Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1997, Blaðsíða 6
FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 1997 t
helgina
VHTINGASTADIR
A. Hansen Vesturgötu 4, Hf., s. 565
1693. Opið 11.36-22.30 alla daga.
Amigos Tryggvagötu 8, s. 551
1333. Op. 17.30-22.30 v.d. og sd.,
17.30- 23.30 fd. og ld.
Argentína Barónsstíg lla, s. 551
9555. Opið 18-23.30 v.d., 18-3 um
helgar.
Asía Laugavegi 10, s. 562 6210. Opið
11.30- 22.30 v.d., 12-22.30 sd.,
11.30- 23.30 fd. og Id.
Askur Suðurlandsbr. 4, s. 553 8550.
Op. 11-22 sd.-fid., 11-23.30 fd. og ld.
Austur Indía fjelagið Hverfisgötu
56, s. 552 1630. Opið a.d. frá kl. 18.
Á næstu grösum Laugavegi 20, s.
552 8410. Opið 11.30-14 og 18-22
v.d., 18-22 sd. og lokað Id.
Banthai Laugavegi 130, s. 552 2444.
Op. 18-22 md - fid. og 18-23 föd.-sd.
Carpe Diem Rauðarárstíg 18, s. 562
3350. Opið 11-23 alla daga.
Caruso Þingholtsstræti 1, s. 562
7335. Opið sd.-fid. 11.30-23.30. Fd.
og ld. 12.-2.
Grænn kostur Skólavörðustíg 8b, s.
552 2028. Opið md.-ld. frá 11.30-21
og sd. frá 16-21.
Hard Rock Café Kringlunni, s. 568
9888. Opið 11.45-23.30 md.-ld„
12-23.30 sd.
Hornið Hafnarstræti 15, s. 551
3340. Opið 11-23.30 alla daga.
Hótel Borg Pósthússtræti 11, s. 551
1440. Opið 8-23.30 alla daga.
Hótel Esja Suðurlandsbraut 2, s.
568 9509. Opið 11-22 alla daga.
Hótel Holt Bergstaðastræti 37, s.
552 5700. Opið 12-14.30 og 19-22.30
v.d„ 12-14.30 og 18-22 fd. og ld.
Hótel Loftleiðir Reykjavíkurflug-
velli, s. 552 2322. Opið í Lóninu
5-23, í Blómasal 18.30-22.
Hótel Óðinsvé v/Óðinstorg, s. 552
5224. Opið 12-15 og 18-23 v.d„
12-15 og 18-23.30 fd. og ld.
Hótel Saga Grillið, s. 552 5033,
Súlnasalur, s. 552 0221. Skrúður, s.
552 9900. Grillið opið 19-22.30 a.d„
Súlnasalur 19-3 ld„ Skrúður 12-14
og 18-22 a.d..
Humarhúsið Amtmannsstíg 1, s.
561 3303. Opið 10-23.30 v.d„ 10-1
ld. og sd.
Indókína Laugavegi 19, s. 552 2399.
Opið 11.30-22.30 alla daga, ld. frá
11.30- 23.30.
Ítalía Laugavegi 11, s. 552 4630.
Opið 11.30- 23.30 alla daga.
Jónatan Livingston Mávur
Tryggvagötu 4-6, s. 551 5520. Opið
17.30- 23 v.d„ 17.30-23.30 fd. og ld.
Kinahofið Nýbýlavegi 20, s. 554
5022. Opið 17-21.45 v.d„ 17-22.45
fd„ ld. og sd.
Kína-húsið Lækjargötu 8, s. 551
1014. Opið 11.30-14 og 17.30-22 v.d„
17.30- 23 fd„ 15-23 ld„ 17-22 sd.
Kínamúrinn Laugavegi 126, s. 562
2258. Opið fd„ ld„ 11.30-23.30,
sd.-fid. 11.30-22.30.
Kofi Tómasar frænda Laugavegi 2,
s. 551 1855. Opið 10-01 sd.-fid. og
11- 03 fd. og ld.
Kringlukráin Kringlunni 4, s. 568
0878. Opið 12-1 v.d„ 12-3 fd. og ld.
Lauga-ás Laugarásvcgi 1, s. 553
1620. Opið 11-22 og 11-21 um helgar.
Lækjarbrekka Bankastræti 2, s.
551 4430. Opið md.-mid. 11-23.30,
fid.-sd. 11-0.30.
Madonna Rauðarárstíg 27-29, s.
562 1988. Opið 11.30-23.30 a.d.
Marhaba Rauðrárstíg 37, s. 562
6766. Opið a.d. nema md.
17.30- 23.30.
