Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1997, Síða 51
DV LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1997
kvikmyndir*
Háskólabíó og Sambíóin:
Tlndur Dantes
Þær náttúmhamfarir sem standa
okkur íslendingum næst eru eld-
gos og jarðskjálftar. Við búum á
einu virkasta eldfjallasvæði í
heiminum og því er ekki að undra
að áhugi á eldgosum er mikill og
góð þekking á þeim er fyrir hendi
hér á landi. í stórmyndinni Tindur
Dantes (Dante’s Peak) er það
einmitt mikið og óvænt eld-
gos sem setur atburðarás-
ina af stað. Tindur
Dantes er nafn á bæ þar
sem átta þúsund
manns búa. Bærinn
er í skjóli eldfjalls
sem hefur ekki
bært á sér lengi og
íbúar hafa enga
trú á því að það
gjósi nokkum tím-
ann. Það kemur í
ljós að enginn
leikur sér að
náttúruöflunum
og dag einn
vaknar risinn af
löngum svefni og
byrjar að spúa eldi
yfir allt og alla.
Martröð þeirra sem búa
í bænum er senn að
hefjast.
Leikstjóri mynd-
arinnar, Roger
Donaldson,
segir að
þrátt fyrir
að sagan sé
skáldskap-
ur þá sé
það stað-
reynd að
30.000
manns hafa
farist í eld-
gosum á
síðustu
fimmtán
árum. Vit-
að er að í
heiminum
eru fimmt-
án hund-
ruð virk
eldfjöll og
er aldrei að vita nema hamfarir
eins og í myndinni gætu orðið ein-
hvem daginn.
Rátti bærinn fannst
Aðalpersónan í myndinni er eld-
íjallafræðing-
A flotta undan eldgosi. Pierce Brosnan og Linda Hamilton i hlutverkum sinum
Harry Dalton (Pierce Brosnan) sem
segist vera betri í að sjá fyrir um
hegðun eldijalla en mannfólksins.
Hann hefur grun um að eldfjallið í
Dante’s Peak eigi eftir að gjósa.
Þessi spádóm-
urkemursér
■k illa fyrir
A borgar-
■ stjórann
I Rachel
■ Wando
I (Linda
I Hamilton)
I þar sem
I verið er
að
%| millj-
■ arða-
Pierce Brosnan leikur eldfjallafræðinginn Harry Dalton í Tindur Dantes.
samning
um notk-
un á
landi í
hlíðum
eldfjalls-
ins.
Hún er
því lítið
hrifin
af að grunur Daltons verði gerður
opinber. Eldgosið kemur því öllum
á óvart nema Dalton sem gerist í
kjölfarið helsti ráðgjafi bæjarstjór-
ans.
Mikil leit var gerð að smábæ sem
væri í líkingu við Dante’s Peak. Eft-
ir mikla leit var sýnt að bærinn
Wallace í Idaho væri kjörinn til að
kvikmynda í. Bærinn var af réttri
stærð og í svipuðu landslagi og sag-
an gerist í. En það sem réð úrslitum
var að aðeins einn vegur var út úr
bænum sem skiptir miklu máli í
myndinni.
írskur Bond
Pierce Brosnan, sem þekktastur
er fyrir að hafa leikið James Bond í
Goldeneya og er þessa dagana að
leika í næstu Bond-mynd. Brosnan
er írskur en ólst upp í Englandi frá
ellefu ára aldri. Eftir að hafa leikið
í ýmsum leikhúsum i Englandi og í
sjónvarpi var það í Hollywood sem
hann varð fyrst þekktur. Eftir
frammistöðu sína í míniseríunni
The Mansions of America var hon-
um boðið hlutverk í sjónvarps-
myndaflokknum Remmington
Steele sem varð mjög vinsæl. Það
var vegna skuldbindinga í þessari
sjónvarpsseríu að hann gat ekki
leikið James Bond þegar honum var
fyrst boðið hlutverkið. Timothy Dal-
ton fékk það í staðinn og lék í tveim-
ur Bond-myndum.
Leikstjóri myndarinnar Roger
Donaldson er ástralskur en flutti til
Nýja-Sjálands 19 ára gamall. Árið
1977 leikstýrði hann Sleeping Dogs
sem varð fyrsta nýsjálenska kvik-
myndin sem sýnd var utan Nýja-Sjá-
lands í fimmtán ár. Stóra tækifærið
kom þegar hinn stórtæki kvik-
myndaframleiðandi Dino De Laur-
entiis réð hann til að leikstýra end-
urgerð Mutiny on the Bounty með
Mel Gibson og Antony Hopkins.
Myndin fékk nafnið Bounty og var
vel tekið.
Donaldson fluttist til Hollywood í
kjölfarið og hefur verið skrikkjóttur
í Hollywood. Eftir hann liggja ágæt-
ar sakamálamyndir á borð við No
Way out og The Getaway en einnig
Coctail og The Cadillac Man sem
flestir eru búnir að gleyma. -HK
Svarseðill nr. 3
Lestu yfir textann hér að neðan og svaraðu eftir-
farandi spurningum og þú gætir orðið sá heppni!
Árið 79 eftir Krist gaus eldfjallið Vesúvíus á Italíu
með þeim afleiðingum að rómverska borgin
Pompei ásamt íbúum hennar grófust undir
þykku lagi af eldheitri ösku. Það er talið að
Vesúvíus sé eitt af hættulegri eldfjöllum í dag
vegna staðsetningar og fjölda fólks sem býr ná-
lægt eldfjallinu en það búa um 1,5 milljónir
manna í kringum fjallið í dag.
a) Hvaða rómverska borg grófst undir eldheitri
ösku árið 79 eftir Krist ?
b) Hvað búa margir í kringum Vesúvíus í dag ?
Safnið saman seðlum sem birtust í DV í gær og
fimmtudag ásamt þessum seðli og sendið til:
DV
Dante’s Peak
Þverholti 11
105 Reykjavík
Nafn......................................
Heimilisfang
<&Columbia
Sportirwear Couijhinv*
Taktu þátt í skemmtilegri getraun um eldgos
í DV næstu daga. Fylltu út svarseðilinn hér
til hliðar ásamt svarseðlum á fimmtudag og
í gær föstudag og sendu til DV. Sem þátttak-
andi í þessum skemmtilega leik getur þú átt
von á glæsilegum vinningum.
flöalvinningar að
heildarverðmæti
kr. 180.000
3 heppnir þátttakendur
fá Dante s Peak bakpoka
frá JanSport meö úti-
legubúnaði og Columbia
íþróttagalla frá Hreysti,
samtals að verðmæti kr.
60.000.
Aukavinningar:
20 Danfe's Peak gagnvirkir geisladískar • 100 biúmiðar fyrir 2 á Dante’s Peak
Skílafrestur er til fimmtudagsins 22. maí