Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1997, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1997, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 16. MAÍ1997 n - *; tyndbönd 25 The Long Kiss Goodnight Kennslukonan leynir á sér sem Renny Harlin framleiddi en frumraun hans í framleiðendahlutverkinu var Rambling Rose. Á dagskrá hjá The Forge eru m.a. vís- indatryllirinn Exit Zero sem hann mun einnig leikstýra, The Politician’s Wife með Geenu Davis í aðalhlutverki og miðalda- tryllirinn God’s Teeth. Renny Harl- in komst á kort- ið sem stjóri með Nightmare on Elm Street 4: Dream Master og fylgdi henni eftir með Die Hard 2: Die Harder og Clifíhan- ger, áður en hann gerði Cutt- hroat Island 972Geena Davis og Samuel L. Jackson eru á flótta í The Long Kiss Goodnight. Á innfelldu myndinni er leikstjórinn, Renny Harlin. með konu sinni. Eiginkona hans, Geena Dav- is, fékk óskarsverðlaun fyrir hlutverk sitt í The Accidental Tourist og var tilnefnd fyrir leik sinn í Thelma and Louise. Þá hefur hún hlotið Golden Globe tilnefningar fyrir Thelma and Louise, Speechless og A League of Their Own. Fyrsta hlutverk hennar var í Tootsie og það síðasta á undan The Long Kiss Goodnight var í Cutthroat Island. í millitíð- inni hefur hún m.a. leikið í The Fly, Beetlejuice, Earth Girls Are Easy, Quick Change, Hero og Angie. Samuel L. Jackson sást nýlega í A Time to Kill, en hann hefur notið gríðar- legra vinsælda síðan hann lék leigumorðingjann Jules í Pulp Fiction. Hann fylgdi aðdá- unarverðri frammistöðu í Pulp Fiction eftir með hlut- verkií stór- mynd- inni Die Hard with a Venge- ance, en meðal nýrri mynda hans eru Jungle Fever (sem aflaði hon- um einu verðlaun- anna fyrir besta leik í aukahlutverki sem nokkurn tímann hafa verið veitt á kvik- myndahátíðinni í Cannes), Kiss of Death, Losing Isiah, Fresh, The Great White Hype og nú síðast The Long Kiss Goodnight. Aðrar myndir með honum eru m.a. Ragtime, Sea of Love, Coming to America, Do the Right Thing, School Daze, Mo’ Better Blues, Good- Fellas, Patriot Games, National Lampoon’s Loaded Weapon 1, Amos and Andrew og True Ro- mance. -PJ Samantha Caine (Geena Davis) er kennslu- kona sem lifir rólegu og þægilegu úthverfalifi með elskandi eiginmanni sínum og yndislegri dóttur. Eina skýið á annars heiðum himni er minnisleysi hennar en hún þekkir ekki fortíð sína. Þegar dularfullar persónur úr fortíð hennar fara að stinga upp kollinum neyðist hún til að hefja leit að sjálfri sér og fær til þess aðstoð frá einkaspæjaranum Mitch Henessey (Samuel L. Jackson). Þegar vopna- smyglarar og leyniþjónustumenn fara að blandast í málið kemur í ljós að kennslukon- an er ekki öll þar sem hún er séð, og upp á yf- irborðið kemur fyrra lífemi hennar sem Charly Baltimore, þrautþjálfuð og stórhættu- leg leyniþjónustukona (og hörkuskutla). Þegar fyrri persónuleiki hennar brýst upp á yfir- borðið tekur hún við forystunni og einkaspæj- arinn lendir í hlutverki meðreiðarsveinsins. Saman reyna þau að sigrast á fornum óvinum og reyndar einnig vinum kennslu/leyniþjón- ustukommnar og koma í veg fyrir hryllilegar fyrirætlanir þeirra. Hl mikils ætlast Leikstjórinn, Renny Harlin, er á þeirri skoðun að áhorfendur séu orðnir mjög kröfu- harðir. Gamla brellan að sýna áhættuleikar- ann úr fjarlægð og fylgja á eftir með nærmynd af leikaranum gengur ekki í þá lengur. Hann vill því láta stjömurnar sjáífar framkvæma sem mest af áhættuatriðunum en á móti kem- ur tölvutæknin þar sem hægt er að þurrka út úr myndinni hluti eins og öryggislínur. Geena Davis fór í strangt likamsþjálfunarprógramm til að ná nógu vöðvastæltum líkamsburði og til að þjálfa sig fyrir áhættuleikinn. Ekki var nóg með að leikararnir þyrftu að leika eigin áhættuatriði heldur þurftu þeir að gera það í hörkufrosti. Finninn Renny Harlin Fjölskyldufyrirtæki Finnski leikstjórinn og framleiðandinn Renny Harlin hefur verið á hraðri uppleið í Hollywood undanfarin ár. í apríl 1994 stofnaði hann framleiðslufyrirtækið The Forge ásamt eiginkonu sinni, Geenu Davis. Fyrsta verkefni fyrirtækisins var gamanmyndin Speechless virð- mm vera á heimavelli í snjó og frosti og The Long Kiss Goodnight er þriðja jj myndin sem hann gerir við slik- ar aðstæður. (Hin- ar voru Cliffhan- ger og Die Hard II.) Eitt af því sem Geena Dav- is og Samuel L. Jackson þurftu að gera var að stökkva ofan í is- vök í fimmtán stiga frosti og taka þurfti atriðið þrisvar. Gefum Samuel L. Jackson orðið: „Þetta var það sársaukafyllsta sem ég hef nokkurn tíma gert i kvikmynd, eða reyndar I líFi mínu. Um leið og þú ferð á kaf fer að drynja í höfðinu á þér, eins og þú hafir étið nokkra lítra af ís i hvelli. Og það var sárt, virkilega sárt.