Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1997, Blaðsíða 12
26
lyndbönd
MYNDBHDA
Beautiful Girls:
Vinahópur á krossgötum
Beautiful Girls segir frá fimm æskuvinum og kon-
unum í lífi þeirra en þrir þeirra standa á krossgöt- | bouulifulgirls
mn í lífi sinu og þurfa að taka ákvörðun um hvert
skuli stefna og hvort þeir eigi að binda sig. Tommy
er í sambandi en heldur fram hjá með æskuástinni sinni sem er nýlega
flutt til bæjarins með eiginmanni sínum og Paul er með súpermódelaár-
áttu og vill ekki bindast kærustunni sinni. í aðalhlutverkinu er Timothy
Hutton, sem leikur tónlistarmann sem er að hugsa um að gefa ferilinn
upp á bátinn, gerast sölumaður og giftast unnustu sinni. Myndin er oft
skemmtipleg og tekur sæmilega vitrænt á vandamálunum. Persónumar
eru yfirleitt fremur trúverðugar og athyglisverðar og leikstjóranum
tekst að sneiða fram hjá snökti og væli. Leikarahópurinn er mjög traust-
ur - Matt Dillon, Michael Rapaport og Timothy Hutton standa vel fyrir
sínu og Natalie Portman á mjög góðan leik. Hins vegar er Uma Thurman
í fremur bjánalegu hlutverki og annars ágætar leikkonur i aukahlut-
verkum líða fyrir smæð hfutverkanna. Rosie O’Donnel nær þó að sýna
einhverja takta.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Ted Demme. Aðalhlutverk: Timothy Hutton,
Matt Dillon og Michael Rapaport. Bandarísk, 1996. Lengd: 108 mín. Bönn-
uð innan 12 ára. -PJ
Escape from LA: ★★
Snake snýr aftur
1981 gerði John Carpenter cult-smellinn Escape
From New York þar sem Kurt Russel lék ofursvölu
andhetjuna Snake Plissken. Sextán árum síðar er
komið framhald sem kallast Escape From LA. Nú er
Los Angeles í rústum eftir jarðskjálfta og flóðbylgju
og er orðin að eyju undan vesturströnd Bandaríkj-
anna. Siðapostuli nokkur er orðinn forseti fyrir lífstíð og lætur flytja
alla óæskilega einstaklinga yfir á þessa eyju þar sem hálfanarkískt sam-
félag hefur myndast. Snake er fenginn til að ná í ofurvopn þangað en
dóttir forsetans hefur rænt því og slegist í lið með aðalbófanum á svæð-
inu. Fyrri myndin var ævintýralega heimskulegt bull sem þó hitti ein-
hvem veginn í mark og þá sérstaklega persónan Snake Plissken. Seinni
myndin er jafiivel ennþá heimskulegri en missir marks og nær aldrei
upp þeirri kaldranalegu kjamorkutöffarastemningu sem einkenndi fýrri
myndina. Hún kemst nokkuð áfram á fomri frægð aðalsöguhetjunnar.
Flottar tæknibrellur og hörkugóð tónlist stoppar upp í götin og gera
myndina að bærilegri afþreyingu.
