Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1997, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1997, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 1997 w » «- f mm ■:■■■ m helgina a ný mynd + 2 lítrar af Fanta + Kims flögur Kr. 450 Toffe Crisps kr. 33 Bústaðauegi 130 - sími 588 7466 IMætursala um helgar IEBKHÚS Þjóðleikhúsið Litli Kláus og Stóri Kláus sunnudag kl. 14.00 Villiöndin sunnudag kL 20.00 Leitt hún skyldi vera skækja sunnudag kl. 20.30 Fiðlarinn á þakinu fostudag kl. 20.00 laugardag kl. 20.00 Borgarleikhúsið Völundarhús laugardag kl.20.00 Dómínó fóstudag kl.20.00 laugardag kl. 20.00 Barpar laugardag kl. 20.30 Svanurinn fóstudag kl.20.00 Komu- skelfa sunnudag kl.20.00 Loftkastalinn Áfram Latibær sunnudag kl. 14 Á sama tíma að ári laugardag kl. 20 íslenska óperan Káta ekkjan laugardag kl. 20 Hugleikur Embættismanna- hvörfin fostudaginn kl. 20.00 laugardag kl. 20.00 sunnudag kl.20.00 Kaffileikhúsið Vinnukonurnar laugardag Leikfélag Akureyrar Vefarinn mikli frá Kasmír fóstudag kl. 20.30 laugardag kl. 20.30 Skemmtihúsið Ormstunga sunnudag kl.16.00 Lúðrasveitin Svanur heidur tónleika í Tjarnarbíói á sunnudaginn, kl. 14. Lúðrasveitin Svanur heldur tónleika Á morgun, kl. 14, heldur lúðrasveitin Svanur vortónleika I Tjarnarbíói undir stjórn Har- alds Árna Haraldssonar. Með þessum tónleikum hefur Gísli Ferdinandsson piccoloflautuleik- ari lokið 50 ára starfi með sveit- inni og hefur enginn maður hér á landi náð svo löngu samfelldu starfi með einni og sömu lúðra- sveit. Gísli verður heiðraður á tónleikunum I tilefni af þessum tímamótum. Efnisskrá tónleik- anna verður glæsileg, með ýms- um verkefnum sem skrifuð eru sérstaklega fyrir lúðrasveit, og má þar nefha: Prelude for an Occasion eftir Gregson, Valdresmarsj eftir Hanssen, Fantasíu um bresk sjómannalög eftir Langford, Norska ballöðu eftir Penders, Sandpappírsball- ett eftir Leroy Anderson og suð- urameríska tóna sem nefnast Fuglar Brasilíu og hafa ekki heyrst hér áður. Á morgun verða liðin 90 ár frá þvi að Sauðárkrókur varð sérstakt sveitarfélag. Af því tilefni hefur Bæjarstjóm Sauðár- króks ákveðið að gangast fyrir kynningu á starfsemi sveitar- félagsins á morgun. Deildir og stofnanir sveitarfélagsins verða opnar almenningi til sýnis frá kl. 13-17 og þar munu starfsmenn kynna og veita upplýsingar um þá starfsemi sem fram fer á vegum Sauðárkróksbæjar. Þá verður efnt til stuttr- ar samkomu í Safnahúsinu við Faxatorg og hefst hún kl. 14. Þar mun Páll Pétursson félagsmálaráðherra flytja ávarp, auk þess sem Jón Ormar Ormsson mun flytja erindi um aðdrag- anda þess að Sauðárhreppi var skipt upp í Sauðárkrókshrepp og Skarðshrepp. Vortónleikar Söngsmiðjunnar Vortónleikar Söngsmiðj- unnar verða haldnir í Frí- kirkjunni í Reykjavík á morgun kl. 16. Að venju taka nánast allir nemendur Söng- smiðjunnar þátt í tónleikun- um. Kvennakórinn Kyrjurn- ar flytja sína dagskrá og Sönghópur Móður jarðar ásamt Önnu Siggu og Stínu Bongó flytja einnig nokkur lög. Efnisskrá tónleikanna verður mjög fjölbreytt, ís- lensk og erlend sönglög, afrísk og amerísk gospeltón- list ásamt erlendum dæg- urperlum. Aðgangseyrir er 500 kr. en frítt fyrir eldri borgara og börn. Dagur sveitar- stjórnar á Sauðárkróki Frátekií borð í Gerðubergi Leikritið Frátekið borð eftir Jónínu Leósdóttur verður sýnt í Kaffiteríunni í Gerðu bergi á morgun kl. 15. Frátekið borð er ör- lagaflétta í einum þætti og gerist á veitinga- stað. Þar hittast fyrir tilviljun, að því er virð- ist, tvær konur. Önnu er frá Horna- firði hin frá Akureyri. Ekki er allt sem sýn- ist og ýmislegt kemur fram í dagsljós- ið þegar þær taka tal saman. Þetta er hógvær, raunsæ og hlý sýning með ísmeygilegu plotti. Það eru þær Saga Jónsdóttir, Soffía Jakobsdóttir og Bryndís Petra Braga- dóttir sem leika hlutverkin en leik- stjóri er Ásdís Skúladóttir. Orgeltónleikar í Kópavogskirkju Saga Jónsdóttir, Soffía Jakobsdóttir og Bryndís Petra Bragadóttir í hlut- verkum sínum í leikritinu Frátekið borð. Á sunnudaginn kl. 21 leikur Marteinn H. Friðriksson á nýja org- elið í Kópavogskirkiu. Hann mun leika verk eftir Mendelssohn, Jón Þórarinsson, Bach og Reger. Marteinn hefur haldið orgeltón- leika í flestum kirkjum landsins sem hafa pípuorgel og einnig í mörgum kirkjum erlendis. Hann fæddist i Þýskalandi og nam tónlist í Dresden og Leipzig. Hann kom til landsins árið 1964, starfaði fyrstu árin í Vestmannaeyjum og fluttist 1970 til Reykjavíkur. Frá 1978 hefur Marteinn verið organleikari og kór- stjóri við Dómkirkjuna í Reykjavík. Veiðimenn í Síberíu í bíósal MÍR Veiðimenn í Síberíu nefnist rússneska kvikmyndin sem sýnd verður í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10, nk. simnudag kl. 16. Mynd þessi var gerð í Sovét- ríkjunum á sjötta áratugnum og segir frá því er veiðimenn voru sendir út af örkinni til að fanga lifandi Síberíutígra fyrir dýragarða. í þeirri veiðiferð gerist ýmislegt óvænt. Myndin er með enskum texta. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Sigurður Örlygsson opnar syningu Sigurður Örlygsson hefur opn- að myndlisfarsýningu í Galleríi Regnbogans að Hverfisgötu 54. Á sýningunni eru sex ný verk og er sýningin opin virka daga frá kl. 16-24 og frá kl. 14-24 um helgar. Sigurður er fæddur árið 1946 og stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla íslands 1967-1971, hjá Richard Mortensen við Den Kongelige Danske Kun- stakademi 1971-1972 og við Arts Students League of New York 1974-1975. Sigurður hefur haldið 20 einkasýningar hérlendis en einnig hefur hann sýnt í Englandi, Hollandi, Sviþjóð og Finnlandi. Hann hefur einnig tekið þátt í fjölda samsýninga hér heima og erlendis.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.