Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1997, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1997, Page 28
 > 1=3 CZ3 FRÉTTASKOTIÐ CC , LJ-J SÍMINN SEM ALDREI SEFUR S LO *=c Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Allu Imyimliiya OO ' ' 1— LTD 1— Helgarblað DV: Barist gegn kerfi og krabbameini 1 * í helgarblaði DV á morgun er birt viðtal við Öm Kjæmested í Njarð- vík sem berst við sjaldgæft krabba- mein í einstæðri meðferð í Mexíkó. Um leið berst hann við kerfið hér heima, að fá það viðurkennt að mis- tök hafi átt sér stað við greiningu og meðhöndlun sjúkdómsins. Örn missti fyrrum eiginkonu sína úr lifrarsjúkdómi og núverandi kona hans missti sinn fyrrum eiginmann í sjóslysi. Börn þeirra eiga ekki að fá að upplifa foreldramissi á ný. Umfjöllun er um Albert Mónakó- ^prins sem kemur á Smáþjóðaleikana eftir helgi. Einnig er rætt við að- standendur söngleiksins Hins ljúfa lifs i Borgarieikhúsinu. -bjb/sv Sjúkraflug frá Namibíu til íslands Einkaflugvél forseta Namibíu lenti á Reykjavíkurflugvelli á átt- unda tímanum í morgun með veikan íslending. Samkvæmt upplýsingum frá Sjúkrahúsi Reykjavíkur eru veikindi mannsins mjög alvarleg. Tæpir 13 ^.þúsund kílómetrar eru i beinni loftl- ínu milli íslands og Namibíu. -RR Laugardalslaug: Mikiö vatnstjón í morgun Mikið vatnstjón varð í Laugardagslaug í morgun þegar rúöa sprakk í lauginni. Vatn flæddi inn í kjallarann og allt stjómkerfl laugarinnar lamaðist. Þrír slökkvibOar voru á vettvangi í morgun og dældu vatni úr kjaUaranum. Ljóst var í morgun að mikið tjón var á tækjum. Þetta getur raskað undirbúningi l^vegna Smáþjóðaleikanna. -rt Ungur maður dæmdur fyrir tvær tengdar líkamsárásir í Keflavík: Réðst á vitni 21 árs Suðurnesjamaður, Arn- ar Lárusson, hefur verið dæmd- ur í 3ja mánaða fangelsi fyrir tvær líkamsárásir í apríl og des- ember á síðasta ári - þar af síð- ari árásina gegn manni sem bar vitni gegn honum í fyrra málinu. í apríl 1996 lagði ungur maður fram kæru á hendur Amari hjá lögreglunni í Keflavík. Hann kvaðst hafa verið á KafFi Kefla- vík nokkrum dögum áður. Um klukkan hálftvö um nóttina hefði sakborningurinn beðið hann um að koma inn á salerni meö sér. Þar hefði maðurinn far- ið úr jakkanum og síðan kýlt sig umsvifalaust í andlitið. Kærand- inn bsir að er hann laut fram á við eftir höggið hefði árásarmað- urinn sparkað i andlit sitt. Ein framtönn brotnaði og tvær aðrar losnuðu. Auk þess kom sár á vör og blóðpollur myndaðist á gólf- inu. Þegar málið var tekið fyrir mótmælti sakborningurinn því að hafa slegið eða sparkað í fóm- arlambið. Hann viðurkenndi hins vegar að hafa verið vondur út í manninn þar sem hinn hefði stigið í vænginn við kæmstuna hans nokkrum dögum áður. Kunningi kæranda, mannsins sem varð fyrir árásinni, var eitt þeirra vitna sem bar gegn ákærða. Vitnisburður hans og nokkurra annarra ungra manna varö síðan til þess að nægar sannanir reyndust gegn Arnari. Þann 15. desember hitti Arnar framangreindan kunningja á veitingastaðmun Strikinu í Keflavík. Hann sló manninn þá í andlitið með þeim afleiðingum að hinn fékk glóðarauga. Ákærði gaf síðan þá skýringu að honum hefði verið í nöp við kunningj- ann vegna þess að hann bar vitni gegn honum í árásarmál- inu á Kaffi Keflavík. Líkamsárásirnar vom báðar dæmdar saman - 3ja mánaða fangelsi þótti hæfileg