Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1997, Síða 8
8
MÁNUDAGUR 21. APRÍL 1997
Fréttir
Netanyahu veröur ekki ákæröur í spillingarmáli:
Ónógar sannanir
af hálfu lögreglu
Shields og
Agassi giftu sig
Leikkonan Brooke Shields og
tennisstjarnan Andre Agassi
gengu í það heilaga á laugardag.
Athöfnin fór fram í lítilli kapellu
en einungis 100 ættingjar og vin-
ir voru viðstaddir.
Shields klæddist hefðbundn-
um hvítum brúðarkjól með
löngu slöri. Þetta er fyrsta hjóna-
band beggja. Veislan var haldin
á sumarleyfisstað þar sem hjóna-
komin höfðu leigt 12 lúxussmá-
hýsi og fjögurra stjörnu veitinga-
hús.
Börðust við
mikinn elds-
voða
Her slökkviliðsmanna barðist
í gær við mikla elda sem geisuðu
í miðborg Grand Forks í Norður-
Dakóta-ríki í Bandaríkjunum.
Eldsvoðinn hófst í einum skýja-
kljúfa í fjármálahverfi borgar-
innar á laugardag og í gær hafði
hann eyðilagt fjórar byggingar í
borginni. Eldsvoðinn kom á
versta tíma en mikil flóð hafa
herjað á íbúa ríkisins undanfar-
ið. Komust slökkviliðsmenn ekki
í brunahana sem voru á kafi og
brugðu þeir því á það ráð að
dæla gruggugu flóðvatninu á eld-
inn. Undir kvöld í gær áttu
slökkviliðsmenn undir högg að
sækja en eldurinn virtist hrein-
lega hoppa á milli bygginga.
Reuter
Benjamin Netanyahu, forsætis-
ráðherra ísraels, verður ekki
ákærður fyrir spillingu í starfi og
trúnaðarbrot. Elyakim Rubinstein
saksóknari sagði að óskir lögregl-
unnar um ákæra væru ekki byggð-
ar á nægilegum sönnunum og
byggðust einungis á framburði eins
vitnis. Hins vegar mun Aryeh Deri
úr heittrúarflokknum Shas verða
ákærður fyrir svik, trúnaðarbrest,
íjárkúgun og fyrir að hindra fram-
gang réttvísinnar vegna aðildar
hans að skipun Roni Bar-On í emb-
ætti saksóknara í janúar. Rubin-
stein sagði að Deri mundi fá tæki-
færi til að svara ásökunum í sinn
garö í yflrheyrslum áður en ákæra
yrði lögð fram. Þá munu nokkrir
nánir samstarfsmenn Netanyahus
sæta frekari rannsókn.
Þessi vandræði Netanyahus eiga
rætur að rekja til sjónvarpsfrétta
fyrr á árinu þess efnis að Deri, sem
þá þegar var flæktur í spillingar-
mál, hefði fengið Netanyahu til að
skipa Bar-On í embætti saksóknara
svo hann gæti samið um lok mála-
ferla gegn sér. í staðinn hefði hann
Benjamin Netanyahu.
heitið rikisstjórn Netanyahus
stuðningi í samningunum við araba
um Hebron. Skipun Bar-On olli hins
vegar miklu írafári í ísrael en hann
var talinn gersamlega óhæfur til
starfans. Sagði sá af sér eftir 12 tíma
í embætti.
Netanyahu er fyrsti forsætisráð-
herra ísraels sem lögregla viil fá
ákærðan. Þótt Netanyahu virðist nú
hafa sloppið með skrekkinn er fram-
tið ríkisstjórnarinnar í óvissu þar
sem óvíst er hvemig menn úr Shas-
flokknum muni taka 80 blaðsíðna
skýrslu saksóknara um málið, ekki
síst þar sem Deri mun verða ákærð-
ur. Þá getur Netanyahu orðið fyrir
árásum af háifu ráðherra sinna ef
skýrsla ríkissaksóknara þykir
draga heiðarleika hans í efa. Loks
þykir ljóst að þótt Netanyahu hafi
sloppið við ákæru sé hann síður en
svo hvítþveginn pólitískt séð.
