Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1997, Qupperneq 28
Vinningstölur miðvikudaginn 7. 05.’97
11 13 14 23 38 45.
A
Fjöldi
Vinningar vinninga Vinning&upphœð
1. 6 aþ 6 0 40.080.000
2.5 4 6.1, 0. 0 994.288
3.5 0(6 0 229.416
4.40(6 165 2.210
5.3 0(6.1 O. 738 210
HeiIdamnnín|Aupphœcf
Á í&landi
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö i DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sðlarhringinn.
550 5555
Helgarblað DV:
Bauð kerfinu
* byrginn
í helgau'blaði DV á morgun er birt
mjög opinskátt viðtal við Kolbrúnu
Sverrisdóttur sem missti sambýlis-
i mann og foður í Æsuslysinu í fyrra.
Hún lýsir þeirri lífsreynslu sinni og
baráttunni við kerfið um að fá upp-
lýst um orsakir slyssins.
Viðtal er við sendiherrahjónin í
Þýskalandi, þau Ingimund Sigfús-
son og Valgerði Valsdóttur, og um-
fjöllun um nýtt sendiráð íslands í
, Berlín. Þá eru í blaðinu 20 leiðbein-
l,%igar handa konum um hvemig
þær eigi að fá karla til að gera hvað
sem þær vilja, jafnvel þótt þeir vilji
það ekki! -bjb/em
Samúðarverkföll
Stjómir og trúnaðarmenn verka-
mannafélaganna Dagsbrúnar í
Reykjavík og Hlífar í Hafnarfirði eru
að undirbúa aðgerðir til stuðnings
verkalýðsfélögunum á Vestfjörðum
sem eru í verkfalli.
Sigríður Ólafsdóttir, varaformaður
Dagsbrúnar, sagði DV í morgun að
stjórnir Dagsbrúnar og Hlífar hefðu
ákveðið að félagsmenn gengju ekki í
störf vestfirskra verkamanna með því
að afgreiða skip sem ætla að landa
a/Hdla á höfuðborgarsvæðmu i stað
heimahafhar. Um frekari aðgerðir af
hálfu félaganna vildi Sigríður ekki tjá
sig og sagði að þær kæmu í ljós. SÁ
Veðurspá tefur
Veðurspáin á Everest er síður en
svo hagstæð fyrir næstu daga. Gert
er ráð fyrir 70-90 hnúta vindi í 9000
metra hæð og nú er staðan varðandi
ferð á toppinn orðin óljós. Ljóst er
að íslendingarnir munu ekki leggja
af stað áleiðis upp fyrr en í fyrsta
lagi á morgun. Hópurinn er klár í
slaginn en bíður færis. í vikunni
hrapaði sherpi í fjallinu og beið
bana. Slysið hefur ekki áhrif á ferð
•Æslendinganna -sv
L O K I
Rannsókn Æsuslyssins
Aftari oliutank'
ar Æsu tómir
- „heilög regla að brenna aldrei úr fremri olíutönkunum“
V-BUdudal:
Enn hafa sjópróf ekkert leitt í ljós
um orsakir slyssins þegar skelbát-
urinn Æsa fórst í Arnarfirði í blíð-
skaparveðri 25. júlí í fyrra. Getum
er leitt að því að stöðugleika skips-
ins hafi verið ábótavant. Sjópróf
sýna að lítil olía var í bátnum sem
hefúr veruleg áhrif á stöðugleikann.
í gögnum um sjópróf vegna slyssins
kemur fram að aftari tankar skips-
ins hafi verið orðnir tómir og
brennt hafi verið olíu úr þeim
fremri í þrjá daga. Samvæmt upp-
lýsingum DV tók Æsan alls 27 tonn
af gasolíu. í fremri tönkunum rúm-
uðust 10 tonn og gera má ráö fyrir
að allt að helmingur þeirrar olíu
hafi verið búinn. Þannig hafi verið í
skipinu aðeins rúm 5 tonn af olíu
þegar það fórst.
Rúnar Garðarsson, sem starfaði
lengi sem skipstjóri á Æsu, sagði í
samtali við DV að meðan hann var
með skipið hafi hann ætíð gætt þess
að næg olía væri á tönkum skipsins
til að tryggja stöðugleika þess sem
hafi verið afar lélegur.
