Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1997, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1997, Qupperneq 5
iy\r FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 1997 Eagles hefur tekist aö ná Michael Jackson og slá sölumet Thriller-plötunnar hans. Hljómsveitin Eagles hefur náð því markmiði sem fáir hefðu trúað fyrir nokkrum misserum að ætti eftir að nást. Plata hennar, Their Greatest Hits 1971-1975, hef- ur náð að jafna sölumet plötunnar Thriller með Michael Jackson í Bandaríkjum Norður-Ameríku. Hún hefúr nú selst í 24 milijómun eintaka. Sölumynstur platnanna tveggja voru vitaskuld ólík. Thriller kom út árið 1982. Tveimur árum seinna voru seld eintök orð- in tuttugu milijónir. Það tók sex ár að ná einni milljón til við- bótar. Þremur árum seinna bættist ein við og í september 1994 tilkynntu útgefendumir að tuttugu og fjögurra milljóna mark- inu væri náð. Safnplata Eagles kom út 1976. Næsta áratuginn á eftir seld- Eagles nær í Önnur þessra platna er Hotel Califomia sem kom út fyrir 21 ári. Hún hefur selst í fjórtán milijóna upplagi og telst tíunda vinsælasta plata allra tima ásamt Appetite for Destruction með Guns N’ Roses sem hefúr selst álíka. Eagles Greatest Hits Vol. 2 er rétt að ná tíu milljóna markinu. Það kemur Don Henley á óvart að Their Greatest Hits 1971-1977 skuli hafa orðið vinsælli en nokkur önnur plata með The Eagles. „Lögin á henni era frá þeim tíma þegar við vorum enn að læra að spila saman,“ segir hann. „Síðar urðum við miklu betri.“ Slá Jackson við múmmí ★★★ Older — George Michael: Platan er fyllilega samboðin fólki sem kann að meta þægilega hjjómandi og vel samansettar laglínur. -AT ★★★ Fjall og fjara - Anna Pálína og Að- alsteinn Ásberg: Þetta er jassskotin vísnatónlist meö tangóívafi á köflum; ákaflega einlæg og stílhrein. Allir textarnir eiga þaö sameiginlegt aö vera í mjög háum gæöaflokki, vel samdir og innihaldsrik- ir. Fjall og fjara er vönduö og góð plata sem á alla athygli skiliö. -SÞS ★★★ All This Useless Beauty - Elvis Costello: Hér er á feröinni ein besta plata Costellos síöan tmperial Bedroom kom út 1982. All This Useless Beauty er í fáum orðum sagt firnasterk plata þar sem saman fara frábærar laga- smíðar og flutningur í hæsta gæöa- flokki,- SÞS ★★★ Mersyfaeast - lan McNabb: Þaö er sama hvar boriö er niöur, hvergi er veikan punkt að finna; hvert lagiö er öðru betra og þetta er besta rokkplata ársins það sem af er. -SÞS ★★★★ Ledbetter Heights - Kenny Wayne Shepard: Kenny Wayne er kornungur, hvítur strákur sém afsannar þaö aö hvítir geti ekki leikiö blús enda hlaöa gamlir blúshundar hann lofi. Tónlistin er rokk- skotinn gítarblús í anda Stevie Ray Vaughans og ef hann heldur rétt á spilunum gæti Kenny Wayne oröiö arf- taki Stevie Ray. -SÞS ★★★ Lesters Bowie Brass Fantasy-The FireThis Time: Rutningurinn spannar marga sb'la og kynslóöir í djassi. Tónlistin vill stund- um hljóma dálítiö tómleg í neöri reg- istrum, þar sem túba gefur ekki sömu fyllingu og rafmagns- eða kontrabassi, en þaö venst bærilega. Þaö er nóg af góðri tónlist hér en þaö er uppáfinn- ingasamur gleöskapur sem er í fyrir- rúmi frekar en nákvæmni.-tÞK ist hún jafnt og þétt. í desember 1993 vora eintökin orðin fjórtán og þá virðist hafa orðið sprenging. í júní 1995 var búið að selja tutt- ugu og tvær milljónir og í síðustu viku var tilkynnt að tvær millj- ónir hefðu bæst við upplagið. Þessi árangur þykir með ólíkindum í bandarísku tónlistar- lífi. Eagles hætti störf- um árið 1981 og kom ekki saman að nýju fyrr en árið 1994 þegar hljómsveitinni bauðst að leika órafinagnað í MTV. Don Henley, söngvari og trommu- leikari Eagles, hafði orðað það svo um möguleikana á sam- vinnu að fyrr frysi í helvíti. Það þótti því við hæfi þegar Eagles hljóðritaði sina fyrstu plötu eftir að hafa tek- hæstu hæðir ið upp þráðinn að nýju að kalla hana Hell Freezes Over. Sú plata hefúr þegar selst í sex milljón eintökum. Ótrúlega seigir Irving Azoff, útgefandi Eagles, sagði í viðtali við bandaríska blaöið Washington Post á dögunum að engan hefði órað fyrir því til skamms tíma að hljómsveitin ætti eför að ná því marki að jafiia sölumet Michaels Jacksons. „Ég er samt ekkert óskap- lega hissa,“ sagði útgefandinn. „Eagles á ótrúlega mikið fylgi sem sést til dæmis á fjöldanum sem kemur á tónleika. Þá vill svo til að hljómsveitin á tvær af tíu mest seldu plötunum fyrr og síðar þannig að það gat greinilega allt gerst.