Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1997, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1997, Qupperneq 10
10 FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1997 Spurningin Hvaö fannst þér um tap ís- lenska handboltalandsliös- ins gegn Ungverjum í gær? Hrafnkell Smári Bjarnason nemi: Það var leiðinlegt. Gfsli Ásgeir Hólmgeirsson nemi: Mér fannst mjög leiðinlegt að sjá það. Haraldur Þorkelsson hugbúnað- arfræðingur: Það hefði verið skemmtilegra að vinna. Matthías Guðmundsson hugbún- aðarfræðingur: Þetta var mjög gott tap. Hrafnkell Óskarsson nemi: Ég vonaðist eftir sigri. íslendingar eru betri en Ungverjar en þetta fór illa. Halldór Berg Sigfússon nemi: Þetta var vont. Lesendur Ný heimsmynd Rússland nottærir sér sérstööu sína sem fyrrum annaö stórveldi heims. - Rússneskir valdamenn gleöjast. Magnús Einarsson skrifar: Undanfarið hefur baktjaldamakk stjómenda stórvelda verið að koma í ljós. Hvað tekur við af kalda stríð- inu er nú að skýrast. Heimsmyndin skiptist í ijögur eins konar veldi: Austurbandalagið (Kina, Rússland, Indland o.fl.), múslima, Evrópu og Bandaríkin. Viðskiptastríð og hem- aður verður á milli þessara blokka. Bretland er miðjan í pólitík heims- ins, það endurspeglar því þróun í stefnum milli austurs og vesturs. Kosningamar í Bretlandi og stórsig- ur Verkamannaflokksins sýnir að millistéttin vill losa sig við aðalinn og sameinast Sambandsríki Evrópu. Bretar komu í veg fyrir að Hitler næði að sameina Evrópu. Skipti þeir um skoðun nú er lag fyrir stórt Evrópuríki sem hefði í fullu tré við Bandaríkin annars vegar og fyrrn- efnt austurbandalag hins vegar. Evrópusambandið virðist tengjast Asíu og Afriku. Sú er a.m.k. til- hneigingin á viðskiptasviðinu. Rússland er að notfæra sér sérstöðu sína sem fyrram annaö mesta stór- veldi heims. Jeltsín sem guðfaðir núverandi markaðskerfis rær aö því öllum áram að Rússland gegni lykilhlutverki til móts við Banda- ríkin. Rússar stefna á inngöngu í Evrópusambandsríkið með fjár- stuöningi Þjóðverja og Frakka. Þeir róa einnig undir múslímsk- um ríkjum með vopnum á meðan Bandaríkjamenn gera það sama gagnvart ísrael. Ljóst er að ísrael verður skotspónn múslíma um leið og Bandaríkin hættir að styðja það. Líklegt er að þríhymingurinn í austri noti múslíma þá til að koma höggi á Vesturlönd. Salman Rushdie gaf út bókina „Söngva Satans" þar sem hann lýs- ir áliti vestrænnar menningar á miðaldamyrkri múhameðstrúar. Múslímar eru stöðugt að sækja í sig veðrið. Það eina sem aftrar þeim að segja Vesturlöndum heil- agt stríð á hendur (aðallega Banda- ríkjunum og ísrael) er að þeir hafa ekki nógu sterka bakhjarla. Með samþykkt Rússlands, Kína og Ind- lands um einhvers konar hernaðar- lega samvinnu kann þetta að breyt- ast. Þama virðist blasa við nýtt, kalt stríð þar sem Evrópa sem sam- bandsríki verður miðpóllmn. En eins- og stjómmálamenn vita era Bandaríkin stöðugt að einangrast því Evrópa hefur æ meiri tilhneig- ingu í austurátt. ísrael getur barist með hjálp Bandaríkjanna núna þótt ómögulegt sé að segja til um hvenær það einangrast algerlega. Það er ljóst að Rússar eru komnir aftan að Bandaríkjunum. Bretland er ekki lengur heimsveldi. Það er bara Evrópa. Er örninn sestur? Jörundur Guðmundsson skrifar: Skollaleikur í Garðabæ, þar sem séra Örn Bárður og skósveinar hans léku aðalhlutverkið, skaðar þjóðkirkjuna. Látið hefur verið að því liggja að skósveinarnir í Garða- bænum og þeirra kandídat hafi ekki náð þeim árangri sem vænst var vegna skiptingu kjörmanna. - Skoðum þetta nánar. Samtals er um að ræða 34 kjör- menn, sem skiptast þannig: 14 í Garðabæ, 10 á Álftanesi og 10 í Vatnsleysustrandarhreppi. Séra Bjami fékk 17 atkvæði, séra Öm 11 og aðrir minna. Þama kemur í ljós að 3 af 14 kjörmönnum Garðabæjar kusu ekki Öm Bárð! Hvað var nú til ráða? Jú, það skulu þvingaðar fram kosningar hvað svo sem cilmenningsálitið seg- ir. Þetta er allt löglegt, mikil ósköp. En algjörlega siðlaust. Eða hvað hefðu skósveinarnir sagt ef þeirra kandídat hefði unnið og Álftanes eða Vatnsleysuströndin hefðu heimtað almennar kosningar og farið af stað með undirskriftasöfn- un? Ég þekki ekki séra Öm Bárð, en að hann skuli samþykkja aö taka þátt í þessum leik klíkunnar segir mér það sem ég þarf að vita. Þetta eru mennimir sem skaða Þjóð- kirkjuna og grafa undan trúverðug- leik hennar. - Gleðilegt fyrir séra