Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1997, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1997, Side 9
FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 1997 9 Utlönd Albanía: Forsetinn víkur úr embætti Forseti Albaníu, Sali Berisha, hefur ákveðið að standa við kosn- ingaloforð sitt og víkja úr embætti forseta þegar ný ríkisstjóm verður mynduð i landinu. Berisha sagði fyrir kosningar að ef flokkur hans, Demókrataflokkurinn, tapaði í kosningunum myndi hann segja af sér. Þó talningu atkvæða sé enn ekki lokið var Ijóst stuttu eftir kosn- ingar að Sósíalistaflokkurinn hefði farið með sigur af hólmi í þessari fyrstu umferð kosninganna. Núverandi ríkisstjórn landsins, undir stjórn sósíalista, ásakar forset- ann um að reyna að koma í veg fyr- ir að sósíalistar taki við stjórn inn- anríkisráðuneytisins. Það er hins vegar mjög mikilvægt fyrir sósíalista að hafa yfirráð yfir því ráðuneyti eigi að takast að binda enda á þá óöld sem rikt hefúr í landinu. Tals- Sali Berisha, forseti Albaníu. maður ríkisstjórnarinnar, Vladimir Prela, sagði að Berisha forseti hefði reynt að stöðva þau áform sósíalista að setja sinn mann við stjórnvölinn í innanríkisráðuneytinu. Fréttir bárust af því á mánudag að innanríkisráðherrann, sem var úr röðum demókrata, hefði yfirgefið landið eftir úrslit kosninganna. Þær fréttir voru bomar til baka í gær og sagði Bashkim Fino, sem nú gegnir stöðu forsætisráðherra, að Berisha hefði farið fram á að Belul Celo tæki við stöðu sinni aftur en því hefði verið hafnað. Þótt sósíalistar hafi unnið fyrstu umferð kosninganna þá á innanríkisráðuneytið að vera í höndum demókrata þangað til ný ríkisstjóm hefur verið mynduð í landinu. Er það samkvæmt sam- komulagi sem gert var í mars sið- astliðnum. Reuter Konungssinnar í Albaníu söfnuöust saman í miöborg Tirana í gær og kveiktu í kosningaspjöldum Sósíalistaflokks- ins. Sögöu þeir aö þaö væri ekki rétt aö kjósendur heföu hafnaö því aö konungdæmið yröi endurreist. Um kosninga- svik heföi veriö aö ræöa. Símamynd Reuter Hóta aröbum hertum aðgerðum ísraelsk yfírvöld hafa boðað hert- ar aðgerðir ísraelska hersins bæli palestínskir ráðamenn ekki niður ofbeldisölduna gegn ísrael á her- teknu svæðunum. ísraelskir hermenn svömðu i gær Palestínumenn bera arabískan piit sem ísraelskir hermenn skutu til bana. Sfmamynd Reuter grjótkasti Palestínumanna í Hebron á Vesturbakkanum með því að skjóta gúmmíhúðuðum málmkúlum að þeim. Særðust 37 Palestínumenn í skothríðinni. Á Gazasvæðinu skutu ísraelskir hermenn til bana arabískan ungling. Arabar em örvæntingarfuflir vegna tafa á friðarumræðum. Þeir eru einnig reiðir vegna mynda sem límdar vom á gluggarúður verslana í Hebron á laugardaginn. Myndim- ar sýna Múhameð spámann í svíns- líki en svín eru óhrein í augum múslíma. Á meðan átökin stóðu yfir í Hebr- on og á Gazasvæðinu átti Netanya- hu forsætisráðherra fund með Levy utanríkisráðherra. Levy hótað af- sögn vegna stjómarhátta forsætis- ráðherrans. Þykir utanríkisráðherr- anum sem hann hafi verið snið- genginn í málum tengdum friðar- umleitunum. Vill hann sjálfur stjóma friðarviðræðunum við Palestínumenn. Talsmaðm- forsætis- ráðherrans sagði að loknum fúndin- um að ekki hefði tekist að jafna ágreininginn. Ráðherramir munu fúnda aftur til að reyna að leysa deiluna. Reuter Jimmy Stewart lést úr hjartaslagi „Bandarikjamenn misstu þjóð- argersemi í dag,“ sagði Bill Clin- ton Bandaríkjaforseti er tilkynn- ing barst í gær um að kvikmynda- leikarinn Jimmy Stewart hefði látist á heimili sínu úr hjartaslagi. Hann varð 89 ára gamall. Stewart hlaut einu sinni óskarsverðlaun. Það var fyrir leik í myndinni The Philadelphia Story þar sem hann lék á móti Katharine Hepbum. Stewart var útnefndur til verðlaunanna fjór- um sinnum til viðbótar. Hann lék í yfir 80 kvikmyndum. Reuter Sérsending af GSM-símum | á ðtrúiegu verði!!! ■ flðeins: stgr. Áður kr. 34.900,- • Fæst í fjölmörgum litum • Þyngd 21 Og • Símanúmera- birting • 70 tíma hleðsla (200 tíma fáanleg) • Möguleiki á fax/modem- tengingu fIrst CHotc ÖVrG^ pNILIP5 flöeíns: stgr. Áður kr. 59.900,- • Þyngd 169g • 85 tíma hleðsla (2ja vikna hleðsla fáanleg) • 100 númera símaskrá • Símanúmerabirting • Möguleiki á fax/modem- tengingu • Tekur bæði stórt og lítið símakort ^ BÚMM) GSM-hulstur, bílkveikjarasn og sumarbolur. Ómissandi í ferðalag'i Heimilistæki hf TÆKNI- OG TÖLVUDEILD SÆTÚNI 8 SÍMI 5691500 www.ht.is umboðsmenn um land allt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.