“ Sérfræöingar í plötusölu segja að Eagles eigi á næstxmni eft- ir að ná enn hærra en Michael Jackson. Plötur hans seljast lítt um þessar mundir af ýmsum ástæðum og sýna samanburðar- tölur að Greatest Hits plata Eagles hefúr selst þrisvar sinnum betur en ThriUer siðustu sex árin. Hins vegar er aðra sögu að segja utan Bandaríkjanna. Þar viröist Michael Jackson eiga fjölmarga fylgjendur og jafnvel enn fleiri en hljómsveitin Eag- les. Þegar plötusala í heiminum öllum er saman reiknuð hefúr ThriUer selst í 46 milljónum eintaka en Eagles vantar svo sem tvær til þrjár milljónir til að halda í við Jackson á heimsmæli- kvEæða. Jackson rær að því öllum árum að breyta ímynd sinni og hressa upp á vinsældimar. Eagles hefúr heldur ekki lagt árar í bát. Don Henley segir hugmyndir um nýja hljóðversplötu á viðræðustigi og sömuleiðis aðra hljómleikaferð. Henley ætlar hins vegar ekki að snúa sér að málefnum Eagles fyrr en hann hefúr lokið við einherjaplötu sem verður hin fyrsta síðan The End of the Innocence kom út árið 1989. Skyldi einhver plata eiga eftir að ylja Thriller og Their Greatest Hits undir uggrnn á næstunni? Ekki telja sérfræðing- ar að svo sé. Þriðja vinsælasta plata allra tíma í Bandaríkj- unum er Rumours með Fleetwood Mac. Hún á enn eftir að selj- ast í sjö milljón eintökum til að ná hinum tveimur. Reyndar ætlar Fleetwood Mac-fólkið, sem hljóðritaði Rumours á sínum tíma, að koma saman í sumar, hljóðrita nýja plötu og fara í hljómleikaferð til að halda upp á tuttugu ára afinæli metsölu- plötunnar sinnar. En þótt björtustu vonir Fleetwood Mac ræt- ist um viðtökur þykir harla ólíklegt aö þær verði slíkar að Rumours eigi eftir að bæta við sig sjö milljónum á næstu miss- eram. Söngvari Screaming Trees, Mark Lanegan, var sýknaður af dómstóli í San Fransisco en var handtekinn í skuggalegu hverfi í San Fransisco í lok síðasta mánaðar fyrir að vera með fíkniefni í fórum sínum. Lögregluþjónar sáu rokkarann láta mann nokkum fa 1400 krónur fyrir torkennilegt hvítt duft í litlum plastpoka. Þegar efiia- fræðingar lögreglunnar athuguðu efiiið kom í ljós að ekki var um fíkni- efiú ræða. „Viðskiptavinur“ Laneg- ans var hins vegar handtekinn og fundinn sekur fyrir að hafa tæki til neyslu eiturlyfia í fórum sínum. Screaming Trees era ekki byrjaðir á að vinna að næstu plötu sinni en trommuleikari sveitarinnar er mjög upptekinn við að vinna með þeim Peter Buck úr R.E.M. og Mike McCr- eady úr Pearl Jam. Þeir félagar era saman í hljómsveitinni Tuatara sem er nú á leiðinni í fyrstu tónleikaferö sína um Bandaríkin. Ahrifamiklir tónlistarmenn Trent Reznor (aðalsprautan í rokksveitinni Nine Inch Nails) og upp- tökustjórinn frægi, Babyface, þykja meðal 25 áhrifamestu í Bandaríkjun- um samkvæmt upptalningu timaritsins Time sem kom út á mánudag. Meðal þeirra á listanum era þau Madeline Albright, utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Colin Powell, fyrrverandi yfirmaður herráðs Banda- ríkjanna. Lollapalooza og H.O.R.D.E. taka á sig mynd Það er nú farið að skýrast hverjir spila á bandarísku risatónleikaferð- unum Lollapalooza og H.O.R.D.E. Ljóst er að Tool, Kom, Prodigy, Snoop Doggy Dogg, Tricky, og Jon Spencer Blues Explosion munu spila á Lollapalooza sem mun standa frá miðjum júni til semni hluta agústmán- aðar. Staðfest er að Primus, Morphine, Big Head Todd & the Monsters, Widespread Panic, og Ani DiFranco munu leika á H.O.R.D.E. Beck og Kula Shaker munu hugsanlega slást i hópiim. Stjörnugjöf tónlistargagnrýnenda Óútgáfuhæf ★ Slæm Slök ★★ í meðallagi ★★* Sæmileg ★★★ Góö ★★★-<, Frábær ★★★★ Meistaraverk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.