Netanyahu var annars kokhraust-
ur eftir úrskurð saksóknara. I sjón-
varpsávarpi sagði hann að saksókn-
ari hefði hreinsað hann af öllum
ásökunum um glæpsamlegt athæfi
og mál þetta heyrði nú sögunni til.
Simon Peres, formaður Verka-
mannaflokksins og fyrrum forsætis-
ráðherra, sagði hins vegar að Net-
anyahu yrði að segja af sér. Þó ekki
væru nægar sannanir til að ákæra
hann væru nægar sannanir fyrir
hendi til að færa hann fyrir dómstól
almennings. Ásakanimar væru afar
þungar þó ekki væri hægt að sanna
þær fyrir rétti. Reuter
Indland:
Stjórnarkreppu lokið
Inder Kumar Guiral var útnefnd-
ur nýr forsætisráðherra Indlands í
gær. Þar með lauk þriggja vikna
stjórnarkreppu sem lamað hefur
stióm landsins og haldið efnahags-
lífinu í óvissu.
Shankar Dayal Sharma bað
Guiral um að mynda nýja ríkis-
stjóm eftir að Kongressflokkurinn,
sem átti upphafið að stjómarkrepp-
unni en óttaðist kosningar, endur-
nýjaði stuðning sinn við samstarf
við Sameinuðu þjóðfylkinguna
(United Front). Forsetinn hefur beð-
ið Guiral, sem er 77 ára, að sann-
reyna meirihluta sinn í þinginu á
þriðjudag.
Gurial er menntamaður, með
reynslu í utanríkismálum. Hann
þykir öraggur um meirihluta í þing-
inu en á bak við Sameinuðu þjóð-
fylkinguna og Kongressflokkinn em
318 af 542 þingmönnum í neðri deild
þingsins. Reuter
Hvöt
félag sjálfstæðiskvenna í Reykjavík,
heldur opinn fund í Valhöll,
þriðjudaginn 22. apríl nk. kl. 17.00,
með yfirskriftinni „Af hverju eru
karlmenn ríkjandi ístjórnmálum?"
Ræðumenn fundarins:
Tuula Öhman borgarstjórnarfulltrúi
í Helsinki, talar um konur og stjórn-
mál í Finnlandi.
Geir Haarde þingmaður talar um
konur og stjórnmál í alþjóðlegu sam-
hengi.
Sólveig Pétursdóttir þingmaður tal-
ar um starf þingmannsins.
Dr. Sigrún Stefánsdóttir lektor
við Háskóla íslands, talar um konur,
fjölmiðla og stjórnmál.
Fundarstjóri er Bessí Jóhannsdóttir.
Félagar, fjölmennið og takið með
ykkur gesti.
Stjórnin
Kosningaskjálfti skók franska
stjómmálaflokka í gær en þær sögur
gengu þá fjöllunum hærra að Jacques
Chirac forseti mundi tilkynna um
þingkosningar strax í dag, í þeim til-
gangi að ryðja úr vegi hindrunum fyr-
ir sameinaðri Evrópumynt. Skoðana-
kannanir sýndu að kjósendur eru
hlynntir því að þingkosningum verði
flýtt en þær eiga annars ekki að vera
fyrr en í mars á næsta ári.
Þrátt fyrir leka um kosningar, sem
virtist skipulagður í herbúðum
Chiracs, heyrðist ekki múkk frá tals-
mönnum forsetans um kosningar.
Heimildir töldu í gær að Chirac
mundi boða tveggja umferða kosning-
ar í sjónvarpi á morgun og þær fæm
fram annaðhvort 25. maí og 1. júní eða
1. og 8. júní.
Dagblaðið Le Monde fullyrti að Ala-
in Juppé forsætisráðherra mundi
leggja fram drög að kosningastefnu-
skrá á þriðjudag þar sem lögð yrði
áhersla á framhald spamaðar, meiri
skattalækkanir og takmörkun á ríkis-
umsvifum, allt til að gera Frökkum
kleift að eiga aðild að sameiginlegum
Evrópugjaldmiðli.