Örn að komast í embætti á þennan hátt? Það fólk sem ekki sættir sig við það siðleysi og þær aðfarir, sem hér er lýst, á valkost. Að mínu mati góðan valkost. Það er Hans M. Haf- steinsson. Þar fer ungur maður með ferskar og góðar hugmyndir sem ekki síst ungt fólk kann að meta. Nú verður kosið um stöðu aðstoðarprests. Er ekki eðlilegt framhald af skollaleiknum að pottaklíkan láti okkur hin vita hvað við eigum að kjósa? Það spar- ar bæði tíma og peninga. Sameining Ágúst J. skrifar: Við heyram sífellt um ný og ný tilbrigöi af sameiningartilraunum vinstri flokkanna. Raunar bara Al- þýðuflokks og Alþýðubandalags. Kvennalistinn er ekki með í spilinu, þar era svo skiptar skoðanir um til- verarétt samtakanna, að lítið er að marka bollaleggingar til þessa. Það er ekkert nýtt að heyra að Þjóðvaki sé genginn sér til húðar og nú eigi að leggja allt kapp á að sam- eina A-flokkana í einn trúverðugan jafnaðarmannaflokk. Hitt er afar ótrúverðugt að A-flokkamir geti [L1§11M[2)Æ\ þjónusta allan í síma 5000 kl. 14 og 16 vinstrimanna blekking Fundur I Kornhlööunni um ný samtök vinstri flokkanna. - Nýtt fólk til for- ystu, eöa... sameinast án þess að alveg nýtt fólk fáist þar til forystu. Hvemig ætti líka að stofna til nýs flokks á nýjum grunni án þess að nýtt fólk veljist til forystu? Erum við ekki búin að fá nóg af uppstokk- un flokkakerfisins með uppbrotum úr gömlu flokkunum þar sem þreyttir pólitíkusar hafa pantað andlitslyftingu en orðið að þola nið- urlægingu og endað sem niðursetn- ingar í nýja flokksbrotinu? Vestfirðingar á faraldsfæti - suður Gestur skrifar: Það liggur nú nokkuð ljóst fyr- ir að Vestfirðir veröa aldrei sam- ir eftir hin hatrömmu verkfóll sem háð era þessa dagana. En það þurfti svo sem ekki verkföll til. Smám saman hefúr verið að fjara undan Vestfjarðakjálkan- um öllum, bæði af mannavöld- um og náttúrannar. Það er líka komið í ljós að margir íbúar Vestfjarða era á faraldsfæti suð- ur. Það yrði áreiðanlega besta lausnin fýrir íbúana sjálfa, svo og þjóðarbúið, að sameinast um að aðstoða Vestfirðinga við að yfirgefa heimahagana að fullu. Marshallað- stoð misvirt í Evrópu Magnús Guðjónsson skrifar: Það kemur fram í fréttum þessa dagana, einmitt þegar ráðamenn Evrópuríkja ásamt forseta Bandaríkjanna era aö minnast Marshallaðstoðarinnar við Evrópu eftir heimsstyrjöld- ina síðari, að þessi aöstoð hafi nú ekki verið svo mikilvæg þeg- ar allt kemur til alls. Evrópm-ík- in hafi verið farin að rétta úr kútnum sjálf strax að stríðinu loknu. Hvílíkt endemis rugl er hér á ferð! Að halda þessu fram er ekkert annað misvirðing viö þessa mikilvægu aðstoð Banda- ríkjanna við Evrópu. Sjaldan launar kálfúr ofeldi, segir líka máltækið. Stutt varðhald fyrir manndráp Margrét Jóliannsd. hringdi: Ökuníðingur einn sem ók (drukkinn að vísu) á par í mið- bæ Reykjavíkur á síðasta ári hef- ur nú verið dæmdur í aðeins 8 mánaða varðhald. Þama var stúlka drepin og maður stórslas- aður. Ökuníðingurinn var búinn aö sæta refsingu tvisvar áöur, og nú skildi hann parið eftir í blóði sínu á götunni og ók á brott. Era svona dómar til þess fallnir að fólk virði dómskerfið? Öragglega ekki. Dómar fyrir manndráp hér á landi og einnig fyrir líkams- árásir era of vægir. Ofbeldis- mönnum á að refsa en ekki verð- launa þá með nánast fortölum. Jónssonur eins og Jónsdóttir Hildur skrifar: Mér þykir einkennileg þessi venja sem er orðin fost í málinu, að skrifa drengi (raunar alla karlmenn) „son“ en ekki „son- ur“, t.d. Jónssonur, líkt og gert er um konur (Jónsdóttir o.s.frv.). Þessi hefð að karlar séu „Jóns- son“, „Einarsson", o.s.frv. virkar sem eins konar ættarnafh, og þannig spyrja margir útlending- ar sem hafa aflað sér nokkurrar þekkingar í íslensku. Þeir spyrja sem svo: Hví er þá ekki skrifað „Jónsdóttur" (þ.e. þolfallið notað líkt og hjá karlmönnum)? - Get- ur einhver svarað þessu? Hækkun atvinnuleysisbóta: Græna Ijósið vantar Haukur hringdi: Ég var að fá útborgaðar at- vinnuleysisbætur frá stéttarfé- lagi mínu sem er VR. Ég fékk ekki þá hækkun sem tilskilin var eftir nýjustu samninga. Svarið sem ég fékk var það, að ekki hefði enn fengist „grænt ljós“ frá Félagsmálaráðuneytinu. Þetta finnst mér afar einkenni- legt ef rétt reynist. Vonandi verður þetta leiðrétt en eins og fólk veit átti þessi hækkun að ná afur til marsmánaðar sl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.