Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1997, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1997, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1997 Fréttir______________________________________________________________________________________________dv Drög að starfsleyfi SR-mjöls á Siglufirði: Ekkert eftirlit með mengun á staðnum - segir Valgeir Sigurösson, veitingamaöur og hlunnindabóndi „Það eru engin refsiákvæði þó eitthvað beri út af. Þá er enginn eftirlitsmaður á Siglufirði. Ef upp koma mengunarslys þá gerist ekk- ert annað en að hringt er í menn og þeir beðnir að láta það ekki koma fyrir aftur,“ segir Valgeir Sigurðsson, veitingamaður og hlunnindabóndi á Siglufirði, vegna draga að nýju starfsleyfi SR- Valgeir Sigurðsson hlunnindabóndi. Mjöls á Siglufirði sem liggur frammi til umsagnar. Hollustu- vemd ríkisins gefur frest til 20. júní til að gera athugasemdir við starfsleyfið. Valgeir segir þessi mál vera í hinum mesta ólestri á Siglufirði. Um sé að ræða loft- mengun og sjávarmengun sem skemmi fyrir fuglalífi. „Á sumrin í logni og stillum ligg- ur reykjarský yfir bænum. Þessu mega íbúarnir anda að sér. Þá er gífurleg mengun frá skipum og grút- arskánin er sem draugur á firðin- um. Hún fýkur síðan fram og til baka og veiðir fuglana. Þraátt fyrir að lög um mengun sjávar séu mjög skýr þá eru þau þverbrotin ár eftir ár,“ segir hann. Fjölskylda Valgeirs er með æðar- varp sitt í austanverðum Siglufirði. Valgeir segir að eftir að síldin hvarf hafi varpið komið upp. Loðnuveið- arnar hafi síðan sett strik í reikn- inginn á ný. „Við eigum austanverðan Siglu- fjörð. Æðarvarp sem ég og fjöl- skylda mín höfum byggt upp er eyðilagt ár eftir ár. Það er algengt að um 80% af æðarungunum drepist vegna grútarmengunar frá verk- smiðjunni og fiskiskipum. Við höf- um rætt okkar í milli að rétt væri að fleyta grút af Siglufirði og koma fyrir í Tjöminni í Reykjavík. Það er hætt við að einhverjum brygði þá í brún,“ segir Valgeir. Hann segist munu berjast í mál- inu eins og þurfi til að koma skikk á málin. „Ég mun gera alvarlegar athuga- semdir við þessi drög að starfsleyfi. Þarna er miklu ábótavant og ég sé ekki annað en það verði sami meng- unarvandinn áfram,“ segir Valgeir. -rt Laugavegi 49 simar 551 7742 og 561 7740 Frá Siglufirði þar sem bæði loftmengun og sjávarmengun hrjáir menn og dýr að sögn Valgeirs. Síldveiðar eru nú í fullum gangi. Afrakstur norsk-íslenska síldarstofnsins færir víða björg í bú og peningalykt er í loftinu. Vertíðarlok nálgast nú og sjávarútvegsráðherra hefur gefið út reglugerð sem kveður á um að leyfi til síld- veiða falli niður um mánaðamótin enda heildarafla þá væntanlega náð. Hér er verið að landa úr Grindvíkingi GK á Seyðisfirði sl. mánudag. DV-mynd Jóhann Símaskráin 1997 er komin út Nýja símaskráin tekur gildi Mundu etftir afhendingarmiðanum og náðu í nýju símaskrána inn 30. maí strax I dag. ! Nýjja símaskráin -útbreiddasta bók á íslandi POSTUR OG SÍMI HF

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.