Iðnaðarráðherra Frakka sagði að
margt réttlætti kosningar nú en sósía-
listinn Lionel Jospin sagði kosningar
nú þýða tap fyrir ráðandi flokka. „Ef
stjómin hefði einhverja trú á eigin
stefhu myndi hún bíða þar til kjör-
tímabilinu lyki,“ sagöi Jospin. Reuter
Amber Carillo minnist hér föður síns sem var í hópi þeirra 168 sem létu lífiö
þegar stjórnsýslubyggingin í Oklahomaborg var eyðilögð í sprengingu 19.
apríl fyrir tveimur árum. Minningarathöfn um hina látnu fór fram á laugardag.
Nöfn þeirra voru þá lesin upp og aðstandendum gafst kostur á að fara inn á
lóðina þar sem byggingin stóð, en hún hefur verið girt af, og leggja þar blóm
og kransa. Sfmamynd Reuter
Kosningaskjálfti í
frönsku flokkunum
Stuttar fréttir
Undirbjuggu sig
Viðskiptaaðilar í Kinshasa,
höfuðborg Saír, bjuggu sig undir
að uppreisnarmenn lokuðu fyrir
samgöngur til borgarinnar.
Spáö meirihluta
Umbótasinnum var spáð ör-
uggum meirihluta í þingkosn-
ingunum í Búlgaríu í gær og
geta því hrint nauðsynlegum
efhahagsumbótum í fram-
kvæmd.
Skemmdu brú
Skemmdir
voru unnar á
lengstu járn-
brautarbrú í
heimi, sem er í
Hong Kong,
viku áður en
Margaret
Thatcher, fyrr-
um forsætisráðherra Breta, átti
að opna hana.
Áskorun
Sinn Fein, stjómmálaarmur
írska lýðveldishersins, IRA,
skoraði á sigurvegara bresku
þingkosninganna 1. maí að
hleypa fulltrúum sínum að
samningaborðinu um Norður-ír-
land.
Vill konungdæmi
Leka, konungur Albaníu, sem
verið hefur í útlegð, hóf herferð
heima fyrir í þeim tilgangi að
koma konungdæmi á aftur. Var
honum fagnað mjög í gamla
heimabæ sínum.
Evrópurifrildi
Kosninga-
baráttan í
Bretlandi ein-
kenndist af
rifrildi um
hlutverk Bret-
lands í Evr-
ópu. Tony Bla-
ir, formaður
Verkamannaflokksins, sagði að
borgarastríð væri innan fhalds-
flokksins þar sem hart væri deilt
um hve mikil völd ætti að láta í
hendur Evrópusambandinu í
Bmssel.
Gerðu árás
ísraelskar herþotur gerðu
árásir á meintar bækistöðvar
skæruliða í Suður-Líbanon eftir
að tveir ísraelskir hermenn fór-
ust í sprengjuárás.
Zjúganov kjörinn
Gennadí
Zjúganov var
endurkjörinn
formaður
rússneska
kommúnista-
flokksins sem
samþykkti
ályktun þar
sem því var heitið að Borís
Jeltsín yrði komið frá völdum.
Hvatt til rósemi
Klaus Kinkel, utanríkisráð-
herra Þýskalands, hvatti til ró-
semi heima fyrir og í fleiri Evr-
ópuríkjum eftir deilu sem kvikn-
aði þegar dómstóll í Berlín úr-
skurðaði að íranar hefðu skipu-
lagt morð á Kúrdum.
Kona i slaginn
Ellen Johnson-Sirleaf hefur
gefið kost á sér í forsetakosning-
unum í Líberíu 30. maí. Vill hún
að kona verði kosin frekar en
karlmennimir sem standa á bak
við borgarastyrjöld síðastliðinna
sjö ára.
Hinsta ferö
Aska rithöfundarins og
sýruflipparans Timothys Learys
verður send með spænskum
gervihnetti út í geiminn þar sem
henni verður dreift.
Reuter