Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1997, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1997, Síða 12
12 FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1997 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK, SlMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., Helgaiblað 200 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgialds. Landi og þjóð til sóma íslenska karlalandsliðið í handknattleik tapaði með eins marks mim fyrir Ungverjum í átta liða úrslitum á heimsmeistaramótinu í Japan í gær. Liðið féll því með sæmd eftir frábæra frammistöðu það sem af er mótinu. Þátttöku liðsins í keppninni er ekki lokið því það á eftir að keppa um endanlegt sæti í hópi þeirra liða sem rað- ast í 5.-8. sæti mótsins. Þjóðin er stolt af frammistöðu landsliðsmannanna sem hafa leikið af miklum styrk. Leikgleði hefur einnig einkennt hópinn og hún skilar árangri. íslendingar hafa því enn staðfest styrk sinn í handknattleik. Það er ekki hlaupið að því að vera meðal átta bestu þjóða í heimi í þessari íþróttagrein. Með þeim árangri eru íslendingar langt ofan við fjölmennar þjóðir sem leggja mikla áherslu á greinina. Sigur í undanriðli keppninnar og frammistaða í sext- án liða úrslitum sýna getu liðsins. Meðal þeirra lands- liða sem lögð voru að velli í riðlinum var sterkt lið Júgóslava og lið Norðmanna í sextán liða úrslitum. Þá var minnsti hugsanlegur munur á ungverska og íslenska liðinu í gær. íslendingar hafa löngum teflt fram sterku handknatt- leikslandsliði. Árangurinn nú er þó með þeim besta sem náðst hefur. Góður árangur landsliðsins hefur tvímæla- laust áhrif á þá sem leggja stund á þessa íþróttagrein. Það styrkir félagsliðin sem aftur gefur af sér sterkara landslið. Landsliðsmennimir hafa lagt hart að sér við æfingar. Sú vinna skilar sér á því heimsmeistaramóti sem nú stendur yfir. Þorbjöm Jensson, þjálfari liðsins, hefur náð góðum árangri enda er efniviður hans góður. Það sem honum hefur tekist að þessu sinni er að láta liðið blómstra á réttum tíma. Stundum hefur það hent að íslenskt lið hef- ur náð mjög góðum árangri rétt fyrir stórmót og vænting- ar því verið miklar. Nú voru væntingamar hóflegar og góður árangur liðsins því enn gleðilegri. Hið nauma tap landsliðsins gegn Ungverjum þýðir að liðið fær ekki rétt til að leika um verðlaunasæti á mót- inu. En nálægt því komst liðið og það er óumdeilt að frammistaða þess hefur verið góð. Þegar svo vel gengur fýlgist þjóðin spennt með og menn hafa ekki hikað við að fara á fætur um miðjar nætur til þess að fylgjast með leikjum liðsins. Þetta vita landsliðskempumar enda hafa þeir fengið fjölmargar árnaðaróskir að heiman. í hópíþrótt sem handknattleik reynir á samvinnu manna. Menn styðja hvem annan í sókn jafnt sem vörn. í undangengnum leikjum hefur samstarf hópsins, góður liðsandi og leikgleði verið áberandi. Þetta skilar sér til ungra íþróttaiðkenda, hvort sem þeir leggja stund á handknattleik eða aðrar íþróttagreinar. Með framkomu sinni og árangri em landsliðsmennimir í handknattleik góð fyrirmynd. Unga fólkið lærir að leggja sig fram og sér að árangur ræðst af því. Þá lærir það og að vinna saman og um leið það sem ávallt er nauðsynlegt í íþrótt- um, að taka jafnt sigri sem ósigri. íslendingar munu því taka vel á móti landsliðsmönn- unum þegar þeir koma heim eftir helgina. Góður árang- ur á alþjóðlegu stórmóti í handknattleik, sjálfu heims- meistaramótinu, er staðreynd. Mörg undanfarin ár hef- ur landsliðshópur okkar í handknattleik staðið hvað fremstur hérlendra íþróttamanna. Árangurinn í Japan sýnir að svo er enn. Landsliðshópurinn í Japan fær því baráttukveðjur að heiman. Frammistaðan er til fyrirmyndar. Jónas Haraldsson „Engin samkeppni er um sjúkiinga. Sjúkrahúsin skipta með sér bráðavakt annan hvern dag.“ Sparnaður í heil- brigðisþjónustu - nokkur dæmi uppi var, að halda Fæðingarheimilinu opnu, hvað sem það kostaði. Hér er skólabókar- dæmi um „raunveru- legan sparnað“ án þess að um „niðurskurð“ á heilhrigðisþjónustu sé að ræða. Krafa á sjúkra- húsin um aðhald Nú eru sjúkrahúsin í Reykjavík búin að skipuleggja sumarlok- anir og krafa er uppi um aðhald og sparnað sem þau geta naumast orðið við. „Fámennið á íslandi er slíkt að tvö „ hátæknisjúkrahús “ sitt hvorum megin við Öskjuhlíðina, nýta hvort fyrir sig ekki nógu vel þessa 13 milijarða, sem rekstur þeirra kostar samtals árlega.