck
Allir strákar þekkja ævintýraper-
sónur Mark Twains, Stikilsberja-
Finn og
Tom
Sawyer, en
þeir eru að-
alpersón-
urnar í Tom
and Huck,
sem gerð er
af Walt Dis-
ney fyrir-
tækinu.
Eins og gef-
ur að skilja
lenda þeir í
miklum æv-______________________
intýrum, en
í myndinni þurfa þeir að hafa uppi
á eldgömlu sjóræningjakorti sem
sýnir hvar fjársjóður er falinn. Til-
gangur leitarinnar er að sanna sak-
leysi vinar þeirra sem yfirvöld hafa
ákært fyrir glæpsamlegt athæfi.
Leit þeirra félaga leiðir þá í drauga-
hús og dularfullan helli, svo eitt-
hvað sé nefnt, og að lokum lenda
þeir í réttarsal þar sem þeir etja
kappi við hinn hættulega Hnífa-Jóa.
Það eru þekktar bama- og tán-
ingastjömur í aðalhlutverkum, Jon-
athan Taylor Thomas leikur Tom
Sawyer og Brad Renfro leikur Stik-
ilsberja- Finn. Leikstjóri er Peter
Hewitt.
Sam-myndbönd gefa Tom and
Huck út og er hún leyfð öllum ald-
urshópum. Útgáfudagur er 21.
apríl.
|i
The Funeral
Christopher Walken er ekki óvan-
ur því að leika samviskulausa
glæpa-
menn íi
kvik-
myndum
og víst er
að fáir,
hafa náð [
betri tök-
um á að í
leika slík-|
an lýð. í|
The
Funeral
leikur
hann
harðjaxl-
inn Ray sem hittir bróður sinn Chez
við útfór þriðja bróðurins. Ray er
staðráðinn í að hefna bróður síns
sem var myrtur, en Chez neitar al-
gjörlega að taka þátt í fyrirætlunum
hans enda allt öðruvísi að upplagi.
Meðan á jarðarforinni stendur eru
rifjuð upp samskipti bræðranna
þriggja. Að jarðarfórinni lokinni
lætur Ray tfl skarar skríða og það
vita allir að hann nemur ekki stað-
ar fyrr en bróðurmorðinginn er
dauður.
Auk Christopher Walken leika
Chris Penn og Benicio Del Toro í
myndinni. Leikstjóri er Abel Ferr-
ara.
Myndform gefur út The Funeral og
er hún bönnuð börnum innan 16
ára. Útgáfudagur er 22. apríl.
flj
Hms' '
Gold Diggers
í Tom and Huck leika aðalhlut-
verkin tvær karlkyns táningastjöm-
ur en í
Gold Dig- 'NNAt1lim'*v owwHiwcc
gers eru
það tvær -
stúlkur
sem hafa
gert garð-
inn frægan
á undan-
förnum
arum sem |
leika aðal-
hlutverkin. I
Em það |
Anna
Chlumsky,
sem lék í My Girl myndunum
tveimur, og Christina Ricci sem lék
í Addams Family myndunum tveim-
ur.
í Gold Diggers leika þær stöllur
stúlkur í leit að földum fjársjóði.
Þær Beth og Jody gætu ekki verið
ólíkari að upplagi. Beth er dæmi-
gert borgarbam sem nýflutt er frá
Los Angeles tfl smábæjar í norð-
vesturríkjum Bandaríkjanna, en
Jody er ærslafull og frískleg stúlka
sem kann hvergi betur við sig en í
skóglendinu og á vötnunum í ná-
grenni heimabæjarins. Þær verða
samt með tímanum bestu vinkonur
og saman leita þær að fjársjóöi
Molly Morgan, sem á að vera í hell-
um hins ógnvekjandi Bjamarfjalls.
ClC-myndbönd gefa út Gold Dig-
gers og er hún leyfð öllum aldurs-
hópum. Útgáfudagur er 22. apríl.