“ UPPÁHALDS MYNDBANDIÐ MITT Gestur Einar Jónasson „í fljótu bragði myndi ég segja að ítalska myndin Cinema Paradiso væri uppá- haldsmyndin mín. Þetta er að mínu mati einstaklega skemmtileg mannlífslýs- ing. í bíóinu í þessu litla þorpi gerist nánast allt. Þar drekkur fólk, rífst og elskast. Aðr- ar myndir sem ég man eftir I augnablikinu eru Dansar við úlfa og Píanó. Þar eru einnig á ferð- inni frábærar myndir. Tónlist í kvikmyndum finnst mér skipta miklu máli og ef hún er góð þá kaupi ég geisladiskinn ef hægt er og rifja myndirnar svo upp með hjálp tónlistarinnar. Ég spái nokkuð í hvernig myndir eru gerðar, hvernig myndatak- an er og eitthvað í þeim dúr. Ætli það sé ekki vegna þess að ég hef svolitla reynslu af þannig vinnu. Ég hef reyndar líka mjög gaman af hasarmynd- um þar sem mikið er um tæknibrellur. Ég á t.d. allar stjörnustríðsmyndirnar á mynd- bandi og hef gaman af þeim. Það verður samt að segjast eins og er að ég horfi mjög sjaldan á mynd- bönd. Ég hef átt myndbandstæki í mörg ár en það er svo lítið notað að það er eiginlega bilað af notk- unarleysi." Sögur Jane Austin hafa verið vin- sælar hjá kvikmyndagerðarmönn- um á undanfórn- um misserum og hafa að minnsta kosti fjórar myndir verið gerðar á síðustu tveimur árum og er Emma ein þeirra. í henni leikur Gwyneth Paltrow hina ungu og ættgóðu Emmu Woodhouse sem hefur ein- staklega gaman af að stofna til ást- arsambanda fyrir hönd vina sinna, án þess að hún komi sjálf þar nokk- uð nærri. Ekki er hægt að segja að hlutverk Amors fari henni sérstak- lega vel og hennar mesta glappaskot er þegar hún reynir að para saman bestu vinkonu sína, Harrieth Smith, og prest staðarins. Emma gefst samt ekki upp og heldur áfram að vefa velmeintan ástarvef sinn. Það kem- ur að því að hún verður sjálf ást- fangin og þá vandast nú málin held- ur betur. Auk Gwyneth Paltrow leika Toni Colette og Ewan MacGregor í mynd- inni. Leikstjóri er Douglas McGrath og skrifar hann einnig handritið. Þetta er fyrsta kvikmynd hans og þykir honum hafa tekst vel upp í að ná fram heillandi andrúmslofti sög- unnar. Skífan gefur Emmu út og er hún leyfð öllum aldurshópum. Útgáfu- dagur er 21. maí. Robin Williams hefur einstaka hæfileika til gamanleiks og oftar en ekki hefur hann leikið persónur með barns- hjarta. í Jack stígur hann skrefið til fulls, leikur tíu ára dreng sem hef- ur elst Qórum sinnum hraðar en jafnaldrar hans. Jack er því tíu ára drengur í lík- ama fertugs manns þegar myndin hefst. Jack hefur verið einangraður en það kemur að því að hann lang- ar til að leika við jafnaldra sína og fær að fara í skóla. Það gengur ekki átakalaust að samlagast skólanum og lendir Jack í mörgum spaugileg- um uppákomum. Bekkjarfélagar hans taka hann þó loks i hópinn og eru ófeimnir að notfæra sér fullorð- inslegt útlit hans. Það er leikstjórinn þekkti, Franc- is Ford Coppola, sem leikstýrir Jack og slær hann hér á léttari strengi en oftast áður, enda þekktastur fyrir dramatískar stórmyndir á horð við Godfather-myndirnar þrjár og Apoc- alypse Now. Auk Robins Williams leika í myndinni Diane Lane, Jenni- fer Lopez og Fran Drescher (Barn- fóstran). Sam-myndbönd gefa Jack út og er hún leyfð öllum aldurshópum. Út- gáfudagur er 22. maí. roblM WUUAMf Crimetime er sakamálamynd sem gerð af af hinum þekkta hollenska leikstjóra, George Sluzier, sem gert hefur góð- ar saka- mála- myndir, bæði í heima- landi sínu og í Banda- ríkjunum, og er skemmst að minn- ast hinn- ar ágætu The Vanishing. Crimetime fjallar um Bobby Ma- hon (Stephen Baldwin) sem er ung- ur leikari sem dag einn dettur í lukkupottinn þegar hann er valinn til að fara með hlutverk raðmorð- ingja í þáttaröð. Þættirnir slá i gegn og Bobby tekur að lifa sig inn í hlut- verkið af æ meiri metnaði og ákveð- ” ur að kafa dýpra í feril morðingjans sem hann túlkar en sá hafði verið til. Það sem Bohby veit ekki er að hinn raunverulegi morðingi hefur fylgst með þáttunum og fer nú að skipuleggja morð sem eru í líkingu við handrit þáttanna. Háskólabíó gefur Crimetime út og er hún bönnuð börnum innan 16 J ára. Útgáfudagur er 20. maí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.