Útgefandi: CIC myndbönd. Leikstjóri: John Carpenter. Aðalhlutverk: Kurt
Russel. Bandarísk, 1996. Lengd: 97 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ
Striptease:
Strippað fyrir þingmann
Demi Moore leikur unga, fráskilda konu sem fær
vinnu á strippbar til að geta nurlað saman pening-
um fyrir áfrýjunarkostnaði í forræðismáli. Öldunga-
deildarþingmaður kjördæmisins er mikill pervert og
verður yfir sig hrifinn af henni þegar hann sér hana
dansa og býður henni miklar fjárhæöir fyrir einkadans í heimahúsi. Á
sama tíma er hún óafvitandi að flækjast i fjárkúgunarmál sem stofna lífi
hennar í hættu. Myndin reynir að blanda saman gríni, erótík og spennu
en klikkar að öllu leyti nema í grininu þar sem Burt Reynolds bjargar
því sem bjargað verður en hann er óborganlegur í einhverju mesta
perrahlutverki sem um getrn-. Þegar hann er ekki á staðnum er myndin
lítils virði. Demi Moore er hörkukroppur en hún getur því miður ekki
leikið. Hún hefur greinilega búið sig vel undir strippið og dansar af
miklum móð en strippið er hins vegar fremur saklaust, það er varla að
sjáist í hörð og kúlulaga gervibrjóstin og ég get ekki ímyndað mér hvers
vegna myndin er bönnuð innan 16 ára. Ving Rhames er ágætur í stöð-
luðu hlutverki. Myndin er fremur ömurleg og frábær leikm* Burt Reyn-
olds megnar ekki að bjarga henni.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Andrew Bergman. Aðalhlutverk: Demi
Moore. Bandarísk, 1996. Lengd: 112 mín. Bönnuð innan 16 ára. PJ
Rasputin:
Bijálaði munkurinn
★★
Þessi sjónvarpsmynd er (lauslega) byggð á raun-
verulegri atburðarás í rússneska keisaraveldinu í
byijrrn aldarinnar og segir frá munknum Rasputin
sem talinn er hafa haft þó nokkur áhrif meðal keis-
arafjölskyldunnar þrátt fyrir að hafa verið illa liðinn
af flestmn öðrum, enda drykkjurútur og kvennabósi
hinn mesti. Hann þóttist vera heilagur maöur og
geta gert kraftaverk en flestir álitu hann einfaldlega
geðveikan. Myndin fylgir sögu hans og keisarafjöl-
skyldunnai- þar til hann er myrtur af pólitískum andstæðingum hans og
fylgir síðan eftir sigri bolsévika og aftöku keisarafjölskyldunnar. Efnið
gæti verið áhugavert en dramatíkin er heldur yfirkeyrð i myndinni,
sem hvorki getur talist skemmtileg né merkileg, sögulega eða listrænt.
Það sem reddar myndinni fyrfr horn eru fyrsta flokks leikarar. Að vísu
er óþarfa bægslagangur í Alan Rickman í aðalhlutverkinu en gaman er
að fylgjast með vönduðum leikurum í aukahlutverkum og má þar sér-
staklega nefna Greta Scacchi, Ian McKellen og James Frain.
Útgefandi: Sam myndbönd. Leikstjóri: Uli Edel. Aðalhlutverk: Alan Rick-
man. Bandarísk, 1996. Lengd: 100 mín. Bönnuð innan 16 ára.
-PJ
FOSTUDAGUR 18. APRIL 1997
SÆTI FYRRI VIKA VIKUR Á LISTA TITILL ÚTGEF. TEG. j
1 1 3 Twister ClC-myndbönd j Spenna Warner myndir Spenna 3
2 3 4 Time to Kill
3 2 5 Nutty Professor ClC-myndbond j Gaman
4 6 2 Stiptease j Skrfan Spenna j ClC-myndbönd , Spenna
5 Ný i Escape from L.A.
6 3 4 V '. • Multiplicity I Sktfan Gaman 1
7 Ný 1 Fan Sam-myndbönd 3 Spenna
8 9 : 5 3 6 - Great White Hype i Skrfan Gaman
9 6 Eraser Warnermyndir Spenna
10 Ný 1 Feeling Minnesota ■ Myndform , Spenna
11 10 12 Fargo Háskólabíó j Spenna
12 , 7 1 9 ' Heavens Prisoners Sam-myndbönd Spenna
13 8 : 4 Island of Dr. Moreau Myndform Spenna
14 19 ‘ 2 Beautiful Girls Skrfan Gaman
15 Ný : 1 Lone Star Skrfan Spenna
t 16 i7 : 5 Stealing Beauty Skrfan ■.'ý . Drama
17 u ^ 5 , Celtic Pride Sam-myndbönd Skrfan Gaman
i8 : ( Ai 4 Mrs. Winterbourne . Gaman
19 14 j 11 Truth About Cats and Dogs Skífan Gaman
20 12 \ n , Mission: Impossible ClC-myndbönd •fs . Spenna
Óve&ursmyndin Twister heldur efsta sæti myndbandalist-
ans og er greinilegt að íslendingar kunna vel aö meta nátt-
úruhamfaramyndir. Twister er mjög stórfengleg á aö líta
og mikið tæknilegt afrek. Hollendingurinn Jan De Bont
(Speed) leikstýrir myndinni en framleiðandi hennar er eng-
inn annar en Steven Spielberg. Twister var næstvinsæl-
asta myndin í Bandaríkjunum í fyrra, kom á eftir
independence Day. í fimmta sæti er ný mynd á listanum,
Escape from L.A. sem er framhald vinsællar framtí&ar-
myndar, Escape from New York. Kurt Russell leikur a&al-
hlutverkið og er hann á myndinni í hlutverki sínu. Aörar
nýjar myndir eru aftar á listanum, þar er helst að nefna
eina af betri kvikmyndum síðasta árs, Lone Star sem er í
15. sæti.
