Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1997, Blaðsíða 20
40
FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 1997
Tiiboö
Uppþvottavé! á borð eða til að byggja inn í skáp.
Stærð 50x50x50 sm. Tekur borðbúnað fyrir 6 manns,
4 þvottakerfi + hraðkerfi. Tvöfalt skolunarkerfi.
v/Fellsmúla - sími 588 7332
Opiö 9-19 mán.-föst. og 10-14 lau.
Bílasalan Höfði
Bíldshöfða 12
sfmi 567-3131
Bíllinn er aðeins ekinn
30.000 km.
(Verð 6.200.000)
Bíll: Ford Econoline E-250. Breyttur hjá Bílabúð Benna.
Vél: 7,3 TURBO disilvél - Banks Turbo.
Hestöfl: Ca 220.
Sjálfskipting: 4AOD Ford Automatic með aukakæiingu og tölvu frá GaleBanks sem
stjórnar skiptingunni.
Millikassi: 1356 B&W aðalmillikassi og tveir milligírar (203NP og 1256 B&W)
Framháslng: Dana 60 með yfirliggjandi pinjón / 35 rillu öxlar / 4,88:1 drifhlutfall.
Driflæsing: ARB-loftlæsing.
Afturhásing: Dana 60 35 rillu / 4,88:1 drifhlutfall.
Driflæsing: ARB loftlæsing.
Framfjaðrir: Mercedes-Benz.
Afturfjaðrir: Std fjaðrir, með Rancho-aukablöðum.
Demparar: Rancho RS9000. Ný gerð stillanleg inni i bíl.
Stýristjakkur: (vökvaknúinn frá stýrismaskínu).
Breytingar á yfirbygglngu: Hjólahaf var aukið, framhjól voru færð fram um 5 cm og
afturhásing færð aftur um 10 cm. Viking T-V upphækkunartoppur var settur á.
Hækkun á yfirbyggingu: 2”.
Felgur: Weld Racing 16,5x14 með soðinni brún.
Dekk: Dick Cepek Fun country 44".
Ökuljós: IPF SUper Rally multi control system 930,170 w hár geisli, 100 w lágur geisli,
2 stk. á framstuðara.
Þokuljés: IPF 85 w Super Projector 400 með gulllinsu, 2 stk.
Hljómflutningstæki: Af fullkomnustu gerð. Tónjafnari og átján hátalarar.
Síml: Bílasími með teimur símtólum.
Stélar: Leðurklæddir Wieland Design (4 stk. ,,Captain"-stólar og bekkur sem hægt er
að leggja niður).
Snúningsmæli: Auto Meter.
Hitamællr: Auto Meter.
Olfuhitamæll: Auto Meter. Spil: Warn XD9000.
Rafgeymar: Optima 850 ofurgeymar o.f.l, o.fl.
Fréttir
Vaxandi harka í verkfalli fiskverkafólks:
Stöðug verkfallsbrot
hindra samninga
- segir Pétur Sigurðsson, forseti ASV
Dy ísafjarðarbæ:
„Stöðug verkfallsbrot atvinnurek-
enda hindra þá vinnu okkar að búa
til heillega tillögu að samningi. Við
veltum því fyrir okkur að neita að
ræða við þá fyrr en þessu linnir,“
segir Pétur Sigurðsson, forseti Al-
þýðusambands Vestfjarða, um stöð-
una í kjaradeilunni á Vestfjörðum.
Allt situr enn fast og er fjöldi
verkfallsvarða á ferð og flugi um
Vestfirði í því skyni að stöðva
meint verkfallsbrot. Átök urðu á
nokkrum stöðum á ísafirði í gær
þegar reynt var að hreyfa bíla
Gámaþjónustu Vestfjarða og ísa-
fjarðarleiðar. Verkíallsvörðum
tókst að stöðva atvinnurekendur í
báðum tilvikum. Á Þingeyri, þar
sem ekki er verkfall, er frystihús
Fáfliis vaktað allan sólarhringinn í
því skyni að hindra atvinnurekend-
ur í því að nálgast ís til kælingar á
fiski. Þegar hafa verkfallsverðir vís-
að nokkrum bílum frá vegna þessa.
Þegar DV átti leið um Þingeyri í
gær voru Trausti Ágústsson og Ása
Lára Þorvaldsdóttir á vaktinni. Þau
sögðu nokkuð um að reynt væri að
laumast fram hjá þeim.
„Við vísuðum einum frá í morg-
un. Það er allt reynt til að brjóta á
okkur,“ segja þau.