Naustið Vesturgötu 6-8, s. 551
7759. Opið 12-14 og 18-01 v.d„
12- 14 og 18-03 fd. og ld.
Ópera Lækjargötu 2, s. 552 9499.
Op. 18-23.30 v.d„ 18-24.30 fd. og ld.
Pasta Basta Klapparstíg 38, s. 561
3131. Opið virka daga frá 11.30 til
I. 00 og um helgar til 3.00.
Perlan öskjuhlíð, s. 562 0200. Opið
18-23.30 v.d„ 18-24.30 fd. og ld.
Potturinn og pannan Brautarholti
22, s. 551 1690. Opið a.d. 11.30-22.
Primavera Austurstræti, s. 588
8555. Op. 12-14.30, 18-22 v.d„
18-23 fd„ 18-23.30 ld„ 18-22 sd.
Salatbarinn hjá Eika Fákafeni 9,
s. 588 0222. Opið alla daga frá kl.
II. 30.-20.30. nema ld. frá 11.30.-16.
Lokað á sd.
Samurai Ingólfsstræti la, s. 551
7776. Opið v.d. 18-22, fd„ ld„ 18-23.
Singapore lteykjavíkurvegi 68, s.
555 4999. Opið 18-22 þd.-fid„ 18-23
fd.-sd.
Sjanghæ Laugavegi 28, s. 551 6513.
Opið 11.30-23.30 v.d„ 12-22.30 sd.
Sjö rósir Sigtúni 38, s. 588 3550.
Opið 7-23.30 alla daga.
Skólabrú Skólabrú 1, s. 562 4455.
Opið frá kl. 18 alla daga og í hd.
Steikhús Harðar Laugavegi 34, s.
551 3088. Opið 11.30-21 v.d. og sd„
11.30- 23.30 fd. og ld.
Tilveran Linnetsstíg 1, s. 565 5250.
Opið 11-23 alla daga.
Við Tjömina Templarasundi 3, s.
551 8666. Opið 12-14 og 18-22.30
md.-fd„ 18-23 ld. og sd.
Viðeyjarstofa Viðey, s. 568 1045 og
562 1934. Opið fid - sud„ kaífist. kl.
14-17. Veitingasalur kl. 18-23.30.
Vitabar Bergþórugötu 21, s. 551
7200. Opið 15-23.30,v.d„ 12-02 a.d.
Þrír Frakkar hjá Úlfari Baldurs-
götu 14, s. 552 3939. Opið 11-14.30
og 18-23.30 ld. og sd.
Gleðileikurinn Að eilífu í Hafnarfjarðarleikhúsinu:
Gamansöm og grallaraleg lýsing á brúðkaupi
í gær frumsýndi Hafnar-
fjarðarleikhúsið Hermóður
og Háðvör nýtt íslenskt leik-
rit 1 gömlu bæjarútgerðinni í
Hafnarfirði. Leikritið er
unnið í samvinnu við Nem-
endaleikhús Leiklistarskóla
íslands.
Verkið sem hér um ræðir
er gamanleikrit með söngv-
um eftir Árna Ibsen og heit-
ir Að eilífu en undirtitill
þess er „Svipmyndir úr
brúðkaupi Guðrúnar Birnu
Klörudóttur og Jóns Péturs
Guðmundssonar, aðdrag-
anda þess, undirhúningi og
eftirköstum." Hér er á ferð-
inni gamansöm og grallara-
leg og mjög frumleg lýsing á
brúðkaupi á íslandi í dag
sem ýmist minnir á sápuóp-
eru, rómantíska gaman-
mynd eða jafnvel teikni-
mynd. Leikritið er skrifað
fyrir þá leikara sem taka
þátt í sýningunni.
Leikararnir eru 11 talsins.
Þeir eru: Gunnar Helgason,
Björk Jakobsdóttir, Erling
Það er ýmislegt sem gengur á í undirbúningi brúökaups þeirra Guðrúnar Birnu og Jóns
Péturs. Þrúður Vilhjálmsdóttir og Halldór Gylfason í hlutverki brúðhjónanna í leikritinu Að
eilífu sem Hafnarfjarðarleikhúsið frumsýndi í gær.
Jóhannesson, öll frá Hafn-
arfjarðarleikhúsinu, en frá
Nemendaleikhúsinu koma
Atli Rafn Sigurðarson, Bald-
ur Trausti Hreinsson, Gunn-
ar Hansson, Halldór Gylfa-
son, Hildigunnur Þráinsdótt-
ir, Inga María Valdimars-
dóttir, Katla Margrét Þor-
geirsdóttir og Þrúður Vil-
hjálmsdóttir.
