Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1997, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1997, Qupperneq 11
FOSTUDAGUR 30. MAI 1997 Frumflutningur menning Sinfóníuhljómsveit íslands hélt tónleika 'í Hallgrímskirkju í gær- kvöldi. Á efnisskránni voru orgel- konsert eftir Hjálmar H. Ragnars- son og sinfónía nr. 3 í c-moll eftir Saint-Saéns. Einleikari var Hörður Áskelsson en stjórnandi Roy Good- man. Konsertar fyrir orgel og hljóm- sveit eru sjaldheyrðir, enda ekki á allra færi að skrifa þess háttar tón- list. Tónskáldið verður að búa yfír hárfinni smekkvísi og hafa djúpan skilning á eðli orgelsins og hljóm- sveitarinnar. Því eins og Hjáhnar H. Ragnarsson segir sjálfur í efnis- skrá tónleikanna: „Orgelið er ... eins og heil hljómsveit og þess vegna mikil ögrun í þvi fólgin að tefla því gagnvart stórri sinfónískri Tónlist Jónas Sen sveit.“ Það þarf nefnilega ekki mik- ið til að útkoman hljömi eins og einvígi á milli orgeÚeikarans og hljómsveitarstjórans - sem endar með því að þeir drekkja hvor öðr- um í óskiljanlegum gný. Sérstak- lega í Hallgrímskirkju, þar sem endurómunin er svo mikil að leik- ur sinfóníuhljómsveitar vill brengl- ast - stundum allverulega. Sem betur fer er ekki annað hægt en að óska Hjálmari H. Ragn- arssyni til hamingju með konsert- inn sinn; hann hefur stýrt fimlega fram hjá öllum hættum og hvorki látið hljómsveitarstjórann né orgelleikarann ögra hvor öðrum að óþörfu. Enda féllust þeir í faðma að verkinu loknu. Hörður Áskelsson lék Hjálmar H. Ragnarsson: Til hamingju með orgelkonsertinn. líka óaðfinnanlega á orgelið og sömuleiðis var leikur Sinfóniunnar hinn glæsilegasti. Konsertinn er í þremur hlutum sem mynda eina samhangandi heild. Fyrsti kaflinn er hraður og kraftmikill; sama stefbrotið heyrist aftur og aftur í ýmsum útgáfum og er uppbyggingin öll svo snyrtileg að manni , leiðist ekki eitt /^P augnablik. Svona ' þrástefjun er annars býsna vinsæl i nútíma- tónlist og tekst ekki alltaf sem skyldi. Formið þarf að vera nógu margbreytilegt til að tónlistin hljómi ekki eins og suð hakkavél. Hjálmar er greinilega yfir þetta hafinn - hvergi er ofgert í verki hans. Að mati undirritaðs er annar þáttur konsertsins sá áhrifarík- asti. Hann er mjög hægur, sam- anstendur aðallega af löngum nótum og hljómum. Andrúmsloft- ið er innhverft og íhugult og er því þriðji hluti verksins, sem er hraður, ofsafenginn og glæsileg- ur, í skemmtilegri mótsögn. Siðara verkið á efhisskránni var Sinfónía nr. 3 í c-moll eftir Saint- Saéns. Hún naut sin ekki eins og vert var í öllu bergmálinu í Hallgrímskirkju. T.d. voru ýms- ar milliraddir, sem eiga að heyr- ast skýrt og greinilega, víðs fjarri. Og einhvern veginn pass- aði ekki að spila rómantískt verk á eftir kaldri heiðríkjunni í orgel- konserti Hjálmars. í samanburði við hann hljómaði sinfónían eins og tímaskekkja - draugur úr fortíðinni sem á fyrir löngu síðcm að vera farinn upp til himna. Gaman að lifa á hugmyndafluginu Ingveldur Ýr Jónsdóttir mezzósópransöng- kona hefur verið á faraldsfæti síðan hún lauk söngnámi og sungið í