„Þaö var heilög regla meðan ég
var um borð að brenna aldrei úr
fremri tönkum skipsins. Þetta skip
var alltaf afar lélegt sjóskip og það
hvarflaði ekki að mér að ganga á
stöðugleika þess með því að eyða úr
fremri tönkum þess, segir Rúnar
sem gjörþekkir skipið.
Hann segist aldrei hafa verið kall-
aður fyrir sjórétt og hann hafi að-
eins verið lauslega spurður út úr af
framkvæmdastjóra Sjóslysanefhdar.
Samkvæmt heimildum DV er
leiðangri bresku kafaranna um
borð í Óðni ætlað að ná upp skel-
plógi skipsins og er það væntanlega
gert til að kanna hvort eitthvað hafi
verið í honum af skel sem þannig
hafi bagað stöðugleika skipsins.
Kolbrún Sverrisdóttir, ekkja skip-
stjórans af Æsu, gagnrýnir í helgar-
viðtali við DV á morgun harkalega
alla framkvæmd rannsóknarinnar á
Æsuslysinu sem hún segir hafa ein-
kennst af hálfkáki og sleni. Síðustu
fréttir í morgun voru þær að
kafaramir fóru niður að Æsu
klukkan átta. Þeir komust inn í
brúna til að mynda þar. Ætluniner
að skoða myndbandið í dag. -rt
Þeir (étu fátt koma sér úr jafnvægi drengirnir sem DV hitti á Bíldudal í vikunni. Strákarnir, eða púkarnir eins og það
heitir fyrir vestan, eru allir 9 og 10 ára og heita Snorri, Hávarður, Matthías, Pálmi og Jón Trausti. Þeir segjast allir
vera frændur. Með þeim er hundurinn Máni. DV-mynd Hilmar Þór
Veðriö á morgun:
Á morgun verð-
ur norðlæg átt,
gola eða kaldi
Sums staðar verða dálítil
slydduél norðanlands en létt-
skýjað syðra. Hiti 0-4 stig um
norðanvert landið, en 3-8 stig
sunnan til.
Veðrið í dag er á bls. 44
Flugklúbbur Mosfellsbæjar ákvað á
miðvikudag að greiða 25 þúsund
króna sekt fyrir Örn Johnson „snerti-
lendingarflugmann". Því kom ekki til
þess aö hann færi í varöhald í Hverfis-
steini í gærmorgun. Stjórn klúbbsins
lýsti því yfir að flugmálayfirvöld hefðu
farið offari í málinu - aö fá menn
dæmda fyrir flug undir 500 fetum. Á
myndinni eru Hjörtur Ingólfsson, for-
maöur klúbbsins, og Örn Johnson við
Hverfisstein í gærmorgun. DV-mynd S
Víða sambands-
laust
„Það er heilkmikið af símum
hingað og þangað á höfuðborgar-
svæðinu, Suðumesjum og víðar um
land sem eru sambandslausir. Það
er vitað um nokkrar strengbilanir
og sumir hafa ekki getað fengið
flutta síma. Það eru mörg fyrirtæki
og einstaklingar sem eru í vandræð-
um af þessum sökum. Þetta eru bil-
anir sem væri búið að gera við ef
ekki væri verkfall," segir Bergþór
Halldórsson, framkvæmdastjóri
fjarskiptanefndar Pósts og síma.
Guðmundur Gunnarsson, formað-
ur Rafíðnaðarsambandsins, segir að
deilan eigi eftir að harðna og kröf-
urnar hækka. -RR
Hestamenn
ætla dóm-
stólaleiðina
DV, Akureyri:
„Það var geysilegur hiti í mönn-
um, sumir vildu fara strax í þær að-
gerðir að rífa niður þessar girðing-
ar en niðurstaðan varð sú að fela
lögmanni okkar að leita réttar okk-
ar fyrir dómstólunum, við munum
lögsækja bóndann," sagði Sigfús
Ólafur Helgason, formaður Hesta-
mannafélagsins Léttis á Akureyri,
eftir fjölmennan fund hestamanna á
Akureyri i gærkvöld.
í odda skarst í vikunni milli
hestamanna og Eiríks Helgasonar,
bónda á Ytragili í Eyjafjarðarsveit,
en bóndinn lokaði reiðleiðinni frá
Akureyri fram að Melgerðismelum
með girðingum við þjóðveginn við
báða enda jarðar sinnar, eftir að
hestamenn höfðu misst rekstur
hrossa inn á tún hans. -gk