Hilmar Jónsson leikstýrir
verkinu en hann hefur stýrt
sýningum Hafnarfjarðarleik-
hússins til þessa, Himnaríki
og Birtingi. Bæði verkin
hlutu mikið lof og hefur
Hilmar fengið hrós fyrir hug-
myndaauðgi og djarfa fram-
setningu.
Ámi Ibsen skrifar nú leik-
rit í annað sinn sérstaklega
fyrir Hafnarfjarðarleikhúsið.
Hið fyrra, Himnaríki, var
sýnt yfir 80 sinnum fyrir
fullu húsi og var tilnefnt af
íslands hálfu til norrænu
leikskáldaverðlaunanna sem
besta nýja íslenska leikrit ár-
anna 1994-96. Að eilifu er ní-
Bubbi og K.K.
Bubbi og K.K. halda tónleika í kvöld kl. 21 í Hlégarði, Mosfellsbæ. Tón-
leikamir verða þrískiptir. Bubbi leikur lög af væntanlegri plötu í bland við
eldri lög. K.K. spilar lög úr leikritinu Hið ljúfa lif, sem frumsýnt verður
þann 29. ágúst í Borgarleikhúsinu, og fáheyrð K.K.-lög. Þeir félagar munu
svo spila lög sem þeir hafa unnið saman.
Borgfirskir veiði-
bændur bjóða
fólki heim
DV, Vesturiandi:______________________
Veiðibændur í Borgarfirði bjóða
almenningi að skoða veiðihús í hér-
aðinu á morgun. Leiðsögumenn
verða í húsunum við Hítará, Langá,
Norðurá, Grímsá og Þverá. Elsti
hluti hússins við Langá var byggður
á síðustu öld og telst húsið elsta
veiðihús landsins. Breskir auðmenn
áttu það og eru þar húsgögn og ýms-
ir munir frá þeirri tíð. Húsið Lund-
ur við Hítará er eitt af merkari veiði-
húsum landsins. Þar er stórt safn
uppstoppaðra fugla. Jóhannes Jó-
sefsson glímukappi byggði húsið á
stríðsárunum. Hin veiðihúsin em
yngri og ekkert þeirra hefur verið til
almenningi til sýnis áður. Þaö er því
við hæfi að nota góða veðrið og
bregða sér í Borgarfjörðinn og hita
upp fyrir komandi veiðisumar sem
vonandi á eftir að reynast mönnum
gott. -DVÓ
Brynja sýnir pennateikningar
Brynja Árnadóttir opnar sýningu
á pennateikningum á morgun í
Galleríi Sölva Helgasonar, Sölvahar
i Lónkoti í Sléttuhlíð í Skagafirði.
Brynja er fædd á Siglufirði en
fóðurætt hennar kemur frá Skaga-
firði, Óslandshlíð og Hofsósi. Þetta
er sjöunda einkasýning Brynju en
hún hefur sýnt í Hafnarborg, Hafn-
arfirði, Keflavík og víðar. Sýningin
stendur til 28. júní.
Harri Syrjanen
Finninn Harri Syrjanen opnar á
morgun kl. 14-17 sýningu á verkum
sínum í Listhúsi Ófeigs að Skóla-
vörðustíg 5. Harri er gull- og leður-
smiður og hefur rekið listhús og
vinnustofu í miðbæ Helsinki í 26 ár.
Á sýningunni verða skartgripir
úr ýmsum efnivið, svo og töskur,
belti og fleira úr leðri. Harri verður
viðstaddur opnunina.
Harri er einn af fr emstu listiðnað-
armönnum Finna i dag og hefur
Ragnheiður
Á morgun kl. 16 opnar Ragnheið-
ur Jónsdóttir sýningu á kolateikn-
ingum og grafíkverkum í Slunka-
ríki. Sýningin verður opin fimmtu-
daga til sunnudaga frá kl. 16-18 og
stendur til 1. júni.
Ragnheiður hefur haldið fiöl-
í Listhúsi Ófeigs
hlotið viðurkenningar fyrir verk
sín. Hann hefur haldið fiölda einka-
sýninga, bæði í heimalandi sínu og
erlendis auk þess sem hann hefur
tekið þátt í samsýningum. Hann var
kjörinn listiðnaðarmaður ársins
1996 í Finnlandi.
Sýningin verður opin mánudaga
til fostudaga frá kl. 10-18 og laugar-
daga frá 11-14.
í Slunkaríki
margar sýningar bæði hér á landi
og erlendis. Verk hennar eru m.a. i
eigu Listasafns íslands, Kjarvals-
staða og Norræna hússins en þau
eru einnig víða á söfnum erlendis.
Elskendur heitir þessi pennateikning eftir Brynju Arnadóttur.