óperuhúsum í Austur- ríki, Frakklandi og víðar. En í sumar langar hana mest til að syngja fyrir landa sína á tón- leikum og er nú að leggja upp i tónleikaferð um landið. „Ég byrja á að fara vestur með Jónasi Ingi- mundarsyni og syng á Ísafírði kl. 16 á laugar- dag og á Stykkishólmi á mánudagskvöldið kl. 21,“ segir hún. „Það verða tónleikar af gerðinni „Við slaghörpuna". Síðan er ég að skipuleggja ferð um landið með eigin sumardagskrá ásamt Kristni Emi Kristinssyni píanóleikara. Við byrjum sennilega í Reykholti, förum svo norð- ur og austur um. Við hugsum okkur að halda bæði heila tónleika og bjóða líka upp á styttri dagskrár. Ég hef skotist á ýmsa staði til að syngja en aldrei farið svona hringferð. Það hefur verið draumur minn lengi að fara um landið og syngja fyrir fólk í þeirri nálægð sem litlir salir bjóða upp á. Auðvitað er líka upplifun að syngja uppi á sviði í ópem langt frá áhoifendum innan um viðamikil leik- tjöld, en þetta á betur við mig.“ Að sögn Ingveldar era dagskrámar tvær talsvert ólíkar. „Dagskráin með Jónasi er klassískari; dagskrá okkar Kristins er létt- ari og sumarlegri. Þar ætla ég til dæmis að syngja lög eftir Sigfús Halldórsson og lög úr söngleikjum. Ég er með stórt úrval af lögum og dagskráin verður svolítið breytileg frá einum stað til annars. Svo verðum við Kristinn með tón- leika í Sigurjónssafni í júlí. Þar ætla ég að syngja öll uppáhaldslögin mín!“ Ótroðnar slóðir „Það hefur verið gaman að kynnast „slaghörpunni“ með Jónasi," heldur Ingveldur Ýr áfram. „Ég hef komist að því hvað það getur verið miklu skemmtilegra að spjalla um tónlistina og inni- hald hennar við áheyrendur en að stilla sér bara upp og syngja. Mig langar til að halda því áfram.“ - Verðurðu með lög eftir Kurt Weill? „Já, nokkur, en ég ætla að taka hann fyrir sérstaklega næsta vetur, búa til dagskrá með lögum hans eingöngu." Margt er í bígerð hjá Ingveldi Ýri næsta vet- ur í óperuhúsum heima og erlendis. Tónleik- unum verður stungið inn þegar tími vinnst til. „Ég hef alltaf verið hrædd um að tapa af verkefnum erlendis við að flytja heim,“ segir hún. „Samt ákvað ég að láta reyna á það og er mjög ánægð með hvemig það hefur þróast. Ég er til dæmis að skipuleggja tónleikaferð um Bandaríkin næsta vetur, einnig er spennandi frumflutningur á ópem í London á döfinni og Perth-óperan í Ástralíu vill fá mig með tón- leika til sín.“ - En þú varst að syngja í Ástralíu í vetur sem leið - vora andfætlingar svona hrifnir af þér? „Það virðist vera - og ég af þeim! Mér fmnst gaman að fara ótroðnar slóðir - þess vegna hef ég bragðið út af þeirri hefð- bundnu leið söngvara að þræða óperahúsin. Fyrir nokkrum árum hélt ég að það væri toppurinn á tilverunni. Ég vil búa hér heima og breyta svolítið um farveg í mínu starfi. í kapphlaupinu við velgengnina er auðvelt að týna sjálfum sér, og ég hef fundið eftir að ég kom heim aftur að það er mér jafn mikils virði að syngja fyr- ir lítinn hóp af fólki og að syngja í stóru óperuhúsi í heimsborg. Það gefur mér alveg jaöi mikið, ef ekki meira, og ég hlakka mikið til tón- leikaferðarinnar í sumar. Mér finnst gaman að þurfa að nota hug- myndaflugið til að skapa mér verk- efni.