“ Kjallarinn Pétur Jónsson borgarfulltrúi í Reykjavík Þegar fæðingar fluttust á einn stað í Reykjavík spöruðust stórar fjárhæðir. Spamaðurinn varð til við það að konur hættu að fæða börn sín á tveim stöðum í Reykjavík, sitt hvor- um megin við Ei- ríksgötuna. Fjár- hæðir spöruðust sem námu um helm- ingi rekstrarkostn- aðar Fæðingarheim- ilis Reykjavíkur síð- asta heila árið sem það var rekið. Mörgum fannst þetta afturför þar sem valkosturinn, sem Fæðingar- heimilið bauð, var ekki á Kvennadeildinni í fyrstu. Lengi var barist í því að halda rekstri á háðum stöðunum því að það var talið eina leiðin til aö valkostur gæfist konum við fæðingu bama sinna. Reksturinn endurskipu- lagöur Til þess að þessi breyting tækist þurfti að sanna fyrir konum að um annan möguleika gæti verið að ræða. Þetta var gert með því að starfsfólk og stjórnendur á Kvennadeild Landspítalans komu upp sérstakri þjónustu, svipaðri og bauðst á Fæðingarheimilinu. Þessi valkostur (þ.e. MFS-þjón- ustan) er kannski ekki alveg sá sami, en engu að síður góður val- kostur. Þá fyrst hætti sú krafa, sem Möguleikamir á að takast á við sjúkdóma aukast stöðugt, og kröf- ur samfélagsins um að við því sé brugðist aukast líka. Biðlistar lengjast. Eru sumarlokanir í þessum mæli raunverulega rétta aðhalds- leiðin. Aukin samvinna sparar peninga Stundum er rætt um aukna samvinnu sjúkrahúsanna á land- inu. Einnig er oft rætt um að sam- eina ýmsa þjónustuþætti á sjúkra- húsunum í Reykjavík og e.t.v. á höfuðborgarsvæðinu öllu. En þetta em oftast orðin tóm í hátíðarræðum og fallegum skýrsl- um, Eins og af ofannefndu dæmi sést er eina raunvemlega hagræðingin og sparnaðurinn fólginn í að sam- eina einstaka þjónustuþætti sjúkrahúsanna, helst í sama húsi, allavega undir sömu stjóm. Af hverju er þetta ekki gert? Ástæðan er í raun einföld. Hún virðist vera, þegar öllu er á botnin hvolft, togstreita einstakra emb- ættismanna. Einnig sú einkenn- ilega meinloka, sem sumir ráða- menn eru haldnir, að telja, að sjúkrahúsin í Reykjavík eigi að vera í samkeppni. En samkeppni um hvað, má spyrja. Fagleg samkeppni er þegar til staðm, þ.e. við sjúkrahús erlendis. Engin samkeppni er um sjúklinga. Sjúkrahúsin skipta með sér bráða- vakt annan hvern dag. Sjúklingar verða að fara á það sjúkrahúsið, sem er á vakt hverju sinni. Þeir ráða litlu sem engu um það sjálfir. Samkeppni um peninga? Eina raunverulega samkeppnin, sem sjúkrahúsin eiga í, er sam- keppni um takmarkað skattfé borgaranna. Fámennið á Islandi er slíkt að tvö „hátæknisjúkrahús", sitt hvor- um megin við Öskuhlíðina, nýta hvort fyrir sig ekki nógu vel þessa 13 milljarða sem rekstur þeirra kostar samtals árlega. En hér er dæmi um spamað sem gæti komið þessum sjúkra- húsum til góða í aukinni þjónustu við alla landsmenn. Pétur Jónsson Tilvitnun: Hér er skólabókardæmi um raunverulegan „sparnað" án þess að um „niðurskurð" á heilbrigðis- þjónusu sé að ræða. Skoðanir annarra Lögin um Seðlabankann „Um alllangt skeið hefur verið full ástæða til þess fyrir Alþingi að breyta núgildandi lögum um Seðla- bankann og veita honum aukið sjálfstæði, burtséð frá áformum Evrópusamhandsins um myntbanda- lag. ... Staða íslands sem lítils gjaldmiðilssvæðis á jaðri Efnahags- og myntbandalagsins mun útheimta afar svipaðar áherzlur í stjórn efnahags- og peninga- mála og í EMU - jafnvel enn aðhaldssamari stefnu seðlabankans, ef eitthvað er. Það blasir því við að laga verður lögin um Seðlabankann að því, sem nú er að gerast um alla Evrópu." Úr forystugreinum Mbl. 29. maí. Mistökin í menntastefnu „Mistökin í menntastefnu síðustu ára birtist gleggst í þróun fjárveitinga til Háskóla íslands. Á sama tíma og námsmönnum þar hefur fjölgað um þriðjung á sex árum, þá hafa fjárframlög verið skor- in niður. Fjölgun námsmanna er sem sé mætt með beinum niðurskurði! Þessi stefna hlýtur óhjákvæmi- lega að draga úr námsframboði, rýra gæði námsins og aðstöðu kennaranna. Afleiðingin birtist í því að erfiðara reynist að fá hæfa kennara og stúdentar finna síðm' nám við sitt hæfi.“ Úr forystugreinum Alþbl. 29. maí. Lengsta verkfallið „Okkar tilgangur hefur alltaf verið sá að reyna að fá vinnuveitendur til þess að ræða við okkur í fullri alvöru en það hafa þeir aldrei gert. Þeir eru eins og strengjabrúður hjá Vinnuveitendasambandinu. Þetta er víst orðið eitt lengsta verkfall sögunnar og hefur verið erfitt. Það virðast vera opnar allar gátt- ir fyrir útgerðina til að stunda sína starfsemi óáreitt. Félagar okkar hafa ekki hjálpað okkm- við þetta og við ekki nógu mörg til að stöðva þetta.“ Pétur Sigurðsson í Degi-Tímanum 29. maí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.