Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1997, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1997, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 1997 Fréttir Ingvi Hrafn Jónsson sakaður um óheilindi í samkeppni um Langá á Mýrum: Stunga í bak okkar - segir Runólfur Ágústsson lögfræðingur Langá á Mýrum # Borgarnes í Ingvi Hrafn Jónsson, fyrrum fréttastjóri, Runólfur Ágústsson lög- fræðingur og tengdafaðir hans hafa i 3 ár rekið saman hlutafélagið Langá hf. sem er leigutaki Langár á Mýrum út þetta ár. Næsta ár verður Ingvi Hrafn einn með ána. Eftir að Langá hf. hafði boðið 17,7 milljónir króna i ána til næstu 5 ára og gert samningsdrög sem skrifað var undir með fyrirvara fór Ingvi Hrafh einn og bauð 23 milljónir króna með bankaábyrgð sem Arn- grímur Jóhannsson í Atlanta-flugfé- laginu ábyrgist. Og Ingvi Hrafn fékk samninginn. Þegar Ingvi hafði boðið einn í ána bauð Runólfur ásamt Árna Baldurs- syni 20,5 milljónir króna í ána. „Höfum aðstoðað hann“ „Mér þótti framkoma Ingva Hrafns bakstunga. Við höfum starf- að saman ásamt tengdaföður mín- um aö þessu fyrirtæki, Langá hf., og gerðum tilboð í ána. En svo gerir Ingvi Hrafn þetta á bak við okkur. Samstarfið hefur gengið ágætlega fram að þessu. Einu vandræðin hafa verið fjár- hagsstaða Ingva Hrafns. Hann hefur staðið mjög illa peningalega og við höfum aðstoðað hann og lánað hon- um fé til þess að hann hafi getað staðið i skilum. Ekki síst þess vegna þykir okkur þetta stunga í bakið,“ Ingvi Hrafn Jónsson. sagði Runólfur Ágústsson í samtali við DV. Hann segist að ýmsu leyti skilja Ingva Hrafn því fjárhagsstaða hans sé slæm. „Hann er að reyna að bjarga sér frá gjaldþroti. Allar hans eignir eru í nauðungarmeðferð um þessar mundir, bæði jörðin hans hér við Langá og eignir í Reykjavík. Hann er þama greinilega að reyna að bjarga sér út úr þessu með miður Runólfur Ágústsson. smekklegum aðferðum gagnvart okkur. Úr þessu er ekkert við því að gera. Við munum gera upp okkar þær skuldir sem hafa orðið til vegna vanskila Ingva Hrafns meðan hann var í félagi með okkur,“ sagði Runólfur. Leiðinleg gífuryröi „Ég harma það þegar menn taka ósigri jafn illa og Runólfur gerir, sérstaklega í ljósi þess að hann er opinber embættismaður, fulltrúi sýslumanns í Borgamesi. Það fór fram opinbert útboð á ánni og mál- ið var afgreitt á fundi 21. júní. Þar fékk mitt tilboð 9 atkvæði en Run- ólfs 4. Og þegar Runólfur segir mig DV-graf ÓG skulda þeim fé þá er ég aö ganga frá mínum málum og mun ljúka þeim. Mér þykja svona gífuryrði leiðinleg. Að öðm leyti hef ég ekki meira um þetta mál að segja,“ sagði Ingvi Hrafn Jónsson við DV. -S.dór Bubbi Morthens að jafna sig: Tysonhneykslið jafnslæmt og að KR félli í 3. deild „Ég er búinn aö fylgjast með íþróttum síðan ég var gutti og sjá ótrúlegustu uppákomur - menn missa stjóm á sér í hita leiksins. Það var frægt þegar móðir eins keppanda sem tapaði barði mótherja hans með háhæluðum skóm og hann hlaut slæm sár. Þá var hlegið. En það sem Tyson gerði er auðvitað óafsakanlegt. Ég var eyðilaður í tvo daga og tók þetta mjög nærri mér. Þetta var svipað því og að KR félli í 3. deild,“ sagði Bubbi Morthens hnefaleikasér- fræðingur í samtali við DV um úr- slitaleik heimsmeistarakeppninnar á milli Evanders Holifield og Mike Tysons. Bubbi kveöst vera hálf niður- brotinn Tysons vegna eftir fólsku- verk hans í hringnum þegar hann beit stykki úr eyra andstæðingsins. Hann kveðst hins vegar ákveðinn í því að Tyson eigi refsingu skilið - hann eigi að vera dæmdur. „Ég held að boxið hafi ekki sett niður við þennan atburð - Tyson hefur hins vegar sett niður. Ég er eyðilagður maður enda er ég búinn að fylgjast með Tyson frá því hann var 15 ára. Þetta er strákur sem hefur verið einn á báti frá 10 ára aldri. Hann hefur þurft að horfa á fólk tengt honum drepið þangað til hann lenti á unglingaheimili og gamall karl ættleiddi hann. Það er því margt sem skýrir hans skap- gerðarbresti. En ég er harður á að það eigi að dæma hann. Sennilega fer hann í eins árs keppnisbann og þeir geta ekki tekið nema 10 pró- sent af verölaunafénu. En auðvitað er hann búinn aö taka út verstu refsinguna - það voru hundruð milljóna manna sem sáu þennan at- burð,“ sagði Bubbi. Hliöstætt broti Cantonas „Þetta var í raun svipað og þeg- ar Cantona reyndi að sparka i höf- uðið á áhorfanda á löiattspymu- leik,“ sagði Bubbi. „Þaö eru dæmi þess að boxari bíti í öxl en að bíta hluta af eyra af er ekki vitað um. Ljótast til þessa hefur verið talið að skalla og slá neðan beltis. En það þarf alltaf tvo til. Holyfi- eld vissi nákvæmlega hvar Tyson var veikastur fyrir. Hann skallaði hann vísvitandi. 