refsing fyr- ir báðar árásirnar - sú fyrri taíd- ist stórfelld. Sakbomingurinn er jafnframt dæmdur til að greiða þeim sem missti tönn 89 þúsund krónur í skaðabætur og 120 þús- und krónur í málskostnað. -Ótt Kristín Reykdal, 92 ára, útskrifaðist úr Versló árið 1924 - fyrir 73 árum. í dag ætlar hún að mæta í sama skóla viö útskrift barnabarna sinna, þeirra Helgu, t.v., og Höllu Thoroddsen. Myndin er tekin á heimili Kristínar í gær- kvöldi. Hún sagði viö það tækifæri að 16 piltar og 2 stúlkur hefðu veriö í útskriftarhópi sínum forðum. DV hefur ekki upplýsingar um hvort Kristín er elsti núlifandi stúdentinn úr Versló. Hún sagöi hins vegar aö hún væri sú eina á lífi úr sínum útskriftarárgangi. Þegar sá hópur setti upp húfurnar var skólinn til húsa að Vesturgötu 10. VÍ er stofnaður árið 1905. DV-mynd S Þorbjörn Jensson landliðsþjálfari: Unnum þetta á liðs- heildinni „Við höfðum meiri vilja en Spán- verjar til að vinna. Þetta var spum- ingin um að spila um 5.-6 sætið eða sætta okkur við 7. eða 8. sætið. Þetta var frekar jafnt í fyrri hálfleik en við áttum svo marga góða spretti í seinni hálfleik, tókum forystu og þar við sat. Þeir hættu aö spila sem lið eftir að við náðum 2-3 marka for- ystu. Við unnum þetta fyrst og fremst á liðsheildinni og allir lögð- ust á eitt um að vinna þetta. Við töp- uðum fyrir þeim með 9 marka mun á Spánarmótinu en þau úrslit tek ég ekki alvarlega þar sem við vorum í mjög erfiðu prógrammi. Við gefum ekkert eftir á morgun," sagði Þor- bjöm Jensson landliðsþjálfari. Sýndum góöan karakter „Það er ekki hægt annað en að vera ánægður eftir svona úrslit. Við komum sterkir til leiks, reynslunni ríkari eftir tapið gegn Ungverjum. Við stóðum saman og vorum mjög einbeittir i leiknum. Markmiðið nú er að ná betri árangri á HM en áður. Við sýndum enn og aftur góðan karakter og á morgun kemur ekkert annað en sigur til greina," sagði Vcddimar Grímsson eftir leikinn. Alveg í skýjunum „Ég er í skýjunum og er alveg rosalega ánægður með að við skyld- um ná að rífa okkur upp eftir tapið gegn Ungverjum. Það var töluvert áfall að tapa þeim leik og því var mikið átak að mæta til þessa leiks og klára þetta með meistarabrag. Ef við spilum áfram eins og við gerð- um í dag blasir 5. sætið við,“ sagði Geir Sveinsson, fyrirliði. -ÞÖK/GH Hluti bílsins flaug yfir ána DV, Akureyri: „Það er algjör mildi að ekki varð þama dauðaslys, ef billinn hefði lent í ánni sem er vatnsmikil hefði ekki þurft að spyrja að leikslokum," segir Jón Konráðsson, varðstjóri lögregl- unnar, um umferðarslys sem varð við Kálfsá í Ólafsfirði í gærkvöldi. Júgóslavneskur knattspyrnumað- ur frá Siglufirði var þar á ferð með konu sína og tvö böm. Við ána missti hann stjóm á bílnum sem fór fram að 6-7 metra háum kanti. Bíll- inn nánast brotnaði í tvennt og flaug yfirbygging bílsins með fólkinu i yfir ána og hafnaði á bakkanum hinum megin. Fólkið var allt í bílbeltum og slapp svo til ómeitt, var aðeins mar- ið eftir bilbeltin. -gk L O K I Veðrið á morgun: Kaldi eða stinnings- kaldi Á morgvrn verður sunnanátt, kaldi eða stinningskaldi. Rign- ing eða súld verður sunnan- og vestanlands en þurrt á Norð- austurlandi. Veðrið í dag er á bls. 36 Hióladagur Opel og íþróttlr fyrlr alla laugardaglnn 3i.maí. opEue IMÍITII nlll ILLI -týMetolmefki

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.