Hiti í fólki
Á Þingeyri var í gær verið að
landa úr frystitogaranum Sléttanesi
ÍS sem fær undanþágu frá verkfall-
inu vegna þess að skipið hefur feng-
ið alla þjónustu á Þingeyri hingað
til. Þrátt fyrir að skipið sé í eigu
Básafells hf. þá fá önnur skip fyrir-
tækisins ekki sömu þjónustu.
Á verkfallsvaktinni á ísafirði var
hiti í fólki þegar DV leit þar inn.
„Við erum tilbúin í þriggja mánaða
verkfall ef því er að skipta. Það eru
nægir peningar í verkfallssjóðum,"
sagði einn verkfallsvarðanna. Reiði
var meðal fólks vegna þeirra
landana sem átt hafa sér stað sunn-
anlands úr vestfirskum skipum og
talað var um svik Hafnfirðinga við
vestfirskt verkafólk. -rt
Bjór fæst nú keyptur í stykkjatali í verslunum ÁTVR. Ekki er hins vegar vitað til þess að hægt sé að kaupa kaldan
bjór í stykkjatali annars staðar en í Ríkinu við Dalveg í Kópavogi.
Vandi Þingeyringa:
Bjartsýn í augnablikinu
£re:DV; Þingeyri:
Aukinnar bjartsýni gætir meðal
Þingeyringa eftir að Byggðastofnun
samþykkti á fundi sínum í gær að
nýtt eignarhaldsfélag tæki við eign-
um Fáfnis.
„Ef ekkert gerist í málunum hér
áður en septembermánuður rennur
upp þá er vá fyrir dyrum hér. Ég
trúi ekki öðru en eitthvaö verði
komið til áður en það gerist,“ segir
Valdís Bára Kristjánsdóttir, formað-
ur Verkalýðsfélagsins Brynju á
Þingeyri, um ástandið á Þingeyri
þar sem 60 til 80 manns hafa gengið
atvinnulausir að undanfomu vegna
lokunar Fáfnis hf. Hún vísar til þess
að bótaréttur verkafólksins rennur
út í september og þá hafi fólk ekkert
lifibrauð.
„Það verða þá engir eftir hér
nema nokkrir ellilífeyrisþegar og
öryrkjar. Ég trúi þó ekki öðru en
hjólin fari að snúast á ný. Við erum
allavega bjartsýn í augnablikinu og
væntum þess að eitthvað gerist fljót-
lega,“ segir Valdís Bára.
- rt
Utandagskrárumræða um Áburðarverksmiðjuna:
Slælega stutt við starfsemina
- sagði Svavar Gestsson á Alþingi
„Staðreyndin er sú að það hefur
verið haldið þannig á málum að
flest bendir til þess að það eigi helst
að loka Áburðarverksmiðjunni,"
sagði Svavar Gestsson við utandag-
skrárumræðu um Áburðarverk-
smiðjuna í Gufunesi á Alþingi í
gær.
Svavar sagði að verksmiðjan
væri, þrátt fyrir að hinu gagnstæða
væri haldið fram, eitt umhverfis-
vænsta fyrirtæki á landinu. Verk-
smiðjan væri mjög hagkvæm i
rekstri en framleiðslukostnaður á
hvert tonn áburðar hefði lækkað
um 50% síðan 1985. Þá væri hún
hagkvæm fyrir landbúnaðinn og
þjóðarbúið í heild.
Hann gagnrýndi landbúnaðar-
og umhverfisráðherra og stjórn
verksmiðjunnar fyrir að standa slæ-
lega við bakið á verksmiðjunni og
leita henni nýrra verkefna og allt
stefndi í það að henni yrði lokað.
Ef svo færi yrði að flytja inn verri
áburð í miklum mæli til landsins og
þótt innfluttur áburður væri ódýr
nú myndi það snarlega breytast þeg-
ar samkeppni innanlands væri ekki
lengur til staðar. Auk þess myndu
70-100 manns missa störf sín, eða
heldur fleiri en starfa við stækkun
álversins i Straumsvík.
Guðmundur Bjamason landbún-
aðar- og umhverfisráðherra sagði
við umræðuna að þrátt fyrir mikla
hagræðingu hjá verksmiðjunni
væri hún rekin með tapi, en áburð-
arsala hefði mjög dregist saman.
Reynt hefði verið að finna henni ný
verkefni en samtímis hefði verið at-
hugað um sölu á hlutabréfum í
verksmiðjunni sem öll væru í eigu
ríkisins. Ekkert væri óeðlilegt við
það. -SÁ