TW/ST£«J
Twister
Bill Paxton, Helen
Hunt og Gary Elwes.
Veðurfræðingarnir
Bill og Jo hafa um ára-
bil elst við skýstróka
og eru manna fróðust
um þá. Samt sem áður
er lítið annað vitað um
þessa stróka en að
þeim má skipta í fimm
kraftstig. Eina færa
leiðin til að komast að
því í raun hvaðan
strókamir fá kraftinn
er að standa inni í
miðju þeirra og gera
mælingar. Þau Bill og
Jo hafa smíðað vél
sem ætlað er að gera
þessar mælingar en
vandamálið er að
koma henni inn í ein-
hvem strókinn. Það er
hins vegar hægara
sagt en gert.
A Time to Kill
Matthew McConaug-
hey og Sandra Bull-
ock.
Myndin gerist í Miss-
issippiríki þar sem kyn-
þáttafordómar em enn
ríkjandi. Tveir mddar
ræna tiu ára gamalli
blökkustúlku, nauðga
henni og misþyrma svo
illilega að þeir telja
hana látna. Svo er þó
ekki og lögreglustjór-
inn kemst fljótt að því
hvaða menn vom að
verki og handtekur þá.
Faðir stúlkunnar tekur
fúllur af heift lögin í
sinar hendur og skýtur
misindismennina til
bana. Það kemur í hlut
lögfræðingsins Jakes
Brigance að veija gjörð-
ir föðurins og bjarga
honum frá því að fá
dauðadóm.
The Nutty
Professor
Eddie Murphy og
Jada Pinkett.
Hinn góðlegi, bráð-
gáfaði og akfeiti erfða-
fræðiprófessor dr.
Sherman Klump verð-
ur umsvifalaust ást-
fanginn af hinni fögm
Cörlu Purly þegar hún
kemur til starfa við há-
skólann. Hann gerir
sér þó fljótlega grein
fýrir því að hann á htla
möguleika á aö vinna
hjarta hennar nema
honum takist að ná af
sér 200 kílóum. Hann
grípur til þess ráðs að
taka inn nýtt fitueyð-
andi lyf og eftir einn
sopa breytist hann í
Buddy Love, hraðmælt-
an, stæltan og tág-
grannan kvennabósa.
Dcrat noorc
grRIFTEASg
Striptease
Demi Moore og
Burt Reynolds
Þegar Erin Grant
tapar forsjárdeilu
vegna dóttur sinnar sér
hún fram á að peninga-
laus getur hún ekki
barist áffam við hinn
geðtruflaða fýrrverandi
eiginmann sinn. Hún
tekur því starf sem
fatafella á fremur
vafasömum nætur-
klúbbi. Þegar þingmað-
ur einn álpast inn á
næturklúbbinn þegar
Erin er að dansa hrifst
hann svo af dansi
hennar að hann býður
henni stórfé fyrir að
dansa við hann einan.
Hún tekur freistandi
tilboði, en það á heldur
betur eftir að draga
dilk á eftir sér.
Escape From
L.A.
Kurt Russell og
Valeria Golino
Öflugur jarðskjálfti
hefúr riðið yfir vestur-
strönd Bandaríkjanna
og lagt allt í rúst, þar á
meðal Los Angeles sem
nú er orðin eyja. For-
setinn hefúr íýrirskip-
að að Los Angeles
verði fanganýlenda og
þangað em allir glæpa-
menn sendir. Á eyj-
unni hefur skæruliða-
foringjanum Cuervo
tekist að komast yfir
hátæknivopn sem get-
ur sent mannkynið á
steinaldarstig. Það er
því ákveðið að senda
hörkutólið Snake til
Los Angeles og á hann
að uþpræta Cuervo og
endurheimta vopnið.