“ Ingveldur Ýr Jonsdottir - langar til aö syngja fyrir landa sína. DV-mynd E.ÓI. Fyrirlestrar á Söguþingi Á dagskrá íslenska söguþingsins á morgun, laugardag, eru sex stakir fyr- irlestrar í Hátiðarsal Háskóla íslands sem eru opnir almenningi. Eftir að dagskrá var prentuð bættist Jesse Byock prófessor við Kaliforníuháskóla í hóp fyrirlesara, frægur maður af fræðiritum um íslenskt samfélag á miðöldum. Hins vegar fellur niður fyr- irlestur Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra. Endanleg dagskrá lítur þá svona út: Kl. 9 Jesse Byock: Egils saga: a social memory Kl. 10.15 Guð mundur Hálf danarson dós ent: Þjóð og minningar. Kl. 11.15 Stefán Karlsson forstöðu- maður Stofnunar Árna Magnússonar: ís- lensk bókagerð á miðöld- um. K1 13.30 Þórhallur Vilmundarson prófessor emeritus: Ömefni og saga. Kl. 14.30 Inga Huld Hákonardóttir sagnfræðingur: Konur og kirkja, menningarheimur og trúarsýn bænda- kvenna á 19. öld. Kl. 15.30 Jóhannes Nordal, fyrrver- andi seðlabankastjóri: Efnahagslegt sjálfstæði íslendinga. Styrkir úr Listdanssjóði Eftir nemendasýningu Listdans- skóla íslands á laugardaginn var vora veittir styrkir úr Listdanssjóði Þjóð- leikhússins sem var stofnaður 1980 af Sveini Einarssyni, þáverandi þjóðleik- hússtjóra. Styrknum er ætlað að vera hvatning og viðurkenning fyrir góðan árangur í listdansi. Fimm styrkir voru veittir að þessu sinni og þá hlutu: Anna Sigríður Guðnadóttir, Gunnlaug- ur Egilsson, Kristín Una Friðjónsdóttir og Sonja Baldursdóttir, sem öll eru nemendur í Listdansskóla íslands, og Kári Freyr Björnsson sem stundar nú nám við Sænska ballettskólann í Stokkhólmi. Þangað fer Gunnlaugur einnig til náms í haust. Ákveðið hefur verið að endurtaka nemendasýninguna á sunnudaginn kl. 14 í Þjóðleikhúsinu. Miðaverð er 1000 kr. Fyrsta sýning Beru í Sví- þjóð Bera Nordal opnaði sína fyrstu sýn- ingu sem forstöðumaður Malmö Kon- sthall í gær. Það er Jaume Plensa myndhöggvari frá Barcelona sem sýn- ir verk sín úr málmi og gegnsæju polyester. í kynningu segir að hann reyni ekki aö ná sambandi við skoð- andann með eiginleikum efnisins eða fegurð formsins heldur stefni hann að því að vekja óróa hjá áhorfendum sín- um og fá þá til að hugsa... Andblær Sjötta heftið af tímaritinu Andblæ er komið út, fullt af forvitnilegu efhi að venju. Ritstjóri er Þorvarður Hjálmars- son skáld. Meðal höfunda era topp-nöfn eins og Kristj- án Karlsson, Þórður Helga- son, Matthías Johannes- sen, Þóra Jónsdóttir og Knut ödegárd, sem öll eiga ljóð í heftinu, og urmull minni spá- manna. Ljóð eru yfirgnæf- andi í þessu hefti; aðeins’ eru þrjár smásögur og ein veigamest,' „Sjóferð", vel heppnuð raunsæissaga um fyrstu sjóferð ungs manns eftir Guðríði Lillý Guðbjörnsdóttur. Skemmtilega truflandi er líka „Grasa- ferð í dagslok" eftir Ólöfu Pétursdóttur sem einnig á ljóð i heftinu. Áhugasamir komast í samband við Andblæ með því að senda orðsendingu í Pósthólf 1542,121 Reykjavík. Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.