Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1997, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1997, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1997 Fréttir Allar skreytingar fjarlægðar af leiðum 1 kirkjugarði Hafnarfjarðar: Lítum á þetta sem helgispjöll „Við lítum á þetta sem hrein helgispjöll. Leiði ástvina er það helgasta sem til er. Það er ótrúlegt að skreytingar við leiðin fái ekki að vera í friði. Það eru starfsmenn sem eru að taka þarna til og þeir fjar- lægja allar skreytingar, hvort sem þær eru nýjar eða gamlar," segir Gréta Jónsdóttir, sem er mjög ósátt við vinnubrögð starfsmanna kirkju- garðsins í Hafnarfiröi. Dóttir Grétu, Eva Marý Gunn- arsdóttir, hvílir í garðinum. Hún lést í janúar 1995 og var þá aðeins 12 ára gömul. Gréta hefúr ávallt sett skreytingar við leiði dóttur sinnar í kringum afmælisdag hennar, 26. apríl. Þá hefur hún einnig lagt skreytingar við leiði tengdafóður síns en þar er sama sagan. Þær eru ávallt fjarlægðar í byrjun maí. Sárt fyrir aðstandendur „Þetta er búið að ganga svona í 3 ár. Við kvörtuðum í fyrra og báðum starfsmenn um að passa betur upp á að fjarlægja ekki nýlegar skreyting- ar. Svo gerist það aftur nú í maí- byrjun að allt er tekið burt af leið- unum. Ég hef heyrt frá fleira fólki sem hefur orðið fyrir þessu. Þessar skreytingar eru dýrar en það er ekki aðalmálið. Það vilja auðvitað flestir að leiði ástvina séu fafleg og til þess eru skreytingamar. Þetta er auðvitað mjög sárt og viðkvæmt fyrir aðstandendur. 13 - segir Gréta Jónsdóttir um tómleg leiöi ástvina sinna ára sonur minn kom grátandi heim um daginn eftir að hann kom að leiði systur sinnar og sá að það voru allar skreyt- ingamar horfnar. Hann er varla búinn að ná sér enn þá eftir það.“ Vel hirt leiði „Við höfum sett þama greni og gerviblóm sem em aðeins nokkurra daga gömul þegar þeim er hent. Það er engin ástæða til að ætla að þessar skreytingar séu famar að skemmast. Það voru fleiri blóm þama við leiðið frá vin- konu hennar en þau vom líka tekin. Ég skil vel að það þarf að taka þarna vel til og sér- staklega á þeim leiðum sem eru vanhirt. Það er líka gott mál að starfsmenn geri það en það er ekki sama hvað þeir taka og henda. Langflest leiðin hér í kirkjugarðinum eru vel hirt. Ég spurðist fyrir í kirkjugarðinum í Fossvogi og þar sögðu þeir að aðeins vanhirt leiði væra hreinsuð en ekki hreyft við öðm. Þannig á þetta að vera og ég vona að starfsmenn kirkju- garðsins í Hafnarflrði átti sig á því,“ segir Gréta. ^ MARf GUNNARSDÓTTIR B 28. 4. 1982 » 19 U»95 gud ceymi wo A Mikil mistök „Við eram vanir því að Gréta Jónsdóttir við tómlegt leiði dóttur sinnar í kirkjugaröinum í Hafnarfiröi. Fyrir stuttu voru settar fallegar skreytingar á leiðið en þær voru fjarlægðar þegar starfs- menn garðsins voru að hreinsa til. DV-mynd E.ÓI Miðlunartillaga ríkissáttasemjara veldur gremju hjá verkafólki á Vestfjörðum: „Það ætti að fella þetta“ Pétur Sigurðsson, forseti ASV, og Heiðar Guöbrandsson í Súðavík eru enn baráttuglaðir þrátt fyrir nærri sex vikna verkfall. DV-mynd Höröur Ég má kannski ekki leggja neitt til í þessum efnum en ef ég mætti það þá myndi ég segja að það ætti að fella þetta,“ sagði Pétur Sigurðs- son, forseti ASV, við lok kynningar sinnar á miðlunartillögu ríkissátta- semjara á fjölmennum fundi í Al- þýðuhúsinu á ísafirði síðdegis í gær. Tekiö var undir þessi orð Pét- urs meö miklu lófataki af á annað hundrað fundarmönnum. Miðlunartillaga ríkissáttasemjara virðist ekki eiga upp á pallborðið hjá þorra þess fólks sem nú er í verkfalli á Vestfjörðum ef marka má viðbrögð fundarins í Alþýðuhús- inu. Pétur sagði að þegar tiflit væri tekið til bónuslækkunar þá þýddi þetta 3,5% hækkun. Kári Jóhannsson, sem var einn fundarmanna, hafði á orði við blaðcimann að það yrðu engir ís- lendingar lengur við vinnu á Vest- fjörðum eftir þrjú ár, þetta yrði pólsk nýlenda. Anna Ragna Gunnarsdóttir rækjuvinnslukona sagði: Það er ver- ið að svipta mann von. Það er ekki til framtíð á Vestfjörðum. Fólk get- ur ekki séð fyrir sér og það sér ekki neina glætu eftir sjö ára launafryst- ingu. Maður hefur verið að harka af sér þennan tíma í þeirri von að þetta væri að rétta við. Svo gerist það, þá finnst manni að maður ætti að fá þó ekki væri nema pínulitla sneið af kökunni svo maður sjái fram á aö það verði betra að vera héma.