8-9 sinnum held ég. Þetta eru sérfræðingar sam- mála um. En það er bara svo erfitt fyrir dómara að sjá svona. Hann gerði þetta alltaf þegar Miles Lane var í skugga af honum. Svona krefst rútínu og tækni. Þetta gera allir góðir boxarar. Þetta er svipað því þegar góður handboltamaður fiskar víti - hann nær því að fá andstæðinginn til að bijóta á sér. En það er fólska að skalla." Þeir munu berjast aftur Bubbi segir að Holyfield og Tyson eigi eftir að berjast aftur: „Ég er viss um að þeir gera það. Það hefur komið fram að Tyson hringdi i Holyfield og hinn ætlar að hringja til baka. Þeir eru gamlir vinir og náðu vel saman hér áður fyrr. Munurinn á þeim er fyrst og fremst i andlegu hliðinni. Tyson hefur styrkinn og aflið en Holyfield á betri andlega hlið. Tyson hefur sagt að hann sé 31 árs og sé á toppnum og eigi enga aðra leið til að sjá fyrir sér. Hann lofar því að ætla að þjálfa huga sinn. En ég vil sjá hann bæta sig í verki. Tíminn mun því leiða í ljós hve mikil einlægni er að baki og hve mikla getu hann hefur til að bæta sig. En menn mega ekki gleyma því að þetta eru atvinnumenn. Munur- inn á slíku og áhugamennsku er eins og svart og hvítt. Stefán Jón Hafstein sendi okkur Ómari nýlega skeyti þar sem hann segir aö alfar- ið eigi að banna hnefaleika. Um það get ég sagt að það hafa orðið meiri augna- og eyrnaskaðar í fluguveiðum en í áhugamanna- hnefaleikum. Á að banna flugu- veiðar? Nei,“ segir ég.“ -ótt Dagfari Kínverjar misbjóða íslendingum Það var mikið um dýrðir í Hong Kong þegar Kínverjar fengu aftur yf- irráðarétt yfir eyjunni, hundrað fimmtíu og sex árum eftir að Bretar hertóku hana. Thatcher ákvað að af- henda Kínverjum Hong Kong eftir margra ára samningaþóf. Nú eru menn hættir að beijast um landar- eignir og heimsyfirráð. Nú semja menn um það hveijir ráði yfir hin- um ýmsu löndum og þeir í Hong Kong verða að una því að erlend riki ákveði hverjum þeir tilheyra. Enginn mótmælir því svosem að Hong Kong sé kínversk að uppruna og Kínverjar fá nú eyjuna afhenta á silfurfati við hátíðlega athöfn. Prinsinn var mættur og lands- höfðinginn breski og nýju valdhaf- amir frá Peking og svo var þarna hvert stórmennið eftir annað, sam- tals um sextíu fulltrúar erlendra ríkja. Það vakti hins vegar athygli að Is- lendingar voru ekki þeim hópi. Þeir vom ekki boðnir. Morgunblaðið lét grafast fyrir um það hvort boðskort hefði borist hingað til lands en utan- ríkisráðherra staðfestir að ekkert boð hafi borist og ekki hafi einu sinni verið reynt að fá útskýringar á því. Utanríkisráðherra er meira að segja að gera því skóna að hinum Norðurlandaþjóðunum hafi ekki verið boðin og þess vegna hafi hon- um ekki verið boðiðn en þetta er bara engin skýring og er hreinasta móðgun við íslenska þjóð og þau vinabönd sem hafa verið hnýtt á milli Kína og íslands á undanforn- um áram. Kínveijar hafa boðið hverri sendinefndinni á fætur annarri frá Islandi til Kína og margir íslending- ar hafa meira að segja farið á eigin kostnað og sýnt Kínveijum vinarþel í smáu sem stóra og verið góðir við Kínverja þegar það hefur átt við. Samt er okkur ekki boðið til þess- arar stórhátíðar í Hong Kong. Hér er um mjög alvarleg mistök að ræða hjá þeim í Kína sem þeir eiga eftir að súpa seyðið af. íslend- ingar láta ekki bjóða sér svona framkomu og kannske hefur utan- ríkisráðherra ekki leitað skýringa á boðskortaleysinu af því að hann er svo reiður að hann nær ekki upp í nefið á sér. Hann hugsar Kínveijum þegjandi þörfina. Dagfari hefur heimildir fyrir því að fjarvera íslands hafi vakið mikla athygli úti í Hong Kong. Meðal þeirra sextíu fulltrúa erlendra ríkja sem vora á staðnum var spurst fyr- ir um íslendingana og menn stungu saman nefjum og skildu ekki þetta diplómatíska reginhneyksli. Hafði eitthvað komið fyrir í samskiptum ríkjanna sem olli því að íslendingar fengu ekki boðskort? Hafa Kínverjar kannske frétt að Halldór utanríkis- ráðherra er framsóknarmaður og Framsóknarflokkurinn á Islandi hefúr aldrei ályktað um kínversk yfirráð í Hong Kong? Nú þarf að leita vel að því hvort kínversk skip sigli ekki stundum inn í íslenska lögsögu og setja nýjar reglur um siglingaleiðir kínverskra skipa til að aftra þeim för og sýna þeim í tvo heima. Sýna þeim hvar Davíð keypti ölið og það verður bið á því að íslendingar þiggi aftur boð til Kína með sínar sendinefiidir eft- ir svona framkomu í garð Islands. Hér duga enginn vettlingatök. Ef Kínveijar ætla að hundsa ísland þegar miklar veislur eru haldnar er okkur að mæta. Við látum ekki bjóða okkur svona virðingarleysi. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.