“ Anna Ragna sagði að það væri búið að vera erfitt í verkfallinu en fólk léti sig hafa það til að ná fram einhverju sem hægt er að kalla hækkun. Tillagan er ragl,“ sagði Guðrún Hrólfsdóttir fiskverkakona. Það verður að fella þessa tillögu." Heiðar Guðbrandsson úr Súðavík sagðist vilja vona að tillaga ríkis- sáttasemjara yrði felld. „Ég hef orð- ið var við það alls staðar þar sem ég hef komið að fólk hefur gert mér grein fyrir að þessir pappírar séu einskis nýtir og jafnvel verri en það. Sem dæmi af launamanni þá yrði 1.800 krónum minna í launa- umslaginu heldur en hann hefði fengið ef hann reiknaði launin sín samkvæmt samningnum eins og hann var. Það var maður sem var búinn að leggja mikið á sig þá vik- una og hann tapaöi 1.800 krónum. Þetta er síður en svo afraksturinn af þjóðarsáttinnni. Ef þetta er eitthvað þá er það svik við hana. Mér sýnist þetta verkfall hafa breytt því mynstri sem verið hefur í verkalýðsbaráttunni undanfarin ár. Ég held að það horfi margir til þess að baráttuaðferðir okkar Vestfirð- inga séu eitthvað sem menn verði að taka tillit til næst. Þetta verði ekki gert með því að sitja heima og bíða eftir betri kjörum, þetta verði ekki gert nema með baráttu. Ég held að vinnuveitendur hafi alls ekki gert ráð fyrir þessu og það sást best í Hafnarfirði þegar við stoppuöum Bessann þar að þetta kom þeim mjög á óvart,“ sagði Heið- ar Guðbrandsson. -HK fara yfir aflan garðinn á vorin og hreinsa allar skreytingar sem er gamlar frá jólum og einnig pásk- um. Við hreinsum það allt saman og köstum því. Það er alveg óvart og mikil mistök ef nýlegar skreyt- ingar hafa verið teknar af leiðun- um og þeim kastað. Hins vegar era þessar skreytingar mjög fljótar að verða ifla famar þama upp frá,“ segir Sigurður Amórsson, kirkju- garðsvörður í Hafnarfirði, að- spurður um málið. -RR Stuttar fréttir Síldarkvótinn langt kominn íslenski nótaflotinn er nú langt kominn með norsk-ís- lenska síldarkvótann. Innan við 50 þúsund tonn eru nú óveidd af kvóta upp á 233 þúsund tonn. Veiði hefur veriö léleg að und- anförnu. Stöð 2 segir frá. FH kaupir rækjuskip Fiskiðjusamlag Húsavíkur hefur keypt rækjuskipið Pétur Jónsson RE af Pétri Stefánssyni en það tekur um 2000 tonn og er 59 m langt. Með kaupunum aukast sóknarfæri FH. Dagur- Tíminn segir frá. Schengen Samningamenn á ríkjaráð- stefnu ESB hafa ákveðið að dreg- ið verði úr áhrifúm stofnana ESB á Schengen-vegabréfasam- starfið og þannig komið til móts við sjónarmið Noregs og íslands. Mbl. greinir frá. Samskip áfrýja Ekkjur skipveija, sem fórast með Dísarfelli, fá ekki ekknabæt- ur frá Tryggingastofnun vegna þess að skipið var leiguskip og sigldi undir erlendum fána. Sam- skip hafa kært synjunina til Tryggingaráðs og hyggjast tryggja ekkjunum fullar bætur. Hætti aft selja M&M Heilbrigðiseftirlit Reykjavík- ur hefur beint þeim tilmælum til verslunarinnar Bónuss að hætta að selja M&M sælgæti sem hún hefur selt að undanfomu vegna þess að það innihaldi ólögleg lit- arefni. Mbl. greinir frá. Eldur í farmi Eldur kviknaði í farmi flutn- ingabifreiðar í gærmorgun á leið um Kjalames. Á palli henn- ar voru m.a. plastbretti, rör og pappírsumbúðir. Talið er að log- að hafi lengi í farminum áður en eldurinn uppgötvaðist. Mbl. seg- ir frá. -VÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.